Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1992, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1992, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 1992. Utlönd Hommardregnir burtfráóskars- athöfninni Lögregla vopnuð kylfum fiar- lægði í gærkvöldi homma sem efnt höfðu til mótmælaaögerða við aíhendingu óskarsverðlaun- anna. „Megi Hollywood brenna," sungu mótmælendumir til að vekja athyglí á neikvæðri um- flöllun um homma og lesbíur í vinsælustu kvikmyndunum frá Hoilywood um þessar mundir. Þeir beindu mótmælum sínum m.a. gegn verðlaunamyndinni Lombin þagna. Mótmælin, sem skipulögð voru af samtökunum Queer Nation, sem berst fyrir réttindum homma, hófust á því aö þeir reyndu að loka einu aökomunni að Dorothy Chandler Pavihon þar sem athöfnin fór fram. Mót- mælendumir sungu hástöfum, börðu bumbur og blésu í flautur til að láta reiði sína í ljós. „Þaö sem er að gerast i Holly- wood er aðeins endurspeglun af þvi sem er að gerast úti í samfé- laginu" sagði einn mótmælenda. General Electric Bandaríska fyrirtækið Generai Electric fékk það óþvegiö viö af- hendingu óskarsverðlaunanna í Los Angeles í gærkvöldi. „Verslið ekki við General Electrie," sagði Debra Chesnoff, íraraleiðandi verðlaunastutt- myndarinnar í flokki heintildar- mynda; Banvæn blekking: Gen- eral Electric, kjamorkuvopn og umhveríið. Chesnoff sakaöi GE um að sleppa geislavirkum efnum og eiturefnum út í andrúmsloftið og sagðl að margir starfsmenn þess hefðu hlotíð bana af. Ekki náðist i forráðamenn fyrirtækisins vegna ásakana þessara. „Ég vona aö þessi óskarsverö- laun neyöi þá til aö taka ábyrgð á þeim skaöa sem þeir hafa vald- iðsagði Chesnoff. Fékkóskarinná sjúkrahúsi Indverski kvikmyndaleikstjór- inn Satyajit Ray var steinsofandi á sjúkrahúsi flarri öllu glysinu í Hollywood þegar honum voru veitt sérstök óskarsverðlaun fyr- ir ævistarf sitt. „Hann hefur ekki mikinn áhuga á athöfninni. Hann er mjög syflaöur," sagði Vijoya Ray, eig- inkona leikstjórans, í morgun. Ray, sem er sjötugur, var flutt- ur á sjúkrahús í Calcutta í febrú- ar vegna hjartakvilla og öndun- arerfiðleika. Læknar segja að líð- an hans sé eftir atviktim en hann sé mjög veikburða. Stöðvið strið, líf- ftaiska kvikmyndin Mediterr- aneo kom öllum á óvart með þvi að hreppa óskarsverðlaunin sem besta erlenda kvikmyndin vestur í Hollywood. „Þetta er mjög mikilvægt fyrir ítalska kvikmyndagerö," sagði Gabriele Salvatore ieikstjóri við biaðamenn eítir aö hann haíði veitt veröiaununum viðtöku. Þetta var í níunda sinn sem ítalir hafa hreppt þessi verðiaun en það er oftar en nokkur önnur þjóð. Kvikmyndin flallar um átta ít- alska hermenn sem eru stranda- glópar á sólbakaðri grískri eyju í heimsstyrjöldinni síðari og boð- skapur hennar er ótvirætt sá aö betraséað elskast en heyja stríð. „Stöðvið strfð, iifið er betra," sagði Salvatore við verðlaunaaf- hendinguna. Keuter Óskarsverðlaunln afhent með viðhöfn í Hollywood 1 nótt: Lömbin þagnafékk ÖH helstu verðlaunin - er besta myndin, gerð afbesta leikstjóranum og með bestu leikarana Félagar í bandarisku kvikmynda- akademímmni voru ekki vafa um hver væri besta myndin við afhend- ingu óskarsverðlaunanna í Hofly- wood í nótt. Lönbin þagna fékk flölda óskara og þar á meðal alla þá helstu. Þetta er besta myndin, Jonathan Demme .er besti leíkstjórinn og aðalleikar- amir í kven- og karlhlutverkum eru bestir. Myndinni hafði verið spáð góðum frama við verðlaunaafhendinguna þótt því væri einnig spáð að hún væri of ógeðsleg til að hljóta náð fyr- ir augum akademiunnar, sem nokk- uð er tekin að reskjast. Hins vegar varð umtöluð mynd Olivers Stone um morðið á John F. Kennedy Bandaríkjaforseta að láta í minni pokann. Margir spáðu henni flölda verðlauna en það fór á annan veg. Myndin fékk óskarana fyrir bestu kvikmyndatökuna og bestu kflppinguna en leikstjórinn og leik- ararnir sátu eftir með sárt ennið. Sömuleiðis báru Warren Beatty og mynd hans Bugsy skarðan hlut frá borði en hann hefur lengi verið í uppáhaldi í Hollywood og raunar mjög umtalaöur síðustu dagana vegna trúlofunar sinar og leikkon- unnar Annette Benning. Umtalið dugði ekki til að þessu sinni. Anthony Hopkins var valinn besti leikarinn í aðalhlutverki þrátt fyrir að hann sjáist aðeins í 30 mínútur á hvíta tjaldinu í hlutverki Hannibals Lecter í Lömbin þagna. Myndin hef- ur verið gagnrýnd fyrir að bregða ljóma á flöldamorðingja og mannætu en það hafði ekki áhrif á úrslita- stundu. Jodie Foster lék á móti Hopkins og fékk óskarinn fyrir bestan leik kvenna í aðalhlutverki. Fyrir af- hendinguna var hún talin líklegust til að hreppa hnossið. Hún hlaut ósk- arinn einnig fyrir leik sinn árið 1988. Einna mest kom á óvart að Jack Anthony Hopkins hlaut óskarinn fyrir besta leik karlmanns i aðalhlutverki. Hann þótti fara á kostum í hlutverki Palace skyldi fá verðlaumn fyrir fjöldamorðingjans og mannætunnar Hannibals Lecter í myndinni Lömbin þagna. Sú mynd sópaði að sér verðlaun- besta leik í aukahlutverki. Reuter unum og var valin besta myndin og skartaði einnig bestu leikkonunni, Jodie Foster. síinamynd Reuter Það besta af öllu í Hollywood Besti leikstjórinn. Jonathan Demme. Besta handritið eftir eldri sögu: Ted Tally - Lömbin þagna. Besta frumsamda handritið. Carrie Khouri - Thelma og Louise. Besti karlieikarinn í aukahlutverki: Jack Palance. Besta leikkonan í aukahlutverki. Mercedes Ruehl. Besta erlenda myndin: Mediterratio - Ítalía. Besta kvikmyndatakan: Robert Richardson - JFK. Besta klippingin: Joe Hutshing og Pietro Scalia - JFK. Besta frumsamda lagið: Beuty and the Beast. Bestu búningarnir. Albert Wolsky - Bugsy. / Besta myndin: Besti karlieikarinn: Besta leikkonan. Lömbin þagna. ' Anthony Hopkins. Jodie Foster. Jack Palance, besti aukaleikarinn í karlhlutverki, minnti leikstjóra á hæfni gamalla leikara með því aö taka armbeygjur á sviðinu. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.