Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1992, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1992, Page 19
Amarunmi Meistaramót golfklúbbs Mos- fellsbæjar fór fram um helgiiia. í 1. flokki karla sigraöi Amar Sig- urbjörnsson gLæsilega á 308 högg- um. Annar varö Tómas Jónsson á 315 höggum og þriðji Ragnar Ragnarsson á 326. I 1. flokki kvenna sigraöi Eiínborg Kristj- ánsdóttir á 456 höggum. 12. flokki sigraöi Davíö Helgason á 385 höggum og í 3. flokki vanh Ðaníel Þórðarson á 348. í 4. flokki sigraöi Guðmundur Svavarsson á 366 höggum og í 5. flokki vann Ómar Garðarsson á 427 höggum. í drengjaflokki sigraði Ólafur Gunnlaugsson á 209 höggum og í öldungaflokki sigraöi Sigurþór Hjartarson á 193 höggum en þar var leikinn styttri vegalengd. Staðaní 4. deild A-riðill: ReynirS......8 8 0 0 53-2 24 Njarðvík.....8 5 2 1 33-13 17 VíkingurÓ....8 5 2 1 28-13 17 Afturelding....8 4 2 2 34-14 14 Hafhir......8 2 1 5 12-26 7 Emir.........8 2 1 5 14-39 7 Árvakur.....8 116 14-51 4 Hvatberar....8 0 1 7 9-41 1 B-riðiU: HK...........7 7 0 0 42-4 21 LeiknirR.....8 5 1 2 22-11 16 Ármann.......7 4 1 2 17-13 13 Fjölnir......8 3 1 4 14-15 10 SnæfeU.......7 3 l 3 15-19 10 Víkverji.....8 3 1 4 15-23 10 Bolungarvík...8 2 1 5 12-20 7 Léttir.......7 0 0 7 3-38 0 C-riðUh Hvöt.........5 5 0 0 19-4 15 Konnákur.....5 2 1 2 10-6 7 SM...........5 12 2 10-13 5 HSÞ-B........5 2 0 3 11-10 6 Neísti.......4 2 0 2 8-9 6 Þrymur.......4 0 1 3 2-21 0 D-riðill: Höttur.......9 9 0 0 43-0 27 Slndri.......9 5 2 2 38-17 17 VaiurRf......7 4 1 2 24-6 13 LeiknirF.....6 4 1 1 18-8 13 Austri.......9 3 2 4 19-15 11 HuglnnS........9 4 2 3 24-14 14 Einhetji....-7 3 2 2 23-14 11 Neísti.......8 116 14-36 4 KSH..........8 0 2 6 6—29 2 HuginnF......8 0 1 7 1-72 1 íþróttir Kylfingará faraldsfæti fslenskir kylfingar verða á fer- aldsfæti á næstunni. Fimm kylf- ingar taka um næstu helgi þátt í opna Lúxemborgarmótinu en þeir eru Björgvin Sigurbergsson, GK, Úlfar Jónsson, GK, Siginjón Amarsson, GR, Karen Sævars- dóttir, GS og Þórdís Geirsdóttir, GK. Eftir mótið halda þau Karen, Sigurjón og Björgvin tíl Þýska- lands þar sem þau taka þátt í opna þýska meistaramótinu dag- ana 16.-19. júlí. Ellertkjönnn varaformaður EUert B. Schram, forseti íþróttasambands íslands, hefur veriö valinn varaformaöur fram- kvæmdanefhdar Knattspymu- sambands Evrópu, UEFA, sem mun sjá um framkvæmd Evrópu- mótanna í knattspyrau 1992-1994. Kjartan sigraði áSeffossmðtinu Kjartan Gunnarsson varö hlut- skarpastur í 1. flokki á meistara- móti Golfklúbbs Selfoss sem lauk um Uöna helgi. Hann lék á 292 höggum en annar varö Gunnar Marel Einarsson á 295 höggum. í þriðja sæti hafnaði Vignir Bjarnason á 301 höggl Stefán Gunnarsson sigraði í 2. flokki á 312 höggum og Kristján Már Gunnarsson í 3. flokki á 316 högg- um. í 1. flokki kvenna sigraði Ásta Jósefsdóttir á 267 höggúm. í 2. flokki kvenna sigraði Kristín Pétursdóttir á 2% höggum og í 3. flokki Guðfmna Ólafsdóttir á 304 höggum, Óskar bestur alh-aáHellu Óskar Pálsson vann yflrburða- sigur á meistaramóti Gqlfkiúbbs HeUu um síðustu helgi. Óskar lék holumar 72 á 302 höggum. Annar í meistaraflokki varð Amgrímur Beqjamínsson á 318 höggum og . þriðji Kjartan Aöalbjömsson á 355 höggum. í kvennaflokkl sigr- aði Soflla Pálsdóttir á 243 höggum en önnur varð HáUdóra Magnús- dóttir á 346 höggum. Góður árangur hiá JAnS Amflri I^|€i liMiii Mu ii€w i Jón Amar Magnússon, HSK, náöi mjög góðum árangri 1 tug- þrautarkeppni í Svíþjóð um síö- ustu helgi. Jón Amar hlaut 7.570 stig en islandsmet Þráins Haf- steinssonarer 7.592 stig.JónAm- ar var þvi aðeins hársbreidd frá metinu en öHu iengra frá lág- markinu fyrir óiympíuieikana eöa rúmlega 200 stigum. á heimslistanum Bandaríski kylfingurinn Fred Couples er enn í efsta sæti á heimslistanum yfir bestu kylf- ihga heimsins sem birtur var í gær. Couples er með 17,52 stig en næstur og skammt á eftir kemur Bretinn Nick Faido með 16,63 stig. Spánveijinn Jose Maria Olazabal Næstir á listanum em Ian Woos- nam, Bretlandi, Greg Norman, Ástralíu, Severiano BaUesteros, Spáni, og Davis Love 1U. er í 8. sæti, í 9. sæti er Paul Azinger en 10. sætiö vermir Mark McNuíty frá Zimbabwe. -SK _____________________________________________________39 _______________________________________________íþróttir Fer Arnór aftur til Anderlecht? - framkvæmdastjóri félagsins segir málið vera 1 athugun Kristján Bemburg, DV, Belgíu: Eitt stærsta dagblað Belgíu, Het Nieuwsblad, sagði frá því í gær að svo gæti farið aö Ámór Guðjohn- sen væri aftur á leiðinni til And- erlecht. Amór hefur undanferin tvö ár veriö á kaupleigusamningi hjá franska félaginu Bordeaux en sam- kvæmt frétt blaðsins hafa samn- ingar ekki verið endumýjaðir og ekkert bendir til að svo verði. Framkvæmdastjóri Anderlecht segir við Het Nieuwsblad að máUð sé í athugun en á þessari stundu vflji hann ekki frekar tjá sig um það. Þess má geta að áhangendur Anderlecht hafa haft spumir af þessu og í kjölfarið hafa fjölmörg lesendabréf borist til belgíska blaðsins. í mörgum þeirra kemur fram að stuðningsmenn And- erlecht fagni því innilega ef Amór gangi á ný til liðs við Anderlecht. Þeir kaUa Amór hvítu jámbraut- arlestina úr norðri og hafi hann verið elskaður af stuðningsmönn- um. Amór fór til Bordeaux fyrir tveimur árum og gekk á ýmsu í byrjun. Félagið var dæmt gjald- þrota og fyrir vikið lék liðiö í 2. deild á síðasta tímabih. Liðinu gekk vel og tryggði sér á nýjan leik sæti í 1. deild. „Núverandi eigendur Bordeaux keyptu upp gamla klúbbinn en yf- irtóku ekki gamlar skuldir. Enn- fremur keyptu nýju eigendurnir upp samninga leikmanna og þjálf- arans. Það rétt að Anderlecht hefur ekki fengið greidda þá upphæð sem Bordeaux átti að greiða fyrir mig en það er hins vegar núverandi eig- endum óviðkomandi. Þetta er leið- indamál og nú er svo komið að það er komið inn á borð hjá FIFA sem vfll að félögin komist að einhverri niðurstöðu. Það getur vel farið svo að FIFA dæmi mig til að fara aftur til Anderlecht en ég hef minn rétt enda er ég ekki samningsbundinn Anderlecht á nokkum hátt,“ sagði Amór Guðjohnsen í samtali við DV í gær. Amór sagði að engar reglugerðir væm til innan FIFA þegar félög færa á hausinn eins og gerðist með Bordeaux á sínum tíma. Arnór seg- ist ekki hafa verið í neinum beinum viðræðum við Anderlecht enda væri hann ákveðinn í að leika áfram með Bordeaux en tvö ár era eför af samningi hans við félagið. Æfmgar fyrir tímabilið, sem hefst 8. ágúst, hófust í síðustu viku en vegna meiðsla hefur Amór ekki getað æft. Amór sleit vöðva í kálfa fyrir leikinn gegn Grikkjum í for- keppni heimsmeistaramótsins í maí en er á batavegi og vonast til hefja æfingar í næstu viku. -JKS MJÓLKURBIKARKEPPNI KSÍ ÍBK - FH í KVÖLD KL. 20.00 SPARISJÓÐURINN í KEFLAVÍK - sérstakur styrktaraðili leiksins ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992. ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ Í992.: 1. Unqlinqalandsmót U.M.F.I. verður haldið á Dalvík og nágrenni 10.-12. júlí 1992. Skemmtun fyrir aila fjölskylduna. * íþróttakeppni * Gönguferðir * Tívolí * Útiskemmtanir * Hestaleiga * Heilsuskokk * Ljósmyndasamkeppni Mótsnefnd býður alla velkomna til Dalvíkur á Unglingalandsmót. o Forkeppni ólympíuleikanna 1 körfubolta: Króatar í sama riðli og Kanar - „Draumaliöið“ mætir Angola í fyrsta leiknmn á ÓL Bandaríkin og Litháen era líkleg- ust til sigurs í riðlunum tveimur í körfuknattieikskeppni ólympíuleik- anna í Barcelona. Bandaríkin lentu í sama riðh og hið sterka hð Króatíu en Litháen lenti í riðli með Samveld- inu. Enn á eftir að taka ákvörðim um þátttöku Júgóslaviu á leikunum en það verður gert á fundi fram- kvæmdanefndar alþjóðaólympíu- nefndarinnar næstkomandi laugar- dag. í riðh með bandaríska „draumahð- inu“ veröa Afríkumeistaramir frá Angola, sem verða fyrstu andstæð- ingar Kananna, Spánn, Króatía, Brasilía og Þýskaland. í hinum riðl- inum leika Litháen, Samveldið, Ástr- alía, Venezuela, Puerto Rico og Kína. Fái Júgóslavía, sem vann til silfur- verðlauna á síðustu leikum, að keppa í Barcelona verður einu hði úr for- keppni Ameríkuliða bætt við. I fyrrinótt vann bandaríska hðið Venezuela 127-80 í forkeppninni í Portland. Karl Malone og Charles Barkley skoraðu 17 stig hvor, Christ- ian Leattner 16, Clyde Drexler 15 og David Robinson 14 stig. Bandaríska liðiö gerði fyrstu 15 stigin í leiknum en leikmenn Venezuela brenndu fyrstu 10 skotum sínum í leiknum af og hittni þeirra í fyrri háiíleik var aðeins 26%. Staðan í leikhléi var 67-26. Bandaríska liðið sigraði í öU- um sex leikjum sínum í keppninni með að meðaltali 51,5 stiga mun sem er einsdæmi í alþjoðakeppm. „Þetta er aðeins byrjunin en við verðum að spila af sömu leikgleði í Barcelona, það er ekki víst að þar verði sama virðing borin fyrir okkur og hér,“ sagði Larry Bird eftir leik- inn. Bird, sem hvílt hafði síðan í fyrsta leik liðsins í keppninni vegna bakverkja, fór í gang undir lok leiks- ins og sýndi gamalkunna takta. Óhætt er að segja að andstæðingar bandaríska hðsins hafi borið virð- ingu fyrir því og til dæmis má nefna að leikmenn Venezuela báðu banda- rísku stjömumar um eiginhandará- ritanir í leikhléi í leiknum á sunnu- dag. Carl Herrera var stigahæstur hjá Venezuela með 21 stig. „Þeir era langbestir, það á ekkert lið mögu- leika á að sigra þá,“ sagði Herrera. Brasilía vann Puerto Rico, 93-91, í hinum leiknum á sunnudag, Oscar Schmidt skoraði 27 stig fyrir Brasil- íu. í forkeppni Evrópuríkja vann Lit- háen 100-87 sigur á Ítalíu á sunnu- dag. Arvydas Sabonis skoraði 33 stig og Sarunas Marciulonis 23 stig fyrir Litháen. Þýskaland vann Tékkósló- vakíu 90-74, Detlef Schrempf skoraði 22 stig fyrir Þýskaland. Samveldiö sigraði Slóveníu 84-82 í æsispenn- andi leik þar sem Slóvenar brenndu af 3ja stiga skoti á síöustu sekúndu leiksins. -BL Magic Johnson á fullri ferð í leiknum gegn Venezuela í fyrrinótt. Sam Shepard, bakvörður Venezuela, reynir að stöðva Magic en brýtur á honum. Símamynd Reuter Samæfing hjá skíðagöngufólkinu haldin í Fljótum: Mjög góð æfing fyrir íslenska göngufólkið - íslenski hópurinn fékk góð ráð hjá norsku göngusnillingunum Öm Þórarinsson, DV, njótunx Fyrsta samæfing skíðagöngufólks í sum- ar var haldin í Fljótiun í síöustu viku. AUs mættu 16 göngumenn á æfinguna, aUt besta göngufólk landsins að Rögnvaldi Ingþórssyni undanskildum. Göngufólkið hitti norska skíðafólkið á fóstudag og tók aUur hópurinn eina létta æfingu saman auk þess sem íslendingamir fengu ýmis góð ráð hjá hinum útlendu meisturum. Fannst okkar fólki að vonum gaman að komast í kynni við erlenda keppnisfólkið og mátti skflja á unglingunum að það yrði þeim mikil hvatning á íþróttabrautinni í framtíðinni. Hópurinn hélt til í Sólgarðaskóla meðan hann dvaldi í Fljótunum og lét vel af dvöl- inni þar enda hentar staðurinn að mörgu leyti ágætlega sem æfingabúðir fyrir íþróttafólk. Æfingamar fólust í hlaupum auk þess sem gengið var á rúUuskíðmn en til þess hentar einmitt klæðingin á vegum í sveit- inni vel. Þetta hefur tekist vonum framar „Mér finnst, miðað við hvemig veðrið hefur verið, að þetta hafi tekist vonum Flestir skíöamennirnir samankomnir í lok dvalarinnar í Fljótunum. DV-mynd örn framar, það er gífurleg ánægja í hópnum með móttökumar og gest- risnin hér á Bjamagfli hefur verið alveg einstök," sagði Gunnar Jóns- son, fararstjóri útlendinganna sem dvöldu á Bjamagili í Fljótum í síð- ustu viku. Gestirnir kynntust íslensku veröurfari Gestimir, sem vora fimmtán að tölu, fengu sannarlega að kynnast ís- lensku veðurfari í ferðinni hingað. Þeir komu í sveitina í hríð og ófærð þannig að htlu mátti muna að þeir kæmust ekki yfir Lágheiðina en tveim dögum síðar var komið glamp- andi sólskin og hiti. Það ríkti mikil ánægja meðal gestanna þegar frétta- maður tók nokkra þeirra tali síðasta dag heimsóknarinnar og ljóst að allir höfðu kynnst einhverju nýju sem þeir þekktu ekki áður. Það var auö- heyrt aö stangaveiði og hesta- mennska höföu heillað gestina hvað mest, þá naut sundlaugin vinsælda og sömuleiðis vatnakajakar sem menn sigldu á niður Fljótaá. Með í hópnum vora Steinar og Lars Odd- var Fossgard en þeir reka eitt stærsta skíðasvæðið í Noregi og komu m.a. til að líta á aðstæður í Fljótunum með uppbyggingu skíðamannvirkja í huga. Þeirra álit er að sveitin með sínu fjölbreytilega landslagi og margvíslegu afþreyingarmöguleik- um henti vel til að starfrækja þar æfingabúðir fyrir skíðafólk og aðra náttúraunnendur. Búin að vera frábær skemmtun „Þetta er búin að vera frábær skemmtun," sagði Pol Gunnar Mik- kelsplass þegar fréttamaður hitti þennan heimsfræga göngugarp á Bjamagili í Fljótum á síðasta degi heimsóknar skíðafólksins þangað í síðustu viku. „Ég held að bílferðin frá Akureyri að Bjamagili, þegar við lentum í snjókomu og ófærð nú um hásumar- ið, verði öUum ógleymanleg. Ég hef komið tvívegis tfl íslands áður og lík- ar mjög vel hér, því varð ég strax hrifinn af þessu boði hingað þegar þessi hugmynd var kynnt fyrir mér í vetur. Dvölin hér hefur verið mjög ánægjuleg og dekrað við okkur á aU- an hátt. Keppnisfólk er vant að búa á hótelum þegar það er á ferðalögum en ég held að aliir séu sammála um að dvöl á sveitabæ sé ágæt tilbreyting enda verða öU kynni á einkaheimiti nánari og persónulegri en á veitinga- stöðum." Fer í heyskap hjá foreldrunum Aðspurður hvað tæki við þegar heim kæmi sagði Pol Gunnar „fyrst fer ég hálfan mánuð í heyskap hjá foreld- nun mínum sem búa á sveitabæ en síðan taka við æfingar, hlaup og rúlluskíði sem síðan þyngjast eftir því sem líður á sumarið og nær dreg- ur keppnistímabilinu. Mikkelsplass sagði að skíðafóUcinu hefði staðið til boða að ferðast til nokkurra landa, það hefði hins vegar ákveðið að veija Islandsferðina, mest vegna þess aö það hefði aldrei fengið boð utan Nor- egs um að dveija á sveitabæ og þess vegna hefði því fundist þetta forvitni- legt. 16. liöa úrslit mjólkurbikarsins: Nágrannaslagur Akureyraiiiða - barist víöa um landiö í kvöld I kvöld ræðst það væntanlega hvaða Uð komast áfram í 8 liða úr- slit bikarkeppni Knattspymusam- bands íslands en þá fara fram átta leUúr í 16 Uða úrslitum keppninnar. Búast má við mörgum skemmtileg- um leikjum en fljótt á litið er leikur Akureyrarliðanna Þórs og KA at- hygUsverðastur. Það er ávaUt hart barist þegar þessir norðlensku erki- fiendur eigast við á íþróttasviðinu og leikur Þórs og KA í kvöld verður örugglega engin imdantekning. Reyðfirðingar duttu í lukkupottinn þegar dregið var í 16 liða úrslitin og fá efsta lið 1. deildar, Uð Skaga- manna, í heimsókn í kvöld. Fyrir- fram má búast við ömggum sigri Skagamanna en heimamenn munu örugglega selja sig dýrt. í tveimur leikjum mætast hð sem leika í 1. deild, ef leikurinn á Akur- eyri er vmdanskilinn. Breiðablik fær Val í heimsókn í Kópavoginn og Vík- ingar leika gegn Eyjamönnum á Vík- ingsveUi. Stuðningsmenn BÍ geta verið anægðir með mótheija liðsins í 16 Uða úrslitunum en Framarar fara í kvöld til ísafjarðar. Lið BÍ hefur sýnt það og sannað í 2. deildinni að það getur bitið hressilega frá sér. Fram- arar verða því að taka á öUu sínu ef þeim á aö takast að innbyrða sigur. Húsvíkingar fá líka sterkt 1. deildar hð í heimsókn en KR-ingar mæta Völsungi í kvöld á HúsavíkurveUi. KR-ingar em í toppbaráttu 1. deildar og heimamenn eiga greinilega eríið- an leik fyrir höndum. 2. deUdar Uð ÍBK, sem vann stórsig- ur á toppUði deildarinnar, Fylki, á dögunum, leikur gegn FH og em FH-ingar síður en svo öryggir með sigur. FH-liðið hefur verið í basli í síðustu leUcjum sínum í 1. deUd og fengið á sig 8 mörk í síðustu tveimur leikjum. Marteinn Geirsson, þjálfari Leift- urs, og lærisveinar hans fá topplið 2. deildar í heimsókn. Fylkismenn ætla sér stóra hluti í bikarkeppninni og svo er um fleiri lið. Aliir leikimir í kvöld hefjast klukkan 20. -SK Arnar Gunnlaugsson verður Reyð- (irðingum væntanlega erfiöur í kvöld. Ragnar Margeirsson verður með KR-ingum gegn Völsungum á Húsa- vik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.