Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1992, Side 30
5P;
Fólk í fréttum
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992.
'■ppr r.fr'n V BTT-,»rnmqri
Þorgeir Pálsson
Þorgeir Pálsson verkfraeöingur,
Barðaströnd 21, Seltjamamesi, tók
við starfi flugmálastjóra 1. júlí sl.
Starfsferill
Þorgeir er fæddur 19.5.1941 í
Reykjavík og ólst þar upp. Hann
gekk í ísaksskóla, Laugamesskóla
og tók landsprófi frá Gagnfræða-
skólanum í Vonarstræti. Þorgeir
lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1961, BS-prófi í
flugverkfræði frá MIT Cambridge í
Massachusetts í Bandaríkjunum
1966, MS-prófi 1967 og ScD-prófi
1971.
Þorgeir vann á sumrin á ungl-
ingsárum við vömafgreiðslu hjá
Eimskip og við raftengingar hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Hann
var við rannsóknarstörf og aðstoð-
arkennslu við MIT Measurement
Systems Labatory 1967-71, verk-
fræðingur í reiknistofu Raunvís-
indastofnunar Háskóla íslands og
stundakennari við sama skóla
1971-72, verkfræðingur hjá The
Analytic Sciences Corporation Re-
ading í Massachusetts frá 1973, dós-
ent í kerfisverkfræði við verkfræði-
og raunvísindadeild Háskóla is-
lands frá 1976, forstöðumaður kerf-
isverkfræðistofu verkfræðistofnun-
ar Háskólans frá upphafi 1983, pró-
fessor frá 1986 og skipaöur flug-
málastjóri frá 1. júlí sl.
Þorgeir sinnti ráðgjafarstörfum
fyrir Northrop Corporation 1970,
Loftleiðir hf. 1971, Flugleiðir hf. 1979
og Landhelgisgæsluna og Flugmála-
stjóm frá 1976. Hann sat í flugmála-
nefnd, sem lauk störfum 1986, en
nefndin vann að áætlun um upp-
byggingu flugvalla á íslandi og í
flugráði 1984-87. Þorgeir hefur setið
í ratsjárnefnd utanríkisráðuneytis-
ins frá stofnun hennar 1984 og gegn-
ir nú formennsku í nefndinni. Hann
keppti á íslandsmótinu í svifílugi
1963 en réttindi til svifflugs öðlaðist
hann 16 ára gamall. Þorgeir var um
tíma í stjóm Svifílugfélags íslands.
Hann er félagi í Rotary-klúbbi Sel-
tjamarness. Þorgeir sat í ýmsum
nefndum á vegum Háskólans.
Þorgeir hefur ritað fjölmargar
greinar í blöð og tímarit. Skrif hans
hafa einkum verið á tæknisviðinu.
Fjölskylda
Þorgeir kvæntist 12.6.1964 Önnu
Snjólaugu Haraldsdóttur, f. 20.9.
1942, deildarstjóra hjá Ferðaskrif-
stofu íslands. Foreldrar hennar em
Haraldur Sigurðsson, f. 12.10.1913,
fv. aðalgjaldkeri Pósts og síma, og
kona hans, Brynhildur Sigþórsdótt-
ir, f. 26.2.1917, húsfreyja, þau em
búsettíReykjavík.
Dætur Þorgeirs og Önnu Snjó-
laugar: Sigrún, f. 28.9.1964, söng-
kona og efnafræöingur, maki Þór
Ásgeirsson, f. 6.4.1964, kennari, þau
eiga eina dóttur, Ragnheiði Önnu,
f. 16.4.1989; Brynhildur, f. 23.3.1970,
nemi í viðskiptafræði, unnusti
hennar er Davíð Benedikt Gíslason,
f. 30.12.1969, nemi í lögfræði; Elísa-
bet, f. 23.3.1970, nemi í lyfjafræði,
unnusti hennar er Hörður Gauti
Gunnarsson, f. 21.3.1970, nemi í
verkfræði.
Systir Þorgeirs er Hekla Pálsdótt-
ir, f. 2.5.1945, húsmóðir, maki Björg-
vin Schram, f. 6.6.1945, viðskipta-
fræðingur og framkvæmdastjóri,
þau eiga þijá syni, Björgvin, f. 14.8.
1968, Brynjólf Pál, f. 14.11.1973, og
Amald Geir, f. 15.9.1978.
Foreldrar Þorgeirs em Páli Þor-
geirsson, f. 27.7.1914, fv. stórkaup-
maður en hann rak timburverslun
í áratugi og síðast í Ármúla 27, og
kona hans Elísabet Sigurðardóttir,
f. 24.10.1912, húsfreyja, þau em bú-
settíReykjavík.
Ætt
Á meðal móðursystkina Þorgeirs
era Ingibjörg, ljósmyndari í Reykja-
vík, Bryndís hárgreiðslukona í
Reykjavík, Þuríður, hárgreiðslu-
kona í Reykjavík, Sigurður, húsa-
smíðameistari í Reykjavík, Harald-
ur Öm, klæðskeri og útfararstjóri í
Reykjavík, María, viðskiptafræð-
ingur og kennari, og Pétur, kaup-
maður, en sá síðasttaldi er látinn.
Elísabet er dóttir Sigurðar, vél-
stjóra, Ámasonar, útvegsbónda í
Hænuvík, Jónssonar bónda Guð-
mundssonar. Móðir Sigurðar Áma-
Þorgeir Pálsson.
sonar var Ingibjörg, dóttir Sigurðar
Sigurðssonar bónda og Ingibjargar
Ólafsdóttur en hún var áður gift
Jóni Jónssyni, presti í Otradal. Móð-
ir Elísabetar var Þuríður Péturs-
dóttir, bónda á Brúsastöðum í Þing-
vallasveit, Jónssonar.
Páll er sonur Þorgeirs, forsljóra í
Reykjavík, Pálssonar, útvegsbónda
í Leyni á Reykjanesi, ísleifssonar.
Móðir Páls var Aldís, dóttir Sigurð-
ar Jónssonar, sjómanns í Móakoti í
Reykjavík, og Guðrúnar Jóhannes-
dóttur, húsfreyju. Fyrri kona Þor-
geirs Pálssonar forstjóra var Kristín
Eiríksdóttir og eignuðust þau tvö
böm, Magnús, kaupmann í Reykja-
vík, og Emilíu, húsfreyju í Reykja-
vík.
Afmæli
Ólafur G. Einarsson
Ólafur Garðar Einarsson mennta-
málaráðherra, Stekkjarflöt 14,
Garðabæ, er sextugur í dag.
Starfsferill
Ólafur er fæddur á Siglufirði.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA
1953 og lögfræðiprófi frá HÍ1960.
Ólafur var sveitarstjóri í Garða-
hreppi 1960-1972 og í hreppsnefnd
Garðahrepps 1966-1975. Olafur var
í bæjarstjóm Garðabæjar 1975-1978
og oddviti 1972-1975. Hann var for-
seti bæjarstjómar Garðabæjar
1975-1978 og varaformaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga 1967-
1978. Ólafúr sat í stjóm Lánasjóðs
sveitarfélaga 1971-1978 og í bruna-
málastjóm 1968-1982. Hann sat í
stjóm Framkvæmdastofnunar rík-
isins 1974-1978 og 1983-1985 og í
stjóm Byggðastofnunar 1985-1987
og var varaformaður stjómar Hita-
veitu Suðumesja frá stofnun, 1975,
til 1981 og frá 1984-88. Ólafur var
formaður TVyggingaráðs 1983-1987
og umdæmisstjóri Rotary á íslandi
1969-1970 og í miðstjóm Sjálfstæðis-
flokksins 1969-1971 og 1980-91. Hann
sat í framkvæmdastjóm Sjálfstæð-
isflokksins 1982-88, var varaformað-
ur þingflokks sjálfstæðismanna
1978-1979 og formaður 1979-91. Ólaf-
ur hefur verið alþingismaður fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Reykjanes-
kjördæmi frá 1971, sat í Norður-
landaráði 1983-91, hefur verið for-
maður íslandsdeildar ráðsins frá
1986 og sat í Þingvallanefnd 1988-92
og gegndi þar formennsku.
Fjölskylda
Kona Ólafs er Ragna Bjarnadóttir,
f. 21.11.1931. Foreldrar hennar vora
Bjami Bjamason, söðlasmiður á
Patreksfirði, og kona hans, Guð-
finna Guðnadóttir.
Dóttir Ólafs og Rögnu er Ásta
Ragnhildur, f. 17.1.1968, starfsmað-
ur hjá Flugleiðum hf. í Reykjavík,
sambýhsmaður hennar er Þröstur
Sigurðsson.
Systkini Ólafs: Dórothea Júlía, f.
1929, gift Gísla J. Eyland, stöðvar-
stjóra Pósts og síma á Akureyri,
þeirra böm era Ólöf Jenný, maki
Sigurður Jóhannsson, þau eru bú-
sett í Kanada, og Einar Eyland;
Kristján Bogi, f. 1943, bankastarfs-
maður í Reykjavík, kvæntur Sól-
veigu Haraldsdóttur.
Foreldrar Ólafs vora Einar Krist-
jánsson, lyfiasveinn á Siglufirði, síð-
ar forsfióri Sana hf. á Akureyri, og
kona hans, Ólöf ísaksdóttir.
Ætt
Faðir Einars var Krisfián, verka-
maður á Siglufirði, Krisfiánsson, b. á
Dalabæ í Úlfsdölum, Bjömssonar.
Meðai foðursystkina Ólafs voru Guð-
rún, móðir Elisabetar Þorgeirsdóttur,
konu Jóns Ásgeirssonar tónskálds,
og Þorgeirs Þorgeirssonar rithöfund-
ar, og Steinn Krisfiánsson, faðir
Krisfiáns læknis. Móðir Einars var
Rósa ljósmóðir Einarsdóttir, verka-
manns á Siglufirði, Halldórssonar.
Móðursystkini Ólafs vora Ingi-
björg, kona Jóhanns Kr. Briem,
prests á Melstað í Miðfirði, en þau
vora foreldrar Sigurðar Briem, fv.
deildarstjóra í menntamálaráðu-
neytinu; Níls, faðir Ólafs, endur-
skoðanda og fv. skattrannsóknar-
stjóra, Gústafs, starfsmanns í Kísil-
iðjunnni við Mývatn, Boga rann-
sóknarlögreglustjóra og Ónnu,
konu Friðriks Hjartar, prests í Búð-
ardal; Júlía, dó ung; Óh Magnús, fv.
starfsmaður hjá Heklu hf.; og Bogi,
lést 1951. Móðursystkini Ólafs, sam-
feðra, vora Magnea, móðir Magnús-
ar og Hjálmars Magnússona í Garð-
inum; Sylvía, móðir Ingibjargar,
konu Hallsteins Hinrikssonar í
Hafnarfirði, en þau vora foreldrar
Geirs, Ingvars, Amars og Sylvíu;
Friðsemd, kona Eiríks Jónssonar,
b. í Ási í Holtum, en þau vora for-
eldrar ísaks á Rauðalæk og Guðrún-
ar, konu Benedikts Ögmundssonar
skipstj óra en þau vora foreldrar
Guðbjargar, konu Eyjólfs Konráös
alþingismanns. Faðir Ólafar var
ísak, verslunarmaður á Eyrar-
bakka, Jónsson, b. á Vindási í Land-
sveit, Þorsteinssonar. Móðir ísaks
var Karen ísaksdóttir Bonnesen,
sýslumanns á Velh í Hvolhreppi, og
konu hans, Önnu Kristínar
Ohlmann, sem fyrr var gift Christ-
ian Gynther Schram, langömmu
Ellerts Kristófers, afa Eherts B.
Schram ritsfióra. Móðir Ólafar var
Ólöf, systir Guðríðar, ömmu Ólafs
Jóhannssonar, læknis í Reykjavík.
Önnur systir Ólafar var Sesselja,
móöir Önnu Sigurjónsdóttur, konu
Óskars Lárassonar, og Ólafar Sigur-
jónsdóttur, konu Helga Hahgríms-
sonar, en þau vora foreldrar Hah-
gríms tónskálds, Ástríðar, konu
Hans G. Andersen, Sigurðar, fv.
Ólafur Garðar Einarsson.
sfiómarformanns Flugleiða hf., og
Gunnars lögfræðings. Bróðir Ólafar
var Þorsteinn, afi Gríms Magnús-
sonar, læknis í Reykjavik. Annar
bróðir Ólafar var Ambjöm, kaup-
maður í Keflavík, afi Einars Ólafs-
sonar, bæjarfógetafuhtrúa í Kefla-
vík. Þriðji bróðir Ólafar var Berg-
steinn, faðir Gizurar, fv. hæstarétt-
ardómara, föður Sigurðar bæjarfóg-
eta, Bergsteins brunamálasfióra og
Lúðvíkshrl.
Ólafur og kona hans, Ragna
Bjamadóttir, taka á móti gestum í
Félagsheimilinu á Selfiamamesi í
dagkl. 17-19.
90 ára
Kristbjörg Gunnarsdóttir,
Kasthvammi, Reykdælahreppi.
Einar Sigurðsson,
Mánavegi 1, Selfossi.
Júlia Guðjónsdóttir,
Þingskálum, Rangárvahahreppi.
Soffia Púlsdóttir,
Reitarvegi2, Stykkishólmi.
Júlía María Helgadóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Þorbjöm Ásbjörnsson,
Neshaga 17, Reykjavík.
Fanney Guðnadóttir,
Strandgötu 43, Eskifirði.
Herdís Marteinsdóttir,
Austurbrún 6, Reykjavík.
60ára
Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Hraunbæ 170, Reykjavík.
Guðmundur Bjarnar Stefánsson,
Grænumýri 19, Akureyri.
Erla Sigurðordóttir,
Sólveig Þórunn Daniefsdóttir,
Hraunsvegi3, Njarðvík.
Svandis Jónsdóttir,
Hofgörðum 19, Seltjarnarnesi.
Björn Svavarsson,
Engihjalla 17,Kópavogi.
Steinunn Jónsdóttir,
Móabarði26b, Haftiarfiröi.
Kristján Mikkaelsson,
40 ára
Berta Sveinbjörasdóttir,
Drífa Maríusdóttir,
Heiðarhvammi 9c, Keflavík.;
80 ára
70 ára
Haukur Högnason,
Hólagötu 11, Vestmannaeyjum.
Hermann Kristjánsson,
Hlíf 2, Torfnesi, ísafiröi.
Hulda Ragnarsdóttir,
Fróðasundi lOb, Akureyri.
Hjörtur Guðnason,
Brimhólabraut 28, Vestmannaeyj-
um.
Arodís Ólöf Páisdóttir,
Vesturgötu 10, Ólafsfirði.
50ára
EHsabet Ballington,
Skarðshhð 34d, Akureyri.
Leif Hahdórsson,
Hjöhum ll, Patreksfirði.
Guðrún Stefnnsdóttir,
Efstahjalla la, Kópavogi.
Ásdts Kristinsdóttir bóndakona,
Miökoti, Vestur-Ixtndeyjum.
Ásdís verður að heiman.
Hraunbæ 4, Reykjavflc.
Sigvaldi Júlíusson,
Hvassaleiti I55,Reykjavxk.
Elinborg Sturlaugsdóttir,
Furuiundi 4f, Akureyri.
Sveinn Kjartansson,
Móabarði 22, Haftiarfirði.
Kristín V. Þórðardóttir,
Keilugranda 6, Reykjavík.
Auður Dúadóttir,
Hjahalundi 18, Akureyri.