Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1992, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1992, Blaðsíða 18
T 18 VIK I MYRDAL Nýr umboðsmaður frá 1 /9 er Sigurbjörg Björnsdóttir Mánabraut 4, simi 71133 iL\iwxnai\G SiLKÍWAR Álftanesi v/íþróttahús Bjóðum upp á alhliða hár- snyrtiþjónustu, jafnt dömu sem herra á öllum aldri Vinsamlegast pantið tíma Vinnusími 91-650266 Heimasími 91-650082 Særún H. Jónsdóttir hárskerameistari SEPTEMBERTILBOÐ ÞRIGGJA MÁNAÐA KORT Á AÐEINS kr. 7.500. ORKUBÓT LIKAMSRÆKT HAMRA SIMl BORG 20A SlMI 46655 Bjóðum upp á tvo tækjasali, Ijós Einkaþjálfun fyrírþá sem vilja komast i góða þjálfun á skömmum tíma. Upplýsingar í síma 46655. ÚTSALA / blómabúð Pottablóm 20-50% afsláttur Kerti, 20-40% afsláttur Sjálfvökvandi ker 30-50% afsláttur Gjafavörur 20—75% afsláttur Garðyrkjuvörur, 20-70% Pottahlífar 20-75% afsláttur °aí|ða daga^ GARÐSHORN ¥ MÁNUDAGURÍ7.TSEPTBMBER. 1992. J Fréttir vit Fossvogskirkjugarð - simi 40500 Tjaldur SH 270 kemur tii heimahafnar á Rifi. Tjaldur kominn til heimahafnar á Rifi: Fyrsta nýja skip ið í tuttugu ár - saunabað og ljósabekkur um borð Nýtt skip bættist nýlega í flota Nes- hrepps þegar Tjaldur SH 270 kom til heimahafnar á Rifi. Fjöldi fólks var saman kominn á bryggjunni til að taka á móti skipinu. Tjaldur, sem er 412 brúttólestir að stærð, var smíðaöur í Tomreíjord í Noregi fyrir Kristján Guðmundsson hf. Smíði skipsins hófst í nóvember á síðasta ári og er annað sams konar skip nú í smíðum fyrir fyrirtækið og mun þaö verða tilbúið um áramótin. Þetta er fyrsta sérhæfða línuveiði- skipið sem smíðaö er fyrir íslendinga og er það búið mjög fullkomnum línuútbúnaði sem hentar vel til veiða á miklu dýpi. Aðaláhersla verður lögð á söltun um borð en einnig eru möguleikar á heilfrystingu. Kvóti Tjalds veröur um 900 tonn í þorskí- gildum talið og verða 18 manns í áhöfh. í tilefni af komu Tjalds bauð Krist- ján Guðmimdsson hf. öllum hreppsbúum að skoða skipiö og þiggja veitingar. Tjaldur er stórglæsilegt skip og mikið er lagt upp úr þægindum fyrir áhöfnina. Til dæmis er bæði saunabað og ijósa- bekkur um borð. Þá eru hijómflutn- Fjöldi fólks kom til aö skoða skipið og þiggja veitingar. DV-myndir Ægir ingstæki, þvottavél og þurrkari einn- ig til reiðu. Þetta er fyrsta skipið sem smíðað er fyrir heimamenn á undanfómum 20 árum að imdanskildum minni bátum. Áætlað er að Tjaldur hefji veiðar um næstu helgi. Skipstjóri á Tjaldi er Jóhann Rúnar Kristinsson. Skálafell og BláfjöH: Stefnt að auknu sam starfi um reksturinn Myndun hlutafélags um rekstur skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæð- inu er ein af mörgum hugmyndum um sem skotiö hafa upp kollinum um hagræðingu í rekstrinum. „Þetta er nú hugmynd sem kom utan úr bæ en það hafa verið margar hugmyndir í gangi,“ segir Ómar Einarsson hjá íþrótta- og tómstundaráði Reykjavík- ur. „Ein hugmyndin er að sameina Skálafell og Bláflöll í einn pakka. Þaö náðist hins vegar ekki samstaða milh allra sveitarfélaganna sem eiga aöild að rekstri Bláfjallasvæðisins um hvemig að því skyldi staðið." Skálafell er rekið á vegum íþrótta- og tómstundaráðs en Bláfjöll á veg- um Bláfjallanefndar. Ómar telur eðlilegast að rekstur þessara svæða sé undir einni hendi. „Það eru til dæmi um gott samstarf sveitarfélag- anna, eins og um rekstur Sorpu. Það er hægt að hugsa sér reksturinn á skíðasvæðunum á ýmsan hátt öðru- vísi en hann er í dag og það munu menn skoða í haust." Áður voru fjórir rekstraraðilar að skíðamannvirkjunum í Bláfjöflum en nú er bara einn rekstraraðili, það er Bláfjallanefnd. Nefndin leigir skíðalyftumar af íþróttafélögunum. Sameiginlegt árskort er í lyftumar. -IBS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.