Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1992, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAjGUR p. OfCTÓBER 1992.
Fréttir
Dómur hæstaréttar vegna voðaatburðar í Vestmannaeyj um í janúar:
Sex ára f angelsi fyrir
að bana sambýlismanni
- dómurinn klofnaði en þyngdi refsiákvörðun héraðsdóms um 2 ár
Hæstiréttur hefur þyngt fangels-
isrefsingu Jónínu Sigríöar Guð-
mundsdóttur, sem banaði sambýlis-
manni sínum með flökunarhnífi í
íbúð í Vestmannaeyjum þann 11. jan-
úar í ár, úr 4 ára fangelsi í 6 ára fang-
elsisrefsingu. Til frádráttar refsing-
unni kemur varðahald sem konan
hefur sætt frá í janúar.
Þegar atburðurinn átti sér stað var
konan, sem er tvítug, að koma heim
snemma að morgni eftir skemmtanir
um nóttina og hitti þá fyrir sambýlis-
mann sinn sitja við drykkju ásamt
fjórum félögum sínum. Konan bað
mennina aö fara út en gestgjafinn
aftók það með öllu. Hringdi hún þá
á lögreglu sem ekki kom. Eftir mikið
þjark hótaði konan sambýlismanni
sínum lífláti en fékk ögrandi svör.
Konan sótti síðan hníf fram í eldhús,
kom framan að manninum og lagði
að honum þar sem hann sat með
fætur kreppta að líkamanum. Hnífs-
lagið kom í hjartastað á milli saman-
krepptra hjánna.
Héraðsdómur Vestmannaeyja sak-
felldi konuna í maí fyrir manndráp
með svokölluöum líkindaásetningi.
Héraðsdómur hafnaði þeirri skýr-
ingu að um óviljaverk hefði verið að
ræða en féllst á að konan hefði ekki
fyrirfram ætlað sér aö bana mannin-
um.
Samkvæmt almennum hegningar-
lögum skal refsing fyrir manndráp
ekki vera skemmri en 5 ára fangelsi.
Þó er heimilt að færa refsingu niður
ef brotið er framið í ákafri geðshrær-
ingu eins og héraðsdómur komst að
niðurstöðu um auk þess sem tillit var
tekið til fleiri mildandi atriöa.
Hæstiréttur taldi refsinguna hins
vegar hæfllega 6 ár. Fimm manna
dómur klofnaði þó í afstööu sinni.
Hjörtur Torfason hæstaréttardómari
skilaði sératkvæði. Hann taldi að
dæma ætti konuna í 4 ára fangelsi
fyrir stórfellda líkamsárás. Hjörtur
taldi ósannað aö konan „hafi hlotið
að sjá fyrir banvæni atlögu sinnar
með svo eindregnum hætti að“ refsi-
ákvæði um manndráp ætti við. Við
ákvörðun refsingar í því sambandi
taldi Hjörtur m.a. að líta bæri til
hættunnar sem stafaði af hnífnum.
Þeir sem tóku meirihlutaafstöðu í
dóminum voru hæstaréttardómar-
arnir Guðrún Erlendsdóttir, Garðar
Gíslason og Þór Vilhjálmsson og
Guðmundur Jónsson, fyrrverandi
hæstaréttardómari.
-ÓTT
/
Vegfarandinn sá reyk leggja frá þessum bíl á bilastæði stutt frá Þjóðleikhúsinu. Þegar hann aðgætti nánar sá
hann tvo útigangsmenn í fastasvefni í reyknum inni i bilnum. Á innfelldu myndinni sést hvernig aðstaðan var í
hinum yfirgefna númerslausa sendibil. DV-myndir Sveinn
Fulltrúar Kaiser Aluminium ánægöir meö Islandsheimsóknina:
ísland vantar ekki staði undir álver
- sagði John M. Seidl er hann gekk á fund iðnaðarráðherra 1 gær
„ísland vantar ekki heppilega staði
undir álver, svo mikið er víst. Á þess-
um stutta tíma, sem ég hef dvalið á
íslandi, hef ég aö minnsta kosti séð
eina 4 til 5 fyrir mér, þar á meðal í
Eyjafirði," sagði John M. Seidl,
stjómarformaður Kaiser Alumin-
ium, er hann gekk á fund Jóns Sig-
urðssonar iönaðarráðherra í gær.
íslandsheimsókn fulltrúa Kaiser
Aluminium lauk í gær en þeir hafa
dvalið hér á landi undanfama fjóra
d'aga til að kynna sér aöstæður til
álframleiðslu. Fyrirtækið er staðráð-
ið í að fara út í nýfjárfestingar á
næstu ámm og leitar nú aö heppileg-
ustu staðsetningunni. Auk Islands
hafa fulltrúar Kaiser kannað aðstæð-
ur í Suður-Ameríku, Afríku og Rúss-
landi. Ákvörðun um hvaða land
verður fyrir valinu verður tekin af
stjóm fyrirtækisins á fyrsta fjórð-
ungi næsta árs.
Undirbúningur að komu Kaiser-,
manna hingað til lands hefur aðal-
lega verið i höndum Charles Cobb,
fyrrum sendiherra Bandaríkjanna á
íslandi. Að sögn Charles er haxm
nyög ánægður með hvemig til hefur
tekist í könnunarviðræðum Kaiser-
Jón Sigurðsson iönaöarráðherra og
Charles Cobb, ráögjafi Kaiser Alum-
inium. DV-mynd Brynjar Gauti
manna við íslensk stjómvöld.
„Tíminn hefur veriö vel nýttur og
vinnan því verið árangursrík. Ég er
sannfærður um að Kaiser muni
byggja álver einhvers staðar í heim-
inum og ég er líka sannfærður um
að ísland sé góður valkostur. í þess-
um viðræðum voru engir samningar
gerðir heldur reyndum við að gera
okkur grein fyrir skilmálum hugsan-
legra samningaviðræðna."
Charles segir að verði ísland fyrir
valinu komi vel til álita aö Kaiser
leiti eftir samstarfi við Atlantsál-
hópinn um framkvæmdir. Á hinn
bóginn séu ýmsar aðstæður Kaiser
aðrar en þeirra fyrirtækja sem
mynda Atlantsál-hópinn og því yrðu
að koma til sérstakir samningar við
fyrirtækið.
Jon Sigurðsson iðnaöarráöherra
sagði eftir fundinn með Kaiser-
mönnum í gær að hann ætti von á
því að heyra frá þeim á næstunni.
Ljóst væri að af hálfu Kaiser ríkti
mikill áhugi á frekari upplýsingum
héðan. Enn sé þó ótímabært að tala
um árangur þessara viðræðna.
„Málið er enn á könnunarstigi. Það
er hins vegar hverjum manni ljóst
aö miðað við efnahagsskilyrðin í ál-
iðnaðinum og lágt álverð um þessar
mundir þá munu menn þurfa að
safna kjarki áður en þeir taka
ákvörðun um aö leggja í svona fram-
kvæmdir. Vonandi verður það Kjark-
söfnun sem í hönd fer.“ -kaa
Athugull íbúi 1 gamla miöbænum:
Bjargaði útigangsmönn-
um úr reykjarkófi í bíl
- annarreyndistverahinnbrenndiútigangsmaður
Komið hefur í ljós að útigangsmaö-
urinn sem sagði við lögreglu í síðustu
viku að tveir menn hefðu kveikt í sér
að saga hans á ekki beinlínis við rök
að styðjast. Maðurinn fannst eins og
fram kom í DV talsvert brenndur á
biðstöð við Lækjargötu á fimmtudag.
Málavextir eru þeir að maður
nokkur, sem býr í gamla miðbænum,
átti leið um gatnamót Smiðjustigs og
Hverfisgötu, stutt frá Þjóðleikhús-
inu, seint á fimmtudagskvöld. Sá
hann þá hvar reykur steig út úr
gömlum „yfirgefnum“ Chevrolet
sendiferðabíl er stóð númerslaus á
bílastæði. Maðurinn þekkir vel til í
hverfmu og vissi að útigangsmenn
hafa stundum hafst viö inni í bílnum,
jafnvel sofið þar. Honum datt því í
hug að líta inn í bílinn og athuga
hvort einhver væri þar.
Er hann leit inn sá hann hvar tveir
þekktir en ógæfulegir útigangsmenn
sváfu inni í reyknum. Brá hann
skjótt við og vakti annan mannanna,
þann sem „var við stýrið“. Sá vakn-
aði og aöstoðaði síöan aökomumann-
inn við að koma félaga sínum út sem
var aftur í. Þetta reyndist vera mað-
urinn sem brenndist. Þegar hann
vaknaði loksins sá hann hina tvo
vera að drösla sér út úr bílnum. Ljóst
þykir að kviknað hafði í út frá sígar-
ettuglóð eða því um líku.
Maðurinn sem bjargaði útigangs-
mönnunum út úr bílnum fór með þá
heim til sín, gaf þeim að borða og
reyndi að hlúa að þeim en við svo
búið kvöddu þeir.
Það var svo daginn eftir sem lög-
reglan fann hinn brennda mann
dauðadrukkinn í biöstöðinni við
Lækjargötu. Þegar lögreglan var að
koma honum í burtu stundi hann:
„Þeir kveiktu í mér“. Honum var síð-
an komið undir læknishendur.
Eftir að fréttir voru sagðar af úti-
gangsmanninum, og bjargvætturinn
gaf sig fram, kom hið rétta í ljós.
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
nú lokið rannsókn á þessu máli. Hún
telur vegfarandan í gamla miðbæn-
um tvímælalaust hafa bjargað úti-
gangsmönnunum frá köfnun í
reyknum inni í bílnum. Heilsa hins
brennda útigangsmanns er talin góð.
Maður frá ráðningarskrtfstofrinm kom með flugvél:
„i ixippocjauBcuuii uahueu ciui 1 Ud iVjtUL UUd gCl ct eiiLHvau ai S6r,
sérstökum fundi meö okkur í landi fær fjölskylda þeirra ekkert að
en þeir þora ekki að tala þegar skip- borða,“ segir Jónas.
stjórinn sér til, Þetta mál er ekki Að sögn Jónasar sendi ráöning-
búið. Það gæti farið svo að Bakka- arskrifstofan sérstakan mann frá
foss yröi kyrrsettur úti eða þegar Filippseyjum með einkaflugvél til
hann kemur aftur hingað eftir hálf- landsins þegar fréttist af kvörtun-
an mánuð. Ég hugsa þó að skip- um mannanna. Þessi maður kom
stjórinn muni á endanum beygja fram í ijölmiðlum undir fólsku
sig undir að þurfa að borga þeim nafni, sagðist vera óbreyttur háseti
rétt laun,“ segir Jónas Garðarsson, á Bakkafossi og hélt þvi fram að
framkvæmdastjóri Sjómannafé- allt væri í himnalagi með laun og
lags Reykiavíkur. aðbúnaö filippseysku sjóraann-
Á fundinum með fulltrúum Sjó- anna. „Við erum búnir að tala við
mannafélagsins staöfestu Filipps- þennan mann og hann heitir allt
éyingamir hin lágu laun sín. Þeir annað í dag en í gær. Það er ekkert
fá einungis þriöjung launanna að marka það sem hann og skip-
sinna útborgaðan mánaðarlega en stjórinn segja,“ segir Birgir Björg-
; afgangurinn er sendur heim til vinsson hjá Sjómannafélaginu.
ráðningarskrifstofunnar á Filipps- Filippseysku sjómennirnir eru
eyjum. ráðnir á Bakkafoss fram yör ára-
„Fjölskyldur mannanna fá mat- mót og ætlar Sjómannafélagiö aö
vöru upp í launin hjá fyrirtæki sem fylgjast með því að sá samningur
ráðningarskrifstofan á. Ef menn- veröi haldinn.
imir haga sér ekki vel um borö, -ból