Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1992, Síða 9
.ssei gaaörxo ni huoAauTMmn
■ 'FIMMTUDAGUR' 15: OKTÓBER 1992.
Utlönd
Danskir nýnasistar hafa rekiö
leiðtoga sinn, Povl-Heinrich Riis-
Knudsen, úr flokknum fyrir höf-
uðsynd sem engin sannur nýnas-
isti má gerast sekur um. Povl-
Heinrich skildi við Ijóshærða og
faláeyga eigmkonu sína til að
ganga aö eiga Nidal Khazouf,
rúmlega tvítuga arabastúlku frá
Lábanon.
Povl-Heinrich var áður kunnur
fyrir að ganga um stræti með
arminn á lofti að síð nasista og
krefjast þess að aliir útlendingar
væru reknir úr landi. Hann hefur
nú uppskorið brottrekstur úr eig-
inílokki.
Rörðnbendaallt-
afáforsetann
í síöustu sex kosningum hafa
bandarískir kvikmyndahúsaeig-
endur í 29 ríkjum komið sér sam-
an um að bjóða gestuin sínuin að
veija milli mismunandi röra í
gosdiykki sína ■ eftir faví hvaða
forsetabrambjóðanda þeir hyggj-
ast kiósa. Til þessa hafa gestimir
alitaf spáð rétt með vali sínu á
rörum.
Könnun þessi hefur nú fariö
fram í 270 kvikmyndahúsum og
iók til 225 þúsund gesta. Af þeim
völdu 45% rör Bills CUnton, 39%
vildu fá rör merkt George Bush
og 16% Ross Perot-rör. Eftir þessu
verður Clinton næsti forseti
Bandaríkjanna.
Hollenskir Kund-
arásakaskrá
Hundar í Holiandi eiga á hættu
að vera settir á sakaskrá ef þeir
bíta fólk.
Þeír hundar sem láta ekki segj-
ast og halda áfram að bita geta
átt von á því að verða múlbundn-
ir eða stöðugt hafðir í beisli, sam-
kvæmt nýj um reglum ura himda-
bald sem kynntar voru i vikunni.
Liksjötugrar
konufannstí
ibúð hennar eftir
tíumánuði
Iúigreglan í Váxjö 1 Svíþjóö hef-
ur staðfest að lík sjötugrar konu
hafi á dögunum fUndist i íbúð
hennar. Að öilum iíkindum lést
konan um síðustu jól og hafði lík-
ið því verið í ibúöinni í tiu mán-
uði. Það var nágrannakona sem
opnaöi íbúðina af forvitni.
Clinton með ótviræða forystu fyrir aðrar sjónvarpskappræðumar í kvöld:
Bush langar að læra
ræðutækni Quayles
- Clinton sakaður um að ætla að flýja til Noregs til að losna við herskyldu
J/22 Oct. S '92
Forsetaframbjóðendurnir mætast öðru sinni i sjónvarpi i kvöld. Búist er við snarpri sennu enda er að duga eða
drepast fyrir George Bush ef hann á að sigra Bill Clinton þann 3. nóvember. Teikning Lurie
Mikiö uppistand varð í herbúðum
Bills Clintons í gær þegar upp komst
að George Bush forseti hefði látið
utanríkisþjónnustuna rannsaka feril
Clintons á árunum fyrir 1970. Meðal
annars hefur rannsóknin beinst að
því hvort Clinton hafi ætlað að ger-
ast norskur ríkisborgari árið 1969 til
að losna við herþjónustu í Víetnam.
Clinton var andstæðingur Víet-
namstríðsins og tók þátt í mótmæl-
um gegn því í Bretlandi. Hann fór til
Moskvu fyrmefnt ár. Leið hans lá
þá um Ósló og grunar stuðnings-
menn Bush að hann hafi leitað eftir
landvist þar og ríkisborgararétti.
Bandaríska sendiráðið í Ósló vill
ekki staðfesta að það hafi kannað
máhð.
Að mati fréttaskýrenda er þetta
seinasta von Bush um að koma höggi
á Clinton. Forsetinn verður að gera
sem mest úr meintri óþjóðhollustu
andstæðings síns. Mál þetta verður
örugglega í brennideph þegar for-
setaframbjóðendumir mætast í sjón-
varpskappræðum öðm sinni 1 kvöld.
Bush vill koma þeim skilaboðum til
þjóðarinnar að ekki sé hægt að hafa
forseta sem einu sinni reyndi að flýja
land fremur en að þjóna þjóð sinni.
Það þykir líka merkilegt að Bush
hefur farið fögmm orðum um
frammistöðu Dans Quayle gegn AI
Gore í fyrrakvöld. Er haft á orði að
forseti ætli að tileinka sér ræðutækni
Quayles í kvöld. Það verður þrauta-
lendingin ef Clinton snýr sig út úr
flóttamáiinu.
Skoðanakannanir sýna að Bush
hefur enn ekki náð að gera Clinton
ótrúverðugan. Ný könnun leiddi í
ljós að 79% aðspurðra töldu forset-
ann gera rangt í aö ráðast á Clinton
fyrir að hafa verið á móti Víetnam-
Uppreisnarmenn úr hópi aðskiln-
aðarsinnaðra tamíla myrtu að
minnsta kosti eitt hundrað og tvo í
árásum á fjögur þorp á norðurhluta
Sri Lanka fyrir dögun í morgun aö
því er talsmaður hersins sagði.
Margir hinna myrtu vora íslamstrú-
ar, þar á meðal konur og böm.
Talsmaðurinn sagði að 92 óbreyttir
borgarar, flmm hermenn og fimm
lögregluþjónar hefðu látið líflð 1 árás-
inni sem meira en 150 uppreisnar-
menn gerðu í Polonnaruwa-héraði.
stríðinu.
Clinton hefur 47% fylgi samkvæmt
nýjustu skoðanakönnunum. Bush
fær þar stuðning 34% aðspurðra og
Ross Perot er með um 10% fylgi. Þá
Herforingi í héraðinu sagði í sam-
tali við Reuters-fréttastofima að
fórnarlömbin hefðu verið skotin og
höggvin tfl bana.
Hann sagöi að fimmtíu særðir, þar
á meðal sex komabörn og átján kon-
ur, væm nú undir læknishendi á
sjúkrahúsinu í Polonnaruwa eftir
árásina á þorpin fjögur.
íslamstrúarmenn bjuggu í þremur
þorpanna en í hinu flórða vora einn-
ig íbúar af ættbálki shinhalísa.
Þetta var versta árás uppreisnar-
vekur athygli að fæstir treysta Bush
til að stjóma efnahagsmálunum. Þar
hefur Clinton afgerandi forystu og
Perot er talinn mun efnilegri hag-
stjómandienBush. Reuter
manna á þorp frá því að 140 óbreytt-
ir borgarar af íslamstrú voru myrtir
í austurhluta landsins í ágúst 1990.
Sarath Munasinghe ofursti, tals-
maður hersins, sagði fréttamönnum
að frelsisher tanúltígra sem berst
fyrir sjálfstjóm í norður- og austur-
hluta landsins bæri ábyrgð á morð-
unum.
„Það hefur alltaf verið stefna þeirra
að ráöast á saklausa borgara þegar
þeir geta ekki ráðist á herinn eða
lögregluna," sagði hann. Reuter
SriLanka:
Hundrað skotnir og höggnir