Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1992, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1992.
g
Fréttir _________________
Forsvarsmaður Víghólasamtakanna:
Aðalsafnaðarfuiidur
verði ekki í kirkju
- „það er ekkert annað en vanhelgun“
Forsvarsmaður Víghólasamtak-
anna í Kópavogi, Gylfi Sveinsson,
hefur skrifað dómprófasti bréf og
farið fram á að aöalsafnaðarfundur
verði ekki haldinn í kirkju.
„Fundurinn var haldinn í Kópa-
vogskirkju síðast og var öllum til
skammar sem þar voru inni. Menn
voru farnir að rífast hástöfum og
fundi var slitið á gerræðislegan hátt.
Okkur var bara hreinlega hent út.
Þegar kirkjunnar menn taka að sér
VíkingBrugghf.:
Bjórframleiðslan
áframá Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
„Það hefur ekki komið til tals í
sambándi við sölu á framleiðslu Gos-
ans hf. til Ölgerðarinnar að neinar
breytingar verði á framleiðslu okkar
hér, aðrar en þær að við munum
hætta að framleiöa maltöl og léttan
pilsner. Bjórframleiðslan verður því
áfram hér af fullum krafti eftir því
sem ég best veit,“ segir Magnús Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri Víking
Brugg hf. á Akureyri.
Gosan hf. er aöaleigandi Víking
Brugg og áður hafði komiö til athug-
unar að sameina alla framleiðslu
Gosans og Viking Brugg, annaðhvort
á Akureyri eða í Reykjavík. Bæjaryf-
irvöld á Akureyri voru m.a. tilbúin
að veita fyrirtækjunum fyrirgreiðslu
svo framleiðslan yrði á Akureyri.
Víking Brugg hefur verið dreifmg-
ar- og umboðsaöili fyrir Gosan á
Norðurlandi. í kjölfar sölunnar á
framleiðslu Gosans til Ölgerðarinnar
hefur 8 starfsmönnum Víking Brugg,
sem hafa annast sölu- og dreifingar-
mál, verið sagt upp.
aö stýra fundi og segja safnaðar-
systkinum að halda kjafti og það séu
ákveðin mál sem má ekki ræða og
segja þeim að hunskast út þá getur
það ekki endurtekið sig í kirkju.
Dómprófastur er búinn að gefa vil-
yrði fyrir þvi aö fundurinn nú verði
ekki haldinn í kirkju," segir Gylfi.
„Helsta tillaga okkar á fundinum
verður sú að hætt verði við fram-
kvæmdir við Víghól. Einnig er fyrir-
hugað að bera fram tillögu um að öll
safnaðarsystkini austan Bröttu-
brekku, eins og viö köllum það, flytji
sig yfir í Hjallasókn."
Skóflustunga að kirkju við Víghól
var tekin síðastliðinn fimmtudag.
„Nú eru menn byijaðir að moka upp
öllum lausum jarðvegi. í framhaldi
af því ætla þeir sér aö fara að
sprengja harða klöpp. Húsin okkar
standa að hluta til á umræddri klöpp.
Við íbúamir hér munum ekki líða
þeim að skemma húsin okkar,“ tekur
Gylfi fram.
„Það er skoðun mín aö þessi dagur
þegar skóflustungan var tekin verði
talinn upphafsdagur að því að ís-
lenska þjóðkirkjan einangrist og
verði að sértrúarsöfnuði. Þetta er að
gera síg um allt land og kirkjunnar
menn þar víðast hvar eins og bölvaö-
ir þverhausar í öllum sínum málum.
Ég held að almenningur fari að hætta
að láta bjóða sér þetta og muni segja
sigúrþjóðkirkjunni." -IBS
Fjöldi unglinga hlýddi á Todmobile leika fyrir gesti og gangandi fyrir utan Bíóhöllina i Mjóddinni síðdegis á föstu-
daginn. Tónleikarnir voru i boði Menntabrautar íslandsbanka og SAM-bfóanna og haldnir í tilefni 10 ára afmælis
íslandsbanka í Mjóddinni. DV-mynd GVA
Gytfi Knstjánæon, DV, Akureyri:
„Nemendur hér í skólanum
veröa um 190 talsins í vetur og
þar af eru um 90 nýnemar og það
er talsverð aukning frá fyrri
árum," segir Haraldur Bessason,
rektor Háskólans á Akureyri, í
upphafi skólavertíðar.
í Háskólanum á Akureyri eru
þrjár deildir, sjávarútvegsdeild,
rekstrardeild og heilbrigðisdeild,
og segir Haraldur að aðsókn aö
öllum deildtmum þremur sé jöfn
og góð. i haust hefst einnig
kennsla í íslensku við skólann og
segist Haraldur líta á það sem
upphaf kennaranáms við skól-
ann.
Upphaflega var ákveðið aö hefla
rekstur kennaradeildar við skól-
ann í haust en af því verður ekki.
Haraldur segist vongóður um
að sú kennsla heflist aö ári. „Ég
hef fengiö leyfi til aö ráða mann
í fullt starf fram að áramótum til
að undirbúa kennslu í kennara-
deild ogég dreg ekki aðra ály ktun
af því en þá að kennaradeildin
taki starfa á næsta ári," sagði
Haraldur.
Dagvistarhópur BSRB:
Mótmælir
hækkun leik-
skólagjalda
Ðagvistarhópur Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja hefúr
sent frá sér mótmæli vegna þeirr-
ar ákvörðunar meirihluta borg-
arráðs að hækka gjald það sem
námsmenn aðrir en einstæðir
greiöa fyrir vist barna sinna á
leikskólum borgarinnar.
í tilkynningu frá hópnum segir
að námsmenn hafi mátt sæta
þungum búsiflum af hálfu ríkis-
valdsins að undanfórnu, einkum
að því er varðar verri kjör á
námslánum og hertar reglur um
endurgreiðslur. Því sæti furðu að
meiri hluti borgarráðs skuli
fylgja í kjölfarið svo skömmu síð-
ar með stórfelldri hækkun á Ieik-
skólagjöldum bama námsmanna.
-JSS
ídagmælirDagfari
Býður einhver betur?
Það var heldur betur flör í ríkisflár-
málunum í síöustu viku. Hallinn á
ríkisrekstrinum fyrir árið í ár
hækkaði á nokkrum dögum úr flór-
um milflörðum í tæplega þrettán
milljaröa. Þetta var þó ekkert á við
hallann frá síöasta ári sem kominn
var í sautján milljarða króna þegar
síðast fréttist. Þjóðin beið raunar
spennt eftir næsta útspili og mátti
þess vegna eiga von á því að hallinn
á ríkissjóði færi langt yfir tuttugu
milljarða þegar allt væri með talið.
Fjárlög vora á síðasta vetri af-
greidd með flögurra milljaröa
króna halla. Þetta þótti viðunandi.
Fjármálaráðherra hélt nýlega
blaðamannafund og kynnti þær
horfur að flárlagahallinn gæti tvö-
faldast og yröi átta milljaröar. Þá
kom Ríkisendurskoðun og sagði aö
hann mundi vera nær tíu milflörö-
um króna. Ekki hafði Ríkisendur-
skoðun fyrr sleppt orðinu en Ólaf-
ur Ragnar hélt blaöamannafund og
tilkynnti að Ríkisendurskoðun
reiknaði vitlaust út. Hallinn væri
tæpir þrettán milflarðar. Daginn
eftir hélt flármálaráðherra nýjan
blaðamannafund og sagði að sam-
kvæmt nýjum útreikningum færi
hallinn á ríkissjóði á síöasta ári
Ólafs Ragnars í flármálaráöuneyt-
inu upp í sauflán milflarða.
Skýringamar á þessrnn blaða-
mannafundum og uppboðshaldi
núverandi og fyrrverandi flár-
máláráðherra era þær að hvorki
ríkisbókhaldið, flármálaráðuneyt-
ið né Ríkisendurskoðun hafa taliö
allar greiðslur ríkissjóðs með þegar
hallatölur era gefnar upp. Niðurs-
tölutölumar fara því eftir því
hvemig reiknað er. Ef menn hafa
þá aðferð sem flármálaráðuneytið
hefur notað er hallinn á ríkissjóði
sáralítill, nokkrir ómerkilegir
milflarðar, sem ekki er orö á ger-
andi og öllum flármálaráðherrum
til hróss.
Ef menn nota hins vegar aðferðir
Ríkisendurskoðunar versnar
dæmið enda hefur Ríkisendurskoð-
un verið að reikna með flárskuld-
bindingum, sem ríkissjóður hefur
tekið á sig á reikningsárinu, án
þess að skoða hvenær þær flár-
skuldbindingar koma til útborgun-
ar. Þetta fer vitaskuld með hallann
upp úr öllu valdi og Ríkisendur-
skoðun hefur veriö skömmuð fyrir
þessa reikningsaðferð. Fjármála-
ráðherrar og flármálaráðuneytiö
tefla óþarfa að færa skuldir til
skulda fyrr en þær era komnar til
útborgunar. Ríkisendurskoðun gaf
sig þess vegna með sína aðferö og
notaöi aöferð flármálaráðuneytis-
ins og þegar þær tölur vora skoðaö-
ar kom í flós að þær vora ekki sam-
bærilegar við tölumar frá því í
fyrra.
Þetta sá Ólafur Ragnar Grímsson,
fyrrverandi flármálaráðherra, og
mótmælti þess vegna þeim reikn-
ingsaðferðum Rikisendurskoðun-
ar, sem hann hafði hingaö til mót-
mælt fyrir að reikna ekki út eins
og flármálaráöuneytiö hafði óskað
eftir. Nú fór Ríkisendurskoðun eft-
ir óskum flármálaráöuneytisins en
þá mótmælti Ólafur Ragnar því aö
Ríkisendurskoðun reiknaði ekki út
í ár eins og hún gerði í fyrra. Hall-
inn hjá Friðrik var því jafh mikill
og hjá Ólafi, ef tölumar vora bom-
ar saman við það sem Ríkisendur-
skoðun reiknaði ekki út eins og
hún hafði gert í fyrra.
Friðrik hefiir mótmælt þessum
mótmælum Ólafs Ragnars og segir
aö Ríkisendurskoðun hafi reiknað
rétt út en ef hún reikni öðravisi út
í ár þá verði hún líka að reikna
öðravisi út í fyrra og þá verður
samanburðurinn óeðlilegur nema
aö þær tölur verði teknar inn, sem
Ríkisendurskoðun sleppti. Þetta
þýðir að hallinn á ríkissjóði í fyrra
er ekki sá sem talað hefur veriö
um heldur er hann nú kominn í
sautján milflarða króna.
Þegar hér var komið sögu var
beðið eftir næsta útspili Ólafs
Ragnars sem hlýtur auðvitað að
hafa uppi mótmæli gegn mótmæl-
um Friðriks um mótrnæh sín um
það hvemig Ríkisendurskoðun
reiknar út hallann og Ólafur Ragn-
ar er vís til þess aö benda á að halli
ríkissjóðs sé mun meiri ef allt er
taliö með.
Þetta mál snýst ekki um það hvað
ríkissjóður er rekinn með miklum
haUa. Deilan snýst um það hvor sé
með meiri halla, Friðrik eða Ólafur
Ragnar. Hingaö til hafa flármála-
ráðherrar kappkostaö aö fela hall-
ann með því að nota þær reiknings-
aðferðir aö hafa hallann sem
minnstan. Nú stendur kapphlaupiö
hins vegar um þaö aö hafa hallann
sem mestan. Spumingin er: býöur
einhver betur?
Dagfari