Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1992, Síða 44
F R ÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Rítstjórn - Auglýsingar • Áskrift - Preifing: S»mi 63 27 00
Frjálst, óháð dagblað
MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1992.
Lést eftir
bílveltu
Ungur maður lést í bílveltu i Fljót-
unum á laugardag.
Síðdegis á laugardag var tilkynnt
að bifreiðar væri saknað í Siglufiröi.
Seint á laugardagskvöld kom í ljós
að einnig var saknað ungs manns
úr bænum.
Að sögn lögreglu á Siglufirði var
unnið aö rannsókn málsins á laugar-
dagskvöld og aðfaranótt sunnudags.
Klukkan sex á sunnudagsmorgni
hófst skipuleg leit lögreglumanna frá
Siglufirði og Olafsfirði. Fjörutíu min-
útum síðar fannst bifreiðin skammt
norðan við bæinn Hraun í Fljótum.
Þegar læknir kom á vettvang úr-
skurðaði hann ökumanninn látinn
og reyndist hann vera sá sami og
saknað var kvöldiö áður.
Bíllinn er talinn gjörónýtur.
Akureyri:
Konurnar líka í
slagsmálin
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Tvær konur slógust hressilega á
Ráðhústorgi á Akureyri aðfaranótt
sunnudags. Lögreglan skakkaði leik-
inn og voru þá gleraugu annarrar
brotin en þær urðu ekki fyrir alvar-
legum meiðslum.
Tveir skipsfélagar slógust einnig
hressilega fyrir utan Sjallann í nótt.
Annar þeirra lá rænulítill eftir með
alvarlega áverka á hnakka og var
fluttur á slysadeild en hinn fékk að
gista hjá lögreglunni.
Smáskot
íSkaftá
Enginn vöxtur var í Skaftá í gær.
Vatnamælingamenn, sem fóru inn
að Sveinstindi, telja að vöxturinn í
ánni hafi byrjað á fóstudag en náð
hámarki í fyrrinótt, að sögn Odd-
steins Kristjánssonar, bónda í
Hvammi.
„Þetta var nú ekkert hlaup, bara
smáskot," sagði Oddsteinn. -IBS
Truflanir í
áætlunarflugi
Sökum veðurs hafa flugsamgöngur
gengið brösulega síðasta sólarhring-
inn. í morgun var ekki hægt að fljúga
til Vestmannaeyja vegna vinds. Flug-
fært var til annarra staða en talið
líklegt að einhveijar tafir mundu
verða í dag. Spáð er hvassviðri fram
ákvöld. -bjb
sjomanm:
HBHH ■ i i B W
fcinn nenu sgf
i sjornn a eftar
Ewaivi mm m ■ ■ m
iðBT wyiviyviiiivi
voru 1-2 metra frá því að lenda í flörunni
„Þetta gerðíst allt svo hratt. Við
vorum í ósnum að fylgjast með
þegar við fengura kall um að einn
hefði fariö í sjóinn og við ættum
möguleika að ná honum," sagöi
Einar Bjöm Einarsson. skipstjóri á
bátnum Flóka, sem bjargaði skip-
stjóranum á færeyska skipinu Gula
kletti sem strandaði við Horna-
fiarðarósa í gær. Þremur var bjarg-
að af færeyska bátnum en eins er
enn saknað.
„Við þurftum frá að hverfa fyrst
því það var svo ofsaiegur vindur.
Þá sneri ég bátnum og lét hann
reka í átt að manninum. Einn af
okkur henti sér í sjóinn á eftir
manninum, dró hann meðfram
síðu bátsins og'við tókum hann upp
aö aftan.“
Mikley
Ósland n
O
O Vitar
o Leidar-
Ijós
Austurfjörutangi
émm
Hór fórst
Guli kletturinn
Suðurfjörutang
Hvanney
~m3—
Einar Bjöm segir að Flóka hafi
rekið mjög hratt undan vindinum
og litlu hafi mátt muna að hann
ræki upp í flöru. „Það vantaöi einn
til tvo metra upp á við lentum i fjör-
unni,“ sagði Einar Björn.
Einar Bjöm er félagi í björgunar-
sveitinni og var hann kallaður út
strax þegar slysið varö. Hann fór
með björgunarsveitarmenn út á
fjörur og þaðan aftur í land. Þá
mannaði hann bátinn á ný meö
þeim sem hann fann á bryggjunni.
Tveir þeirra voru í flotgöllum.
Að sögn Einars var færeyski
skipstjórinn orðinn mjög þrekaður
þegar þeir náðu honum um borö
enda haföi hann rekið um tvö
hundruð metra undan vindinum.
„Hann var samt ótrúlega fljótur
að ná sér. Rúmri klukkustund síðar
var hann búinn að ná góöum hita
í líkamann," sagöi Einar Bjöm Ein-
arsson, skipstjóri á Flóka, -JJ
- sjá einnig bls. 2
Haraldur Noregskonungur á Fornebuflugvelli í Ósló í morgun á leið til Islands. Hann og Sonja drottning komu f
fyrstu opinberu heimsókn sína hingað til lands í morgun. DV-mynd Scan-foto
Vinnupallar
Vinnupallar við Ástún 2 í Kópavogi
hrundu klukkan 8 í morgun en þar
var mjög hvasst að sögn íbúa. Tveir
bílar urðu undir hlassinu og eru báð-
ir mikið skemmdir. Vinnupallarnir
höfðu staðið uppi í allt sumar og átti
að taka þá niður um næstu helgi en
verið var að gera við steypuskemmd-
ir. -Ari
Víghólasamtökin:
Lögbanní dag?
„Við erum að biðja um lögbann
þangað til aðalsafnaðarfundurinn
verður haldinn. Ef þaö verður ein-
hver dráttur á því að fundurinn verði
haldinn, þá er það á ábyrgð aðalsafn-
aðarstjómar er ekki okkar. Það eina
sem við förum fram á er að halda
fundinn, ræða máhð og taka ákvörö-
un þar,“ segir Gylfi Sveinsson, for-
svarsmaður Víghólasamtakanna.
Beiðni um lögbann á framkvæmdir
við kirkjubygginguna á Víghóh var
lagt fram í morgun og sagðist Gylfi
búast við úrskurði dómara fljótiega
eftirhádegið. -Ari
Akureyri:
Þrjú innbrot
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Þrír unghngar á aldrinum 14-15
ára vom staðnir að verki í sundlaug-
arbyggingunni á Akureyri í nótt en
þeir höfðu brotist þar inn og voru
að láta greipar sópa er þeir voru
handsamaðir.
Innbrotsþjófamir voru búnir að
viða að sér ýmsu dóti til að taka með
sér, auk þess sem þeir höfðu komist
yfir um 9 þúsund krónur í peningum.
Innbrot var tilkynnt í sumarbústað
við Höskuldsstaði í Eyjafjarðarsveit
um helgina. Þar hafði verið farið inn
og unnar talsverðar skemmdir. Þá
var brotist inn í Hólabúðina á Akur-
eyri.
Norsku konungshjónin:
Hádegisverður
áBessastöðum
Norsku konungshjónin, sem komu
til íslands í morgun, munu snæða
hádegisverð í boði forseta íslands á
Bessastöðum. Eftir hádegi mun
Sonja drottning opna sýningu í Hafn-
arborg á verkum norska málarans
Káre Tveter. Síðdegis í dag munu
konungshjónin heimsækja Stofnun
Árna Magnússonar. Forseti íslands
mun halda kvöldverðarboð í Súlna-
sal Hótel Sögu til heiðurs konungs-
hjónunum. -IBS
LOKI
Ætli Víkingarfullkomni
hringinn með því að taka
sæti (A í annarri deild?
Veðrið á morgun:
Skýjað og
þurrtá
Suðurlandi
Á hádegi á morgun verður
norðan og norðvestan átt, stinn-
ingskaldi eða allhvasst en sums
staðar hvasst á Norðvesturlandi.
Rigning verðin- norðanlands en
skýjað og þurrt að mestu syðra.
Veðrið í dag er á bls. 52
RAFMÓTORAR
Powfeew
Suðurlondabraut 10. 8. 686480.