Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1992, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1992, Page 16
16 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992. Skák 13 V Bandaríkin: Skáklistin hefur aldrei náð verulegum vinsældum Þrátt fyrir aö Bandaríkjamenn hafi átt mestu skáksnillinga sögunnar, þá Paul Morphy og Bobhy Fischer, virðist skákin einhvem veginn ekki eiga við bandarísku þjóðarsá- lina. í Ameríku þurfa hlutimir að ganga svo hratt fyrir sig að enginn má vera að því að tefla skák. Opna mótið í New York, sem haldið er árlega um páskana, er dæmigert fyrir þennan hugsunar- hátt. Hér í eina tíð var tefld ein skák á dag á því móti, eins og tíðk- as't á alþjóðlegum skákmótum. Nú em þar tefldar tvær skákir á dag með eilítið styttum umhugsunar- tíma og mótið stendur aðeins yfir í fimm daga. Með þessu breytta fyrirkomulagi er mótið á mörkum þess að teljast „alvörumót". T.a.m. gera reglur FIDE ekki ráð fyrir því að mögu- legt sé að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli ef svo stíft er teflt. , Engu að síður dregur mótið ævin- lega til sín fjölda meistara frá ýms- um löndum. Fyrstu verðlaun, tíu þúsund Bandaríkjadalir, eða lið- lega 600 þúsund ísl. krónur, hafa sitt aðdráttarafl. Fimm íslendingar voru meðal keppenda að þessu sinni. Stór- meistaramir Helgi Ólafsson, Jón L. Ámason og Margeir Pétursson og tveir Patreksfirðingar, Jökull Kristjánsson og Amar Ingólfsson, sem nú býr á Djúpavogi. Þeir síðastnefndu hafa ekki al- þjóðleg Elo-stig og heföu getað freistað gæfunnar í flokki stiga- lausra. Þeir ákváðu hins vegar að tefla meðal meistaranna, að vík- ingasið, og óhætt er að segja að þeir höfðu árangur sem erfiði. Báð- ir fengu 3,5 vinninga úr sjö skákum og andstæðingar Amars höfðu allir frá 2300-2400 Elo stig. Meö frammi- stöðu sinni er því líklegt að Amar fái nafnið sitt skráð á alþjóðlega Elo-stiga listann. Þeir félagar komu degi of seint á mótið og fengu bókað jafntefli í fyrstu umferð og vegna misskilnings mættu þeir ekki í eina morgunumferðina. Þeir tefldu því ekki nema sjö skákir en alls voru tefldar níu umferðir á mótinu. íslensku stórmeistaramir náðu heldur ekki verðlaunasætum. Jón fékk 6 vinninga og Helgi og Mar- geir 5 vinninga eftir töp í síðustu umferð. Það var þýski stórmeist- amn Eric Lobron sem kom, sá og sigraði. Hann hlaut 7,5 vinninga en jafnir í 2.-7. sæti vom Fedorowicz og Braude, Bandaríkjunum, Igor Ivanov, Kanada, Zapata, Kólumb- íu, Shneider, Rússlandi og Ehlvest, Eistlandi, sem allir fengu 7 vinn- inga. Ævintýraleg endatöfl Óhætt er að segja að verulega reyni á þolrifin að tefla í slíku móti þar sem tvær skákir em tefld- ar á dag. Tímamörkin em fyrst við 30. leik (90 mínútur á keppanda), síðan við 50. leik (60 mínútur til viðbótar á keppenda) og loks er klukkustund á mann til að ljúka skákinni. Hver skák getur lengst staðið 1 sjö klukkustundir og skák- maðurinn getur því setið að tafli í 14 stundir á dag! Ég lenti í þeim ósköpum á mótinu að þurfa að bjarga „langlokum" sama daginn. Fyrst gegn stórmeist- Þó svo að Bandaríkjamenn hafi átt afburða skáksnillinga á borð við Bobby Fischer hefur skáklistin ekki náð mjög miklum vinsældum þar vestra. Umsjón Jón L. Árnason aranum Alexander Shneider, sem ég tapaði eftir 65 leikja erfiða skák, og síðan við annan rússneskan Alexander, Panchenko, en þar tókst mér aö bjarga tapaðri skák í jafntefli eftir yfir 120 leikja tafl- mennsku! Þann daginn sat ég að tafli í 14 stundir. Ég átti fjórar lang- ar skákir á mótinu en get ekki kvartað yfir árangrinum: Mér tókst að bjarga þremur töpuðum enda- töflum og meira að segja að vinna eitt þeirra á ævintýralegan hátt. Sjáið fyrst lokin á skák minni við bandaríska stórmeistarann Roman Dzindzihashvili sem hafði hvítt og átti leik í þessari stöðu: Ef hvítur leikur í þessari stöðu 53. Bf3 er hætt við að svartur eigi ekki langa lífdaga fyrir höndum. Svarta a-peðið er dæmt til að falla og 53. - Rfl og hirða h-peðið tekur allt of langan tíma. En Dzindzi var of bráður á sér: 53. Kb5? Rd5 54. Bf3 Rc3+ 55. Kxa5 Ke5 56. Bc6 Kf5 57. Bf3 Ke5 58. Kb4 Rxa4! 59. Kxa4 Kd4 Þessi staða er jafhtefli en ekki skeikar nema einu „tempói". 60. Bc6 Ke3 61. Be8 h4! 62. g4 Ef 62. gxh4 Kf4 63. Bxg6 Kg4 64. h5 Kg5 og kóngurinn kemst í veg fyrir h-peðið og hreiðrar um sig í horninu. Vörn svarts byggir á þessu þema: Biskup og jaðarpeð gegn kóngi geta ekki unnið ef bisk- upinn valdar ekki uppkomureit peðsins. 62. - Kf3! Eini leikurinn. Ef 62. - g5? fær hvítur „tempóið" sem hann vantar: 63. Kb4 Kf3 64. Bd7 Kg2 65. Kc4 Kxh2 66. Kd4 Kg3 67. Ke5 h3 68. Kf5 h2 69. Bc6 og hvítur vinnur. 63. Kb4 h3! Svartur verður að tefla hámá- kvæmt. Ef 63. - Kxg4? 64. Bd7 + Kf4 65. h3 g5 66. Bg4! og nú vinnur hvítur! Svartur lendir fyrr eða síð- ar í pattstöðu á h8 og neyðist til að leika g5-g4, sem hvítur svarar með h3xg4 og kemur peðinu sínu í verð. 64. Bd7 Kg2! 65. Kc4 Kxh2 66. Kd4 Kg3 Og jafntefli samið því að eftir 67. Ke3 g5 68. Ke2 er ekkert að hafa í stöðunni. í sjöundu umferð skall aftur hurð nærri hælum er ég tefldi við Panc- henko. Eftir fleiri en ein mistök af minni hálfu kom fram staða þar sem hann hafði hrók og flmm peð gegn tveimur biskupum mínum og tveimur peöum. Endataflið var gjörtapað því að biskupamir máttu sín lítfls gegn peðakeðjunni. En aft- ur var andstæöingur minn of veið- bráður. Hann gaf mér kost á að gefa annan biskupinn fyrir tvö peð og loks örlaði á vonarneista, þótt taflið væri enn „fræðilega séð“ tap- að. Þessi staða kom upp eftir 83 leiki. Panchenko, með hvítt, átti leik: Hvítur á vinningsstöðu en til að vinna skákina þarf hann talsveröar tilfæringar. Sigurleiðin byggist á því að koma kónginum til c6, án þess að hleypa svarta kónginum í homið. Til þess þarf hann að nota a5-reitinn fyrir kónginn. T.d. með hrók á b5, að leika á réttu augna- bliki Ka5-b4. Þetta er hægt en er afar vandasamt. Andstæðingur minn þreifaði fyr- ir sér en tókst ekki að koma þessu í kring. Tuttugu og fjórum leikjum síðar brast hann loks þolinmæðina er sama staða var aftur komin fram... 107. a5? Þungu fargi var af mér létt. Nú getur hvítur ekki unnið lengur. 107. - Bf2 108. Hf7 Bgl 109. Hb8+ Kc7110. Kb5 Kb7111. Hf7+ Kb8112. Kc6 Be3 113. a6 Bgl 114. Hg7 Be3 115. Hb7+ Ka8116. Hg7 Kb8 117. Hf7 Bgl 118. a7+ Ka8! Síðasta gildran er 118. - Bxa7?? 119. Hf8 mát! Nú er staðan jafn- tefli. Svartur leikur næst 119. - Bxa7 og hvítur fær ekki hrakið svarta kónginn úr hominu. Eftir allmarga leiki til viðbótar féllst andstæðingurminnloksájafntefli.' Heilladísimar vom mér einnig hliðhollar í skák minni við Banda- ríkjamanninn Cherniack í síðustu umferð. Sannast sagna kom það mér verulega á óvart hve Banda- ríkjamaðurinn tefldi vel í skákinni. Er fór að syrta í álinn bauð ég hon- um jafntefli en hann lét það sem vind um eyru þjóta. Ég tók það þá til bragðs að fóma manni fyrir tvö peð en framkvæðið var skammlíft. Annað peðið féll tfl baka og mót- herjinn skipti af öryggi í unnið endatafl. Eftir 35 leiki var þessi staða á borðinu. Ég hafði hvítt og átti leik: Staðan er vonlaus ef ég vík drottningunni undan en nú kvikn- aði vonarneisti... 36. Dxc5 Rxc5 37. g5! Þessi staða vakti mikla athygli viðstaddra enda ekki á hverjum degi sem fjögur peð telja sig jafnoka þriggja peða og riddara! Andstæðingur minn, sem senni- lega hafði búist viö uppgjöf minni á hverri stundu, tók nú að ókyrrast því að nú mátti hann gæta sín. Ekki gengur t.d. 37. - hxg5? 38. f6 og nú 38. - gxfB 39. h6, eða 38. - Re6 39. fxg7 Rxg7 40. h6! og ný hvít drottning er í sjónmáli. Annar vondur leikur er 37. - Rd7? 38. e6 fxe6 39. fxe6 og aftur getur svartur ekki hindrað að hvítur veki upp drottningu. Eftir langa umhugsun lék svart- ur... 37. - Re6? ... því að eftir 38. fxe6 fxe6 kemst svarti kóngurinn fyrr eða síðar til d5 og peðsendataflið er unnið. En hvítur er ekki svo samvinnuþýður. Vinningsleikurinn er 37. - Re4! og þá er sama hvemig hvitur fer að. T.d. 38. f6 gxf6 39. gxh6 Rg5 og vinnur, eða 39. g6 fxg6 40. hxg6 fxe5 41. g7 Rf6 og aftur nær svartur að stöðva peðin. 38. g6! Rd8 39. f6! Re6 40. fxg7 Rxg7 41. gxf7 Re6 42. Kc2 Kb6 43. Kd3 Kc6 Eða 43. - Kc5 44. Ke4 Rg5+ 45. KÍ5 Rxf7 46. Kf6 Rxe5 47. Kxe5 Kc4 48. Kf5 Kd3 49. Kg6 Kc2 50. b3 Kb2 51. Kxh6 Kxa2 52. Kg5 a4 53. bxa4 og jafntefli. 44. Kc4 Staðan er nú jafntefli, t.d. eftir 44. - RfB 45. Kd4 Re6+ 46. Kc4 o.s.frv. En andstæðingur minn var auðvit- að ekki ánægður meö það að ég skyldi sleppa svo auðveldlega. Því gerir hann síðustu „vinningstfl- raunina". 44. - Kd7? 45. Kb5 Ke7 46. Kxa5 Rf4 47. Kxb4 Rxh5 48. a4! Rf4 49. a5! h5 50. a6 Re6 51. a7 Rc7 52. Kc5 h4 53. Kc6 Ra8 54. Kb7 h3 55. Kxa8 h2 56. Kb8 hl=D 57. b8=D Nú má ljóst vera að svartur hafði ekki reiknað sem nákvæmast. ■Tlvítur vinnur létt. 57. - Del 58. Da7+ KÍ8 59. Dc5+ Kxf7 60. b4 Dhl 61. b5 Dh8+ 62. Ka7 Dhl 63. Dc7+ Kf8 64. Dc8+ Og svartur gafst upp.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.