Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1992, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1992, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992. 41 Fréttir Ökuleikni ’92 á Húsavík: íslandsmeistarinn í öðru sæti - keppni var frestað um tvo daga vegna moldroks Brynjar M. Valdimaisson, DV, ökuleikiii ’92: Þegar hefja átti ökuleikni á Húsa- vík var þvílíkt moldrok að varla var stætt á keppnisplaninu. Varð því að fresta keppni. Tveim dögum seinna fór hún fram í besta veðri enda varð árangur eftir því. Sigurveraramir í báðum flokkum hjólreiðakeppninn- ar fóru brautina villulaust. í eldri flokki var það Emil Kári Ólafsson sem fór brautina á 31 sek- úndu og í yngri flokki Gunnar Jóns- son á 34 sekúndum. Kristján Þór Magnússon varð annar í eldri flokki með 43 refsistig og Magnús Halldórs- son þriðji með ellefu stigum meira. Annar í yngri flokki var Hanna Reg- ína Bjömsdóttir með 74 refsistig og einu stigi meira í þriðja sæti varð Níels Guðmundsson. Karlaflokk ökuleikninnar vann Magnús Hermannsson með 154 refsi- stig. íslandsmeistarinn frá því í fyrra varð í öðru sæti, hann Guðmundur Salómonsson, með 165 refsistig og Óskar Tryggvason fékk bronsið með 176 stig. I kvennaflokki varð Freyja Ingólfsdóttir hlutskörpust og Sigurð- ur Hrafnkelsson í flokki byrjenda. Gefendur verðlauna í ökuleikni vora Bílaleiga Húsavíkur og Sjóvá- Almennar. Fálkinn, reiðhjólaversl- un í Reykjavík, gaf sem fyrr verð- launin til hjólreiöakappanna. Verðlaunahafar í ökuleikninni á Vopnafirði. Sigurvegarinn, Oddgeir Gylfason læknir, er annar frá hægri með böm- in sín tvö fyrir framan sig. Ökuleikni ’92 á Vopnafirði: Góður árangur Sigur- vins á reiðhjólinu Brynjar M. Valdimarssan, DV-ökuleikiú ‘92: Ökuleikni fór fram siðla sjómanna- dags á Vopnafirði. Við, sem heyrum alla daga um mikinn hita og sól, urð- um fyrir nokkrum vonbrigðum þeg- ar komið var á staðinn. Þar var kalt og sólarlaust með nokkurri rigningu. Keppnin fór fram við frystihúsið og var hart barist í karlariðh ökuleikn- innar. Aðeins eitt stig var á milli Oddgeirs Gylfasonar og Einars Ó. Einarssonar. Oddgeir fékk 196 refsi- stig og sigraöi en Einar 197. Einar Bjöm Runólfsson varð þriðji með 207 refsistig. Sigurvin R. Leifsson sigraði örugg- lega í eldri flokki reiðhjólakeppninn- ar, fór brautina villulaust á 31 sek- úndu sem telst einn besti árangur til þessa. Niklulás Hjaltason varð annar og Guðmundur Arason þriðji. Guð- mundur Friðriksson sigraði í yngri flokki með 76 refsistig, þá kom Sigm- ar Arason með 79 refsistig og loks Elmar Viðarsson með 90 stig. Gefandi verðlauna í ökuleikninni á Vopnafirði var Bílar og vélar og Fálkinn gaf verðlaun sem fyrr í reið- hjólakeppnina. Ökuleikni ’92 á Siglufiröi: Konurnar reyndust betri Brynjai M Valdimaisson, DV, Ökuleikra '92: Ökuieikni á Siglufirði fór fram í blíðskaparveðri við bestu aðstæður. Konumar stóðu sig ágætlega og sýndu góðan árangur. Þar sigraði Helga Lúðviksdóttir með 179 refsi- stig, Birgitta Pálsdóttir varð önnur með 214 stig og Kristín Pálsdóttir þriðja með 267 stig. í byijendaflokki var Kristín Þórðardóttir hlutskörp- ust og Sigurður Benediktsson fór létt með aö sigra í karlaflokki, enda keppti hann einn! Hjólreiðakeppnin fór fram á meðan svarað var spumingum í ökuleikni. í eldri flokki sigraði Bjöm Sighvats- son með 59 refsistig, Jón Örn Gunn- laugsson varð annar með 63 refsistig og Svala Júlía Ólafsdóttir hreppti bronsið. í yngri flokki hjólaði Lydía Kristín Jakobsdóttir best, fékk 98 refsistig og Jóhannes Bjöm Arelakes kom næstrn- með 101 stig. Nokkrir yngri krakkar fylgdust með keppninni á Siglufirði og dauð- langaði tíl að vera með. Ákveðið var að búa til auðveldari þrautir og lofa þeim að reyna sig. Árangur var laus- lega skráður en Höskuldur varð efst- ur, Stefán annar og Aðalheiður þriðja. Gefandi verðlauna á Siglufirði var veitinga- og spilastaðurinn Bilhnn. Sigurvegararnir í eldri flökki hjólreiöakeppninnar á Húsavík. Ökuleikni ’92 á Dalvík: Konurnar fjöl- menntu sem fyir Brynjar M Valdimaisson, DV, ökuleikm ’92: Konurnar á Dalvík fjölmenntu til ökuieikninnar að venju. Keppni þeirra var einnig mjög jöfn og endaði með því að Arna Hafsteinsdóttir og Kristín Sigurðardóttir skiptu með sér fyrstu verðlaununum með 199 refsistig. Sólveig Jónsdóttir og Frey- gerður Snorradóttir skiptu líka með sér öðru sætinu með 233 refsistig og Emeha Sverrisdóttir varð þriöja með 240 refsistig. í karlaflokki sigraði Árni Júlíusson með 142 refsistig, annar varð Guðmundur Freyr Hans- son og Sævar Freyr Ingason þriðji. Logi Siguijónsson sigraði í eldri flokki hjólreiðakeppninnar með 45 refsistig, þá kom Gísh Birgir Ómars- son með 47 stig og Amar Snær Rafns- son varð þriðji með 53 stig. Harpa Rut Heimisdóttir gerði sér lítið fyrir og sigraði í yngri flokki hjólreiða- keppninnar meö yfirburðum, hlaut 48 refsistig. Ómar Siguijónsson kom annar með 62 refsistig og Vilhelm Sigurðsson varð þriðji með 66 refsi- stig. Gefandi verölauna í ökuieikni var Tréverk hf. á Dalvík og Fálkinn gaf hjólreiðaverðlaunin. Verðlaunahafar I yngri flokki hjólreiðakeppnlnnar á Dalvfk. Sigurvegarinn, Harpa Rut Heimisdóttir, hefur þá Ómar Sigurjónsson og Vilhelm Sigurðs- son sér við hlið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.