Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1992, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 1992.
Fréttir
Rödö kaupir Sogn:
- segirÞorkeUHelgason
„Ég er gífurlega feginn aö þetta
mál er komið í höfn. Þegar menn
sjá hversu vel verður staðið að
verki að Sogni hljóta allir að
verða sáttir viö starfsemina þar.
Hvemig þetta mál hefur þvælst
fram og til baka hefur verið af-
skaplega leiðinlegt,“ segir Þorkeil
Helgason, aðstoðarmaður heil-
brigðisráðherra.
Ríkið festi kaup á jörð og hús-
eign Náttúralækningafélags ís-
lands að Sogni fyrir helgi. Kaup-
veröið er um 30 milljónir og
greiðist upp á 18 mánuöum. Rúm-
ar 10 milljónir greiðast við undir-
skrift Hluta jarðarinnar hyggst
ríkið endurselja en húseignin
verður nýtt sem heimili fyrir ós-
akhæft afbrotafólk.
Að sögn Þorkels hefur þegar
verið skipuð rekstrarsijórn sem
undirbýr breytingar á hus-
næðinu og ráðningu starfsfóiks.
Hiuti starfsfólksins veröur send-
ur á næstunni 1 starfsþjáifun fil
Svíþjóðar. Gert er ráð fyrir að
starfsemi að Sogni hefjist innan
hálfs árs.
-kaa
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
Okumenn, sem eiga leið um
Reykjanesbraut, geta áður en
langt um iíður ekið þar um án
þess að eiga það á hættu að sauðfé
hlaupi í veg fyrir bifreiðar þeirra
með alvarlegum afleiðingum.
Níels Árni Lund, starfsmaður í
landbúnaðarráðuneytinu, skýrði
frá þvi nýlega að nefnd, sem hef-
ur kynnt tillögur sínar um friðun
Reykjanesskagans, gangi út frá
því að girt verði þvert yfir
Reykjanesskagann frá höfuð-
borgargiröingu um Kleifarvatn i
Krísuvíkurbjarg, og Reykjane-
skagiim verði um leið friðaður
fyrir ágangi sauðfjár.
Þjóðlífsáskrift:
„Hvimleiðir
„Þetta eru h vimleiðir viðskipta-
hættir en þaö er ekkert sem
bannar þetta,“ segir Garðar Guö-
jónsson, upplýsingafulltrúi Neyt-
endasamtakanna, um þá aðferð
Þjóðiífs við áskrifendasöfnun að
bjóða tveggja ára tUraunaáskrift
sem hélst áfram ef viðkomandi
sagði blaðinu ekki upp.
„Þetta er ekki ósvipað þvi sem
gert er hjá sumum bókaklúbbum.
En sé fólki gerð grein fýrir* þeim
skilmálum í upphaft að áskriftin
haldist eftir að tilraunaáskrift
lýkur, sé henni ekki sagt upp þáL
og það áréttað með bréfi er lög-
legtað framlengja áskriftarsamn-
inginn,“ segir Garöar.
Kvartað hefur veriö undan því
að blaðiö hafi veriö sent áfram
þó viðkomandi hafi tilkynnt sím-
leiðis að hann segði áskriftinni
upp. Neytendasamtökin benda
fóiki á að óska eför skriflegum
staðfestingum á að áskriftar-
samningi hafi verið rift.
-VD
NOTAÐiR BÍLAR - BÍLAÞING - NOTAÐIR BÍLAR - BÍLAÞING - NOTAÐIR BÍLAR
VERÐMURINN
ROFINN
NOTAÐIR BÍLAR
Á RAUNHÆFU MARKAÐSVERÐI
MAZDA 323 LX SEDAN 1300 - árg. 1987, 4 gíra,
4 dyra, rauður, ekinn 66 þ. km., verð kr. 350.000 stgr.
T0Y0TA C0R0LLA XL SEDAN 1300 - árg. 1989, 5 gíra,
4 dyra, steingrár, ekinn 70 þ.km., verð kr. 650.000 stgr.
VW G0LF CL 1600 - árg. 1988, sjálfskiptur, 5 dyra.,
grár, ekinn 84 þ.km., verð kr. 500.000. stgr.
MMC LANCER LANGB. 4X41800 - árg. 1987, 5 gíra,
5 dyra, hvítur, ekinn 63 þ.km., verð kr. 650.000.stgr.
MMC PAJERO STUHUR TURBO DIESEL - árg. 1986,
5 gíra, 3 dyra, hvítur, ekinn 105 þ.km.,
verð kr. 750.000 stgr.
RANGE ROVER V0UGE V8-3500Í - árgerð 1987,
sjálfskiptur, 4 dyra, grár, ekinn 74 þ.km.,
verð kr. 1.600.000. stgr.
VIÐ BJOÐUM TRAUST OG ÖRUGG VIÐSKIPTI
GREIÐSLUSKILMÁLAR AÐ ÓSKUM KAUPENDA
BYGGIR A TRAUSTI
HEKLUHUSINU LAUGAVEGI 174
SÍMAR 695660 OG 695500
Opið virka daga kl. 9-18 Laugardaga kl 10-14
N0TAÐIR BILAR - BILAÞING - N0TAÐIR BÍLAR - BÍLAÞING - N0TAÐIR BÍLAR