Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1992, Page 16
16
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 199É.
.Draumurinn varð að martöö,'
Þessi orð eru höfð eftir þjálfara belgíska liðsins, Ariel Jacobs. „Þegar
sjo nunútur voru eftir og staðan 2-2, sem nægði okkur. fengum við á
okkur óþarfa vítaspymu. Viö réðum ferðinni í fyrri hálfleik, vorum 2-1
yfir og áttum Qeiri marktækifæri, og eftir aö ísland jafnaði, var okkar
staða enn þaegjleg. En það var eins og okkar strákar liefðu ekki úthald
og við töpuöum 5-2. Martröö!," segir Jacobs ennfremur við blaöiö.
Þess má geta að belgísku leikmennimir komu nær ailir frá 1. deildar
liðum á borð við Anderlecbt, Mechelen, Antwerpen, Standard, Beyeren
og Cercie Brugge.
landi og Noröur-írlandi.
íþróttir
Cloughætlar
~ aðstyrkja
liðForest
Gísli Þ. Guðmundsson, DV, Englandi:
Brian Clough, framkvæmda-
stjóri Nottingham Forest, ætlar
að bregöast hart við slæmri byrj-
un liðsins sem nú vermir botn-
sæti úrvalsdeildarinnar í knatt-
spymu. Hann reyndi að fá
franska landsliösmanninn Laur-
ent Blanc aö láni frá Napólí, en
Blanc fór í staðinn til Nimes í
gær. Þá hyggst Clough selja Roy
Keane til Arsenal fyrir einar 3
milljónir punda. Upp í þá tölu
fengi hann tvo sterka leikmenn,
Alan Smith og Andy Linighan.
Eins og fram kom í D V í gær skor-
aði Þorvaldur Örlygsson fyrir
Forest í 3-2 sigrinum á Stockport
í deildabikarnum í fyrrakvöld og
auk þess lagði hann upp annaö
mark.
Frjálsíþróttamót
framhaldsskóla
Frjálsíþróttamót framhalds-
skólanna 1992 fer fram á Laugar-
dalsvellinum á morgun, laugar-
dag, klukkan 14 tii 16. Þar keppa
14 skólar um bikarmeistaratign
en keppendur eru um 200. Hand-
hafi bikarsins frá því í fyrra er
Menntaskólinn á Laugarvatni.
Fyrstileikur-
inn hjá Gullit
Ruud Gullit, hollenski lands-
liðsmaðurinn, fær loksins að
leika með AC Mílan þegar liöið
mætir Sampdoria í ítölsku 1.
deildinni í knattspymu á sunnu-
daginn. Gullit var ekki valinn í
hópinn fyrir fyrstu þrjá leikina
enda er AC Mílan með sex útlend-
inga og má aðeins nota þrjá
hveiju sinni. Það verður hol-
lenska tríóið Gullit, Van Basten
og Rijkaard sem verður meö gegn
Sampdoria en Jean-Pierre Papin,
Dejan Savicevic og Zvonimir Bo-
ban fylgjast með af áhorfenda-
pöllunum.
-VS
Raimeðþrennu
fyrirBrasilíu
Miðjumaðurinn Rai skoraði
þrennu þegar Brasilía sigraði
Costa Rica, 4-2, í vináttulandsleik
sem fram fór í fyrrakvöld. Leik-
menn Costa Rica vom ansi feröa-
lúnir því þeir komu heint í leik-
inn eftir 45 tíma ferðalag! Urug-
uay og Argentína geröu 0-0 jafn-
tefli sama kvöld, og Atletico Min-
eiro frá Brasilíu sigraði Olimpia
frá Paraguay í úrslitaleik í fyrstu
Conmebol-képpni Suður-Amer-
íku, sem samsvarar evrópska
UEFA-bikarnum.
. -VS
Hörðurvann
styrktarmótið
Hörður Már Gylfason, GR, sigr-
aöi á styrktarmóti sem haldið var
um síöustu helgi vegna þátttöku
Golfklúbbs Reykjavíkur í Evr-
ópumóti félagsÚða. Hann lék á 67
höggum með forgjöf, Halldór Sig-
urðsson, GR, á 68 höggum og Ól-
afur Skúlason, GR, á 71 höggi.
Tryggvi Pétursson, GR, fékk
verðlaun fyrir besta skor, 73
högg. Um helgina fór einnig fram
firmakeppni hjá GR og þar sigr-
aöi Siguijón Amarson fyrir hönd
Blómabúðarinnar Vors.
Hjá GR verður haustleikur
unglinga á morgun, laugardag,
og verður ræst út klukkan 10. Á
sunnudag verður síðan annað
styrktarmót, 18 hola höggleikur
með forgjöf og er öllum heimil
þátttaka. Skráning í bæði mótin
er í síma 682215.
Ámundirhættir
fyrirvestan
Ámundi Sigmundsson, sem hef-
ur þjálfaö og leikið hefur með
knattspymuliði BÍ á ísafirði tvö
síðustu keppnistímabil, ætlar
ekki að þjálfa fyrir vestan á næsta
keppnistímabili. Undir stjóm
hans komst liðið upp í 2. deild í
fyrra og hélt sæti sínu í deildinni
í sumar. „Ég tel mig vera búinn
að ná því besta út úr þeim mann-
skap sem er hjá félaginu. Það er
óráðiö hvað ég geri en áhugi er á
að þjálfa áfram og þá hjá ein-
hverju félagi á höfuðborgarsvæð-
inu,“ sagði Ámundi viö DV í gær.
-GH
Serbarnir áfram
meðÞrótti
Serbnesku leikmennimir, sem
léku með liði Þróttar í 2. deildinni
í knattspymu í sumar, þeir Drag-
an Manjolovic og Zoran Stosic,
hafa ákveðið að leika áfram með
liðinu á næsta keppnistímabili.
Þá standa yfir viðræður við Ólaf
Jóhannesson um endurráðningu
en hann þjálfaði liðið á síðasta
tímabili.
-KG/GH
Óvissahvað
Rúnargerir
Rúnar Kristinsson knatt-
spymumaður með KR kemur
heim í dag frá dvöl sinni hjá
norska félaginu Brann. Rúnar fór
út í boði Brann á mánudaginn en
félagið hefur lýst yfir miklum
áhuga á að fá kappann. Að sögn
forráðamanna KR hefur ekki ver-
ið gengið frá neinum samningum
enda hafa forráöamenn Brann
ekki talað við KR og þeir segja
að ekkert gerist í þessu máli fyrr
en eftir landsleiki íslendinga í
október. Það er því of snemmt að
segja á þessu stigi hvort Rúnar
yfirgefur KR og leikur í Noregi á
næsta keppnistímabili.
-GH
Konaímarkið
íNHL-deildinni
Manon Rheaume, tvítug kana-
disk stúlka, varð fyrst kvenna til
að standa í marki hjá liði í NHL-
atvinnumannadeildinni. í fyrra-
kvöld lék Rheaume í 20 mín. með
Tampa Bay Lightnings í sýning-
arleik gegn St. Louis Blues. Rhe-
aume fékk á sig 9 skot og varði 7
þeirra. Áhorfendur, sem voru á
níunda þúsund, risu úr sætum
sínum og klöppuðu heinni lof í
lófa fyrir frammistöðu hennar.
Hún hafði sannað það sem hún
ætlaði að sanna að kona gæti leik-
ið í NHL-deildinni og það vel.
Rheaume vonast til þess að fá
samning hjá liðinu sem tekur
þátt í NHL-deildinni í fyrsta sinn
1 vetur.
-BL
Marseille
tapaðistigi
Keppnin í frönsku knattspym-
unni virðist ætla að verða jöfn
og spennandi í vetur ef marka
má stöðu efstu liða í dag.
í gærkvöldi fóru fram tveir leik-
ir. Marseille tapaði stigi á útivelli
gegn Lens, 2-2. Þeir Boli og Völler
skoruðu mörk frönsku meistar-
anna en þess má geta að Lens
jafnaði metin þegar um stundar-
fjórðungur var til leiksloka. Þá
sigraði Auxerre lið Lille, 2-0. Par-
is SG, Auxerre, Nantes og Mar-
seille eru efst með 12 stig en næst
kemur Bordeaux með 9 stig.
-SK
1. deildar keppnin í k(
Víkverj
Körfuknattleiksdeild Víkveija hefu
úr keppni í 1. deild karla. Ekki er enn
í deildinni, en takist þaö ekki er keppn
Á síöasta ársþingi KKÍ var nýtt
þykkt, liðin átta leika í tveimur flc
umferð innan riðlilsins og tvöfalda
úrvalsdeild. Þar sem landsbyggðarlii
fyrra, er ijóst aö kostnaður við þáttl
ástæðan fyrir ákvörðun Víkveija.
Lið Laugaskóla í Þingeyjarsýslu vi
deildar í vor en tapaði síðan í kær
þess staö. Þaö liggur því beint viö af
til stefnu er skammur og ekki víst h
Hlynur Stefánsson, fyrir miðri mynd, á fleygiferð í landsliðsbúningnum. Hann segist aldrei hafa verið f betri æfingu en einmit
af kappi undir síðari leikinn gegn belgíska liðinu Mechelen en Hlynur kom mikið við sögu í fyrri leiknum.
Hafi ég einhvern tín
heima í landsliði er |
- segir Eyjamaðurinn Hlynur Stefánsson sem er að gera þs
Hlynur Stefánsson, knattspymumað-
ur úr Vestmannaeyjum, hefur verið að
gera góða hluti með sænska liöinu
Örebro en hann gekk til liðs við félagið
eftir keppnistímabilið í fyrra. Örebro
náði ekki einu af sex efstu sætunum í
úrvalsdeildinni, en þau iið leika um
meistaratitilinn, og leikur því meðal
átta annarra liða um að halda sæti sínu
meðal þeirra hestu. í gærkvöldi sigraði
Örebro lið Frölunda, 2-1, og er í 3. sæti
af átta liðum þegar níu umferöum er
lokið.
„Mér hefur líkað vistin hér í Svíþjóð
mjög vel. Hér er toppaöstaða, frábærir
veliir, veðursæld mikil og gaman að
æfa og spila fótbolta. Mér hefiir gengið
vel, lék fyrst sem útliggjandi miðjumað-
ur en leik nú í minni gömlu stöðu á
miðjunni og það líkar mér vel,“ sagði
Hlynur í samtali við DV í gærkvöldi.
Fékk mjög góöa dóma
eftir Evrópuleikinn
Örebro lék gegn Mechelen í UEFA-
keppninni á dögunum og tapaði, 2-1,
en leikurinn fór fram í Belgíu. Hlynur
fékk mjög góða dóma eftir þann leik og
lagði upp markiö sem Örebro skoraði.
„Þetta er örugglega besti leikur minn
með Örebro en ég lék í stöðu bakvarðar
í þessum leik. Síöari leikurinn verður
hér í Örebro á miðvikudag og er mikiU
áhugi fyrir honum enda leika tveir
sænskir landsliðsmenn með Mechelen,
Kenneth Anderson og Klas Ingerson.
Ég tel okkur eiga möguleika á að slá
Belgana út en við þurfum toppleik til
þess.“
Hlynur gerði tveggja ára samning viö
sænska liðið og gerir fastlega ráð fyrir
því að klára samninginn. Kona hans,
Unnur B. Sigmarsdóttir, er líka liðs-
maður í Örebro en hún leikur hand-
knattleik með félaginu sem leikur í 1.
deild.
Ef einhvern tíma heima
í landsliði er það nú
Hlynur lék með ÍBV áður en hann hélt
utan og heftir verið einn af bestu knatt-