Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1992, Page 47
LAUGARDAGUR 7. MARS 1992.
59
Afmæli
Þorsteinn Steingrímsson
Þorsteinn Steingrímsson, b. á Hóli í
Öxarfj arðarhreppi í Norður-Þing-
eyjarsýslu, verður áttræður á morg-
un.
Starfsferill
Þorsteinn fæddist á Hóli og ólst
þar upp við öll almenn sveitastörf.
Hann hóf nám við Bændaskólann á
Hvanneyri 1934 og lauk þaðan bú-
fræðiprófi 1936. Þá hóf hann búskap
á Hóli í félagi við bróður sinn, Frið-
geir, og foreldra sína. Þorsteinn tók
svo alfarið við búskapnum á Hóli
árið 1942 og stundaði hann til 1979
er synir hans tóku við búinu.
Þorsteinn hefur sinnt ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir sína sveit.
Hann sat í hreppsnefnd 1944-47 og
aftur 1958-66 er hann var jafnframt
oddviti. Þá sat hann í skattanefnd
og sá um fjallaskil og forðagæslu.
Hann sat í stjóm Kaupfélags Rauf-
arhafnar frá stofnun og þar til það
hætti störfum og sat í stjóm Búnaö-
arfélagsins Arðs. Þá var hann meðal
stofnenda tveggja veiðifélaga, Veiði-
félags Ormarsár og Veiðifélags
DeildaráráSléttu.
Þorsteinn var einn þeirra fáu
bænda sem héldu búreikninga í
samfellt tuttugu ár en þeir vom
m.a. lagðir til viðmiðunar fyrir
verðlagsgrundvöllinn. Þá má geta
þess að Þorsteinn stóð í langvinnum
málaferlum (svokölluðu Vatnstöku-
máli) við Raufarhafnarhrepp sem
lauk með gerðardómi 1986 með full-
um sigriÞorsteins.
Fjölskylda
Þorsteinn kvæntist 16.6.1945
Margréti Eiríksdóttur, f. 6.1.1916,
húsmóður. Hún er dóttir Eiríks
Kristjánssonar, b. síðast á Grasgeir
á Sléttu, og konu hans, Þorbjargar
Guðmundsdóttur húsfreyju.
Þorsteinn og Margrét eiga tvo
syni. Þeir em Steingrímur, f. 13.5.
1946, b. á Hóli; Höskuldur, f. 17.9.
1947, b. á Höfða í Öxarfjarðar-
hreppi, kvæntur Guðrúnu Matthildi
Sigurjónsdóttur frá Akureyri og
eiga þau þrjár dætur. Böm Guðrún-
ar og stjúpböm Höskulds em Dóra
Hrönn Gústafsdóttir, f. 1970, og Sæv-
ar Ingi Sverrisson, f. 1972. Dætur
Höskuldar og Guðrúnar era Mar-
grét Sigríður, f. 1980, Nanna Steina,
f. 1983 og Árdís Inga, f. 1986.
Systkini Þorsteins: Friðgeir, f.
1914; Þorbjörg, f. 1915; Friðný, f.
1917, nú látin; Kristín Karólína, f.
1922, nú látin; Þóra, f. 1927; Guðný
Þorsteinn Steingrímsson.
Friðrika, f. 1937.
Foreldrar Þorsteins vom Stein-
grímur Guðnason, f. 11.12.1884, d.
1958, b. á Hóli, og kona hans, Sigríð-
ur BjörgÞorsteinsdóttir, f. 18.11.
1891, d. 1982, húsfreyja.
Steingrímur var sonur Guöna
Kristjánssonar og Friðnýjar Sabínu
Friðriksdóttur sem bjuggu á Hóli í
fjöldaára.
Sigríður Björg var dóttir Þorsteins
Jónssonar, b. á Blikalóni á Mel-
rakkasléttu, og konu hans, Jónínu
Þorbjargar Jónasdóttur húsfreyju.
Hörður Friðbertsson
Hörður Friðbertsson skipstjóri,
Bogahlíð 20, Reykjavík, er sjötugur
ídag.
Starfsferill:
Hörður fæddist á Suðureyri við
Súgandaíjörð og ólst þar upp. Hann
lauk farmannsprófi frá Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík 1953
og stundaði sjómennsku í þrjátíu og
þrjú ár, fyrst á fiskiskipum, síðar á
farskipum, þar af stýrimaður og
skipstjóri frá 1954 til 1971.
Þá hóf hann störf sem stöðvar-
stjóri hjá Olíustöð Oliufélagsins hf.
í Orfirisey en síðustu fjögur árin
hefur hann verið starfsmaður í
Samvinnubankanum f Bankastræti
sem nú er Landsbankinn.
Hörður hefur starfað að félags-
málum með Súgfirðingafélaginu í
Reykjavík þar sem hann er heiðurs-
félagi, í stjóm Slysavarnadeildar
Ingólfs um árabil og einnig í stjórn
og varastjóm Slysavamafélags ís-
lands þar sem hann var sæmdur
gullmerki fyrir unnin störf í þágu
félagsins. Nú starfar hann að félags-
málum fyrir Parkinsonsamtökin.
Fjölskylda:
Hörður kvæntist 14.6.56 Báru
Daníelsdótturf. 14.06.34, dóttur
Daníels Jónssonar, f. 1901, og Jór-
unnar Þorsteinsdóttur, f. 1905, d.
1966. Böm Harðar og Báru em: Haf-
dís f. 6.7.57, aðstoðarstúlka tann-
læknis, sonur hennar Hörður Lár-
usson f. 20.09.79. Haukur f. 26.9.60,
bifvélavirki hjá SVR. Jórunn, f.
5.12.68, nemi í HÍ. Sambýlismaður
hennar er Guðmundm- Helgi Christ-
ensen.
Systkini Harðar em Trausti, f.
26.7.1917, fyrrverandi kaupfélags-
stjóri, kona hans var Ragnheiður
Sigurðardóttir og eignuðust þau
flögiu- börn; Ásdís f. 24.5.19, maður
hennar var Njáll Njálsson og eign-
uðust þau fimm böm.
Hörður Friðbertsson.
Foreldrar Harðar voru Friðbert
Friðbertsson f. 1888, d. 1938, skóla-
stjóri á Suðureyri við Súgandafjörð
og Pálína Sveinbjamardóttir f. 1879,
d: 1960.
Hörður verður að heiman á af-
mælisdaginn.
SPENNANDI
KOLAPORT
UM HELGINA!
spennandi varningi - úrvaliö er ótrúlegt
og verölagiö jafn spennandi.
BÓKAMARKAÐURINN
= SÍÐASTA SÖLUHELGI =
10% AUKAAFSLÁTTUR!
FÉLAG EINSTÆÐRA FORELDRA
með stórkostlegan flóamarkað
á sunnudögum!
OPIÐ: Laugardaga frá kl.10-16 og sunnudaga frá kl. 11-17.
KOLAPORTIÐ
MtfRKa-ÐJ/O&r
-undir seðlabunkanum!
Nauðungaruppboð
Eftir beiðni Steinunnar Guðbjartsdóttur hdl., skiptastjóra í þb. Friðgeirs
Sörlasonar, fer fram opinbert uppboð mánudaginn 9. mars nk. kl. 11.00
að Hesthálsi 12. Seldir verða tveir vinnuskúrar, taldir eign þrotabúsins.
Greiðsla við hamarshögg.
UPPBOÐSHALDARINN í REYKJAVÍK
VEGNA MIKILLAR SÖLU
VANTAR OKKUR
NÝLEGA FÓLKSBÍLA
Á STAÐINN
OG Á SKRÁ.
HÖFUM KAUPENDUR AÐ
BÍLUM ÁRG. 1990 OG1991,
MMC COLT,
MAZDA 323/626
OG TOYOTA 4X4 TOUR-
ING.
S. 675200