Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1992, Side 10
10
MÁNUDAGUE 7. SEPTEMBER 1992.
Uflönd
Grænlendingar
seljarækju
tilSviþjódar
Þijú grænlensk fyrirtæki hafa
stofnað sölusamtök í Svíþjóð sem
ætlað er að koma grænlenskum
vörum á sænska markaðinn,
einkura sjósoðnum rækjum.
Nýja fyrirtækið heitir Royai
Seafood og er í eigu Poiar Seafo-
od. Iceberg Seafood og Royal Gre-
enland.
Escobars leitað
íMexíkó
Mexíkóska lögreglan leitaði að
kólumbíska eiturlyfjabaróninum
*ftiblo Escobar í borginni Guad-
alajara í gær eftir ábendingu um
að hann kynni að hafa farið til
Mexíkó eftir fangelsisflótta sinn
á dögunum.
Tugir lögregluþjóna, í sam-
vinnu við fulltrúa Interpol, leit-
uðu að Escobar á heimilum og
gistihúsum borgarinnar en höföu
ekki erindi sem erfiöi. Þeir leit-
uðu m.a. í hveiju einasta her-
bergi í glæsihótelinu Fiesta Am-
ericana. RitzauogKeuter
Winnie Mandela skrifaði ástmanni sínum biturt bréf í sumár þar sem hún sakar hann um að vera sér ótrúr. Bréf
Winnie var birt i tveimur blöðum i Suður-Afríku um helgina og kemur trúlega í veg fyrir að hún komist aftur til áhrifa
í Afríska þjóðarráðinu. Símamynd Reuter
Ástarbréf Winnie Mandela birt í blöðum í Suður-Afriku:
Elskhuginn var ótrúr
Tvö blöð í Suður-Afríku birtu um
helgina bréf frá Winnie Mandela til
ástmanns hennar sem reyndist vera
Dali Mpofu, lögfræðingur Afríska
Eigum fyrirliggjandi mikið úrval af köfunarbúnaði,
t.d. þurr- og blautbúninga, loftkúta, lungu, sundfit og
gleraugu. Einnig hnífa, töskur, mæla og fleiri aukahluti.
Allt heimsþekktar og viðurkenndar vörur.
UPPLYSINGAR
ÍSÍMA 91-611055
^ÓFUN HF.
VILTU PANSA?
Kennslustaöir: Auöbrekka 17 og
"Lundur" Auöbrekku 25 Kópavogi.
Kennum alla samkvæmisdansa:
Suðurameríska, standard og gömlu
dansana. Einnig barnadansa fyrir
œkynslóöina.
ímar eftir samkomulagi.
Innritun og upplýsingar dagana
31. ágúst - 9. sept. ,
kl. 10-19 í síma: 64 11 11
Kennsla hefst fimmtudaginn
10. september. Kennsluönn er
15 vikur og lýkur með jólaballi.
Ath. fjölskyldu- og systkinaafsláttur.
jgnmsfli í P" 1 ##
V/SA * Æ
WKHHUtl Satrikart
FÍD Betri kennsla - betri árangur
Supadance skór á dömur og herra.
°L> %URÐAR
þjóðarráðsins. Hann er þrítugur og
hefur verið rekinn úr starfi vegna
fjárdráttar.
Um skeið hefur veriö vitað að
Winnie átti í ástarsambandi við hátt-
settann mann í þjóöarráðinu á sama
tíma og Nelson, maður hennar, var
í fangelsi. Fyrr á árinu ákváðu þau
hjón að skilja og var ein ástæðan sú
að Winnie á yfir höfði sér dóm vegna
aðildar að morði á ungum stuðnings-
manni sínum. Önnur ástæða var
framhjáhald hennar.
í bréfinu, sem var skrifað í sumar,
kemur fram að Winnie er ákaflega
reið ástmanni sínum fyrir að halda
fram hjá sér. Hún sakar hann um
að hafa svikið sig og fundið sér aðra
konu.
Winnie er frjáls ferða sinna eftir
að hún var látin laus í vor gegn trygg-
ingu. Miklar líkur eru þó á að hún
veröi dæmd í fangelsi fyrir morö og
misþyrmingar á ungum stuðnings-
mönnum sínum. Hún hefur tapað
embættum sínum fyrir Afríska þjóð-
arráðið en ætlaði nú í haust að freista
þess aö fá uppreisn æru.
Talið er fullvíst að bréíinu hafi ver-
ið komið til blaðanna í þeim tilgangi
að sverta enn álit hennar innan
hreyfingar blökkumanna. Mál
Winnie hefur skaöaö Nelson, mann
hennar, og dregiö athyglina frá rétt-
indabaráttu blökkumanna. Reuter
Rúmlegatutt-
ugu fórust í
rútuslysi
Tuttugu og einn maður fórst og
þrjátíu slösuðust í gær þegar lang-
ferðabifreið ók á.bifreiö og valt síðan
á hliðina á hraðbraut nærri Svarta
skógi í Þýskalandi í gær. Björgimar-
menn þurftu að skera þak rútunnar
af til aö komast að farþegunum.
Rútan flutti aðallega eldra fólk sem
var að koma úr sumarleyfisferð um
Svarta skóg.
Solzlienítsyn
Rússneski , rithöfundurinn Alex-
ander Solzhenítsyn, sem hefur búið
í útlegð í Bandaríkjunum undanfarin
átján ár, ætlar að halda heim
snemma á næsta ári.
Bandaríska tímaritið U.S. News
and World Report skýrir frá því í
nýjasta hefti sínu að eiginkona rit-
höfundarins hafi fundið hús fyrir
þau skammt utan við Moskvu.
Haft er eftir vinum þeirra hjóna að
Solzhenítsyn ætli fyrst að ljúka við
bók sem hann er að skrifa um bylt-
ingu Bolsévika árið 1917. Ekki ætlar
skáldið þó að selja hús sitt í Ameríku
ef ske kynni að honum fyndist erfltt
að laga sig að Rússlandi hinu nýja,
eftir hrun kommúnismans.
Reuter
næstunni
„Týnd“ Bítlalög, sem hafa legiö
í hirslum hljóðupptökuvera i
tuttugu og fimm ár, verða loks
gefin út á næstunni, að því er
breska blaðið Sunday Times
sagöi í gær.
Að sögn blaðsins eru þar á með-
al lög sem Bítlamir hljóðrituðu í
Abbey Road hljóðverinu áriö 1965
þegar þeir voru á hátindi frægðar
sinnar. Og ekki er talið útilokað
að hljómsveitin komist aftur í
efsta sæti vinsældalístanna, rúm-
um tuttugu árum eftir aö hún
hætti. í síðustu viku voru liðin
þijátíu ár frá því sveitin tók upp
fyrsta lagið sitt sem náði vinsæld-
um, Love Me Do.
Hljómplötufyrirtæki Bítlanna,
EMI, og þeirra eigin, Apple, vildu
ekki tjá sig um fyrirhugaða út-
gáfu en sagt er að þau muni
standa saman að henni.
Háttsetturmaf-
iubófiábakvið
lásogslá
ítölsk stjómvöld unnu áfanga-
sigur í baráttunni gegn mafíunni
í gær þegar lögreglan handtók
Giuseppe Madonia, einn eftiriýst-
asta mann landsins og háttsettan
foringja mafíunnar.
Madonia var eftírlýstur vegna
fjölda glæpa, þar á meðal fjárkúg-
unar, og lögreglan telur að hann
gæti verið viðriðinn morðin á
dómurunum Giovanni Falcone
og Paolo Borsellino á Sikiley í
sumar.
Madonia haföi veriö á flótta
undan lögreglunni 1 níu ár þegar
hann var gómaður í gærmorgun.
Lögreglan fann Madonia fyrir
nokkrura dögum en ekki var taliö
óhætt að láta til skarar skríða
fyrr en í gær.
Perúmaður
slyngasturíað
Perúmaöur, sem búsettur er á
Ítalíu, lét úrhellisrigningu ekkert
á sig fá og skaut keppinautum
sínum ref fyrir rass í keppninni
um heimsmeistaratitilinn í gull-
skolun í Leadbills í Skotlandi í
gær. Pablo Schwarz tókst að ná
íimm litlum gullkomum á stærö
við saltkom úr tuttugu kílóum
af sandi á fjórum og hálfri min-
utu.
Franskur maður vai;ð í öðru
sæti og var niu sekúndum lengur
að skilja gullið frá sandinura.
Tæplega fiögur hundmð manns
tóku þátt íheimsmeistarakeppn-
inni í gullskolun sem nú var hald-
in í fimmtánda sinn. Aö sögn eins
keppandans voru aöstæður nú
hinar verstu, rok og rigning.
lestsluppumeð
skrekkinn
Tvö hundruð farþegar í hrað-
lestínni milli Liverpooi og Lon-
don á laugardagskvöld sluppu
með skrekkinn þegar lestin ók á
þrjá málmhekki sem skemmdar-
vargar höfðu rifið upp á jám-
brautarstöð og komiö fyrír á tein-
unum.
Lestin ók á bekkina á 145 kíló-
metra hraða á kiukkustund en
farþegamir sluppu án meíðsla
vegna þess aö lestin fór ekki út
af sporinu.
Aö sögn lögreglunnar hefði get-
að fariö ilia og hafa nú verið
boðnar eitt hundrað þúsund
krónur fyrir upplýsingar um
óþokkana sem settu bekkina á
teinana, Reuter