Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1992, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1992.
Utlönd
Hörmungar stríðsins daglegt brauð á götum Sarajevo:
Unglingur særður í
örmum foreldranna
Sprengjubrot hæfir Edin Hadzic, þrettán ára, þar sem
hann stendur við hliðina á Kurt Schork, fréttaritara Reut-
ers. Edin reynir að flýja til móður sinnar en fellur áður.
Edin liggur eftir á götunni,
helsærður, en vegfarendur
stumra yfir honum. Maður
með bíl er kominn til hjálpar.
Simamyndir Reuter
Sprengjudrunur bergmála í
Sarajevo, haustlaufin þyrlast upp og
vegfarendur hljóða af skelfingu. Edin
Hadzic, þrettán ára unglingur, riðar
við og reynir að neyta síðustu kraft-
anna til að komast til móður sinnar.
Hann fellur á götuna og blóðið tekur
að seytla í gegnum fotin. Hann hefur
orðið fyrir sprengjubroti og er lífs-
hættulega sár.
Þetta er nánast daglegur viöburður
í Sarajevo, höfuðborg Bosníu. í gær
urðu fréttamaður og ljósmyndari
Reuters vitni að ofangreindri árás
og festu hana á filmu. Edin lifði árás-
ina af en naumlega þó. Fólk þusti að
og vegfarandi á bíl stöðvaði til að
flytja hinn særða á sjúkrahús.
íbúar Sarajevo eru vanir að bregð-
ast skjótt við á örlagastundu. Flestir
þekkja fórnarlömb stríðsins í eigin
fjölskyldum og hver maður þekkir
angistina sem grípur foreldrana þeg-
ar bömin faila í valinn.
Læknamir eru líka vanir því að fá
fólk hljóðandi af kvölum inn á borð
til sín. Það þarf að rífa sprengjubrot
úr úthmum án deyfingar og kanna
holsár með frumstæðum taekjum.
Hjúkrunarliðið er þaulæft eftir að
hafa sinnt þúsundum særðra manna
á síðustu mánuðum. Og á meðan
gert er að sámm unglingsins halda
sprengjudrunurnar áfram að kveða
við og beðið er eftir næsta fórnar-
lambi.
Þaðkemurörugglega. Reuter
Hjúkrunarfólkið kannar sárin. Þetta er verk sem það verður að vinna oft á dag
alla daga vikunnar. Sár eru um allan líkama Edins en hann heldur þó lífi.
U.
Vertu með
draumurinn gæti orðið að veruleika
!
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
MERKISMENNHF