Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1992, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1992, Page 15
LAUGARDAGUR 7. MARS 1992. 15 fvpd'V- £ ptW'f'-*! Wm útfýr j- fyji i jpH L a m ... V. -v.V ' 11 wf Æm ' - \ 1 ggl . n MR W ; - ‘ ' /fe; ■T’T' •-~ jfcpfc- | Jgjí|jgjj M&SSSm * \ 11% | lOy/í. Wm{ jí^SiS „íslendingar hafa einfaldlega ekki enn skorið á andlega naflastrenginn við dönsku mömmu þótt næstum hálf öld sé liðin frá lýðveldisstofnun og nærri þrír fjórðu aldar frá fullveldistökunni." Bless, Danmörk Þeim sem hafa langtímum saman verið öðrum háðir reynist oft erfitt að meta hlutina á eigin forsendum þegar þeir standa loks á eigin fót- um. Þótt þjóðir hljótí formlegt sjálf- stæði er hugarfarið gjarnan áfram flötrað í böndum nýlenduherr- anna. Til dæmis halda margar slík- ar þjóðir, löngu eftir að þær hafa öðlast sjálfstæði, að miðpunktur alheimsins sé í höfuðborg fyrrum herraþjóðar, jafnvel þótt um sé að ræða afkima í veröld samtímans. Þessu má einna helst líkja við þá staðreynd að margir eru bundnir eins konar andlegum naflastreng við mæður sínar fram eftir öllum aldri og ná því ekki að sjá tilveruna með eigin augum. Þegar nýlendur öðlast sjálfstæði halda þær því gjarnan áfram óeðh- lega nánum tengslum við herra- þjóðina fyrrverandi í stað þess að horfa vítt um lönd og marka sér sjálfstæða stöðu í samskiptum við umheiminn. Nýfijáls ríki eru þannig gjörn á að apa fáránlegustu hefðir eftir gömlu nýlenduherrun- um og beina viðskiptum og menn- ingarsamskiptum til þeirra langt umfram það sem eðlilegt er eða hagkvæmt. Þetta á líka við um íslendinga. íslenskri þjóð tókst loks eftir langvarandi aumingjaskap að end- urheimta sjálfstæði sitt á þessari öld. Þá höfðu Danir fengið að kúga og kúska íslendinga í aldaraðir. Sjálfstæði fengu íslendingar ekki vegna sérstakrar góðmennsku dönsku nýlenduherranna. Þar réðu fyrst og fremst breytt viðhorf í heimsmálum vegna umbyltinga tveggja stórstyrjalda. FuUveldið fengum við undir lok fyrri heims- styrjaldarinnar þegar ný áhersla var lögð á sjálfsákvörðunarrétt smáþjóða, en fidlt sjálfstæði fyrir eigin frumkvæði í þeirri síðari þeg- ar Danir sátu án teljandi mót- spymu við fótskör þýskra nasista og gátu engin afskipti haft af ís- lenskum málum árum saman. Einstefnubraut Þrátt fyrir að íslendingar fengju fuUveldi og síðar sjálfstæði héldu þeir áfram nánum samskiptum við gömlu herraþjóðina. Mikill hluti íslenskra viðskipta fór þannig áfram í gegnum danska kaupmenn. Heildsalar keyptu gjaman vörur af Dönum þótt þær væm framleiddar í öðrum löndum og auðvitað mun hagkvæmara að kaupa þær beint frá framleiðend- um. Þetta hefur sem betur fer mik- ið breyst síðustu áratugina en vafa- laust em samt mörg dæmi um að Danir græði enn á íslandsverslun. Á nýlendutímanum var háskóU íslendinga í Kaupmannahöfn. Eftir ehdurheimt fuUveldis og sjálfstæð- is hafa ótrúlega mikU menningar- tengsl haldist við Dani. En þar hef- ur, vel að merkja, verið um ein- stefnubraut að rseða, eins og gjam- an í samskiptum fyrmm nýlendu við herraþjóð. íslendingar héldu sum sé áfram að leita fræðslu og andlegrar næringar í Danmörku. Ljósasta dæmið um þetta var að þúsundir íslendinga sóttu eins og áður framhaldsmenntun sína til Danmerkur eins og hún væri enn nafli íslensks þjóðfélags. Hin síöari ár hafa námsmenn sem betur fer farið í vaxandi mæU til annarra landa sem eru meira í þjóðbraut nútímastrauma í vísindum og Ust- um en samt leitar mikiU fjöldi ís- lenskra námsmanna enn á dönsk skólamið. Danska mamma Eftirhreytur nýlenduhugsunar- háttarins ná þó hámarki hér á landi í þeirri ótrúlegu staðreynd að enn í dag er íslenskum börnum þröng- vað til að læra dönsku í bamaskól- um. Jafnvel er eytt í það miklu meiri tíma, orku og peningum að troða dönsku í íslensk böm en að kenna þeim ensku - tungumáUð sem öUum sem eiga samskipti við aðrar þjóðir er nauðsynlegt að kunna. Nýlenduherrar hafa aUa tíð lagt einna mesta áherslu á að ræna íbúa nýlendna sinna eigin tungu, menn- ingu og trúarbrögðum og neyða þá til að nota í staðinn tungu, menn- ingararf og guöi herraþjóöarinnar. Fyrir endurreisn fuUveldisins notuðu íslendingar, ekki síst emb- ættismenn og annað svokaUað fyr Laugardags- pistill Elías Snæland Jónsson aðstoðarritstjóri irfólk þjóðfélagsins, danskíslenskt hrognamál, eins og sjá má í skjöl- um þess tíma. Dönum tókst samt sem áður ekki að eyðUeggja ís- lenska tungu. Þvert á mótí hefur hún risið upp úr dönsku forinni á þessari öld, ótrúlega hrein og tær. íslendingar gera sér auðvitað grein fyrir þvi að íslenskan er ekki vænleg til útflutnings. Engum dytti í hug að gera íslensku að skyldu- námsgrein í erlendum bamaskól- um. Jafnvel í Skandinavíu þætti slíkt fáránlegt, og það réttilega. Jafn fáránlegt er aö við skulum neyða bömin okkar til að sóa orku sinni og tíma í aö læra dönsku árum saman. Danska er útkjálka- mál í veröldinni í dag. Hún er eng- um til gagns nema Dönum sjálfum. Ekkert sem skiptir einhveiju máli er sérstaklega eða einvörðungu rit- að á danska tungu, hvorki í vísind- um né bókmenntum. Samt em ís- lensk böm neydd tíl að leggja meira á sig til að læra dönsku en ensku, hvað þá frönsku eða þýsku - svo að nefndar séu þær heimstungur sem ráðandi em og verða í alþjóð- legum samskiptum. Þetta dönskudekur kemur því ekki tU af nauðsyn. Það er þvert á móti andstætt raunverulegum þörfum þjóðarinnar nú á tímum. Ástæðan er eingöngu undirlægju- háttur gagnvart fyrrum nýlendu- hermm okkar - kannski ómeðvit- aður en jafn raunverulegur fyrir því. íslendingar hafa einfaldlega ekki enn skorið á andlega naUastreng- inn við dönsku mömmu þótt næst- um hálf öld sé hðin frá lýðveldis- stofnun og nærri þrír fjórðu aldar frá fuUveldistökunni. Það er kominn tími til að skera. Á vegamótum Þær öm breytingar, sem orðið hafa í alþjóðamálum síðustu misseri, gefa Islendingum gullið tækifæri til að endurmeta stöðu sína í samfé- lagi þjóðanna, sjá veröldina á eigin forsendum og sýna raunverulegt sjálfstæði í orðum og athöfnum. Það er rétt sem sagt hefur verið að við stöndum af þessum sökum á vegamótum. Miklu skiptir að rétt sé vahð. Annars endum við í blind- götu. Skandinavar einbhna á Þýska- land og Evrópubandalagið þeirra. Ljóst er að innan fáeinna ára verða þeir alUr komnir undir skrifræðis- báknið í Brassel; þunglamalegasta og óhagkvæmasta skriffinnsku- kerfi veraldarinnar eftir að Sovétið hrundi. Norræna veislusamstarfið breytir um svip. Það mun í framtíð- inni snúast um valdabaráttu innan évrópska bandalagsins. Skandinavar era að reyna að fá íslendinga með sér inn í evrópsku blindgötima. Vísa til þess aö íslend- ingar eigi á hættu að einangrast frá Skandinavíu. Sumir stjómmála- menn hér á landi segjast óttast sUka þróun og bUmskakka augum til Brussel. En það er ekkert að óttast. Við eigum þvert á móti að fagna því að breytt heimsmynd gefur okkur tækifæri tíl að skera á morknaða naflastrengi; rekur okk- ur til að beina sjónum tíl annarra átta og meta veröldina á eigin for- sendum. Viðskiptí við Evrópu skipta okk- ur vissulega miklu máli. MikUvægt er aö hafa góða viðskiptasamninga við Evrópubandalagið. Samkomu- lagið um evrópskt efnahagssvæði virðast fullnægja okkar þörfum í því efni. Það skiptir okkur engu máU þótt aðrir aöUar að þeim samningi gangi í Evrópubandalag- ið. En þótt Evrópa sé mikilvæg í dag þá er framtíðin annarra. Eina risaveldið í heiminum í dag er í Ameríku. íslendingar þurfa að efla viðskipta- og menningartengsl við Bandaríkin og Kanada. Fyrir nærri hálfri öld var lagt til á Al- þingi að gerður yrði fríverslunar- samningur við Bandaríkjamenn. Því máU hefur Utillega verið hreyft að undanfórnu. Á það þarf að leggja mikla áherslu næstu misseri. Ekki síður ef Evrópurikin ýta Banda- ríkjamönnum í vaxandi mæU út úr vamarsamstarfmu, eins og margt bendir tíl. Það kaUar á ný- hugsun af íslendinga hálfu, því okkar staða er aUt önnur en evr- ópsku meginlandsþjóðanna. ÖUugasta efnahagssvæði fram- tíðarinnar verður hins vegar við Kyrrahaf. Japan er þar í farar- broddi en mörg önnur Kyrrahafs- ríki era á fuUri ferð á sömu braut stórstígra efnahagslegra framfara. Möguleikar okkar á viðskiptum við þjóðir Kyrrahafssvæðisins era afar miklir. TU þessara heimshluta Uggja þjóðbrautir. Látírni því ekki hræða okkur til að velja bUndgötima. EUas Snæland Jónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.