Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1992, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1992, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 1992. Fréttir Ökumaður strætisvagns sem lenti í árekstri á Laugavegi árið 1989: Dæmdur fyrir mann- dráp af gáleysi - talinn hafa sýnt mjög vítavert athæfi með of hröðum akstri Sakadómur Reykjavíkur hefur dæmt strætisvagnabílstjóra til aö greiöa 60 þúsund krónur í sekt og til sviptingar ökuleyfls í 6 mánuði vegna banaslyss sem varö á mótum Laugavegs og Vitastígs aö morgni 15. júní 1989. Strætisvagn og Volkswag- enbifreið lentu þá í höröum árekstri. Fólksbíllinn kastaöist til, snerist og fór inn um glugga í verslun Bern- harðs Laxdal á Laugavegi 63. Tvær ungar stúlkur köstuðust út úr fólks- bílnum. Önnur þeirra lést en hin slasaðist mjög alvarlega. Slysiö varð með þeim hætti að strætisvagninum var ekið niður Laugaveginn en fólksbílnum upp Vitastíg. Að sögn þriggja vitna sem voru farþegar í strætisvagninum var vagninum ekið fremur hratt. Vitni báru einnig að talsverð ferð hefði verið á fólksbílnum. Strætisvagna- bílstjórinn taldi sig hafa ekið á um eða undir löglegum hraða sem var 50 km á klukkustund. Bílstjórinn kvaðst hins vegar ekki hafa litið á hraðamælinn. Sakadómur taldi sannað með fram- burði fjögurra vitná að strætisvagna- bílstjórinn hefði ekið á hraða sem var langt yfir því sem eðlilegt gat talist miðað við aðstæöur. Haft var í huga að Laugavegurinn er þröngur með þvergötum þar sem alltaf má vænta umferðar - því hefði bílstjóri vagns- ins ekki gætt viðeigandi varúðar. Hemlaför þóttu einnig styðja þessa niðurstöðu. Strætisvagnabílstjórinn var með þessu talinn hafa átt sök á dauða annarrar stúlkunnar og meiðslum hinnar. Hann var því sak- felldur fyrir manndráp af gáleysi. Við ákvörðun refsingar mannsins var hins vegar höfð hliðsjón af því að hann átti sjálfur ekki fulla sök á slysinu. í dóminum segir meðal annars: „Telja verður það mjög vítavert hversu hratt ákærði ók niður Lauga- veginn þennan morgun . . . í dóminum er fundið að miklum drætti sem virtist hafa orðiö á af- greiðslu málsins hjá lögreglu. Arn- grímur ísberg sakadómari kvað upp dóminn. -ÓTT Tvær ungar stúlkur köstuðust út úr fólksbifreiðinni eftir áreksturinn við stræt- isvagninn. önnur þeirra lést en hin slasaðist mjög alvarlega. Auglýsingakostnaður: Málið tekið til endurskoðunar - segirFriðrikSophusson „Mér þykir þetta auövitað afar mikill kostnaður. Ég tel þvi eðli- legt að málið sé skoðað mjög rækilega. Sú skoðun er raunar hafln og þar verður leitað leiða hvernig hægt er að standa að sölu spariskírteinanna og annarra ríkisverðbréfa með minni til- kostnaði á næstunni en hingað til,“ sagði Friðrik Sophusson fjár- málaráðherra aðspurður um þann mikla auglýsinga- og sölu- kostnað sem fylgt hefúr sölu spariskirteina síðastliðin fimm ár. Eins og skýrt var frá í DV síð- astliðinn laugardag var auglýs- inga- og sölukostnaður þeirra tæplega 800 milijónir króna frá 1987 til og meö 1991. Ef kostnaður- inn er framreiknaður til verðlags dagsins í dag er um rétt tæpan milljarðkrónaaðræða. -S.dór Eldurviðand- dyriáLaugavegi Slökkvilið þurfti aö reykræsta íbúð við Laugaveg 37 i nótt eftir að eldur hafði kviknaö þar í tré- kassa meö rusli 1 á fjórða tíman- um. Kassinn stóð hjá anddyri við kjallara og er talið að um íkyeikju hafi verið aö ræða. íbúar náðu að losa úr einu duft- slökkvitæki áöur en brunaverðir komu á vettvang. Slökkvilið var einnig kallað út vegna fjögurra sinubruna í gærkvöldi og í nótt. -ÓTT Það hafa ekki gefist margar stundir i vetur til að njóta skiðaiðkunar í Bláfjöllum í sólskini. Þau Ólafur Höskulds- son, Ásgerður Höskuldsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir nutu þess lika greinilega að boröa nestið sitt úti undir heið- bláum himni þegar þau tóku sér hvíld frá sviginu núna um helgina. DV-mynd JAK Vinnuvemdarár er hafiö: Árlega verða 12 þúsund vinnuslys hér á landi - segir Jóhanna Siguröardóttir félagsmálaráðherra „Vinnuslys hér á landi eru mjög tíð. Vinnueftirlitið hefur áætlað að þau séu allt að 12.000 á ári. Þó ekki hafi verið tekinn saman kostnaður vegna vinnuslysa eöa atvinnusjúk- dóma má ætla, miðað við viðmiðanir Alþjóða vinnumálaskrifstofunnar, aö hann nemi 1 til 3 prósentum af vergri þjóðarframleiðslu. Kostnaður hér á landi liggur því á bfiinu 4 til 11 milljarðar króna á ári. Það þarf því að efla forvarnarstarf og vinnu- vemd,“ segir Jóhanna Sigurðardótt- ir félagsmálaráðherra. Nú er nýhafið vinnuverndarár á íslandi og ber Vinnueftirlit ríkisins veg og vanda af því. Fyrir nokkru ákvaö Evrópubandalagið að gangast fyrir slíku ári í löndum sínum og lýkur því í mars á næsta ári. í lönd- um Fríverslunarsamtaka Evrópu verður haldið vinnuvemdarár á þessum sama tíma og lögð á það sér- stök áhersla að bæði stjórnendur og vinnuveitendur geri sér grein fyrir gildi vinnuverndar. Meginþemu ársins verða fjögur: hreint loft, öryggi, vellíðan og varnir gegn hávaða og titringi á vinnustað. Tilkynningum um vinnuslys hefur fjölgað hér á landi á undanfórnum árum en menn ætla að aðeins sé til- kynnt um brot af þeim slysum sem raunverulega verða. Árið 1990 barst 761 tilkynning um vinnuslys til Vinnueftirlitsins en það ætlar að þau séu margfalt fleiri. Flestar tilkynn- ingar um atvinnusjúkdóma em vegna heyrnartaps sem stafar af há- vaða á vinnustöðum en aðrir sjúk- dómar eru síður tilkynntir. Annars staðar á Norðurlöndunum bæta al- mannatryggingar heilsutjón sérstak- lega vegna atvinnusjúkdóma. Það er hins vegar ekki gert hér á landi og því lítil hvatning til að skrá þá sér- staklega. Vilhjálmur Rafnsson, yfirlæknir Vinnueftirhtsins, telur að ef al- mannatryggingakerfið bætti sér- staklega og betur atvinnúsjúkdóma en aðra kvilla yrði atvinnusjúkdóm- um veit meiri athygli hér á landi sem aftur leiddi til áhrifaríkari forvarn- arstarfa. -J.Mar Umhverfisráðstefna Sameinuðu þjóðanna: Fjörutíu sæti þegar f rátekin til Rio - fyrirfólkið flýgur á almúgaverði en situr á fyrsta farrými „Okkur var falið það verkefni af umhverfisráðuneytinu að finna hag- stæðustu fargjöldin á umhverfisráð- stefnuna í Rio. Við emm búnir að finna afar hagstætt fargjald á 110 þúsund krónur. Það er búið að leggja mikla vinnu í að prútta verðið niður og neðar er ekki hægt að komast. Við höfum því tekið um 40 sæti frá á þessu verði,“ segir Helgi Jóhannes- son, framkvæmdastjóri ferðaskrif- stofunnar Samvinnuferða-Landsýn- ar. Samkvæmt heimildum DV er um það rætt að auk Eiðs Guðnasonar umhverfisráðherra fari á ráðstefn- una þau Vigdís Finnbogadóttir for- seti, Davíð Oddsson forsætisráö- herra og Salome Þorkelsdóttir, for- seti Alþingis. Hugsanlega munu fleiri ráðherrar og stjómmálamenn sækja ráðstefnuna en að auki er gert ráð fyrir að fjöldi embættismanna stjóm- aráðsiris og einstakra ríkisstofnana fari. Að sögn Helga þurfa forsetinn og aðrir þeir fyrirmenn sem ferðast á fyrsta farrými ekki að greiða auka- lega fyrir þægindin. Flugfélögunum sé það heiður að fá að flytja þetta fólk. Deilur hafa risið upp meðal ferða- frömuða hér á landi vegna ferðarinn- ar til Rio í kjölfar fréttar sem DV birti fyrir rúmri viku. Þar var greint frá því að ódýrasta fargjald á mark- aðinum væri á um 120 þúsund krón- ur. I kjölfar þeirrar fréttar tókst Samvinnuferðum-Landsýn hins veg- ar að lækka verðið um tíu þúsund krónur. Að sögn Helga er ekki hægt að ná fargjöldunum neðar, hvað sem hver segir. Hvað varðar hótelverð segir hann það ekki á færi íslendinga að ná því niður því það sé alfarið í verkahring stjórnvalda í Brasilíu að bóka hótelin. Að teknu tilliti til kostnaðar ríkis- ins vegna undirbúnings ráöstefn- unnar og ferðar 40 manna sendisveit- ar á hana reiknast DV til að atkvæði íslands muni kosta á þriðja tug millj- óna. Ekki er gert ráð fyiir að mikil vinna fari fram á ráðstefnunni enda fjórir undirbúningsfundir embættis- manna þegar að baki. Ráðstefnan mun því fyrst og fremst verða vett- vangur atkvæðagreiðslna þar sem ísland fer með eitt atkvæði. Ráðstefn- an fer fram í byijun júní næstkom- andiogstenduryfiríl2daga. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.