Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1992, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1992, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Ferðin til Ríó Umhverfisráðstefnan í Rio de Janeiro, sem haldin verður í júní næstkomandi, hefur verið mikið til umQöll- unar að undanfornu. Því miður hefur athyglin einkum beinst að fjölda þeirra íslendinga sem sækja munu þessa ráðstefnu og kostnaðinum sem því er samfara. Minna hefur verið fjallað um innihald ráðstefnunnar og þau mál sem þar verða á dagskrá. íslendingar ráða auðvitað ekki ferðinni í umhverfismálum og eru lítið peð á því stóra taflborði, einkum og sér í lagi með það í huga að umhverfisvandamálin eru mest í öðrum heimshlutum eða í sjálfu himinhvolfinu. Við leggjum hins vegar okk- ar lóð á vogarskálarnar og víst eru mörg mál sem snerta hagsmuni okkar og nánasta umhverfi, þar sem mikið er í húfi að rétt sé brugðist við. Á það einkum við lífríkið í hafinu, nýtingu og friðun á fiskistofnum, losun úr- gangsefna og varnir gegn mengun hafsins. Á ráðstefnunni í Ríó er stefnt að því að samþykkja víðtæka framkvæmdaáætlun í umhverfismálum og er það mesta og besta átak sem gert hefur verið í heiminum til þessa til samræmdra aðgerða gegn vaxandi spillingu og mengun lífríkis, hvort heldur fyrir menn, dýr eða gróður. Þær fréttir berast að samkomulag hafi náðst á undirbúningsfundum um öll helstu atriði áætlunarinn- ar ef undan er skilin ákvörðun um framlög einstakra ríkja til framkvæmdanna. Ráðstefnan í Ríó mun þar af leiðandi fyrst og fremst vera hátíðarsamkoma þar sem þjóðarleiðtogar koma saman, halda vafalaust hjartnæmar ræður um gildi umhverfisverndar og rétta síðan upp hönd til staðfest- ingar þeirri áætlun sem nú liggur meira og minna fyr- ir. Ráðstefnan er að þessu leyti merkileg en hún verður ekki vinnufundur eða samningafundur og ekki til henn- ar stofnað með það fyrir augum. Það er vissulega miður ef íslendingar gera sér ekki grein fyrir aðalatriðum og mikilvægum hagsmunum sem þarna verða í húfi og velta sér þess í stað upp úr ijölda sendimanna sem sækir ráðstefnuna. En hveijum er það að kenna nema þeim í umhverfisráðuneytinu? Það er fyrst nú í fyrradag sem umhverfisráðherra held- ur blaðamannafund til að skýra frá þeim málum sem þar verða til afgreiðslu. Það liggur jafnframt fyrir að það var umhverfisráðuneytið sem lagði drög að því að panta flugfar fyrir 40 manns frá íslandi til Ríó. Og það var umhverfisráðherra sjálfur sem afgreiddi gagnrýni á kostnað við þessa ráðstefnu með þeim smekklega hætti að kalla það tittlingaskít. íslenskir launþegar og íslenskur almenningur stend- ur frammi fyrir þrengingum í efnahag sínum. Þjóðinni er gert að spara og skammta sér naumt. Því er skiljan- legt að rekin séu upp stór augu þegar gerðar eru ráðstaf- anir af opinberum aðila til að panta far fyrir 40 manns til Ríó á ráðstefnu sem stendur í tólf daga. Nú hefur ráðherra upplýst að ekki standi til að senda nema 12 til 14 manns á kostnað ríkisins. Þá eru ekki meðtaldir for- seti íslands og fylgdarlið og ekki makar sem kunna að slæðast með á kostnað ríkisins. Það kemur í ljós. En jafnvel þótt þátttakendur verði fjórtán talsins er það engu minna bruðl. Það er flottræfilsháttur sem þjóð- in getur sparað sér. Það þarf enga fjórtán menn til að greiða atkvæði í Ríó. Að því leyti snýst umræðan ekki um aukaatriði heldur það yfirlæti og dómgreindarskort sem menn í valdastólum gera sig seka um þegar þeir telja ijölmiðla og almenning vanhæfa til að hafa skoðun á því hvað se titthngaskítur og hvað ekki. Ellert B. Schram „Hvað verður þá um flotann?" spyr greinarhöfundur. Sundrung í Samveldinu Tilvera Sovétríkjanna sálugu grundvallaðist á kommúnista- flokknum og því sem honum fylgdi, miðstýrðu skrifstofuveldi og leyni- lögreglu. En eftir upplausn sovéska heimsveldisins er það nú aðeins ein stofnun sem er arftaki þeirra, Sam- veldi sjálfstæðra ríkja, sameigin- leg, og þaö er heraflinn. Svo á að heita að miðstjórn Sam- veldisins sé í Minsk, sem á að vera einhvers konar Brussel Samveldis- ríkjanna en eftir sem áður er yfir- stjóm hersins í Moskvu. Fari svo að hvert ríki stofni sinn sérstaka her, eins og Úkraínumenn eru þeg- ar farnir að leggja drög að, er allt í óvissu um yfirráð yfir kjama- vopnum fyrrum Sovétríkja. Þar er átt við hin svokölluðu gjör- eyöingarvopn, langdrægar kjama- eldflaugar, því að skammdræg vopn eru enn í flestum fyrrum Sov- étríkja, ekki síst í Armeníu og Az- erbajdzhan, sem Mggja að Nato- ríkmu Tyrklandi, svo og í þeim ríkjum sem landamæri eiga að Kína. Það eru langdrægu vopnin sem afvopnunarsamningar Sovét- ríkjanna og Bandaríkjanna snerust um og ef Samveldið klofnar er ill- gerlegt að sjá hvernig framfylgja á því samkomulagi. Langdrægu vopnin eru í Rúss- landi, Úkraínu, Kazakhstan og Hvíta-Rússlandi. Því er það Vestur- löndum mikið hagsmunamál að yfirstjórn heraflans verði áfram í Moskvu og í raun að Rússar ráði yfir þeim því að Bandaríkjamenn líta á Rússland sem hinn raunveru- lega arftaka Sovétríkjanna. Svart- sýni á framtíð Samveldisins bygg- ist ekki síst á deilum Rússa og Úkraínumanna um yfirráð yfir Svartahafsflotanum, sú deila getur orðið prófsteinn á framhaldið. Krímskagi Nú hefur deilan tekið á sig nýja mynd með því að Jeltsín forseti hefur lýst yfir einhMöa yfirráðum herstjómarinnar í Moskvu yfir flotanum, þó með því fororði aö til greina komi að skipta honum með Úkraínu. Þetta getur orðið mikið hitamál í Úkraínu því að deilan snýst í rauninni ekki um flotann, heldur yfirráð yfir Krímskaga. Krím var hluti Rússlands aflt til 1954, þegar Krústsjoff, sem sjálfur var Úkraínumaður, „gaf‘ Úkraínu Krím með allri áhöfn sem að stærstum hluta voru Rússar. Krafa Úkraínu um yfirráð yfir flotanum byggist á því að hann hefur aðal- stöðvar í Sevastopol á Krímskaga og sé því innan úkraínskrar lög- sögu. En nú stendur fyrir dyrum þjóðaratkvæðagreiðsla meðal íbúa Krímskaga um sjálfstæði frá Úkra- ínu og taMð er víst aö sjálfstæði KjáUarinn Gunnar Eyþórsson fréttamaður verði samþykkt með atkvæðum Rússa. - Hvað verður þá um flot- ann? Þetta er eldfim deila sem gæti leitt til varanlegs klofnings milM Rússa og Úkraínumanna og mun fyrirsjáanlega veikja Samveldið, hvernig sem aMt veltist. Líklegasta málamiðlun er þó taMn að flotanum verði skipt og Úkraína fái hluta hans síðar meir sem er lausn sem enginn er ánægður með. Þjóðir og þjóðarbrot Fyrirhuguð þjóðaratkvæða- greiðsla á Krím vekur athygM á öðru meginatriði í samsetningu hins nýja Samveldis, það er sam- sett úr ótal þjóðum og þjóðarbrot- um sem flest eru reyndar innan Rússlands. Innan Rússlands, eða Rússneska sambandslýðveldisins, eins og það heitir fullu nafni, eru rúmlega 100 þjóðarbrot, sem mörg hafa sitt eigið tungumál og menn- ingu og sín eigin sjálfstiómar„lýð- veldi“. Nú, þegar aflt er í upplausn í miöstjóminni, hafa mörg þessara þjóðarbrota fært sig upp á skaftið og heimtað meira sjálfstæði og jafn- vel fullt sjálfstæði. Fyrir skömmu vann Jeltsín mikinn áfangasigur í baráttunni við þjóðarbrotin þegar hann undirritaði nýjan sambands- sáttmála við 18 af 20 sjálfstjórnar- lýöveldum ásamt samkomulagi um meira fijálsræði við 49 sjálfstjóm- arsvæði, 10 heimastjórnarsvæði þjóðarbrota, eitt heimastjórnar- héraö, sem er hérað gyðinga, og tvær borgir, St. Pétursborg og Moskvu. Tvö af 20 sjálfstjómarlýðveldum neituðu að undirrita nýja sam- bandssáttmálann og krefjast fulls sjálfstæðis, það eru Tatarstan og Tsjestejenía, sem bæði eru mikil olíuframleiðsluríki. Tatarstan hef- ur samþykkt í þjóðaratkvæða- greiðslu og verða sjálfstætt og full- valda ríki, og Tsjetsjenía hefur þeg- ar lýst yfir sjálfstæði og fullveldi. Þessi nýi sambandssáttmáM styrkir stöðu Jeltsíns því að ætla má að sáttmálinn komi í veg fyrir enn frekari glundroða meðal þjóðar- brotanna á næstunni. En það eru víðar þjóðarbrot en í Rússlandi, innan Úkraínu skipta þau tugum, í Kákasuslýðveldunum sömuleiðis og þar geisa borgara- styrialdir nú þegar. Enn ein áminn- ingin um þaö samsafn ólíkra þjóða sem Samveldið er er að nú nýlega komu heim til Krímskaga um 170 þúsund Tatarar, sem StaMn lét flytja til Síberíu nauðuga eftir heimsstyrjöldina fyrir samvinnu við Þjóðveria. Þeir vilja nú þegar endurreisa lýðveldi sitt sem þeir áttu á Krím áður fyrr. Vesturlönd hafa nú loksins sýnt það í verki að það er þeim hags- munamál að Rússland, imdir for- ystu Jeltsíns, sé forysturíki hins nýja samveldis og það gMðni ekki strax í sundur. Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn og alþjóðabankinn hafa fyrir milMgöngu sjö mestu iönríkja heims undir forystu Bandaríkj- anna ákveðið að veita Rússum 24 mflljarða doMara fiárhagsaðstoð á næstu þremur árum. Þessi aðstoð á að styrkja gengi rúblunnar og gera Rússum kleift að standa undir nauðsynlegasta innflutningi meðan mesti glund- roðinn sem fylgir skiptingu yfir í markaðskerfi gengur yfir. Með þessari aðstoð er það loksins viður- kennt að Vesturlönd eiga hags- muna að gæta í því að stöðugleiki ríki í Rússlandi og að besta leiðin tfl þess sé að reyna að styðja við bakið á Jeltsín. Gunnar Eyþórsson „Vesturlönd hafa nú loksins sýnt það í verki að það er þeim hagsmunamál að Rússland, undir forystu Jeltsíns, sé forusturíki hins nýja samveldis og það gliðni ekki 1 strax í sundur.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.