Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1992, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1992, Síða 9
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992. 9 Ljósmyndurum þykja brúðir spennandi viðfangsefni. Atvinnuljósmyndar ar 17 Ijósmyndastofa munu keppast við að taka myndina af brúði mánaö arins í sumar en í september verður valin brúður ársins. Brúðarmyndasamkeppni DV og Kodak: Hver verður brúður ársins '92? Brúður ársins heitir ný ljós- myndasamkeppni sem atvinnuljós- myndarar á 17 ljósmyndastofum víðs vegar um landið taka þátt í. Keppnin er haldin í samvinnu DV og Kodak-umboðsins á íslandi. Allar brúðarmyndir teknar af at- vinnuljósmyndara á tímabilinu frá 1. maí 1992 til 31. ágúst 1992 eru gildar til þátttöku. Keppnin fer fram í samvinnu við þær brúðir sem koma til myndatöku á ein- hverri hinna 17 ljósmyndastofa sem hafa tilkynnt sig til þátttöku. Til að senda mynd í keppnina þarf ljósmyndari samþykki brúðarinn- ar. Keppnin fer fram í fimm hlutum. Fyrst eru valdar brúðir hvers mán- aöar, það er maí, júní, júlí og ág- úst. I september verður síðan valin brúður ársins. Nú í maí verða þær brúðir sem taka þátt í fyrsta áfanga keppninn- ar kynntar. í byrjun júni verður síðan brúður maímánaöar kynnt. Spjallað verður við brúðina og ljós- myndarann sem tók myndina. Fimm manna dómnefnd skipuð fulltrúum DV og Kodak-umboðsins og atvinnuljósmyridarum velur brúði hvers mánaðar og síðast brúði ársins. Veglegverðlaun Vegleg verðlaun eru í boði fyrir sigurvegara hvers mánaðar. Brúður hvers mánaðar fær að launum vandaða Philips mat- vinnsluvél frá Heimilistækjum hf. að verðmæti 13.000 krónur. Þá fær hún einnig kaffiborð á hjólum ásamt 6 kampavínsglösum úr krist- al frá Tékk-kristal að .verðmæti 15.000 krónur. Ljósmyndarinn, sem tekur vinn- ingsmynd hvers mánaðar, fær einnig verðlaun: 30.000 króna vöru- úttekt hjá Hans Petersen hf. Verðlaunin sem veitt eru brúði ársins, sem vabn verður í setpem- ber, eru einkar glæsileg: 28 tomma Philips sjónvarp með Nicam-stereo frá Heimilistækjum og Kodak myndgeislaspilari frá Hans Peters- en hf., alls að verðmæti 150.000 krónur. Ljósmyndarinn sem tekur myndina af brúði ársins fær sömu verðlaun. Heildarverðmæti vinninga er 532 þúsund krónur. Þær ljósmyndastofur sem taka þátt í ljósmyndasamkeppninni Brúður ársins eru: Vestfirðir: Ljósmyndastofan Myndás, Aðalstræti 33, ísaf. Akureyri: Ljósmyndastofa Páls, Skipagötu 8. Ljósmyndastofan Noröurmynd, Glerárgötu 20. Húsavík: Ljósmyndastofa Péturs, Stóragarði 25. Suðurnes: Ljósmyndastofa Suðurnesja, Hafnargötu 79, Kef. Ljósmyndastofan Nýmynd, Hafnargötu 90, Kef. Austfirðir: Ljósmyndastofa Jóhönnu Valg. Arnbjörnsdóttur, Bjamamesi 1, Höfn. Vesturland: Ljósmyndastofa Akraness, Skólabraut 9. Hafnarfjörður: Ljósmyndastofan Mynd, Trönuhrauni 8. Reykjavík: Ljósmyndastofa Sigríðar Bac- hmann, Garðastræti 17. Ljósmyndastofa Þóris, Rauðarárstíg 20. Svipmyndir, Hverfisgötu 18. Ljósmyndarinn, Jóhannes Long, Þarabakka 3. Ljósmyndastofa Gunnars Ingi- marssonar, Suðurveri, Stigahlíð 45. Ljósmyndastofan Nærmynd, Laugavegi 178. Stúdíó 76, Síðumúla 22. Ljósmyndir Rutar, Grensásvegi 11. -hlh Nú um helgina verður stórsýning á Nissan bílum frá kl, 14-17 á fjórum stöðum á landinu, Sigurði Valdimarssyni Akureyri, íþróttahúsinu Frábær verð Verðdæmi: Nissan Sunny stallbakur SLX 1600 cc 4ra dyra 16 ventla vél, 4ra þrepa sjálfskipting, aflstýri, samlæsingar á rafdrifnar rúður, upphituð sæti □g margt, margt fleira Staðgreiðsluverð er kr. 1.014.000 Sauðárkróki, Bílakringlunni Keflavík og að Sævarhöfða 2 Reykjavík. Á Akureyri verður t.d. boðið uppá reynsluakstur Nissan Patrol diesel ilNISSAN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.