Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1992, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1992, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 9. MAl 1992. Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91)63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99 GRÆN NUMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRjALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Ótíðindi sögumanns Ef Morgunblaðið og siðanefnd Blaðamannafélagsins væru ráðandi öfl í Kaliforníu, hefði ekki verið sýnd í sjónvarpi mynd af barsmíðum, sem Rodney King hlaut af hálfu lögreglumanna. Ofbeldið hefði ekki komizt í hámæli og engan hefði þurft að sýkna af því. í heimi hræsninnar, Morgunblaðsins og siðanefndar- innar er talin ástæða til að átelja, að flölmiðlar skuli hafa myndað og hljóðritað, þegar barnaverndarnefnd og lögregla gerðu aðfór að ellefu ára dreng í Sandgerði og handtóku hann með valdi fyrir alls engar sakir. í þessum heimi hræsninnar kemur Morgunblaðið fram sem umboðsmaður barnaverndaryfirvalda, enda eru bæði ný og söguleg persónutengsli þar á milli. Af þessum ástæðum segir blaðið ekki frá mistökum slíkra yíirvalda, nema það sé í Tyrklandi eða Rúmeníu. Þegar barnaverndarnefndir og lögregla handtaka ell- efu ára dreng með þeim hætti, sem varð í Sandgerði, er nauðsynlegt að fjölmiðlar sýni á ljóslifandi hátt, hví- lík vanvirða er á ferðinni. Ef þeir gera það ekki, er hætt við, að fólk haldi, að allt sé með felldu. Það er ekki nýtt, að barnaverndarnefndir lendi í afglöpum af þessu tagi. Af kærumálum Barnavemdar- ráðs á hendur fjölmiðlum má ráða, að framvegis verði fréttir af slíkum afglöpum kærðar til siðanefndar Blaða- mannafélagsins, þar sem úrskurðað verður á færibandi. Siðanefndin er önnur stofnun, sem á langa afglapa- sögu að baki. Blaðamaður, sem vill vinna heiðarlega að starfi sínu samkvæmt stöðlum, sem tíðkast í löndum, þar sem blaðamennska á bezta sögu, getur ekki tekið mark á þessari siðanefnd, sem er út úr miðaldakú. ísland er þjóðfélag 1 þróun. Mjög algengt er, að réttum yfirvöldum verði á mistök í starfi, ekki síður í viðkvæm- um málum en hversdagslegum. Það er hluti í ferli slíks þjóðfélags, að fjölmiðlar skýri bæði í máh og myndum frá slíkum mistökum, svo að fólk viti af þeim. Ef opinberar stofnanir, hvort sem þær heita Barna- vemdarráð eða Hæstiréttur eða Staðarhaldari í Viðey, ganga fram með þeim hætti, að vakið geti undrun al- mennings, er brýnt, að upplýsingar um slík mál hggi á lausu, en séu ekki þaggaðar niður af öflum hræsninnar. Bamaverndarráði og umboðsblaði þess er auðvitað hla við, að dagblað sýni mynd af handtökuofbeldi bamá- vemdaryfirvaids og að útvarp láti fólk heyra grát ehefu ára drengs. En glæpurinn er ekki sögumanns frekar en fyrri daginn, heldur skipuleggjenda verknaðarins. Fjölmiðlum ber að láta Barnavemdarráð, Morgun- blað og siðanefnd ekki kúga sig í slíkum málum. Samein- uð framganga hræsnara ætti fremur að gefa íjölmiðlum tilefni til að fylgjast betur en áður með óvönduðu starfi sumra bamaverndarnefnda og Barnaverndarráðs. Ekki er síður brýnt, að blaðamenn fari að gefa því betri gætur, hver saga siðanefndar er orðin. í fleiri málum en þessu hefur hún komið fram sem verndari hræsninnar og kerfisins í þjóðfélaginu. Hún gat raunar um langt skeið notað Garra Tímans sem nefndarmann. Blaðamenn eiga hvorki að hafa reglur né lögreglu- nefnd, sem stuðla að þögn um afglöp og aðrar uppákom- ur einstakra þátta stjórnkerfisins. Það er arfur frá þeim tíma, er sumir blaðamenn vildu taka þátt í flnimanns- leik kerfisins og töldu sig meðal „heldra fólks“. Uppákoma Bamavemdarráðs, Morgunblaðsins og siðanefndar er nýtt dæmi um anga af gömlum vanda, sem felst í, að sögumanni er kennt um ótíðindi. Jónas Kristjánsson Blóð og eldur í borg englanna Los Angeles er kennd við himna- verur en borgin hefur aldrei þótt í tölu siðaðri mannabyggða. Harð- sviraðir glæpaflokkar annars veg- ar og hrottafengið lögregluhð hins vegar hafa mótaö borgarbraginn um langan aldur. Útþenslustefna borgarforustunnar hefur nú mynd- að samfellda byggð tæpra níu milij- óna manna á 5.300 ferkOómetra svæði í 90 hverfum. Borgaróeirðimar í Bandaríkjun- um 1965 hófust í Watts, einu af svertingjahverfum Los Angeles. í síðustu viku tók svo steininn úr. Þá urðu í suðurhverfum miðborgar Los Angeles mestu óspektir sem getur í sögu Bandaríkjanna. Þegar kyrrð komst á eftir þriggja sólar- hringa skotbardaga, brennur og rán lá á sjötta tug manna í valnum. Á þriðja þúsund manns höíðu slas- ast. Handtökur voru á tíunda þús- und. Húsbmnar töldust um 4500, þar af voru 3700 byggingar brannar til ösku. Tjón á tryggðum eignum er áætlað milljarður dollara að minnsta kosti. Kveikjan að þessum ósköpum var handtaka hálfþrítugs svertingja, Rodney Glenn King, aðfaranótt 3. mars 1991. Hann var á ferð í bíl ásamt tveim félögum þegar lög- reglubíll veitti eftirfór. King var á reynslulausn eftir dóm fyrir rán og hélt að hraöakstur yrði talinn brot á skilorði. Svo er ekki. Þegar hann gafst upp á undan- komutilraun og stöðvaði bíhnn var kominn á vettvang skari lögreglu- bíla og lögregluþyrla sveimaði yfir. Við bjarmann af ljóskastara henn- ar festi nágranni það sem á eftir fór á myndband. Þegar King kom út út bílnum var hann felldur með tveim raflostum úr lömunarbyssu lögreglunnar. Síðan gengu fjórir lögreglumenn í skrokk á honum. Myndbandið nær yfir 81 sekúndu og á þeim tíma era King greidd 56 högg með tveggja feta gegnheilum álkylfum. Sex fótaspörk era látin fylgja. Meðan á þessari misþyrmingu fjórmenning- anna stendur eru nítján aðrir lög- reglumenn á vettvangi og gera ekk- ert til að halda aftur af félögum sínum. Áverkar, sem King sætti, reynd- ust í samræmi við meðferðina á honum. Auk þess að hafa hlotið margfold mör, rispur og skurði var hann með ökklabrot, sprungu í kinnbeini, ellefu áverka á'bein í höfuðkúpubotni, alvarlega áverka á taugum í andhti og mikinn heila- hristing. Undir forastu Daryls F. Gates, lögreglustjóra í Los Ángeles síðan 1978, reyndi lögreglan aö eyða mál- Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson inu, lögregluskýrslur drógu fjöður yfir þaö sem gerst hafði og Paul King var gerður afturreka þegar hann reyndi að koma á framfæri kvörtun yfir meðferðinni á bróður sínum. En á slíku var ekki stætt eftir að sjónvarpsstöð sýndi myndbandiö adf misþyrmingunni. Þaö fór um öll Bandaríkin og síðan heiminn. í ljós komu afrit af fjarskiptum lögreglu aöfaranótt 3. mars þar sem ein- kennisbúnu ofbeldismennirnir hælast um, hafa atburöinn í flimt- ingum og viðhafa verstu slangur- yrði kynþáttahatara um fórnar- lambið. Niðurstaðan var málshöfðun á hendur barsmíðamönnunum fiór- um og rannsókn á framgöngu lög- reglu Los Angeles og ástandinu innan hðsins. Úrslit málsóknarinn- ar, sýknudómur í málum lögreglu- mannanna fiögurra, var neistinn sem kveikti í púðurtunnunni Los Angeles. Sýknudómurinn var fenginn með því að flytja málareksturinn af vettvangi, borginni Los Angeles sjálfri, í aðra og ólíka lögsögu. Fyr- ir valinu varð útborgin Simi Val- ley, nær einvörðungu byggð hvít- um mönnum, þar sem lögreglu- menn frá Los Angeles eru fiöl- mennir. Kviðdómur valinn úr þess- um hópi var ekki lengi að komast aö þeirri niðurstöðu að meðferðin á Rodney King hefði veriö lögleg í alla staði. Um leið og þessi dómsniðurstaða spurðist hófust óspektir á götum Los Angeles. Þá kom í ljós að Gates lögreglusfióra var ekki aðeins ósýnt um að hafa hemil á mönnum sínum heldur reyndist hann jafn ófær um að fást við afleiöingarnar af verkum þeirra. Tveim klukku- tímum eftir að árásir á vegfarend- ur, íkveikjur og gripdeildir úr verslunum hófust fór Gates í fiár- öflunarkokkteh í ríkrahverfinu í Brentwood í þágu baráttu gegn borgarafrumkvæði í komandi kosningum sem snýst um úrbætur á sfiórn og skipan lögregluliðsins. Þar talaði hann fyrir þessum mál- stað meðan borgin brann. Fréttamennirnir Lou Cannon og Gary Lee frá Washington Post voru staddir í Los Angeles og þeir segja að lögreglan, og þá fyrst og fremst yfirsfiórn hennar, hafi brugðist gersamlega í öndverðu, meðan við eitthvað varð ráðið með skaplegu móti. Viðbrögð voru fálmkennd eða engin, hehdarstjórn skorti og engri áætlun eftir að fara. Kaupmenn af kóreskum ættum, sem urðu fyrir einna mestum skaöa í brennum og ránum, hafa sömu sögu að segja af lögreglu Los Angeles. Tilkynningum þeirra og hjálparbeiönum til lögreglu í upp- hafi óreirðanna var ekki svo mikið sem svarað. Fréttamenn Washing- ton Post segja að ekki hafi verið um að ræða löggæslu að gagni á götum óeirðahverfanna í Los Angeles fyrr en 40 klukkutimum eftir að allt fór í bál og brand. Áður en þessir síðustu atburðir gerðust var búið að knýja Gates lögreglustjóra til að segja af sér og fer hann frá um mitt sumar. Rann- sóknarnefndin, sem áður var getið, hafði kveðið upp yfir honum þung- an áfellisdóm fyrir að láta viðgang- ast í lögregluliðinu ólíðandi hrotta- skap, sérstaklega gagnvart svert- ingjum. Byssum er beitt að tilefnislausu af hreinum skotlosta. Tveir lög- reglumenn skutu á fióram sekúnd- um tólf kúlum á Eula Mae Love, 39 ára ekkju og þriggja barna móð- ur. Átta kúlur hæfðu. Skotmenn- irnir réttlættu verknað sinn með því að konan hefði haldið á kjöt- hníf. Áttatíu og átta lögreglumenn voru sendir, meðal annars vopnað- ir sleggjum og múrbijótum, í tvö sambýhshús á horni 39. götu og Dalton Avenue og brutu þar og brömluðu innanstokks svo borgin hefur þegar orðiö að greiða 3,4 mihjónir dollara í bætur. Skýrast verður hehdarmyndin af hegðun lögreglu Los Angeles þegar þess er gætt að menn í henn- ar röðum verða valdir að þrem manndrápum á ári á hveija 1000 lögreglumenn. Næst af bandarísk- um borgum kemst Detroit þar sem talan er 1,2. í fátækrahverfum borgarinnar hafa þeir sem eiga að gæta laga og réttar hegðað sér eins og hemámshð í óvinalandi. Upp- skeran er eftir því. Magnús T. Ólafsson Fólk, grunað um gripdeildir, liggur handjárnað á malbikinu á mótum gatnanna Vermont og Martin Luther King í Los Angeles en lögreglusveit stendur yfir þvi. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.