Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1992, Blaðsíða 24
32
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1992.
Smáauglýsingar Afmæli
■ BDar tíl sölu
Gulifallegur Bronco II '85 til sölu, ekinn
77 þús. km, upphœkkaður á 31" dekkj-
um. Til sýnis og sölu á Bílasölu Garð-
ars, sími 91-19615 eða 91-624903 eftir
kl. 20.
Nissan king cab, árg. '90, til sölu,
blágrár, 5 gíra, upphækkaður á 33"
dekkjum. Uppl. í síma 91-677599.
Ford Bronco XLT 2,9i '86, upphækkað-
ur. Mjög góður bíll. Toppeintak. Uppl.
í síma 91-672118 á kvöldin.
MMC pickup 4x4, árg. 81, til sölu. Verð
125 þús. staðgreitt. Upplýsingar í síma
91-653989.
Nissan Bluebird dfsil '89 til sölu, lítur
vel út að utan sem innan. Otv./segulb.
Góður bíll. Uppl. í síma 91-41017 eða
985-22611. '
■ Ýmislegt
Skráning í 4. og síðustu kvartmilukeppni
til Ishn. fer fram í félagsh., Bíldsh. 14,1
26.9., kl. 17-19. Kvartmíluklúbburinn,
s. 674530.
Pétur Pálmason
Pétur Pálmason, b. og skrifstofu-
maður, Norður-Gröf á Kjalarnesi,
varð sjötugur í gær.
Starfsferill
Pétur fæddist í Reykjavík en ólst
upp hjá fósturforeldrum sinum,
hjónunum Jónasi Tr. Bjömssyni og
Guðbjörgu Andrésdóttur sem
bjuggu fyrst í Gufunesi í Mosfells-
sveit en fluttu síðan 1934 aö Norður-
Gröf á Kjalamesi. Þar tók Pétur við
búi þeirra 1950 og hefur búið þar
síðan, fyrstu árin með kúabú en
lengst af með fjárbú.
Pétur lauk stúdentsprófi frá MR
1943 og prófi í viðskiptafræði við
HÍ1950. Pétur hóf skömmu síðar
hlutastarf hjá Skattstofu Reykjavík-
ur, varð svo fastráðinn fulltrúi hjá
Skattstofunni og hefur starfað þar í
söluskatts- og síðar virðisauka-
skattsdeild.
Fjölskylda
Pétur kvænist 30.8.1956 Elínu Þór-
xuini Bjamadóttur, f. 17.9.1923, hús-
freyju. Hún er dóttir Bjama Jóns-
sonar, b. í Þorkelsgerði I í Selvogi,
og konu hans, Þórunnar Friðriks-
dóttur, húsfreyju og ljósmóður.
Böm Péturs og Elínar Þórunnar
em Jónas Tryggvi, f. 5.7.1955, húsa-
smiður; Þórunn Aldís, f. 29.6.1956,
húsmóðir og starfsmaður hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur, gift Grími
Péturssyni og eiga þau þrjú böm;
Margrét Björg, f. 23.7.1957, fóstra í
Reykjavík, og á hún eina dóttur;
Friðrik Ámi, f. 3.9.1958, húsgagna-
smiður og starfsmaður við Bílabúð
Benna; Sigrún Bryndís, f. 24.11.1959,
stúdent og skrifstofumaður hjá
Plastos hf., og á hún eina dóttur;
PálmiHannes, f. 6.12.1961, starfs-
maður hjá Gúmmívinnustofunni í
Reykjavík; Þórdís Anna, f. 5.7.1965,
stúdent og nemi í hjúkmnarfræði í
Svíþjóð, en sambýlismaður hennar
er Kristinn Benediktsson læknir;
Bjarni Þór, f. 6.9.1968, háskólanemi.
Hálfsystkini Péturs, samfeðra: El-
ín, f. 31.1.1927, blaðamaður við
Morgunblaðið; Sólveig, f. 25.2.1929,
læknaritari við Landspítalann, var
gift Ingólfi Steinssyni og eiga þau
tvö böm; Ámi Jón, f. 4.4.1931,kenn-
ari, kvæntur Evu J. Júlíusdóttur
sálfræðingi; Helga, f. 4.7.1936, svið-
stjóri hjá Ríkissjónvarpinu, gift
HelgaP. Samúelssyniverkfræðingi
og eiga þau tvö böm.
Foreldrar Péturs: Pálmi Hannes
Jónsson frá Nautabúi, f. 10.10.1902,
fyrrv. aðalbókari hjá Kveldúifi í
Reykjavík, og Þómnn Einarsdóttir
frá Eyrarbakka, f. 19.8.1897, d. 24.3.
1976, húsmóðir í Kaupmannahöfn.
Ætt
Pálmi var bróðir Jóns á Hofi, foður
Pálma i Hagkaupi og Sólveigar,
móður Jóns Ásbergssonar, forstjóra
Hagkaups. Pálmi var sonur Jóns,
b. á Nautabúi í Skagafirði, bróður
Hannesar, föður Pálma rektors og
afa Hannesar Péturssonar skálds.
Systir Jóns var Halldóra, móðir Þor-
steins Briem ráðherra og amma
Þórðar Bjömssonar, fyrrv. ríkissak-
sóknara. Önnur systir Jóns var Her-
dís, móðir Helga Hálfdánarsonar
skálds. Jón var sonur Péturs, b. í
Valadal, Pálmasonar. Móðir Pálma
Hannesar var Sólveig Eggertsdóttir,
Jónssonar, prests á Mælifelli, bróð-
ur Sigríðar, langömmu Runólfs
Sveinssonar landgræðslustjóra, föð-
ur Sveins landgræðslustjóra. Jón
var sonur Sveins, læknis í Vík, Páls-
sonar og konu hans, Þórunnar
Bjamadóttur landlæknis, Pálsson-
ar. Móðir Þómnnar var Rannveig
Skúladóttir landfógeta, Magnússon-
ar. Móðir Eggerts var Hólmfríður
Jónsdóttir, prests í Reykjahlíð, Þor-
steinssonar, ættföður Reykjahiíðar-
ættarinnar.
Þómnn var dóttir Einars í Traðar-
húsum á Eyrarbakka, bróður Guð-
mundár, afa Eiðs Guðnasonar um-
hverfisráðherra. Einar var sonur
Jóns, b. í Hreiðri, Guðmundssonar,
Pétur Pálmason.
b. í Steinkrossi, Oddssonar, bróður
Eyjólfs, langafa Odds, föður Davíðs
forsætisráðherra. Móðir Guðmund-
ar var Margrét Ólafsdóttir, b. á
Fossi, Bjamasonar, b. á Víkingslæk,
Halldórssonar, ættfoður Víkings-
lækjarættarinnar. Móðir Jóns var
Kristín Jónsdóttir, systir Þorgils,
foður Þuríðar, langömmu Guðrúnar
Erlendsdóttur, forseta Hæstaréttar.
Móðir Þórunnar var Aldís Guð-
mundsdóttir, b. í Einakoti, Þor-
steinssonar, b. í Vorsabæ á Skeiö-
um, Jörundssonar, b. á Drumbodds-
stöðrnn, Dlugasonar Skálholtsráðs-
manns, Jónssonar.
Pétur er að heiman á afmælisdag-
inn.
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
Að norðan og úr Þingholtunum
-tvær s
Hring Jóhannesson má hiklaust telja í hópi
okkar helstu málara. Óvenjuleg sjónarhom á
hversdagsleg fyrirbæri - þá gjaman úr Aðal-
dalnum nyrðra - hafa einkennt verk Hrings síð-
ustu tuttugu árin.
/ Myndir hans hafa nálgast raunsæi ijósmynd-
arinnar en í þeim hefur mátt greina áhrif frá
flestum listastefnum módemismans, s.s. súr-
reaiisma og popplist. Hann hefur verið gagn-
rýndur fyrir að mála veðurlausar og átakaiitlar
myndir hér í rokrassgatinu og fyrir að vera sér-
sinna og gamaldags. A sjötta áratugnum og fram
eftir þeim sjöunda, þegar strangflatarlistin tröll-
reið röftxun listalífsins, fór Hringur eigin leiöir
sem þótti ekki par gæfulegt. En hann gaf öllum
rógberum langt nef í upphafi áttunda áratugar-
ins með því að lýsa yfir samstöðu með SUM-
hópnum og sýna myndir sem minntu að upp-
byggingu á strangflatarmyndir og viðfangsefnið
nálgaðist heim popplistarinnar á alveg sérís-
lenskan máta. Utsýni Hrings yfir Aðaldalinn
hafði tekið sér bólsetu í hérlendri listaflóru og
blómstrar þar enn. Hringur hefur nú efnt til
tveggja sýninga í senn. í Norræna húsinu sýnir
hann ails 72 myndir; 42 olíumálverk og 30 litkrít-
armyndir. í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg hefur
Hringur svo komið fyrir 20 krítarmyndum til
viðbótar.
Skuggar og speglanir
Þegar kemur inn í anddyri kjallara Norræna
hússins blasa við kunnugleg mótív í þeim þijá-
tíu litkrítarmyndum sem þar hanga uppi. I leit
sinni að óvæntum sjónarhomum hefur Hringur
jafnan notað skugga og speglanir. Skuggamir
em t.d. af persónu eða heyvinnuvél sem standa
utan myndar og skapa verkinu þannig vissa
dulúð. Speglanir sér Hringur t.a.m. í hliðar-
speglinum á bfl sínum á leið norður og í hinum
ýmsu polium. Dæmi þessa má sjá í mörgum iit-
krítarmyndum á sýningunni, þ.á m. nr. 45, 53
og 68. Sömu stefin ganga svo aftur í olíumálverk-
unum; olíuverk nr. 5 samsvarar t.a.m. Utkrítar-
mynd nr. 53. Það verður að segjast að endurtek-
in sjónarhom á borð við hin ofantöldu em orð-
Hringur Jóhannesson.
in ansi þreytuieg og spuming hvort þau séu svo
óvænt eða nýstárleg lengur.
Innileiki og dulúð
Skuggar, speglanir og birta era samt sem áður
meginstef Ustar Hrings og flest eftirminnileg-
ustu verk hans einkennast af þessu þrennu. Það
er helst þegar Hringur fer millUiðalaust inn í
málverkið og formin standa fyrir sig sjálf án
alira tilvísana að myndimar öðlast dýpt og dul-
úð. Þar má t.d. nefna verk eins og Staurspeglun
og þoku (nr. 31), Þoku í hólunum (nr. 38) og
Kvöldþoku (nr. 42). Einfaldleiki þessara verka,
innfleiki og mýkt, em ágætir vegvísar hvaða
Ustamanni sem er yfir hálendið. Takmörkuð
Utanotkun virðist einnig henta Hringi vel. Hann
veit sem er að íslenskt landslag er aldrei alveg
svarthvítt þótt það nálgist það stig og Miðnætti
á vinnustofunni (nr. 35) sýnir vel þann form-
styrk sem Hringur hefur sem málari. Sumar-
snjór, sem er hvort tveggja Utkrítarmynd og
oUuverk, birtir á afgerandi hátt hve skammt er
á miUi óhlutbundins og hlutbundins veruleika
í málverki. Það er einn helsti kostur Hrings sem
málara að finna hið hárfína stig þama á miUi.
Þau verk sem Hringur sýnir í Stöðlakoti em
krítarskissur af húsum og götumyndum úr
Þingholtunum. Þar birtist borgarbúinn Hringur
sem sér hús og aftur hús en engan dal og fátt
óvænt. En teikningamar eiga vel heima í þessu
litla húsi í Þingholtunum sem Stöðlakot er. Sýn-
ingum Hrings lýkur nk. sunnudag, 27. septemb-
er.