Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1992, Síða 27
MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1992.
39
Guðbjörg Guðmarsdóttir, hótelstýra á Hótel Jórvík á Þórshöfn á Langanesi.
DV-mynd örn
Hótel Jórvlk á Þórshöfn:
Hótelstjórinn
er eini starfs-
maðurinn
öm Þórarinsscm, DV, Þórshcfn;
„Hér er stanslaus gestagangur á
öllum árstímum," sagði Guöbjörg
Guðmannsdóttir, hótelstýra og eig-
andi Hótel Jórvíkur á Þórshöfn, þeg-
ar blaðamaður DV leit inn hjá henni
á dögunum. Guðbjörg hefur staöið
ein að hótelrekstrinum síðan maður
hennar lést fyrir nokkrum árum.
Hóteliö er í myndarlegu einbýlis-
húsi utarlega í þorpinu. I því er gisti-
aöstaða fyrir 14 manns en Guðbjörg
segist eiga góða nágranna sem ávallt
séu tilbúnir að hýsa fyrir hana fólk
ef þörf krefur. Guðbjörg segir að
starfsemin byggist ekki á hinum svo-
kölluðu túristum enda sé ferða-
mannatíminn stuttur úti á hjara ver-
aldar.
Viðskiptavinirmr eru einkum þeir
sem eiga erindi til staðarins og þeir
eru ótrúlega margir yfir aUt árið.
Nýr samkomustaður fyrir íbúa Stokkseyrar:
Ný sundlaug
tekin í notkun
Hótelstýran vinnur að mestu ein að
rekstrinum. Hún bakar sjálf allt
brauð fyrir hótelið og á haustin
reykir hún kjötið sem hún notar yfir
árið.
„Mér líður afskaplega vel á Þórs-
höfn og það eru aUir góðir við mig
hér,“ sagði Guðbjörg. „Það sem mér
líkar einna verst er að sundlaugin
okkar skuU vera lokuð aUan vetur-
inn. Það er vegna þess að hér er ekki
heitt vatn og hreppurinn hefur ekki
efni á að hita upp vatniö í laugina
með oUu aUan vetminn. Mér finnst
að frammámenn þjóðarinnar ættu
að beita sér fyrir því að staðir, þar
sem ekki er jarðhiti fyrir hendi, gætu
fengiö raforku á lægra verði til þess
að fólk geti komist í sundlaugar. Nóg
er af raforku í landinu sem enginn
notar,“ sagði Guðbjörg Guðmanns-
dóttir að lokum.
Ingi bigasan, DV, Stokkseyri;
Stokkseyringar létu norðannepj-
una á höfuðdaginn ekki aftra sér frá
því að taka í notkun nýja sundlaug.
Þótti raunar sumum tími tíl kominn
því bygging hennar hefur nú staðið
í hálfan annan áratug. Gleði og ákefö
skein úr andUtum flestra viðstaddra
enda urðu margir tíl að skeUa sér í
laugina og pottana að aflokinni
vígsluathöfiúnni.
Sundlaugin er stálrammi sem
klæddur er að innan með plastdúk.
Hún er 16,67 m x 8 m að flatarmáU
og öU 0,9 m djúp. Auk hennar eru á
svæðinu 20 m2 vaðlaug og tveir heit-
ir pottar, 40° og 41°C og er annar
þeirra með loft- og vatnsnuddi.
Sóknarpresturinn, séra Úlfar Guð-
mimdsson, tók til máls og taldi ekki
ólíklegt að kristnihald mundi nú fær-
ast að hluta til úr aldargamaUi kirkj-
unni á þennan nýja samkomustað.
Svo mikiö er víst, að 5-10-falt fleiri
hiýddu á orð klerks þennan laugar-
dag við sundlaugarbarminn en í
kirkjunni daginn eftir. Hvatti prest-
ur jafnt yngri sem eldri tíl að nota
sundlaugina í framtíöinni.
Sundiaugin verður opin kl. 14-20
aUa virka daga en kl. 14-18 um helg-
ar. Hugsanlegt er þó að laugin verði
lokuð í svartasta skammdeginu.
Fréttir
Ekkert uppgjafarhljóð í AustjQrðingum:
Mjófirðingum
fjölgaði
um 11 prósent
- fólk að byrja aftur með sauðfé eftir niðurskurð
Öm Þórarinssan, DV, Mjóafirðl
„Viö höldum vel í við önnur sveit-
arfélög í dreifbýlinu hvað íbúatölu
varðar,“ sagði Erlendur Magnússon,
vitavörður og oddviti Mjóafiaröar-
hrepps, þegar fréttamaður innti
hann eftir mannlífinu í hreppnum á
dögunum.
„Hreppurinn er að sjálfsögðu fá-
mennt samfélag. Hér voru 38 með
lögheimili 1. desember síðastliðinn
en það fjölgaði um 11% á því ári.
Fólk byggir afkomu sína einkum á
sjósókn. Frá Brekkuþorpinu eru
gerðar út tvær trillur auk þess sem
gerður er út einn stærri bátur sem
jafnframt annast póstflutninga til
Mjóafiarðar. Fólk er að byija hér
aftur með sauðfé eftir niðurskurö og
fjárleysi, en fjárbúskapur hefur aldr-
ei verið stór í sniöum hér í Mjóa-
firði," sagði Erlendur.
„Ég held að fólki líði hér vel þrátt
fyrir fámennið og vissa einangrun
yfir veturinn. Það hefur flust hingað
fólk bæöi úr Reykjavík og nágranna-
byggðum síðustu ár og ég heyri ekki
annað en þessu fólki líki vel hér í
Mjóafirði," sagði Erlendur að lokum.
Æfingabekkir Hreyfingar
Er 7 bekkja æfingakerfiö fýrir þig?
Reynslan hefur sýnt að þetta æfingakerfi hentar
sérlega vel fólki á öllum aldri sem ekki hefur
stundað einhverja likamsþjálfun í langan tíma.
Æfingakerfið er einnig gott fyrir fólk sem ekki
stundar almenna leikfimi vegna stífra vöðva o.fl.
7. bekkja æfingakerfið liðkar, styrkir og eykur
blóðstreymi til vöðva þannig að ummál þeirra
Þuríður Slgurðardóttlr
Ég hef þjáðst af bakverkjum I
mörg ár en síðan ég fór að
stunda æfingabekkina held ég
mér alveg góðri og þol mitt
hefur aukist og finn ég þar mik-
inn mun.
Vllhelmína Blerlng
Ég er eldri borgari og hef verið hjá Sigrúnu í æfinga-
bekkjum í 3 ár og hlakka til I hvert sinn. Mér finnst
þetta ómetanleg hreyfing fyrir alla vöðva og finnst
mér ég ekki mega missa úr 1 tíma enda finnst mér
að eldri borgarar eigi að njóta þess að vera í æfing-
um til þess að halda góðri heilsu og njóta þess um
leið að hafa eigin tíma.
✓ Ert þú meö lærapoka?
✓ Ert þú búln aö reyna allt,
án árangurs?
✓ HJá okkur næröu árangrl.
j/ Prófaðu og þú kemstað því
aö cm fækkar ótrúlega fljjótt.
minnkar. Einnig gefur það gott nudd og slökun.
Getur eldra fólk notlð góös af þeesum bekkj-
um?
Já, þessi leið við að hreyfa líkamann er þægileg,
liðkar og gefur góða slökun. Og er þess vegna
kjörin fyrir eldra fólk.
Sólrún BJómsdóttlr
Ég hef stundað æfingabekkina
í 10 mánuði og sé ég stórkost-
legan mun á vextinum um leið
og þolið hefur aukist til muna
og svo ekki hvað síst hafa bak-
verkir algjörlega horfið. Þetta
er það besta sem ég hef reynt.
Helga Elnarsdóttlr
Ég hef í mörg ár þjáðst af verkjum í mjöðmum og
fótum en síðan ég fór að stunda æfingabekkina hef
ég ekki fundið fyrir því svo að ég mæli eindregið
með þessum æfingum.
HREYFING
Opið frá kl. 9-12 og 15-20.
Frír kynningartími.
Ármúla 24 • Slmi 680677