Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1992, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 1992. 5
DV Fréttir
Fulltrúi minnihlutans 1 bæjarstjóm Seltjamamess:
Landsvæðið var keypt
til að f riðlýsa það
- segir fyrirhugaðar framkvæmdir svik við íbúa og fyrri bæjarstjómir
„Við viljum láta friðlýsa allt svæð-
ið sem er opið vestan Nesstofu.
Reyndar mætti útbúa teikningu
varðandi frágang á jaöri svæðisins
og þar mætti koma fyrir örfáum hús-
um. Bærinn hefur verið að kaupa
upp svæðið af einstaklingum til að
geta friðlýst það. En að fara út í bygg-
ingarframkvæmdir og vegarlagn-
ingu vestan við núverandi byggð
væru hrein svik,“ segir Guðrún Þor-
bergsdóttir, annar af tveim fulltrú-
um minnihlutans í bæjarstjóm á
Seltjamamesi.
Að sögn Guðrúnar hafa bæjaryfir-
völd lítið sem ekkert farið eftir giid-
andi aðalskipulagi frá 1974 varðandi
nýtingu landsvæöis á vestanverðu
Seltjamarnesi. Aðalskipulagiö byggi
á verðlaunateikningu sem meðal
annars geri ráð fyrir háhýsum og
hringvegi yst út á Snoppu.
„Þessi tillaga hafði svo marga gaila
að það hefur ekki verið unnið sam-
kvæmt henni. Á síðari ámm hefur
bæjarstjóm lagt mikiö fé til landa-
kaupa á umræddu svæði því það var
ljóst að ef það ætti að friðlýsa svæðið
þyrfti bærinn að hafa yfirráðarétt
yfir því. Nú höfum við eignast meiri-
hluta svæðisins og það væm því
hrein svik við bæjarbúa og fyrri
bæjarstjórnir að byggja svæðið í stað
þess að halda við fyrri stefnu og frið-
lýsa það.“
Að sögn Guðmars Magnússonar,
fyrmm forseta bæjarstjómar og eins
af forystumönmnn Sjálfstæðis-
flokksins, er það von hans að meiri-
hluti sjálfstæðismanna hverfi frá
þeirri hugmynd að stækka byggðina
í vesturátt. Hann ásamt þeim Jóni
Hákoni Magnússyni, formanni full-
trúaráðs flokksins, og Magnúsi Er-
lendssyni, fyrrverandi forseta bæjar-
sfjórnar, ritaði fulltrúum Sjálfstæð-
isflokksins í bæjarstjórn bréf fyrir
skömmu þar sem látið er að því hggja
að Sjálfstæðisflokkurinn kunni að
klofna hætti meirihlutinn ekki við
áform sín.
„Við erum ekki að fará með neitt
fleipur í bréfinu. Teikningarnar vom
sýndar íbúum bæjarins á opnum
bæjarmálaráðsfundi Sjálfstæðis-
flokksins í síðustu viku og þar var
andstaðan mjög mikil. Það er því
hætt við að einhveijir kunni að snúa
baki við flokknum taki meirihlutinn
þessa andstöðu ekki til greina. Hvað
okkur þremenningana varðar er
þetta mál hins vegar búið á opinber-
um vettvangi. Svo verður bara að sjá
hver framvindan verður."
Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri
segist ekki taka bréf þremenningana
mjög alvarlega enda hafi engar
ákvarðanir enn verið teknar varð-
andi nýtingu þess svæðis sem deilt
er um. Hann segir umræðuna um
þessi mál ekki tímabæra og neitar
alfarið að láta DV í té umræddar
teikningar.
„Viö erum með fjórar teikningar
þar sem vegurinn hggur á mismun-
andi stöðum. Við opinberum ekki
þessar teikningar fyrr en hður á
þessa vinnu. Þetta eru dæmigerð
vinnuplögg og um leið og þau væru
birt þá væri búið að festa þau að ein-
hverju leyti í sessi.“
Þrátt fyrir neitun bæjarstjórans
hefur DV engu að síður komist yfir
þessar teikningar. Samkvæmt þeirri
tihögu sem gengur lengst er gert ráð
fyrir að aht að 97 íbúðir verði byggð-
ar vestan við núverandi byggð á Sel-
tjamamesi. Að auki gerir hún ráð
fyrir að vegur verði lagður í sveig
vestan við Nesstofu er tengi núver-
andi byggð á norðanverðu og sunn-
anverðu Seltjarnarnesi. Heimhdir
DV herma að þessi sama tihaga hafi
einkum átt upp á pallborðið hjá bæj-
arstjóranum.
-kaa
Sú tillaga að sklpulagi á vestanverðu Seltjarnarnesi, sem gengur lengst,
gerir ráð fyrir að byggðar verði 97 íbúðir á svæði sem margir vilja fríða.
Að auki er gert ráð fyrir lagningu vegar vestan Nesstofu.
Landbrot á Seltjamamesi hindrað með mold:
Óttumst ekki moldina
enda af henni komin
- segirSigurgeirSigurðssonbæjarstjóri
Að frumkvæði Sigurgeirs Sigurðssonar, bæjarstjóra á Seltjarnarnesi, hefur verið gerður hólmi í Bakkatjörn. Fram-
kvæmdir standa enn yfir en í þær var ráðist án samráðs við skipulagsnefnd og bæjarstjóm. Nokkur kurr rikir
meðal bæjarbúa, náttúruunnenda og einstakra bæjarfulltrúa vegna þessa. Þykir alls óvist að fuglavarp á Nesinu
aukist með nýja hólmanum en þau rök voru flutt Náttúruverndarráði þegar það óskaði eftir skýringum. Upphaf-
lega stóð til að hafa hólmana þrjá en frá því hefur þó veriö horfið. DV-mynd S
„Við eigum við mikið landbrot að
elja við norðurströndina og höfum
verið að reyna að breikka landið fyr-
ir neðan veginn. Til þess notum við
jarðvegsefni sem við fáum fyrir ekki
neitt. Moldin skolast síöan burtu en
steinamir verða eftir. Ætlunin er
síðan að setja gijót utan á þetta th
varnar. Markmiðjð er að ná ein-
hveiju broti af því landi sem sjórinn
hefur haft af okkur á undanlomum
ámm,“ segir Sigurgeir Sigurðsson,
bæjarstjóri á Seltjamamesi.
Undanfarnar tvær vikur hefur hátt
í 15 þúsund rúmmetmm af mold ver-
ið ekið frá Reykjavík í fjörur á Sel-
tjamamesi, einkum meðfram vegin-
um sem liggur með norðurströnd-
inni. Hefur það vakið furðu margra
að mold skuli vera notuð th aö koma
í veg fyrir landbrotið enda líklegt að
hún berist inn á land og út á sjó við
hafrót.
Að sögn Sigurgeirs óttast hann
ekki moldarmengun í kjölfar hafróts.
Mold sé ekki hættulegur mengunar-
valdur enda emm við öh af moldu
komin. „Við höfum áhyggjur af ahs
konar mengun en ekki af moldinni.
Lífið byijar og endar í henni,“ segir
hann.
-kaa
Sérstakt tilboðsverð
í 5 siglingar með
lystiskipinu Karelíu.
33 siglingar um öll heimsins höf allt árið
r Páskaferð suður um hðfin \
með Kareliu (KA 53),
v_ 14 daga sigling, 15.-30. april )
Sumarferð suður um hðfin með
Kareliu (KA 61), 14 daga
sigiing, 27. júlf—11. ágúst
Vorferð tii Þýskalands og
Norðurlanda með
Kareliu (KA 54), 8 daga
sigling, 29. april-8. mai.
Vorferð til Miðjarðarhafs með
Karelfu (KA SS), 15 daga
sigling, 8.-24. mai
r Haustferð suður um höfin með
Karelíu (KA 65), 13 daga
\ sigling, 14.-28. september )
Ógleymanleg upplyfting, skoðunarferðir i hverri höfn,
fjölbreyttar skemmtanir um borð. Karelía er yfir 15
þús. tonn, líkt og fljótandi lúxushótel. Barnaafsláttur
og hafa börnin sérstaka aðstöðu um borð. Takmarkað
rými til sölu á okkar vegum. Tekið á móti pöntunum,
sendir bæklingar, lánaðar videospólur.
Ferðaskrifstofa Kjartans Helgasonar
Gnoðarvogi 44, simi 686255