Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1992, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1992, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1992. 9 Rachel Kingsley grét í réttarsalnum á fyrsta degi réttarhaldanna yfir henni. Sonur hennar krefst lögskilnaðar vegna þess að móðir hans sé óhæfur uppalandi. Símamynd Reuter Tólf ára strákur vlll lögskilnað frá móður sinni: Mamma er bara vergjörn subba - segir strákur sem þegar hefur fundið sér fósturforeldra Gregory Kingley sat rólegur 1 rétt- arsalnum í Orlando, brosti og skipt- ist á orðum við fólk úr sjálfvalinni fósturflölskyldu. Hann hefur stefnt móður sinni fyrir rétt og segir að hún sé óhæf til að sinna móðurhlutverk- inu enda hin mesta subba og ver- gjöm í þokkabót. Faðir Gregorys hefur þegar gefið upp vöm í málinu og heimilað fyrir sitt leyti að sonurinn verði ættleidd- ur af fólkinu sem hann flutti inn til í október á síðasta ári. Þaðan hefur hann ekki vikið upp frá því og nýtur óskoraðs stuðnings fósturforeldr- anna. Móðirin, Rachel Kingley, sam- þykkti á sínum tíma að sonurinn færi í fóstur. Hún hefur lítið haft af honum að segja síðustu árin en vill nú fá hann til sín. Gregory er stað- ráðinn í að fara hvergi og því er málið komið fyrir dómstólana. Lögmaður Gregorys segir að Rac- Gregory Kingley helur fundið sér fósturforeldra og neitar að fara frá þeim. Símamynd Reuter hel sé drykkju- og eiturlyfjasjúkling- ur. Hún sé lauslát úr hófi og jafnvel lesbísk. Hún neitar öllum ásökunum og segir að þrátt fyrir erfitt líf á síð- ustu árum sé hún nú fær um að ala son sinn upp. Lögmaður Rachelar segir að hún sé fómarlamb velferðarkerfisins. Hún hafi aldrei fengið frið fyrir fé- lagsráðgjöfum allt sitt líf en hafi með dugnaði tekist að vinna sig út úr vandanum. Mál Gregorys er hið fyrsta sinnar tegundar í Bandaríkjunum. Áður hafa fósturforeldrar bama í sömu stöðu og Gregory farið í mál fyrir hönd bamanna en að þessu sinni rekur strákur máhð sjálfur. Fari Gregory með sigur af hólmi er viðbúið að fleiri skilnaðarmál af þessu tagi komi fram og böm, sem flúið hafa foreldra sína, leiti réttar síns. Reuter Helmut Kohl um evrópska myntsamstarfið: Ekki ástæða til að leggja það niður Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, sagði í morgun að hann sæi enga þörf á því að breyta gengisjafnvæg- inu miUi þýska marksins og franska frankans. Hann sagði í þýska þinginu að ólg- an á evrópskum gjaldeyrismörkuð- um að undanfomu þýddi ekki að leggja ætti gengiskerfi Evrópubanda- lagsins niður. „Ég vil leggja áherslu á það að spennan inna evrópska myntsam- starfsins er ekki næg ástæða til að efast um gildi þess,“ sagði Kohl. Ófremdarástandið á fjármagns- mörkuðunum undanfamar tvær vikur hefur orðið til þess að fram hafa komið kröfur um grundvallar- endurbætur á alþjóðlega fjármagn- skerfinu sem er undirstaða efna- hagslífs heimsins. Upplausnin sem spákaupmönnum er kennt um og varð nærri því til þess að eyðileggja gengissamstarf Evrópulandanna vakti menn upp af þymirósarsvefni. Á fundi Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabank- ans sem lauk í Washington í gær reyndu menn hvað þeir gátu að finna lausnir á meinsemdum heimsefna- hagsins. „Við getum ekki leyft alþjóðaefna- hagslífinu að verða að spilavíti þar sem maður veðjar og vinnur og tap- ar,“ sagði Jacques Attali, forseti Evr- ópska uppbyggjngar- og þróunar- bankans. Hver ræðumaðurinn á fætur öðr- um á fundinum í Washington harm- aði ólguna á gjaldeyrismörkuðunum og lýsti yfir að hið bráðasta þyrfti að gera eitthvað til að koma aftur á röð og reglu. Sumir vildu að ríkis- stjómir kæmu á fót efHrliti með þeim fjármunum sem fara um markaðina á degj hverjum, rúmlega fimmtíu milljón milljónir króna. Reuter vill ekki breyta gengisjafnvægi franska frankans og marksins. Telknlng Lurie SENDLAR ÚSKAST A AFGREIÐSLU STRAX. Vinnutími eftir hádegi. Æskilegur aldur 12-15 ára. Upplýsingar í síma 632777. Greiðsluáskorun Sýslumaðurinn í Búðardal skorar hér með á gjaldend- ur, sem ekki hafa staðið skil á tekjuskatti, útsvari, eignarskatti, sérstökum eignarskatti, kirkjugarðs- gjaldi, gjaldi í Framkvæmdasjóð aldraðra, sérstökum skatti á verslunar- og skrifstofuhúsnæði skv. 36. gr. almannatryggingalaga, slysatryggingagjaldi v/heim- ilisstarfa, útflutningsjaldi, launaskatti, bifreiðaskatti, slysatryggingargjaldi ökumanna, þungaskatti skv. ökumælum, tryggingagjaldi, vinnueftirlitsgjaldi, virð- isaukaskatti, þ.m.t.wiðbótar- og aukaálagningu virð- isaukaskatts vegna fyrri tímabila og staðgreiðslu opinberra gjalda, verðbótum af tekjuskatti og útsvari sem voru álögð 1992 og féllu í gjalddaga 1. ág. 1992 ásamt eldri gjöldum, að greiða þau nú þegar og eigi síðar en innan 15 daga frá dagsetningu áskor- unar þessarar. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrir- vara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna að þeim tíma liðnum. Búðardal, 23. sept. 1992 Sýslumaðurinn í Búðardal 0Viltu hætta að reykja? Enn er hægt að komast á námskeið í reyk- bindindi sem hefst hjá okkur 1. október (kvöldfundir). Upplýsingar og skráning í síma 621414 á skrifstofutíma (kl. 8.30-16.30). Krabbameinsfélag Reykjavíkur Mltsublshi Slgma árg. 1991 lltur hvítur, ekinn 16.000 km. Glæsivagn með nauð- synlegum búnaðl, s.s. 6 cyl., 24 höM hemlalæsivörn ABS c Verð kr. 2.600.000, Skípti ath. á ódýra TIL SÖLU MÁDIfí BÍMfí Hekluhúsinu, Laugavegi 174

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.