Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1992, Side 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 1992.
Viðskipti
Mikligarður skellir bombu inn á matvörumarkaðinn:
Tekur upp Bónus-stílinn
- tegundtun fækkað, sjálfsafgreiðsla stóraukin og vöruverð lækkað
Mikligarður við Sund skellir brátt
bombu inn á matvörumarkaðinn í
Reykjavík. Ákveðið hefur verið að
gerbreyta versluninni, taka upp hinn
þekkta stíl verslunarinnar Bónuss
og keppa við þá verslun í verði þrátt
fyrir að tekið verði á móti greiðslu-
kortum. Dæmið gengur út á að fækka
vörutegundum, auka magninnkaup
fólks og sjálfsafgreiðslu.
Frá sama tíma verða allar aðrar
verslanir Miklagarðs reknar undir
heitinu Kaupstaöur. Þar verður
meira vöruúrval og þjónusta.
Bjöm Ingimarsson, framkvæmda-
Mikligarður við Sund. Versluninni verður brátt breytt i stil við Bónus.
DV-mynd GJU
Opnað fyrir landanir erlendra fiskiskipa:
Vonumst eftir þýskum
togurum með vorinu
- segir Guðmundur Ámi Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði
„Við höfum verið í sambandi við
þýskt togaraútgerðarfyrirtæki,
DFFU, sem á átta skip, flóra ísfisk-
togara og fjóra frystitogara sem veiða
á Grænlandsmiðum. Nú, eftir að
fnunvarpið um löndun erlendra
flskiskipa hér á landi hefur verið
samþykkt, erum við að gera okkur
vonir um að fá einhveija af þýsku
togurunum til að landa hjá okkur
með vorinu," sagði Guðmundur Árni
Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði.
Hann sagði að menn væru að tala
nm að ísfisktogarar lönduðu þorski
á fiskmarkaðinum í Hafnarfirði.
Einnig væri hugsanlegt að fá frysti-
togarana til að umskipa sínum afla
1 Hafiiarfirði.
Guðmundur sagði að þýsku ísfisk-
togaramir hefðu selt Færeyingum
fisk með beinum samningum. Þar
væri við erfiða samkeppni að etja þar
sem færeyska landstjómin greiddi
þeim um 10 krónur á kíló fyrir að
selja fiskinn til Færeyja. Hann sagði
að erfitt væri að fá upp nákvæmlega
hvaða verð Færeyingamir hefðu
verið að greiða þeim. Þó sagðist hann
telja að meðalverðið á fiskmarkaðn-
um í Hafnarfiröi frá áramótum og
fram að því aö aflahrotan kom, sem
lækkaði verðið, hefði verðið á fisk-
markaðnum verið samkeppnisfært
við verðið í Færeyjum. Þá sagðist
hann reikna allt, styttri siglingar-
tíma og minni olíukostnað þess
vegna.
„En það er ekki bara fiskurinn sem
við eram að tala um. Það er öll sú
þjónusta sem fylgir komu þessara
skipa. Menn hafa verið að slá á það
aö hvert tveggja daga stopp græn-
lensku rækjutogaranna, sem koma
hingað, skilji eftir um 10 milljónir
króna til hinna ýmsu þjónustugreina
í bænum. Þetta kæmi til viðbótar því
að fá fiskinn ef þýsku togaramir
koma. Fyrir togara á Grænlandsmið-
um er stysta siglinginn til íslands.
Við emm því að vona að ef togarar
þurfa að leita hafnar vegna bilunar
landi þeir aflanum hér um leið,“
sagði Guðmundur Árni.
-S.dór
Þrotabú ístess á Akureyri:
Nokkuð viss um að til-
boði okkar verður tekið
- segir Guömundur Stefánsson, framkvæmdastjóri Laxár hf.
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri
„Það er ýmis vinna eftir áður en
málin skýrast endanlega en ég er
nokkuð viss rnn að tilboði okkar
verður tekið, ég held að flest bendi
til þess,“ segir Guðmundur Stefáns-
son, framkvæmdastjóri Laxár hf. á
Akureyri, en það fyrirtæki hefur síð-
an um mitt síðasta ár leigt þrotabú
fóðurvörufyrirtækisins ístess sem
varð gjaldþrota á síðasta ári.
Laxá er í eigu Kaupfélags Eyfirð-
inga, Akureyrarbæjar og Hraðfrysti-
húss Þórshafnar sem öll eiga 25%
hlutafiár, Byggðastofnun á 20% og
þijú fyrirtæki eiga samtals 5%. Laxá
Guðmundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Laxár hf.
gerði á sínum tíma tilboð í þrotabú
ístess sem nam um 40 milljónum
króna. Þá kom tilboð frá norska fyr-
irtækinu Skretting upp á eina milljón
dollara eða tæplega 60 milljónir
króna en Laxá svaraði því með öðru
tilboði sem ekki hefur veriö látið
uppi hversu hátt er.
Bústjóri þrotabús ístess er með síð-
ara tilboð Laxár til athugunar og er
þess aö vænta að það skýrist áður
en langt um líður hvort því verður
tekið. Þá mun einnig hafa verið
ákveðið af hálfu þrotabúsins að
höfða mál gegn norska fyrirtækinu
Skretting sem var hluthafi í ístess
en hafði ekki greitt allt hlutafé sitt.
stjóri Miklagarðs, segir að vörateg-
undum verði fækkað úr um 6 þúsund
niður í 4 þúsund í Miklagarði við
Sund. Vörurnar verða á brettum í
versluninni.
Til stendur að hafa öflugt kjötborð
með fersku kjöti, innpökkuðu, þann-
ig að viðskiptavinirnir afgreiða sig
sjálfir með allt kjöt. Jafnframt verð-
ur fatnaður áfram seldur í Mikla-
garði.
Björn segir að breytingamar á
Miklagarði séu gerðar í gegnum við-
skiptasambönd fyrirtækisins erlend-
is. Náðst hafi góðir samningar um
lækkað vöruverð með breyttum inn-
kaupum erlendis frá.
„Við verðum í framtíðinni með
Miklagarð sem eiginlegan markað en
verslanir Kaupstaðs sem stórmark-
aði með höfuðáherslu á vöruval,
þjónustu og sanngjarnt verð. Síðán
verðum við með hverfaverslanimar
11-11 sem bjóða hluta af vörum stór-
markaða okkar en á sama verði."
Að sögn Björns varð mikið tap á
rekstri Miklagarðs og KRON á árinu
1990. Eftir sameiningu Miklagarðs
og Verslunardeildar Sambandsins í
fyrra tókst að minnka tapið verulega.
Samkvæmt áætlunum þessa árs
verður dæminu snúið við. „Miðað
við reksturinn á þessu ári er ég bjart-
sýnnáaðþaðtakist.“ -JGH
Penmgainarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) haest
innlAn överðtryggð
Sparisjóðsbækur óbundnar 1-1,25 Landsb., Sparisj.
Sparireikningar
3ja mánaða uppsögn 1,25-3 Sparisjóðirnir
6 mánaða uppsögn 2,25—4 Sparisjóðirnir
Tékkareikningar, almennir 0,5 Allir .
Sértékkareikningar 1-2 Landsbanki
VlSITÖLUBUNDNIR REIKNINGAR
6 mánaða uppsögn 2,75-3 Landsbanki
15-24 mánaða 6,75-7,25 Sparisjóðirnir
Orlofsreikningar 5-5,5 Allir nema islb.
Gengisbundnir reikningar í SDR 6-8 Landsbanki
Gengisbundnir reikningar í ECU 8,5-9 Landsb.Jslb.
ÖBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3-3,25 Landsb., Búnb.
óverðtryggð kjör, hreyfðir 4,5-4,75 Landsb.,Búnb.
SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innantfmabils)
Vísitölubundnir reikningar 1,75-3 Landsb.
Gengisbundir reikningar 1,75-3 Landsb.
BUNDNIR SKIPTIKJ ARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör 6-6,5 Búnaðarbanki
óverðtryggð kjör 6-6,5 Búnaðarbanki
INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR
Bandaríkjadalir 2,75-3,0 Allir nema Búnb.
Sterlingspund 8,25-8,7 Sparisjóöirnir
Þýsk mörk 7,5-8,2 Sparisjóðirnir
Danskar krónur 8,0-8,4 Sparisjóðirnir
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
ÚTLAN ÖVÉRÐTRVGGÐ
Almennir víxlar (forvextir) 12,25-13,75 Búnaðarbanki
Viðskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi
Almenn skuldabréf B-flokkur 13-14,25 Búnaðarbanki
Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdráttur) 15-1 5,75 Islb.
útlAn verðtryggð ffpllifl
Almenn skuldabréf B-flokkur 9,75-9,9 Búnb.,Sparisj.
afurðalAn
Islenskar krónur 12,5-14,25 Islb.
SDR 8,25-8,75 Landsbanki
Bandaríkjadalir 6,0-6,75 Sparisjóðir
Sterlingspund 11,9-1 2,75 Sparisjóðir
Þýsk mörk 11,25-11,5 Búnðarbanki
Húsnæðislán 4.9
Lifeyrissjóöslán 5-9
Dráttan/Bxtir 21.0
MEÐALVEXTIR
Almenn skuldabréf apríl 13,8
Verðtryggð lán mars 9,8
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala apríl 3200 stig
Lánskjaravísitala mars 31 98 stig
Byggingavísitala mars 598 stig
Byggingavísitala mars 187,1 stig
Framfærsluvísitala mars 160,6 stig
Húsaleiguvísitala apríl = janúar
VERÐBRÉFASJÓÐIR HLUTABRÉF
Sölugengi bréfa veröbréfasióöa Sölu- og kaupgengi aö lokinni jöfnun:
KAUP SALA
Einingabréf 1 6,157 Sjóvá-Almennar hf. 5,05 5,65
Einingabréf 2 3,273 Ármannsfell hf. 1,90 2,15
Einingabréf 3 4,044 Eimskip 4,77 5,14
Skammtímabréf 2,048 Flugleiöir 1,90 2,10
Kjarabréf 5,789 Hampiöjan 1.30 1.63
Markbréf 3,114 Haraldur Böðvarsson 2,85 3,10
Tekjubróf 2,148 HlUtabréfasjóður VlB 1,04 1,10
Skyndibréf 1,788 Hlutabréfasjóðurinn 1,60 1,68
Sjóðsbréf 1 2,947 Islandsbanki hf. 1,61 1,74
Sjóðsbréf 2 1,931 Eignfél. Alþýðub. 1,58 1.71
Sjóðsbréf 3 2,036 Eignfél. Iðnaðarb. 2,12 2,29
Sjóðsbréf 4 1,738 Eignfél. Verslb. 1,41 1,53
Sjóðsbréf 5 1,226 Grandi hf. 2,60 2,80
Vaxtarbréf 2,0763 Olíufélagið hf. 4,40 4,90
Valbréf 1,9460 Olís 1,78 2,00
Islandsbréf 1,295 Skeljungur hf. 4,80 5,45
Fjórðungsbréf 1,155 Skagstrendingur hf. 4,65 5,05
Þingbréf 1,291 Sæplast 3,24 3,44
öndvegisbréf 1,271 Tollvörugeymslan hf. 1,04 1,09
Sýslubréf 1,316 Útgeröarfélag Ak. 4,25 4,60
Reiðubréf 1,249 Fjárfestingarfélagið 1,18 1,35
Launabréf 1,029 Almenni hlutabréfasj. i 1,10 1,15
Heimsbréf 1,140 Auölindarbréf 1,04 1,09
Islenski hlutabréfasj. 1,15 1,20
Síldarvinnslan, Neskaup. 3,10 3,50
1 Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila,
er miðað við sérstakt kaupgengi.
K = Kaupþing, V = VlB, L= Landsbréf, F= Fjárfestingarfélagið, S = Verðbréfav. Sam-
vinnubanka
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast i DVá fimmtudögum.