Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1992, Blaðsíða 26
34
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1992.
Afrnæli
Axel Bjömsson
Axel Björnsson, framkvæmdastjóri
Vísindaráðs, til heimilis að Látra-
strönd 30, Seltjamamesi, er fimm-
tugurídag.
Starfsferill
Axel fæddist í Reykjavík og ólst
upp hjá foreldrum sínum en dvald-
ist þó löngum hjá ættingjum í Þing-
eyjarsýslum. Hann stundaði skóla-
nám í Reykjavík og lauk stúdents-
prófi frá MR1962. Axel lærði síðan
eðlisfræði og jarðeðlisfræði við há-
skólann í Göttingen, lauk magister-
prófi 1968 og doktorsprófi 1972 en
doktorsritgerðin fjallaði um hálofta-
fræði og seguls við j arðar.
Að námi loknu hóf Axel störf á
jarðhitadeild Orkustofnunar við
jarðhitaleit og nýtingu jarðvarma.
Hann vann einkum að þróun nýrra
aðferða við jarðhitaieit og öflun
jarðhita fyrir fjölmargar nýjar hita-
veitur víða um land. í þeim tilgangi
byggði hann upp á Orkustofnun sér-
staka jarðeðlisfræðideild og var
fyrst deildarstjóri hennar en síðar
staðgengill forstjóra jarðhitadeildar
stofnunarinnar.
Samhliða hagnýtri jarðhitaleit
vann Axel að umfangsmiklum eld-
fiallarannsóknum á Kröflusvæðinu,
mælingum á eiginleikum og gerð
jarðskorpunhar undir íslandi og var
stundakennari við HÍ um nokkurra
áraskeið.
Axel hefur gegnt margvíslegum
trúnaðar- og ráðgjafarstörfum á
sínu fagsviði. Hann hefur í mörg ár
verið gestafyrirlesari við alþjóöleg-
an jarðhitaskóla í Piza á ítaÚu, farið
sem jarðhitaráðgjafi SÞ og Þróun-
arsamvinnustofnunnar íslands í
nokkrar ferðir til Keníu, Kína,
Grænhöfðaeyja og víðar, hefur setið
í ritstjóm nokkurra erlendra fag-
tímarita, veriö formaður Jarð-
fræðafélags íslands, setið í ráðgjafa-
nefnd Almannavarna ríkisins um
náttúmvá, setið í Vísindaráði og er
kjörfélagi í Vísindafélagi íslendinga.
Axel hefur skrifað tugi fræði-
greina í erlend og innlend fagtíma-
rit um jarðhita og eldfjallafræði, auk
kennsluefnis og alþýðlegra greina
umjarðvísindi.
Axel hefur frá 1991 verið fram-
kvæmdastjóri Vísindaráðs sem er
ráðgjafi stjómvalda um allt er varð-
ar vísindarannsóknir og sér um
rekstur Vísindasjóðs.
Fjölskylda
Axel kvæntist 17.10.1964 Ástu Vig-
bergsdóttur, f. 12.1.1942, kennara.
Hún er dóttir Vigbergs Agústs Ein-
arssonar og Elínborgar Þórðardótt-
ur. Axel og Ásta skildu 1992.
Synir Axels og Ástu em Björn
Axelsson, f. 16.3.1967, landslags-
arkitekt, nú í framhaldsnámi í Lon-
don, og EgiU Axelsson, f. 3.11.1971,
jarðfræðinemi við HÍ.
Systir Axels er Aðalheiður Bjöms-
dóttir, f. 12.1.1944, húsmóðir í Es-
bjerg í Danmörku, gift Poul Jensen
félagsráðgjafa og eiga þau tvö böm.
Sambýliskona Axels er Hrefna
Kristmannsdóttir, f. 20.5.1944, deild-
arstjóri og jarðefnafræðingur á
Orkustofnun, dóttir Kristmanns
Guðmundssonar skálds og konu
hans, Svanhildar Steinþórsdóttur.
Foreldrar Axels em Bjöm Krist-
jánsson, f. 19.8.1920, lögregluvarð-
stjóri og síðar starfsmaður endur-
skoðunar Reykjavíkurborgar, og
kona hans, Auður Axelsdóttir, f.
15.4.1920, húsmóðir.
Ætt
Meðal bræðrasona Bjöm er Krist-
ján Arason handknattleiksmaður.
Bjöm er sonur Kristjáns, b. á Hjöll-
um í Skötufirði, Einarssonar, snikk-
ara á ísafirði, Bjamasonar b. í
Meirihlíð, Ebenezerssonar, b. í
Innri-Hjarðardal í Önundarfirði
Guðmundssonar, b. í Neðri-Amard-
al Bárðarsonar, b. í Amardal, 111-
ugasonar, ættfoður Amardalsætt-
arinnar.
Móðir Bjöms var Kristjana Guð-
mundsdóttir, sjómanns í Amardal,
Kristjánssonar. Móðir Kristjönu var
Guðmimdína Magnúsdóttir, b. í
Skálavik, Guðmundssonar og konu
hans, Hólmfríðar Ólafsdóttur, b. á
Axel Björnsson.
Hallsstöðum, Þórðarsonar. Móðir
Ólafs var Hólmfríður Hafliðadóttir,
systir Hafliða, langafa Önnu, ömmu
Sverris Hermannssonar banka-
stjóra.
Auður er dóttir Axels, kennara í
Ási, Jónssonar, b. í Sultum í Keldu-
hverfi, Egilssonar, b. í Tungugerði,
Stefánssonar. Móðir Axels er Krist-
ín Stefánsdóttir, b. á Halldórsstöð-
um í Reykjadal, Bjömssonar.
Móðir Auðar var Sigríöur Jóhann-
esdóttir, b. á Sveinsströnd í Mý-
vatnssveit, Friðrikssonar, b. á
Sveinsströnd, Ámasonar. Móðir
Sigríðar var Hólmfríður Stefáns-
dóttir, systir Kristínar, móður Axels
kennara.
Axel er að heiman á afmælisdag-
inn.
Stefán Þórarinn Sigurðsson
Stefán Þórarinn Sigurðsson, bóndi
að Steiná í Svartárdal, er áttatíu og
fimmáraídag.
Starfsferill
Stefán fæddist að Steiná og ólst
þar upp við öll almenn sveitastörf
þess tíma. Hann keypti hluta jarðar-
innar af foreldmm sínum 1929 og
bjó þar í sambýli við þau en tók við
allri jörðinni 1940 og hefur búið þar
síðan.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 15.7.1934 Ragn-
heiði Jónsdóttur, f. 10.11.1908, hús-
freyju. Hún er dóttir Jóns Ólafsson-
ar, b. á Skottastöðum í Svartárdal,
og Sigríðar Jónsdóttur húsfreyju.
Böm Stefáns og Ragnheiðar em
Jóna Anna Stefánsdóttir, f. 13.3.
1935, húsmóðir í Hafnarfirði, gift
Ólafi B. Jónssyni og eiga þau fjögúr
börn, Óskar Eyvind, f. 25.10.1959,
b. á Steiná n, Eydísi, f. 13.10.1960,
lækni í Svíþjóð, Stefán Þórarin, f.
14.7.1964, fulltrúa sýslumanns á
Blönduósi, og Ragnheiði Rósu, f.
11.2.1%7, hjúkmnarfræðinema við
HÍ; Sigurbjörg Rannveig Stefáns-
dóttir, f. 22.5.1937, húsmóðir í Kópa-
vogi, gift Sigurði Pálssyni og eiga
þau þrjú böm, Guðrúnu Margréti,
f. 5.6.1968, nema í dýralækningum
í Danmörku, Unu Aldísi, f. 8.6.1970,
skrifstofumann á Sauðárkróki og
Stefán Þórarin, f. 18.4.1972, lífræði-
nema við HÍ; Siguijón Stefánsson,
f. 19.10.1938, b. að Steiná, kvæntur
Katrínu Grímsdóttur og eiga þau tvo
syni, Grím, f. 1.2.1965, nema við
Samvinnuháskólann á Bifröst, og
Jakob, búfræðing og b. að Hóli. Fóst-
urdóttir Stefáns og Ragnheiðar er
Helga A. Jónsdóttir, f. 2.10.1950,
húsmóðir í Reykjavík, og á hún þrjú
böm.
Systkini Stefáns em öll látin. Þau
vom Lilja Sigurðardóttir, f. 14.10.
1910, d. 1.12.1988, húsfreyja á Akur-
eyri, átti Hjört Gísla Gíslason,
starfsmann Flugmálastjómar á Ak-
ureyri og rithöfund, og em böm
þeirra fimm, þar á meðal Gísli
Bragi, bæjarfulltrúi á Akureyri, fað-
ir Alfreðs handknattleiksmanns og
Gunnars knattspymumanns; Pálmi
Sigurðsson, f. 22.2.1914, húsasmiður
og formaður Verkalýðsfélags Skaga-
strandar, átti Hólmfríði Hjartardótt-
ur og em böm þeirra fimm; Sigríður
Guðrún Sigurðardóttir, f. 22.5.1917,
d. 16.10.1987, húsfreyja að Hólabaki
og í Reykjavík, átti Baldur Magnús-
son og eru dætur þeirra þijár; Frið-
rik Guðmann Sigurðsson, f. 22.5.
1917, d. 5.9.1987, bifvélavirki hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðár-
króki, átti Brynhildi Jónasdóttur og
eignuðust þau tvö böm og fóstur-
dóttur en sonur þeirra dó í bam-
æsku.
Hálfsystkini Stefáns, samfeðra:
Anna Aldis Sigurðardóttir, f. 26.9.
1881, d. 19.2.1948, saumakona á
Blöndusósi; Jón Sigurðsson, f. 6.8.
1882, d. 7.9.1924, b. á Steiná, átti
Ingibjörgu Guðlaugu Bjamadóttur
en þau eignuðust eina dóttur; Rann-
veiglngibjörg, f. 4.10.1888, d. 1.3.
1985, búsett á Blöndusósi.
Hálfbróðir Stefáns, sammæðra,
var Pétur Pétursson, f. 30.11.1905,
d. 7.5.1977, b. á Höllustöðum, átti
Huldu Pálsdóttur og em böm þeirra
flögur, þar á meðal, Páls þingflokks-
formaður og Pétur Ingvi læknir.
Foreldrar Stefáns vom Sigurður
Jakobsson, f. 16.6.1859, d. 23.5.1945,
b. á Hóh og Steiná, og seinni kona
hans, Ingibjörg Hólmfríður Sigurð-
ardóttir, f. 4.1.1850, d. 28.5.1906,
húsfreyja.
Ætt
Sigurður var sonur Jakobs, b. að
Syðra-Tungukoti, Benjamínssonar,
b. að Hvammi og Skyttudal, Sveins-
sonar, b. í Tungu í Gönguskörðum,
Sveinssonar. Móðir Sigurðar var
Rannveig Magnúsdóttir, b. í Garði
og Ytra-Vallholti, Magnússonar og
Margrétar Sigurðardóttur.
Ingibjörg var dóttir Sigurðar, b. í
Hringveri, Hallssonar, hreppsflóra
á Reykjum, Jónssonar, bróður Jó-
hannesar, afa Vilhjálms Stefánsson-
ar landkönnuðar. Annar bróðir
Halls var Guðmundur, faðir Jó-
hannesar sýslumanns, föður Jó-
hannesar, bæjarfógeta í Reykjavík,
fóður Lámsar hæstaréttardómara
og alþingismanns, og Önnu, móður
Matthíasar Johannessen, skálds og
ritsflóra. Móðir Ingibjargar var
Guðrún Jónsdóttir, b. í Flugumýr-
arhvammi, Jónssonar.
Stefán verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Stefán Þórarinn Sigurðsson.
Sigurður Bjamason
Sigurður Bjamason, fyrrv. vömbíl-
sflóri, Hjállabrekku 21, Kópavogi,
eráttræðurídag.
Starfsferill
Sigurður fæddist að Görðum á
Hellissandi á Snæfellsnesi. Hann
var tæplega tveggja ára er hann
missti fóður sinn en ólst upp með
móður sinni á Hellissandi til fermn-
ingaraldurs er þau fluttu til Reykja-
víkur.
Móður sínar missti Sigurður
fimmtán ára og fór hann þá að vinna
fyrir sér. Hann stundaði fyrst sjó-
mennsku á litlum bátum og síðar á
ffaktskipum. Sigurður hófbúskap
að Leiðarhöfn í Vopnafirði 1937 og
stundaði þá jafnframt útgerð en
jafnan voru tveir bátar gerðir þar
útáhansvegum.
Sigurður flutti aftur til Reykjavík-
ur 1945 og hóf þá akstur hjá Vöm-
bfiastöðinni Þrótti sem hann stund-
aði næstu þijátíu árin.
Sigurður var varaformaður Þrótt-
ar um nokkurra ára skeið, var einn
af stofnendum Taflfélags Þróttar og
formaður þess, auk þess sem hann
er stofnandi Átthagafélags Sandara
og var formaður þess um margra
áraskeið.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 13.4.1941 Hall-
dóm Nönnu Guðjónsdóttur, f. 14.6.
1917, húsmóður. Foreldrar hennar
vom Guðjón Gíslason, b. að Við-
borði í Homafirði, og kona hans,
Pálína Jónsdóttir húsmóðir.
Synir Sigurðar og Halldóm em
Hörður, bifreiðasflóri í Kópavogi;
Gunndór, flugsflóri í Garðabæ; Val-
þór, húsasmiður í Hafnarfirði. Sig-
urður og Halldóra eiga átta bama-
böm og sex langafa- og langömmu-
böm.
Sigurður er yngstur tólf systkina
en hann er einn eftirlifandi af systk-
inahópnum.
Sigurður Bjarnason.
Foreldrar Sigurðar vora Bjami
Bjamason frá Glaumbæ í Staðar-
syeit og Valgerður Benónýsdóttir
frá Kirkjuhóli í sömu sveit.
Sigurður og Halldóra taka á móti
gestum laugardaginn 26.9. frá kl.
16.00 í Félagsheimili Kópavogs.
Soffia Gísladóttir,
Logafold 90, Reylflavík.
Eiginmaöur hennar var Auðunn
Pálsson bóndi setn iést 1966. Soffia
veröur ekki heíma á afraælisdag-
Jóbanna Jónsdóttir,
Sjúkradeild Dvalarheimilisins á
Sauðárkróki.
Birna Ðjörns,
Hamrahlíð 12, Vopnafirði.
Þórhildur Jónasdóttir,
Neshömram 10,Reykjavík.
Halldór Hartmannsson,
Eva Sæmundsdóttir,
Vallarbraut2, Njarðvík.
Sólveig Jónsdóttir,
Ásvegi 13, Akureyri.
70 ára
Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Sólvangi, Hafnarfirði.
60 ára
Hreinn Bjarnason,
Berserkseyri, Eyrarsveit.
Sigriður Valdimarsdóttir,
Fýlshólum 9, Reykjavlk.
Eiginmaður Sigríöar var Þórarínn
Á. Flygenring kennari sem lést
1985. Sigríður telyir á móti vinura
á heimili sínu laugardaginn 26.9.
milli kl. 17.00 og 21.00.
Þórólfur Jóhannsson,
Miðtúni 6, Höfn í Homafirði.
Hulda Aðalsteinsdóttir Sche ving,
Breiðvangi 2, Hafnarfirði.
40ára
Þorvaldur S.K. Norðdahl,
Hólmi viö Suðurlandsbraut,
Roykjavík.
Sigurbjörg K. Róbertsdóttir,
Borgarhrauni 18, Grindavík.
Ingunn G. Björnsdóttir,
Suðurvegi 4, Skagaströnd.
Borghildur Brynjarsdóttir,
Otrateigi 52, Reykjavík.
Kristín Gisladóttir,
HlíöartúnilS, HöfnlHomaftröi.
Gerður Eiín Hjálmarsdóttir,
Lönguhliö 17, Reykjavík.
Ingvar Árni Sverrisgon,
IxSnguraýri 16, Garðabæ.
Sigurjóna Sverrisdóttir,
Kirkjuvegi 29, Vestmannaeyjum.
Sandver Jónsson,
Garðsenda 7. Reykjavík,
Reynir Carl Þorieifsson,
Helgubraut 7, Kópavogi.
Gifting á næstunni
María Kristín Guðmundsdóttir
og Jón Helgi Eiðsson, til heimilis
að Kötlufelli 9, Reykjavík, verða
gefin saman af séra Pálma Matthí-
assyni í Bústaðakirkju laugardag-
inn 26.9. kl 14.00.