Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1992, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1992, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 7. MARS 1992. 43 Talið er að um 45% þeirra sjúklinga sem leggjast á sjúkrahús vegna kransæðastíflu fái einhver þunglyndis- einkenni. Hannes var einn þeirra. Hann sá engan tilgang í endurhæfingu. Það hafðist ekki upp úr honum orð og á síðkvöldum sat hann einn og grét. Þunglyndi eftir kransæðastíflu Hannes B., embættismaður í þjón- ustu lýðveldisins, fékk kransæöa- stíflu um daginn. Hann hafði lifað annasömu lífi sem einkennst hafði af þrotlausu klifri upp torfæran metorðastiga ráðuneytanna. Nokkrum sinnum fannst Hannesi freklega fram hjá sér gengið og póh- tískir skutulsveinar fengu stöður sem honum bar. Aldrei gafst hann þó upp heldur þrjóskaðist við á grýttri framabrautinni. Hann kvæntist ungur stúlku í Kennaraskólanum sem rakti ættir sínar og getnað inn í ráðuneytin. Þau eignuðust þrjú mannvænleg böm sem Hannes neyddi til náms í menntaskólum. Smám saman virt- ist lífið vera að færast í ákjósanlegt horf. Hannes komst í ágæta stöðu, átti hús á réttum stað og þýskan bíl og starfaði kappsamlega í eftirsótt- um karlaklúbbum. Eiginkonan eygði von um yfir- kennarastöðu og vann í frístundum að líknarmálum á vegum félags ættgöfugra kvenna á besta aldri. Bömin era öll í námi og sambúðum, lifa á námslánum og gengur vel. Bamabömin era orðin tvö, sann- kallaðir augasteinar afa og ömmu og heita í höfuðiö á þeim og bera þannig áfram inn í framtíðina nafnahefð margra kynslóða af sam- viskusömum embættismönnum. Skyndilegur verkur! Þá gerðist það einn morguninn að Hannes fékk skyndilega mikinn verk fyrir brjóstið sem leiddi út í vinstri handlegginn. Hann kald- svitnaði og greip um stigahandrið sér til stuðnings. Honum sortnaði fyrir augum af sársauka og kallaði í skelfmgu til konu sinnar. Hún gerði stutt hlé á snyrtiverkum morgunsins og kom bónda sínum til aðstoðar. Hringdi hún strax á sjúkrabíl sem kom að vörmu dekki. Út úr bílnum hiupu vörpulegir, glaöværir sjúkraflutningsmenn og læknir og hjúkrunarfræðingur sem geisluðu af æsku, atorku og kunn- áttuenaugunvoruísköld.Þau * sögðu fátt við Hannes en settu leiðslur á brjóst og nál í æð og gáfu honum verkjalyf. Hann var drifinn upp á börur og keyrður á spítala. Innan nokkurra stunda leiö honum betur en önnum kafnir læknar sögðu honum á hlaupum að hann hefði fengið kransæðastíflu. „Þetta verður allt í lagi,“ sagði einn og horfði annars hugar á sjón- varpsskerm sem sýndi hjartslátt- inn. Á næstu dögum fékk Hannes alls konar lyf vegna óreglu á hjartslætti og verkja og um tíma virtist tvísýnt um líf hans. En smám saman jafn- aði hann sig og varð verkjalaus en kvartaði undan mikilh andlegri þreytu. Þetta jókst og Hannes varð ákaflega niðurdreginn, dapur og beiskur. Honum fannst tilveran grá Á læknavaktinni Óttar Guðmundsson læknir og morgundagurinn huhnn þokum vonleysis. Hann sá engan tilgang í sjúkraþjálfun eða endurhæfmgu enda væri hann maður án framtíð- ar. Það hafðist ekki upp úr honum orð og á síðkvöldum sat hann einn og grét. Þetta var talið mikið vanda- mál og var geðlæknir fenginn th ráðuneytis um andlegt ástand Hannesar. Þunglyndi eftir kransæðastíflu Þunglyndi eftir kransæðastíflu er algengt fyrirbæri. Tahð er að um 45% þeirra sjúkhnga sem leggjast á sjúkrahús vegna þessa fái einhver þunglyndiseinkenni. Það er alvar- legt mál vegna þess að mikill dapur- leiki getur haft slæm áhrif á fram- tíðarþróun sjúkdómsins. Slíkum þunglyndum sjúkhngum er hættara við fylgikvillum kransæðastiflunn- ar, þeir hafa meiri verki, þurfa oftar að leggjast-inn á nýjan leik og skyndidauði er algengari í þessum hópi. Bjartsýni, æöruleysi og glaðværð virðist þannig auka batalíkur. Vegna þessa er mjög þýðingarmikið að veita meðferð þegar fólk kvartar undan alvarlegu þunglyndi eftir kransæðastíflu. Helstu einkenni era: 1. Deyfö og dapurleiki mestahan daginn. 2. Minnkaður áhugi og hth ánægja afdagleguamstri. 3. Mikh eða líth matarlyst sem leið- ir th þess að fólk þyngist eða leggur af. 4. Svefnleysi eða of mikhl svefn. 5. Óróleiki eða algjört aðgerðaleysi. 6. Þreyta og orkuleysi. 7. Fólki finnst það vera einskis virði. Sumum finnst þeir jafnvel sekir um einhvem voðaverknað. 8. Minnkuð hæfni th að hugsa skýrt, erfitt að taka ákvarðanir. 9. Stöðugar hugsanir um dauðann og jafnvel um sjálfsmorð. Þessi einkenni eru oft í engu sam- ræmi við andlegt ástand einstakl- ingsins áður en hann veiktist. Meðferð Hannes var greinhega kominn í alvarlegt þunglyndi. í viðtalinu við geðlækninn endurtók hann í sífellu að hann sæi enga framtíð neins staðar. Hann kvaðst helst vhja deyja. „Krans á leiði er sambærhegur við kransæðastíflu í hjarta," endurtók hann í sífellu. „Hver getur notað embættismann með bijóstverk en ekkert brjóstvit. í valdapoti ráðu- neytanna verður hjartað að vera sterkt eins og vél í frystitogara." Geðlæknirinn lagði línur fyrir áframhaldandi meðferð. Hann bauðst th aö tala við Hannes nokkr- um sinnum. Slík viðtöl eru sérlega þýöingarmikil. Þá er hægt að segja sjúkhngnum frá kransæðasjúk- dómnum, batahorfum og hfshkum og leiðrétta mikið af ranghugmynd- um sem margir hafa um þennan sjúkdóm. Þeir ræddu um ýmsar hhðar sjúk- dómsins sem vafist höfðu fyrir Hannesi, kynlíf, mataræði, líkams- rækt o.fl. Hann hjálpaöi Hannesi að horfast í augu við þær neikvæðu tilfmningar sem kviknað höfðu í bijósti hans. Hannes var hvattur til aö taka þátt í endurhæfmgunni af fullum krafti. Lyf era oft notuð í alvarlegu þung- lyndi. Flest þeirra eru þó þeim ann- mörkum háð að virka hla á sjúkl- inga með hjartasjúkdóma. Sum þeirra lækka blóðþrýsting, önnur hafa skaðleg áhrif á hjartsláttar- tíðni. Geðlæknirinn valdi að gefa Hannesi alprazolam (Tafh) sem hef- ur ágæt áhrif á spennu og þung- lyndi eins og það sem Hannes var að fást við. Það dugði ekki svo að hann bætti við ööra lyfi, fluoxetine (Fontex). Hannes jafnaði sig smám saman á þunglyndinu og fór að stunda end- urhæflnguna af sama kappi og valdabaráttuna í ráðuneytinu. Hann komst til ágætrar heilsu á nýjan leik, hætti að reykja og gerði ákveðnar breytingar á lífi sínu. „Ég vh aht til þess vinna að lifa lengur," sagði Hannes og bætti viö: „Víðar er líf en í ráðuneytum." Massíít haröviðarparket Tilbúið til áiímingar Lakkað.vandað parket Verö frá 1880 kr. stgr. Mðsaík - Stafaparket - Útihurðir • Stigar Opiö laugardaga kl. 10 -16. Parket og huröir sf Týsgötu 8, sínru 26699 CILP ER NYTTOG SÉRSTAKT BINDIFR/ LIBRESSE. LITLIR KANTAR BRJÓTAST UM BUXNABRÚNINAOG - VARNALEKA. ÞVÍ ERBINDIÐ ÞANNIG HLUTI AF BUXUNUM. Heildsala Kaupsel sf., Laugavegi 25, sími 27770 UMHVERMSVftH iui k L N 1 N G

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.