Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1992, Page 19
19
MÁNUDAGUR'7. SEPTEMBER 1992.
dv______________________________________________Fréttir
Nýstofnuð samtök sveitarfélaga á Norðausturlandi:
Viljum hafa áhrif á
dreif ingu fjármagns
- segirEinarNjálsson,formaðursamtakanna
samtakanna sé að fylgjast með þeirri
umræðu sem á sér stað varðandi
sameiningu sveitarfélaga og að sínu
mati vilji félagsmálaráðuneytið fara
nokkuð hratt í það mál. „Eitt af þeim
markmiðum, sem við settum sam-
tökunum, var að fylgjast með þeirri
vinnu og tryggja rétt minni sveitarfé-
laganna við þær breytingar. Það
mætti nefna fleiri mál eins og
ákveðna þætti í umhverfismálum en
það eins og önnur verkefni okkar
miðast við það að sveitarfélögin á
svæðinu sjái sér hag í að vinna að
þeim sameiginlega."
Auk Einars eru í stjórn Eyþings,
Haiidór Jónsson, Akureyri, Jóhann-
es Sigfússon, Þistilflrði, Pétur Þór
Jónasson, Eyjafjarðarsveit, og Jón-
ína Óskarsdóttir, Ólafsfirði.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Okkar fyrsta verk verður væntan-
lega að ræða við þingmenn kjördæm-
isins en við viljum komast að sam-
komulagi sem færir okkur aðstöðu
til þess í samráði við þá að hafa áhrif
á dreifingu þess fjármagns sem fjár-
veitingavaldið veitir til landshlutans.
Við viljum að þessi samtök fái að
vera aðiii að því að raða verkefnum
í forgangsröð og tryggja sem besta
nýtingu fjármagnsins sem kemur til
landshiutans,“ segir Einar Njálsson,
formaður Samtaka sveitarfélaga í
Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, eða
Eyþings eins og samtökin heita öðru
nafni.
Samtökin eru stofnuð á grunni
Fjórðungssambands Norðlendinga,
sem lagt hefur verið niður, og sveit-
arfélögin á Norðvesturlandi stofn-
uðu með sér önnur samtök í fjórð-
ungnum. Nokkuð hefur verið sagt frá
því að ágreiningur reis upp á milli
sveitarstjórnarmanna á Norðvestur-
landi um það hvar aðsetur samtak-
anna ætti að vera. Niðurstaðan varð
sú að Hvammstangi varð fyrir valinu
en Einar Njálsson segir að slíkur
ágreiningur muni ekki koma upp
innan Eyþings.
„Aðsetur Eyþings er hér á Húsavík,
hjá formanni, þangað til við opnum
skrifstofu samtakanna en það er ekki
ágreiningur að mínu mati um það
hjá okkur að skrifstofan veröi á Ak-
ureyri. Auðvitað myndum við Hús-
víkingar þiggja að hafa skrifstofuna
hér en það væri ekki vænlegt að fara
að þrefa um það. Ég ætla að vona að
menn hugsi hærra en það að fara að
rífast út af svona hlutum í upphafi."
Einar segir að eitt af fyrstu verkum
Nýii i íýtt
fyrir ungt fólk
Við höfum þá ánægju að bjóða núna í miklu úrvali
hina nýju fallegu æskulínu frá stórfyrirtækinu
RAUCH í Þýskalandi. Þetta eru húsgögn fyrir ungt
fólk sem stundar langskólanám. Notagildi þeirra er
aðalatriði og það hve auðvelt er að raða þeim í lítil og
stór herbergi. Margir "glaðir" litir og verðið er hagstætt.
Þrjár skápaeiningar, skrifborð og rúm með
rúmteppi og 3. púðum í áklæðalit að eigin vali.
Allt í einum pakka kr. 96.630,-
Litli og stóri. Þetta skiiti, sem bendir ferðamönnum á Dalvík á byggðasafn-
ið Hvol, skartar mynd af Jóhanni Péturssyni Svarfdælingi sem var hæsti
maður heims. Myndin af Jóhanni er máluð í fullri líkamsstærð en hann var
2,34 metrar að hæð. Til viðmiðunar hefur Þorsteinn Stefánsson komið sér
fyrir í hjólakerrunni sinni þannig að hann stendur í svipaðri hæð og Jó-
hann. Munurinn er mikill, enda er Þorsteinn „einungis" 1,665 metrar.
DV-mynd Heimir Kristinsson
Kaupfélag Héraösbúa á Seyöisfiröi:
Öllu starfsfólki sagt upp
Pétur Kristjánssom, DV, Seyðisfiiðfi
Búið er að segja öllu starfsfólki
Kaupfélags Héraðsbúa á Seyðisfirði
upp en alls unnu þar átta manns.
Starfsmaður verslunarinnar á Seyð-
isfirði sagðist ekki vita hvort fólkið
verði ráðið aftur en trúlega yrði ein-
hver endurráðinn.
Að sögn stjómarmanns í Kaupfé-
lagi Héraðsbúa er þetta liður í að
endurskipuleggja og hagræða starf-
semi kaupfélagsins. Hann sagði að
trúlega yrðu allir ráðnir aftur en ein-
hveijar tilfærslur í störfum gætu
orðið.
Samband íslenskra samviimufé-
laga seldi verslunarhúsnæði Kaupfé-
lags Héraðsbúa fyrir skömmu.
Sljómarmaðurinn sagði að stefnt
væri að því að halda verslun áfram
á Seyðisfirði og verið væri að vinna
tillögur þar að lútandi. Þegar þær
lægju fyrir yrði haldinn fundur með
deild Kaupfélags Héraðsbúa á Seyð-
isfirði til að ræöa þessi mál.
HVOLL
BÍG6ÐASAFN
MUSEUH
Keflvíkingur
tilviðgerðar
Pétur Kristjámsson, DV, Seyðisfiröi:
Loðnuskipið Keflvíkingúr kom ný-
lega til Seyðisfjarðar vegna bilunar.
Skipið var á leið á loðnumiðin þegar
mælar sýndu að mikill hiti var kom-
inn í stefnisrörið. Við nánari athug-
un kom í ljós að afstaða vélarinnar
var ekki alveg rétt og því var farið í
að stilla hana af að nýju. Ekki var
talið að um mjög alvarlega bilun
hefði verið að ræða.
STÓRÚTSÖLUmi
LÝKUR Á FÖSTUDAGIHN
15-60%
AFSLÁTTUR
Komið og látið drauminn
rætast og gerið reyfarakaup
á rúmum og fataskápum
Fyrstir koma...fyrstir fá!
Vatnsrum hf
Skeifunni 11 a, sími 688466
DRAUMALÍNAN, EIÐISTORGI 11, SÍMI 628211
Einnig fáanlegt stakt eins og hver vill.
Varanleg eign þegar fólk giftir sig og fer að búa.
- Námið gengur betur í fallegu umhverfi -
BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199