Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1992, Side 26
34
FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1992.
Afmæli
Jón Þ. Sigurðsson
Jón Þorleifur Sigurðsson vélstjóri,
Hringbraut 50, Reykjavík, er átt-
ræðurídag.
Starfsferill
Jón fæddist í Hnífsdai og ólst þar
upp. Hann stundaði þar sjómennsku
frá fermingaraldri, lauk hinu minna
mótornámskeiði Fiskifélags íslands
á ísafirði 1931 og var eftir það vél-
stjóri á ýmsum skipum.
Jón flutti til Siglufjarðar 1936.
Hann var í siglingum á veturna á
stríðsárunum 1941 og 1942 en á
sumrin ýmist á sjó eða í vinnu í
landi.
Jón lauk hinu meira mótornám-
skeiði Fiskifélagsins 1946 og varö
vélgæslumáður Síldarverksmiðju
ríkisins á Siglufirði 1947. Hann flutti
til Reykjavíkur 1962 þar sem hann
var fyrst húsvörður við Austurbrún
2 en síðar varð hann húsvörður við
Samvinnuskólann á Bifröst í Borg-
arfiröi. Síðustu tólf starfsárin var
Jón húsvörður Samvinnubankans í
Bankastræti 7.
Fjölskylda
Jón kvænjist 27.9.1934 Sigurpálu
Jóhannsdóttur, f. 9.12.1912, d. 10.10.
1975, húsmóður. Hún var dóttir Jó-
hanns Hallgrímsson, matsveins á
Siglufirði, og konu hans, Tómasínu
Þorsteinsdóttur húsmóður.
Börn Jóns og Sigurpálu eru Elísa-
bet Jónsdóttir, f. 1934, húsmóðir í
Kópavogi, gift Sverri Sigþórssyni
bakarameistara og eiga þau þrjú
börn; Hörður Jónsson, f. 1938,
birgðavörður hjá Flugleiðum, bú-
settur í Kópavogi, kvæntur Bryndísi
Sigurðardóttur verslunarmanni og
eiga þau eina dóttur; Birgir Jónsson,
f. 1948, veitingamaður og eigandi
Gullna hanans, búettur í Reykjavík,
kvæntur Steinunni Pétursdóttur
húsmóður og eiga þau fimm börn;
Lilja Jónsdóttir, f. 1950, skrifstofu-
maður hjá Úrvali-Útsýn, búsett í
Hafnarfirði, gift Júlíusi Sigurðssyni
aðstoðarframkvæmdastjóra og eiga
þau tvo syni auk þess sem Lilja á
dóttur frá því áður; Tómas Jónsson,
f. 1952, iþróttakennari og nú við nám
í Noregi, kvæntur Guðrúnu Jóns-
dóttur nema og eiga þau þrjár dæt-
ur.
Systkini Jóns: Kristján, f. 12.1.
1910, skipstjóri á Akranesi; Sigríður,
f. 13.12.1910, dó ung; Olga, f. 3.6.
1913, húsmóðir í Reykjavík; Krist-
jana, f. 6.3.1915, húsmóðir í Reykja-
vík; Herdís, f. 2.12.1916, húsmóðir í
Reykjavík; Arnór, f. 20.3.1920, lengi
næturvörður við Samvinnubank-
ann í Reykjavík; Bjarni, f. 16.4.1921,
verkamaður á Siglufiröi; Tómas, f.
10.4.1922, bankamaöur í Reykjavík.
Foreldrar Jóns voru Sigurður
Guðmundsson frá Unaðsdal, f. 9.7.
1874, d. 4.10.1955, verkamaður og
Jón Þorleifur Sigurðsson.
sjómaður í Hnífsdal, og kona hans,
Elísabet Jónsdóttir, f. 15.3.1881, d.
1.5.1930, húsmóðir.
Jón tekur á móti gestum í Skaft-
fellingasalnum, Laugavegi 178,
laugardaginn 11.4. klukkan 15-18.
Sigriður SVava Gunnarsdóttir
Sigríður Svava Gunnarsdóttir,
bankastarfsmaður og húsfreyja,
Efstalandi í Ölfusi, verður fimmtug
á sunnudaginn.
Starfsferill
Svava er fædd að Skarði í Gnúp-
verjahreppi í Árnessýslu og ólst þar
upp til fullorðinsára. Hún lauk
gagnfræðaprófi frá Héraðsskólan-
um á Laugarvatni 1960. Svava hefur
stundað söngnám viö Tónlistar-
skóla Ámessýslu á Selfossi.
Svava starfaði viö Búnaðarbanka
íslands í Hveragerði árin 1982-88 en
hefur unnið í Landsbanka íslands á
Selfossi frá síðasttalda árinu. Hún
hefur ennfremur rekið veitingahús-
ið Básinn frá 1989 ásamt eiginmanni
sínum.
Fjölskylda
Svava giftist 13.7.1963 Birni Kristj-
ánssyni, f. 18.10.1939, veitinga-
bónda. Foreldrar hans: Kristján
Eysteinsson, látinn, frá Tungu í
Hörðudal, og Halldóra Þórðardóttir
húsfreyja, en þau bjuggu á Hjarðar-
bóh í Ölfusi, Halldóra er nú búsett
á Stóra-Saurbæ í Ölfusi.
Svava og Björn eiga þrjú börn:
Gunnar, f. 28.1.1963, sölumaður hjá
P. Samúelssyni hf., eiginkona hans
er Kristín Hauksdóttir bankafull-
trúi, þau eru búsett í Kópavogi og
eiga tvö börn, Andra Má og Svövu
Björk; Hrafnkell, f. 7.10.1969, verka-
maður, Hrafnkell er búsettur í for-
eldrahúsum; Áslaug, f. 21.11.1974,
nemi í Fjölbrautaskóla Suðurlands,
Áslaug er búsett í foreldrahúsum.
Systkini Svövu: Alexía Margrét,
f. 27.6.1936, kennari við Verslunar-
skóla íslands, sambýlismaður henn-
ar er Friðrik Sigfússon, kennari við
Verslunarskóla íslands, þau eru
búsett í Reykjavík og eiga einn son,
Jóel Karl, dóttir Alexíu Margrétar
frá fyrra hjónabandi er Áslaug Arn-
oldsdóttir; Valgerður Kristín, f. 25.2.
1940, kennari við Alþýðuskólann á
Eiðum, eiginmaður hennar er Krist-
inn Kristjánsson, bæjarstjóri á Eg-
ilsstöðum og fyrrverandi skólastjóri
Alþýðuskólans,þauerubúsettá '
Eiðum og eiga tvo syni, Kristján og
Gunnlaug, sonur Valgeröar Kristin-
ar fyrir hjónaband er Magnús Sig-
urjónsson; Jóhannes Magnús, f.
24.12.1945, læknir á Borgarspítalan-
um, eiginkona hans er Guðrún Sig-
urjónsdóttir, nemi við Háskóla ís-
lands, þau eru búsett í Garðabæ og
eiga þrjú börn, Gunnar, Gróu Björk
og Kristínu.
Foreldrar Svövu voru Sr. Gunnar
Jóhannesson, f. 7.6.1904, d. 14.2.
1965, prófastur í Skaröi, og Áslaug
Sigríður Svava Gunnarsdóttir.
Gunnlaugsdóttir, f. 2.8.1900, d. 25.8.
1980, kennari og húsfreyja.
Ætt
Foreldrar Gunnars voru Jóhann-
es Eyjólfsson bóndi og Kristín Jó-
hannsdóttir húsfreyja en þau
bjuggu í Fagradal á Hólsfjöllum.
Foreldrar Áslaugar voru Gunn-
laugur Björnsson, bakari á Eyrar-
bakka og Valgeröur Þórðardóttir á
Kolviðarhóli.
Svava og Björn taka á móti gestum
á afmælisdaginn, 12. apríl, á veit-
ingastað sínum, Básnum, Efsta-
landi, frá kl. 19.
Magnús Karel Hannesson
Magnús Karel Hannesson, oddviti
Eyrarbakkahrepps, Garðhúsum,
Eyrarbakka, er fertugur í dag.
Starfsferill
Magnús er fæddur á Eyrarbakka
og ólst þar upp. Hann stundaði nám
við Menntaskólann í Reykjavík og
síðar við Kennaraháskólann. Magn-
ús lauk stúdentsprófi 1972 og kenn-
araprófi (réttindanám) 1983.
Magnús var kennari við Barna-
skólann á Eyrarbakka 1973-75,
Bamaskólann á Þingborg í Hraun-
gerðishreppi 1976-80, stundakenn-
ari við Vinnuhælið á Litla-Hrauni
1974-75, mælingamaður hjá Vega-
gerð ríkisins 1980-83, í hreppsnefnd
Eyrarbakka frá 1978 og oddviti Eyr-
arbakkahrepps frá 1982.
Magnús hefur gegnt margvísleg-
um félagsstörfum á Eyrarbakka.
T.d. í ungmennafélagi, Æskulýðsfé-
lagi Eyrarbakkakirkju, sóknar-
nefnd og skólanefnd. Hann var í
sýslunefnd Árnessýslu 1982-88, í
héraðsnefnd Árnesinga frá 1989,
fulltrúaráði Sambands íslenskra
sveitarfélaga frá 1986, stjóm Jöfn-
unarsjóðs sveitarfélaga frá 1990 og
í stjórn skipulagsnefndar fólksflutn-
inga frá 1991. Magnús hefur starfað
í Kínversk-íslenska menningarfé-
laginu um árabil.
Fjölskylda
Kona Magnúsar er Inga Lára
Baldvinsdóttir, f. 16.2.1956, deildar-
stjóri við Þjóðminjasafnið. Foreldr-
ar hennar: Baldvin Halldórsson
leikari og Vigdís Pálsdóttir kennari,
en þau eru búsett í Reykjavík.
Sonur Magnúsar og Ingu Láru er
Baldvin Karel, f. 11.7.1985.
Systir Magnúsar er Sigríður, f.
30.7.1960. HálfsystkiniMagnúsar,
sammæðra: Svanhildur Magnús-
dóttir, f. 25.7.1943; Sveinn Magnús-
Magnús Karel Hannesson.
son, f. 3.6.1947.
Foreldrar Magnúsar: Hannes Þor-
bergsson, f. 5.11.1919, bifreiðastjóri
og verkamaður, og Valgerður
Sveinsdóttir, f. 18.4.1921, húsmóöir,
en þau em búsett á Eyrarbakka.
Magnús er staddur í Shangai í
Kína um þessar mundir.
Þeir sem óska birtingar á afmælisgreinum í páskablað DV þurfa
að skila inn upplýsingum eigi síðar en á hádegi mánudaginn 13.4. nk.
Til hamingju með afmaelið 10. apríl
80 ára 60 ára
Bogí Nikulnsson,
Sunnuvegi 18, Selfossi.
75 ára______________________
Þorsteinn Árnason,
Brekkustíg 5, Bakkafirði.
Benedikta Guðmundsdóttir,
Holtagerði 34, Kópavogi.
SoSIa B.M. Theódórsdóttir,
Snorrabraut 34, Reykjavík.
Lilja Valdimarsdóttir,
Ðalbraut 46, Suðurfjarðahreppi.
Aðalheiður Gunnarsdóttir,
Laugavöllum 5, Egilsstöðum.
Hansina Guðmundsdóttir,
Hafnargötu 20, Keflavík.
70 ára
Ferdinand Jónsson,
Reynivöllum 4, Akureyri.
Guðrún AÍexandersdóttir,
Hásteinsvegi 6, Stokkseyri.
Gísli Kr. Gislason,
Smyrilshólum 2, Reykjavík.
Valdimar Axelsson,
Vatnsnesvegi 19, Keflavík.
Aðalheiður Guðmundsdóttir,
Hrísmóum 4, Garðabæ.
50 ára
Þorvaldur Jónasson,
Vesturbergi 183, Reykjavík.
Magnea Þorfinnsdóttir,
Laugavegi 142, Reykjavík.
Margrét Sigurðardóttir,
Elliðavöllum 2, Keflavík.
Björn Ingvarsson,
Otrateigi 3, Reykjavfk.
40 ára
Guðrún Edda Guðmundsdóttir,
Brattholti 15, Mosfellsbæ.
Örn Jóhannesson,
Logafold 149, Reykjavík.
Guðjón Þorbjörnsson (á afmæli 14.4.),
Lambhaga 10, Bessastaðahreppi.
Hann tekur á móti gestum á morgun
(11.4.) í iþróttahúsi Bessastaðahrepps
kl. 17-21.
Tómas Sigurðsson
Tómas Sigurðsson vélstjóri,
Hraunbæ 102 B, Reykjavík, er sjö-
tugurídag.
Starfsferill
Tómas fæddist í Hnífsdal og ólst
þar upp. Hann hóf sjómennsku sína
er hann var ráðinn á fermingardag-
inn háseti hjá aflamanninum Bær-
ingi Þorbjömssyni en með honum
var hann þrjár vorvertíðir. Hann
var síðan háseti á bátum frá Hnífsd-
al og ísafirði til 1947, lengst af á
Mími ÍS 30 með Ingimar Finnbjöms-
syni og Karli Sigurðssyni.
Tómas tók hið minna mótomá-
mskeið í Reykjavík 1940 og hið
meira mótornámskeið 1947. Hann
flutti til Siglufjarðar 1947 og starfaði
þar lengst af sem kyndari og vél-
stjóri í aflstöð Síldarverksmiðju rík-
isins.
Tómas flutti svo til Reykjavíkur
1963 þar sem hann fór aftur til sjós,
fyrst á Margréti ST 4 og síðan hjá
Hafskipi þar sem hann var vélstjóri
til 1973. Þá varð hann vörður hjá
Landsbanka íslands, aðalbanka.
Hann hóf síðan störf við mynttaln-
ingu Seðlabankans þar sem hann
vann til síðustu áramóta er hann lét
afstörfum.
Fjölskylda
Tómas kvæntist 8.4.1944 Stein-
unni Ó. Gísladóttur, f. 20.10.1922,
húsmóður. Hún er dóttir Gísla Ól-
afssonar, b. á Kleifarstöðum og síðar
í Hattardal við Súðavík, og konu
hans, Hansínu Sigurðardóttur hús-
móður.
Böm Tómasar og Steinunnar eru
Ingvi L. Tómasson, f. 3.11.1943, hús-
gagnasmiður í Reykjavík, kvæntur
Rut Kjartansdóttur; Trausti H.
Tómasson, f. 19.6.1948, afgreiðslu-
Tómas Sigurðsson.
maður hjá Flugleiðum í Keflavík,
búsettur í Reykjavík, kvæntur
Hrafnhildi Hrafnsdóttur. Uppeldis-
dóttir Tómasar er Judith Trausta-
dóttir, f. 7.1.1970, nemi og verslunar-
maður.
Systkini Tómasar; Kristján, f. 12.1.
1910, skipstjóri á Akranesi; Sigríður,
f. 13.12.1910, d. 1937; Jón, f. 10.4.
1912, vélstjóri og húsvörður í
Reykjavík; Olga, f. 3.6.1913, hús-
móöir í Reykjavík; Kristjana, f. 6.3.
1915, húsmóðir í Reykjavík; Herdis,
f. 2.12.1916, húsmóðir í Reykjavík;
Amór, f. 20.3.1920, lengi næturvörð-
ur við Samvinnubankann í Reykja-
vík; Bjarni, f. 16.4.1921, verkamaður
á Siglufirði.
Foreldrar Tómasar vom Sigurður
Guðmundsson, f. 9.7.1874, d. 4.10.
1955, verkamaður og sjómaður í
Hnífsdal, og kona hans, Elísabet
Jónsdóttir, f. 15.3.1881, d. 1.5.1930,
húsmóðir.
Tómas tekur á móti gestum í
Skaftfellingabúð, Laugavegi 178,
laugardaginn 11.4. klukkan 15.00-
18.00.