Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1992, Side 24
36
MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1992.
Fréttir
~TJ^ 1
A-^l. tjfíj. . iBÍ *
Aðalfundur Skógræktarfélags íslands:
6 milljónir trjá-
plantna gróðursettar
U:'? << í
Eitt afskekktasta gistiheimili landsins er Sólbrekka í Mjóafirði.
DV-mynd Örn
Forsvarsmaöur náttúruvemdarsamtaka Noregs:
EES þýðir minni inn-
sýn í umhverf ismál
„Samningur um Evrópska efna-
hagssvæöið, EES, þýðir miklu minni
innsýn og minni þáttöku af hálfu
náttúruverndarsamtaka í umhverf-
ismálum. Hjá Evrópubandalaginu
fara umræöur um slík mál fram fyr-
ir luktum dyrum. Á Norðurlöndun-
um eru menn vanir að geta fylgst
með framvindu mála áður en teknar
eru ákvarðanir." Þetta segir Dag
Hareide, forsvarsmaður Náttúru-
vemdarsamtaka Noregs. Um helgina
var haldinn á íslandi stjómarfundur
norrænna náttúrvemdarsamtaka og
vora afleiðingar samnings um EES
meðal þess sem var á dagskrá.
Hareide getur þess einnig að þegar
innri markaður Evrópubandalagsins
veröi orðinn að veruieika aukist
mengun vegna aukinnar umferðar
og úrgangs. „í þriðja lagi gera aðild-
arríki Fríverslunarsamtaka Evrópu,
EFTA, á mörgum sviðum meiri kröf-
ur um mengunarvamir heldur en
Evrópubandalagslöndin. Eiturefnin
koma kannski ekki lengur út um rör
og reykháfa verksmiðjanna en þau
koma til almennings í vöranum sem
keyrðar era út um hhð verksmiðj-
anna.“ Dagtilgreindi einnig stefnuna
í fiskveiðum sem eitt af þeim málum
sem ágreiningur er um.
Á fundinum um helgina skoruðu
fulltrúar norrænu náttúruvemdar-
samtakanna meðal annars á stjórnir
Norðurlanda að veita samtökunum
áheym í umhverfisnefnd EFTA og
undirbúningsnefnd um umhverfis-
mál sem kann að verða skipuð vegna
EES-samningsins.
Landvemd lagði á fundinum
áherslu á að samvinna yröi efld í
norðvesturhluta Norðurlandanna,
það er íslandi, Færeyjum, Græn-
landi, strandhéraðum Norður-Nor-
egs og Hjaltlandi. „Við þurfum aö
efla samvinnu um vemdun og nýt-
ingu auðlinda okkar og einnig sam-
vinnu gegn mengun. Á fundinum var
samþykkt ályktun um að fara fram
á samvinnu við opinbera aðila í þess-
um málum,“ segir Auöur Sveinsdótt-
ir hjá Landvemd.
-IBS
Metþátttaka var á aóalfundi Skógræktarfélags Islands sem haldinn var á
Akranesi um síðustu helgi. DV-mynd Sigurgeir
FASTEIGNAEIGENDUR, ATH.
EKKERT SKOÐUNARGJALD
Fasteignaeigendur, sem hafa hug á að selja, athugið
að við erum staðsett í hjarta borgarinnar í Austur-
stræti 17 (við pósthúsið). Kynnum eignir mynd-
rænt. Skjót sala. Vantar allar tegundir eigna og fyrir-
tækja á söluskrá. Lítið inn. Ekkert skoðunargjald.
KAUPMIÐLUN HF.
AUSTURSTRÆTI 17 (JARÐHÆÐ OG 6. HÆÐ)
SÍMI 621700
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi:
Aðalfundur Skógræktarfélags ís-
lands var nýlega haldinn í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi.
Fundarmenn á aöalfundinum voru
um 140 talsins og er það metþátttaka.
Jón Geir Pétursson, fuUtrúi hjá
skógræktarfélaginu, segir aö á und-
anfornum árum hafi umfang skóg-
ræktar aukist gífurlega og um 6
milljónir tijáplantna veriö gróður-
settar árlega.
Aðildarfélög Skógræktarfélagsins
eru 50 talsins. Þar af voru 5 ný félög
stofnuð á síðasta ári og eru félagar
orðnir rúmlega 6000. Meðal fundar-
gesta á aöalfundinum var forseti ís-
lands, frú Vigdís Finnbogadóttir, en
í tilefni 60 ára afmælis hennar var
stofnaður sérstakur sjóður, „Yrkja“,
sjóður æskunnar til ræktunar lands-
ins. Á árinu var 35 grannskólum,
víðs vegar um landið, úthlutað tæp-
lega 50 þúsund trjáplöntum úr sjóðn-
um.
Gistiaðstaða í Mjóafirði:
Mjög af skekkt en opin allt árið
Öm Þóraiinsson, DV, Mjóafiröi:
Gistiheimilið Sólbrekka í Mjóafirði
er eflaust með þeim afskekktari sinn-
ar tegundar hér á landi. Það er til
húsa yst í Brekkuþorpinu og er hluti
hússins notaður til bamakennslu á
-
BÖNNUÐ
ELDm
\ÁF! SINq
4EGGJA grUH.:^S^ALÍnS
e/kur einn N
Vaxtalínan er
f jármólaþjónusta
fyrir unalinqa
13-18 ára.
Þegar þú skráir þig í Vaxtalínuna
opnast þér ýmsir möguleikar:
AFSLÁTTARKORT
SKÓLADAGBÓK
r»éTTk**Íf
FJÁRMÁLANÁMSKEIÐ
VAJtMt/NUv6*u'
BÍ LPRÓFSSTYRKUR
vÁNAMÓgule^A8A^4
Félagar fá Vaxtalinubol um leið og þeir
skrá sig - þeim að kostnaðarlausu.
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
vetuma. Þama er starfrækt verslun
og veitingasala yflr ferðamannatím-
ann en gistiaðstaða er til staðar allt
árið, þótt hún sé nær eingöngu notuð
yfir sumarmánuðina.
Sigrún Steindórsdóttir og Kristín
Gestsdóttir hafa annast rekstur Sól-
brekku í sumar. Þær sögðu að í vor
hefði verið opnað 10. júni, sem væri
nokkru fyrr en venjulega. Talsvert
hefur verið um ferðafólk í sumar og
flestir htu við í Sólbrekku en fremur
lítið væri um gistingar ef undan
væri skilið verslunarmannahelgin
þegar haldið var ættarmót í Mjóa-
firði. Þær stöllur sögðu að ferða-
mannatíminn væri úti í lok ágúst en
þá er versluninni lokað.