Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1992, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1992, Qupperneq 8
8 Matgæðingur vikuimar LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992. • Auglýsing Vopnafjörður Ríkissjóður leitar eftir kaupum á hentugu húsnæði fyrir lögreglustöð á Vopnafirði og umboðsskrifstofu sýslumanns þar, um 150-160 m2 að stærð. Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og -efni, fasteigna- og brunabótamat, verðhugmynd og áætlaðan afhendingartíma, sendist eignadeild fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyr- ir 20. maí 1992. Fjármálaráðuneytið, 8. maí 1992 Til sölu fasteignir á Eskifirði og Patreksfirði Kauptilboð óskast í eftirtaldar húseignir: Túngötu 1, Eskifirði, neðri hæð, stærð íbúðar 283 m3, brunabóta- mat kr. 5.165.000. Eignin verður til sýnis í samráði við Sigurð Eiríksson, syslumann, Eskifirði, sími 97-61230. Aðalstræti 55, Patreksfirði. Stærð hússins 848 m3, brunabótamat er kr. 10.873.000. Húsið verður til sýnis í samráði við Stefán Skarphéðinsson, sýslumann, sími 97-1187. Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá ofangreindum aðilum og á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík. Tilboð skulu berast á sama stað fyrir kl. 11.00 f.h. þann 21. maí 1992 merkt: „Útboð 3825/2" þar sem þau verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda. INNKAUPASTOFNUIM RIKISINS BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK SUMARBÚSTAÐAEIGENDUR (samþykkt af Rafmagnseftirliti ríkisins) 230 V AC 200-400-700-1300 W 50 RIÐ Framleitt í Bretlandi Sjálfvirkur sjónvarp, útvarp, video, vinnuljós, rakvél, tölvur, hleöslutæki o.fl. Upplýsingar hjá DaEaBa þjónustunni Jaðarsbraut 7, Akranesi, sími 93-13220 Keramik- pottahlífar 20-50% Opið KMe GARÐSHORN 8 alla daga við Fossvogskirkjugarð Simi 40500 Svartfugl í blábeij asósu Stefán Óskarsson, matgæðingur vikunnar. DV-mynd Árni Árnason, Akranesi „Útigrillið er mitt aðaláhugamál í matargerð. Best þykir mér að krydda kjötið sjálfur og get þá ráð- ið hverju ég raða saman. Út úr þessmn tilraunum hafa komið mjög góðir réttir sem ég ber fram með griiluðum nýjum kartöflum og kryddsmjöri," segir matgæðing- ur vikunnar, Stefán Óskarsson, en hann starfar sem húsasmiður og er trillukarl á Akranesi. Skagamenn hafa átt dálkinn um nokkum tíma svo það ér ekki nokkur vafi á að þar búa margir góðir matmenn. Stefán segir að lax og villigæs séu í sérstöku uppá- haldi hjá sér. Rétturinn, sem hann býður lesendum DV aö prófa, lítur vel út og munu margir vafalaust reyna hann á næstu dögum. Það er svartfugl í bláberjasósu sem kemur af Skaganum að þessu sinni. Uppskriftin hljóðar svo: Það sem þarf 4 stk. svartfuglsbringur 8 beikonsneiðar '/2 tsk. pipar /1 lárviðarlauf 4 msk. bláberiasulta (rifsberja- sulta) % 1 rjómi salt eftir smekk Svartfuglarnir teknir og stungiö með hníf báðum megin við bringu- beinið. Ein beikonsneiö sett hvor- um megin á hvem fugl. Salti stráð yfir bringurnar. Fuglarnir grillaðir í ofni í 25 mínútur. Þá era þeir tekn- ir og settir í pott með einum og hálfum htra af vatni. Saltað eftir smekk. Hálf teskeið pipar og hálft lárviöarlauf sett í pottinn. Soðið í eina til eina og hálfa klukkustund. Þá em fuglarnir teknir upp úr pott- inum og búin til sósa úr soðinu. Fjórar matskeiðar af bláberjasultu eða rifsberjasultu og 'A.lítri ijómi sett saman við. Hrært vel i þar til suðan kemur upp. Bringurnar eru bomar fram með soðnum kartöflum, grænum baun- um, maísbaunum og hrásalati. Stefán ætlar að skora á Þorstein Ragnarsson bhkksmið og verk- stjóra í reykhreinsivirkinu í Gmndartanga að vera matgæðing- ur næstu viku. „Þorsteinn er sér- staklega hugmyndaríkur í matar- gerð,“ sagði Stefán. Matgæðingur- inn verður því enn um sinn búsett- uráAkranesi. -ELA Hinhliöin Leiðinlegt að þrífa - segir Gísli Felix Bjamason, markvörður Selfyssinga Gísh Felix Bjamason, markvörð- ur handknattleiksliðs Selfoss, hef- ur svo sannarlega verið í eldlín- unni eftir baráttu um íslandsmeist- aratitilinn í handbolta. Gísh byrj- aði að spila handbolta 10 ára gam- all, í marki hjá KR. Hann hefur haldið sig milli stanganna alla tíð síðan. Hann lék með KR til 1984 en fór þá til Danmerkur. Lék hann með Ribe á Suður-Jótlandi í tvö ár. Við heimkomuna tók markvarsla hjá KR við en fyrir tveimur árum vildu Selfyssingar fá Gísla til hðs við sig. „Ég tók vel í það enda langaði mig til að skipta og breyta til. Ég sá að þama var lið á uppleið enda hefur það komið á daginn,“ segir Gísli. Þó Gísh hafi alltaf verið í marki hefur hann skorað nokkur mörk en ekkert jafn eftirminnilegt og þegar hann jafnaði í leik KR og KA fyrir tveimur árum. „Ég fór fram í sóknina, braust í gegn og skoraði. Slíku gleymir maður aldrei." Gísh Felix sýnir á sér hina hhðina í dag. Fullt nafn: Gísh Felix Bjamason. Fæðingardagur og ár: 18. október 1962. Maki: Sigríður Ámadóttir. Börn Engin. Bifreið: Mitsubishi Lancer árgerð 1988. Starf: Verslunarstjóri í Spörtu. Laun: Vonandi á uppleið. Áhugamál: Að sjálfsögðu íþróttir, íþróttir og aftur íþróttir. Hvað hefur þú fengið margar réttar Gisli Felix Bjarnason. tölur í lottóinu? Eina, ég hef aöeins spilað einu sinni. Hvað fmnst þér skemmtilegast að gera? Að skemmta mér í góðra vina hópi og slappa vel af. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að umgangast frekt og yfir- gangssamt fólk og þrífa. Uppáhaldsmatur: Hamborgar- hryggur að hætti móður minnar. Uppáhaldsdrykkur: Tuborg grön. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Sigurður Sveinsson, handknattleiksmaður hjá Selfossi. Uppáhaldstímarit: Mannlíf og Heimsmynd, fer eftir efninu hveiju sinni. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan maka? Álfheið- ur Gísladóttir. Ertu hlynntur eða andvígur ríkis- stjórninni? Hlynntur þrátt fyrir efasemdir á tímabili. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Gorbatsjov. Uppáhaldsleikari: Sigurður Sigur- jónsson. Uppáhaldsleikkona: Jessica Lange. Uppáhaldssöngvari: Bono í U2. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Dav- íð Oddsson. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Grettir. Uppáhaldssjónvarpsefni: íþróttir og góðar bíómyndir. Ertu hlynntur eða andvígur veru varnarliðsins hér á landi? Hlynnt- ur. Hver útvarpsrásanna ftnnst þér best? Rás 2. Uppáhaldsútvarpsmaður: Þarftu aö spyrja? Bjarni Fel, að sjálfsögðu. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Horfi jafn mikið á báöar stöðvar. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Hættu nú alveg. Bjami Fel! Uppáhaldsskemmtistaður: íþrótta- húsið á Selffossi og Casablanca. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Selfoss ogKR. Stefnir þú að einhveiju sérstöku í framtíðinni? Ég stefni að því að halda góðri heilsu og að hafa gam- an aö lífinu. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Ég fer í vikuferð til Portúgals með Selfosshðinu á næstunni og síðan í hálfs mánaðar sumarfrí til Álaborgar í Danmörku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.