Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1992, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1992, Page 30
42 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992. Bamavemdar- og for- sjánnál í brennidepli „Handtökuskipun gefin út á móöurina", „Fásinna að taka börn- in“, „Þori ekki út úr húsi af ótta við að finnast", „Fógeti og lögregla ruddust inn í íbúöina“. Þetta eru nokkrar af þeim fyrirsögnum sem staðið hafa yfir fréttum DV um barnavemdar- og forsjármái síð- astliðin ár. Þessar fyrirsagnir gefa ákveðna mynd af því ástandi sem oftar en ekki vill skapast í þessum málum og DV hefur sagt frá. í DV hafa birst íréttir um aðgerð- ir barnaverndaryfirvalda til að nema böra á brott frá öðru hvoru foreldri eða báðum, aðgerðir sömu yfirvalda og jafnvel lögreglu í for- sjárdeilum og fleiri uppákomur af svipuöu tagi. Bamavemdarmál og forsjármál eru viðkvæm mál og fréttaöflun í bamaverndar- og forsjármálum getur verið erfið. Bamaverndaryf- irvöld eða félagsmálayfirvöld tjá sig ekki um einstök tnál þrátt fyrir aö DV hafi ítrekaö innt eftir við- horfum þeirra. Vísa þau til þagnar- skyldu. Af þeim sökum geta komið fram ásakanir um einhliða frétta- flutning. DV hefur hins vegar leit- ast við að varpa fiósi á allar hliöar þessara viðkvæmu mála. -hlh Forræðisdeila milli föður á Spáni og móður á íslandi: Fógeti og lög- regla ruddust inn í íbúðina - ráöuneytið hundsaði umsagnir bamavemdamefnda „Okkar rök í málinu í dag eru umsagnir frá barnaverndarnefndum Kjalarneshrepps og Reykjavíkur og umsagnir þriggja sérfræðinga um vilja barnsins. Allir þessir aðOar mæla með að barnið verði hjá móð- urinni. Þaö eina sem ráðuneytið hef- ur í höndunum er plagg frá Spáni frá 1987, sem er ekki einu sinni undir- skrifað, og umsögn barnaverndar- nefndar Kjalamess frá 1985. Þeir virðast ekki trúa því að fólk geti tek- ið sig á. Ég trúi samt ekki öðru en að þeir geri á endanum þaö sem er rétt,“ sagði Hildur Lovísa Ólafsdóttir í viötali við helgarblaö DV 8. sept- ember 1990. Hildur hafði þá átt í harðri baráttu við fyrrum eiginmann sinn og yfir- völd um forræði yfir 9 ára (nú 11 ára) gamalli dóttur þeirra. Við skiln- að þeirra 1985 var eiginmanni Hildar fahð forræði yfir bömunum, meðal annars vegna áfengisvanda hennar sem hún tókst á við seinna með góð- um árangri. Frá skilnaðinum barðist HOdur - við fyrrum eiginmann og dómsmálaráðuneytið til að fá þeim úrskuröi hnekkt. TókbarniðáSpáni Deilan tók á sig óvenjulega mynd þegar Hildur fór til Spánar sumarið 1989 til að hitta dóttur sína. Tók hún barnið úr vörslu föðurins og flutti það heim til Íslands. Taldi Hildur að barnið byggi ekki við þá umhyggju og ástúð sem þaö þarfnaðist. Forsjármálið var tekið upp að nýju. Barnaverndarnefnd úrskuröaði að það væri „í samræmi viö hag og þarf- ir telpunnar að móðir fari með for- sjá“. Var tekið fram að móðirin nyti stuðnings eldri barna sinna við um- sjón barnsins, en tveir synir hennar, 17 og 18 ára, völdu að koma heim frá Spáni eftir að hafa búið þar hjá föð- urnum um tíma. Dómsmálaráðuneytið kvað hins vegar upp úrskurð um að forræði yrði ekki breytt. Hildur fór þá í felur með dóttur sína. Handtökuheimild var gefin út á Hildi sem haröneitaöi að láta barnið frá sér þar eð það vildi vera hjá móður sinni. Stuttu síðar kom frétt um að barn- ið heföi verið tekið af HOdi. Var telp- unni komið fyrir á vistheimOi og síð- an fengið föðurnum sem fór meö það til Spánar. Ólögmætar fógetaaðgeróir Ári síðar fer málið aftur af stað. Þá er telpan í sumarfríi hjá móður sinni hér á landi en hvorki Hildur né eldri systir telpunnar vOdu aö hún færi aftur utan og fóru því í felur fyrir yfirvöldum. Til stóð að setja Hildi í gæsluvarðhald segði hún ekki frá dvalarstað dóttur sinnar en til þess kom ekki. Lögregla vaktaði heimili Hildar en hætti því þegar það framferði varð opinbert. A laugar- dagskvöldi, daginn sem viötahð við Hildi birtist í DV, varð mikO tauga- spenna í málinu er fógeti og lögregia ruddust inn í íbúðina til Hildar. Var Mikíl taugasjíeiina i' t'on'aeðismáUnu á iaugnrdágskvöldið: StetánGuðííjanssuníiSpíiui.íáðírstúlkumiar. Égeráleiðtil iandsins „Fógeti og lógregla ruddust inn í íbúðina“ - sagffi HtktarÖiafsdóttlrettiraöfógetioglíHjreglakonHuivettvatig Forræðismál Hildar Lovísu Ólafsdóttur og eiginmanns hennar vakti mikia athygli er fréttir af þvi birtust á síðum DV i september 1989 og aftur í sept- ember 1990. Hildur hafði umsagnir sérfræðinga og barnaverndarnefnda Reykjavíkgr og Kjalarness að vopni og þá sannfæringu sina að 9 ára dótt- ir hennar vildi vera hjá henni. Hún faldi því dóttur sína i tvigang. Mál henn- ar strandaði hins vegar í dómsmálaráðuneytinu sem ekki vildi breyta úr- skurði sinum um áframhaldandi forræði föðurins. HOdi tjáð að hún ætti að afhenda bróður föðurins barnið. Fjöldi lög- reglubíla var við húsið. Lögfræðing- ur Hildar kom síðan aðvífandi, synir hennar, vinir og vandamenn, prestur og Helga Hannesdóttir geðlæknir. „Fógeti kom ekki með fulltrúa frá barnaverndaryfirvöldum þegar hann kom til að fullnægja innsetn- ingarbeiöni vegna stúlkunnar. Hann brýtur þar með bæði barnaverndar- og barnalög," sagöi Helga viö blaða- mann á vettvangi. Fógeti dró sig í hlé vegna athygl- innar sem atburðirnir á heimili HOd- ar fengu. Lögreglumenn tóku einnig afstööu gegn vinnubrögðum eins og þeim sem viðhöfð voru í málinu. I viðtalinu, sem birtist þennan laugardag, segir Hildur: „Ég mundi ekki standa í þessu nema af því að það er bjargföst sannfæring mín að það er einlægur vilji barnsins að vera hjá mér. Ég vil hins vegar ekki trúa því að stjórnvöld vilji leggja þetta á mig og barnið. Okkur hlýtur aö verða trúað að lokum. Ráðuneytið getur ekki verið svo steinrunnið að það skipti ekki um skoðun." Eftir því sem best er vitað er Hildur enn með dóttur sína í dag. -hlh Ung móðir svipt forræði er hún lá á Fæðingarheimilinu: Flúði með bamið að næturlagi „Ég verð í felum uns ég verð búin að fá forræði yfir barninu mínu. Ég þori ekki aö fara út úr húsi af ótta við að ég finnist. Þetta er ekki gaman en ég geri allt til að vernda drenginn. Ég reyni að láta hvern daga líða og hugsa ekki mikið um þetta. Samt finn ég alltaf fyrir ákveöinni hræðslu um hvað Félagsmálastofnun og barna- vemdarnefnd muni gera í næst mál- inu,“ sagöi Anný Margrét Ólafsdótt- ir, móöir þriggja vikna drengs, þegar DV ræddi við hana í maí síðastliðn- um. Þá hafði hún verið í felum með drenginn sinn frá því hann fæddist. Meðan Anný var að jafna sig eftir fæðinguna kom úrskurður frá barnaverndarnefnd þess efnis að hún væri svipt forsjá dregsins tíma- bundið og átti barnið að dveljast á Fæðingarheimili Reykjavíkur og Vistheimili barna. Forsaga málsins er sú að Anný leit- aði Ul Félagsmálastofnunar meðan hún var ófrísk og óskaði eftir að stofnunin hjálpaði henni viö að finna hentugt húsnæði tO að búa í eftir að barnið væri fætt. Félagsmálastofnun kraföist þess þá að fá að hafa af- - fékkforræði eftir tvo mánuði í felum Móðii þri«ida vlbtu lUtmo..' Þori ekki út úr húsi af ótta við að Yinnasf Ófrísk leitaði Anný Margrét Ólafs- dóttir til Félagsmálastofnunar í von um að fá ibúð fyrir sig og ófætt barn sitt. Upp frá þeirri stundu krafðist stofnunin að hafa afskipti af henni vegna fjögurra ára gamalla „synda“. Þau afskipti enduðu með forræðissviptingu. Anný hafði þó betur i baráttu sinni við kerfið - eft- ir tvo óttaþrungna mánuði í felum. skipti af henni og barninu í framtíð- inni. Taldi Anný þá kröfu til komna vegna þess að fyrir fjórum árum átti hún dóttur sem hún setti i fóstur og gaf síöan til ættleiðingar. Allt þar tO hún óskaði aðstoðar Félagsmála- stofnunar vegna íbúöar hafði hvorki stofnunin né lögreglan haft afskipti af henni eða hennar högum. Fram að fæðingunni reyndi Félags- málastofnun ítrekaö að að skipta sér af Anný á þeim grundvelli aö hún væri með barni sem hún gæti ekki annast. Kærði Anný sig ekki um af- skipti stofnunarinnar en hún bjó þá hjá móður barnsfööur síns. Sama dag og Anný eignaðist son sinn var hún boðuð á fund Barna- verndarnefndar. Hún gat af eðlOeg- um orsökum ekki mætt á hann. Hún var aftur boðuð á fund stuttu síðar en komst ekki þar sem hún var að jafna sig eftir barnsburðinn. Kyrrsetning og svipting Á meðan Anný lá á Fæðingarheim- ihnu kvað barnavemdarnefnd upp þann úrskurð að barnið skyldi kyrr- sett á Fæðingarheimilinu og fékk Anný bréf þar að lútandi. Strax í kjölfarið kom fyrrnefnt bréf um að hún væri svipt forsjá barnsins tíma- bundið. I bréfi barnaverndanefndar kom fram að ástæöa úrskurða nefnd- arinnar væru sú að Anný væri ekki nægilega samvinnuþýð. Þegar hér var komið sögu ákvað Anný að grípa til eigin ráða og flúði af Fæðingarheimilinu að að nætur- lagi, með son sinn vafinn inn í sæng og teppi. Löreglunnni var falið að hafa uppi á Anný og barninu. Lög- fræðingi Annýjar tókst að semja við lögregluna og barnaverndamefnd um að hjúkrunarkona mundi fylgjast með henni og barninu og gefa skýrslu um ástand þess án þess að greina frá dvalarstað mæðginanna. Um tveimur mánuðum síðar hafði Anný haft betur í baráttu sinni við kerfið, fengið að vita að hún væri með forsjá bamsins. Haföi henni enda gengið mjög vel að annast drenginn. Hún var fegin aö losna úr felum og hafði komið sér fyrir i öðm húsnæði. -hlh Guðrún Kristinsdóttir: Baminu til hliðar „I skýrslum baraaverndar- nefhda, sem ég byggi rannsókn mína á, var afskaplega lítið skráð um bömin sjálf, hvemig þeim leið og hvað þau vOdu. Það var langmest skrifað um fullorðna og samtöl sem fóru fram við þá. Það var lögð áhersla á aðgerðirnar, það er að nú ætti að koma við- komandi bami fyrir. Barnið var því mjög htið í brennideph í þess- um skýrslum, nema þá í allra stærstu málunum. En hið al- menna er þetta: Bömin virðast hverfa í skugga ráðstöfunarinnar sem á að gera. Það er lögð mest áhersla á móðurina, mjög lítiö skrifað um fööurinn og barninu ýtt til hliðar,“ sagði Guðrún Kristinsdóttir í samtah við DV í febrúar. Guðrún Kristinsdóttir er dokt- or í félagsráðgjöf og kennir hana viö háskólann í Umeá í Svíþjóð. Hún skrifaði doktorsritgerð um bamavernd á íslandi sem hét barnavernd og sérfræðiþróun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.