Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1992, Side 26
34
FÖSTUDAGUR 23:' OKTÓBER' 19'9'2.
Afmæli
Sigurbjörg Ögmundsdóttir
Sigurbjörg Ögmundsdóttir húsmóö-
ir, Víðigrund 22, Sauðárkróki, er 85
ára í dag.
Starfsferill
Sigurbjörg fæddist á Sauðárkróki
og ólst þar upp. Hún hefur búið þar
alla sína ævi fyrir utan árin 1974-83
er hún var búsett í Reykjavík.
Sigurbjörg fór ung að vinna fyrir
sér og vann þá hin margvíslegustu
störf. Hún hefur starfað með Hvíta-
sunnusöfnuðinum frá 1938.
Fjölskylda
Sigurbjörg giftist 23.1.1927 Svav-
ari Guðmundssyni, f. 5.12.1905, d.
6.6.1980, fyrrum bæjargjaldkera
Sauðárkróksbæjár. Hann var sonur
Guðmundar Guðmundssonar og
Önnu Maríu Stefánsdóttur, systur
Eyþórs Stefánssonar, tónskáíds á
Sauðárkróki.
Börn Sigurbjargar og Svavars eru:
Eymundur Stefán, f. 23.2.1927, d.
3.6.1927; Ögmundur Eyþór, f. 30.3.
1928, mjólkurfræðingur, kvæntur
Maríu Pétursdóttur og eiga þau
þrjár dætur. Þær eru: Ásdís, f. 24.2.
1931, d. 29.9.1988, fyrri maður Egill
Halldórsson og eignuðust þau fimm
börn, seinni maður Gunnlaugur
Sigurgeirsson; Guðrún Ólöf, f. 14.6.
1932, gift Þorsteini Vigfússyni og
eiga þau fimm börn; Kristín Björg,
f. 1.7.1933, gift Hjalta Guðmunds-
syni og eiga þau fimm börn; Sverr-
ir, f. 24.11.1934, kirkjuvörður, fyrri
kona Ester Magnúsdóttir og eignuð-
ust þau þrjú börn, seinni kona Sig-
rún Halldórsdóttir og eignuðust þau
tvö börn; og Sigríður, f. 25.12.1937,
gift Birgi Þórðarsyni og eiga þau
eina dóttur en auk þess ólu þau upp
tvö barnabörn sín. Afkomendur Sig-
urbjargar urðu 100 á síðasta ári.
Systkini Sigurbjargar eru: Magn-
ÚS, f. 17.10.1904, d. 9.3.1964, skósmið-
ur; Ingibjörg Jakobína, f. 12.1.1906,
húsmóðir, var gift Pétri Laxdal Guð-
varössyni sem lést 1971, eignuðust
þau fjögur börn; Jóhanna, f. 6.6.
1917, húsmóðir, gift Kristjáni
Reykdal Kristjánssyni og eiga þau
fjögur börn; Páll, f. 29.7.1914, bif-
reiðastjóri, fyrri kona Sigurbjörg
Sveinsdóttir og eignuðust þau fjögur
börn, seinni kona Halla Sigurðar-
dóttir og eignuðust þau tvær dætur;
Sigríður Björg, f. 2.5.1921, húsmóð-
ir, fyrri maður Helgi Einarsson sem
lést 1964 og áttu þau fimm börn,
seinni maður er Árni M. Jónsson.
Foreldrar Sigurbjargar voru Ög-
mundur Magnússon, f. 31.3.1879, d.
9.8.1968, söðlasmiður, ogKristín
Björg Pálsdóttir, f. 15.4.1884, d. 17.8.
1942, húsmóðir. Þau bjuggu lengst
af á Sauðárkróki.
Ögmundur var sonur Magnúsar,
b. Brandaskarði, Ögmundssonar.
Móðir Magnúsar var Jóhanna ljós-
móðir Magnúsdóttir, b. á Fjalh á
Skaga, Jónssonar. Móðir Ögmundar
var Sigurbjörg Andrésdóttir, b. á
Syðri-Bægisá, Tómassonar og Helgu
Daníelsdóttur frá Skipalóni við Ak-
ureyri. Móðir Sigurbjargar var Ingi-
björg Þórðardóttir, b. á Kjarna, ætt-
fóður Kjarnaættarinnar, Pálssonar.
Kristín Björg var dóttir Páls, b. á
Gröf í Víðidal, Steinssonar. Móðir
Páls var Þorbjörg Árnadóttir, b. á
Hörgshóli, Björnssonar. Móðir Þor-
bjargar var Sigríður systir Ragn-
heiðar, langömmu Lúðvíks Nordal
læknis, afa Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra. Sigríður var dóttir
Friðriks, prests á Breiðabólstað í
Vesturhópi, Þórarinssonar, sýslu-
manns á Grund, Jónssonar, ættfoð-
ur Thorarensensættarinnar. Móðir
Sigríðar var Hólmfríður Jónsdóttir,
varalögmanns í Víðidalstungu,
bróður Ingibjargar, ömmu Jóns for-
seta og bróður Þórðar, stúdents í
Vigur, ættfoður Vigurættarinnar,
Ólafssonar, lögsagnara á Eyri og
ættföður Eyrarættarinnar, Jóns-
sonar.
Sigurbjörg Ögmundsdóttir.
Móðir Kristínar Bjargar var Ingi-
björg Jakobína Jósepsdóttir, b. í
Enniskoti, og Signýjar, dóttur Jóns,
b. á Sæunnarstöðum, og Signýjar
Sveinsdóttur frá Fremri-Fitjum.
Sigurbjörg tekur á móti gestum í
félagsheimili Léttfeta í Tjamarbæ á
milli kl. 20 og 23 á afmælisdaginn.
Þröstur Guðbjartsson
Þröstur Guðbjartsson leikari og
leikstjóri, Tryggvagötu 18, Reykja-
vík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Þröstur fæddist í Bolungarvík og
ólst þar upp til níu ára aldurs en
fluttist þá til höfuðborgarinnar.
Fimm næstu sumur var hann í sveit
að Móskeldu í Saurbæjarhreppi í
Dalasýslu og hefur litið á það sem
sitt annað heimili síðan.
Sextán ára gamall hóf Þröstur
nám hjá Angantý Vilhjálmssyni,
bakarameistara í Njarðarbakaríi, og
lauk síðar sveinsprófi frá Iðnskól-
anum í Reykjavík 1973.
Ári síðar hóf hann nám í Leiklist-
arskóla SÁL og útskrifaðist sem
leikari frá Leiklistarskóla íslands
1978. Alla tíð síðan hefur hann verið
lausráðinn leikari og leikstjóri hjá
hinum ýmsu stofnunum og leikfé-
lögum víðs vegar um landið eins og
t.d. hjá Þjóðleikhúsinu, Alþýðuleik-
húsinu og Leikfélagi Akureyrar.
Hann er nú lausráðinn leikari hjá
Leikfélagi Reykjavíkur í Borgar-
leikhúsinu þar sem hann fer þessa
dagana með hlutverk í leikriti
Björns Th. Bjömssonar „Dungan-
on.“ Jafnframt því er hann að leik-
stýra leikriti Unnar Guttormsdóttur
og Önnu Kristínar Kristjánsdóttur,
Sögunni um Svein sáluga Sveinsson
í Spjör og samsveitunga hans, hjá
leikdeild UMF íslendings í Borgar-
firði.
Þröstur hefur einnig leikið í
tveimur kvikmyndum. Önnur er
Svart og sykurlaust, sem tekin var
að mestu leyti á Ítalíu sumarið 1985,
en hin er mynd Óskars Jónassonar,
Sódóma Reykjavík, sem verið er að
sýna um þessar mundir.
Hann hefur ennfremur fengist lít-
ils háttar við ritstörf, skrifað nokkra
„sketsa“ og leikgert nokkrar sögur
fyrir árshátíðir og skólaskemmtan-
ir, ásamt því að skrifa barnaleikritið
AÍIt í plati sem sýnt hefur verið hjá
nokkrum áhugaleikfélögum.
Fjölskylda
Alsystkini Þrastar ecu: Vilhelm
Valgeir, f. 1948, kvæntur Guðrúnu
Ragnarsdóttur og eiga þau þrjá syni;
Ólöf María, f. 1950, gift Jónasi Pétri
Sigurðssyni og eiga þau tvær dætur;
Svanur, f. 1951, kvæntur Ólöfu
Magnúsdóttur og eiga þau þrjár
dætur en Svanur átti dóttur fyrir;
Guðrún, f. 1955, gift Bjarna Alberts-
syni og eiga þau þrjú börn; Unnur,
f. 1956, gift Garðari Benediktssyni
og eiga þau fjögur börn; Kristín
Þóra, f. 1960, gift Davíð Ólafssyni;
og Birna, f. 1962, gift Sölva Sólbergs-
syni og eiga þau tvo syni.
Hálíbróðir Þrastar, sammæðra, er
Öm Guðjónsson, f. 1945, kvæntur
Sigurósk Garðarsdóttur og eignuð-
ust þau þijá syni en misstu þann
elsta á 14. ári. Hálfsystur Þrastar,
samfeðra, eru: Bára, f. 1962, gift Jóni
Haukdal og eiga þau tvo syni; og Sif
Ásthildur, f. 1973.
Auk þess eignuðust foreldrar
Þröstur Guðbjartsson.
Þrastar þríbura 1953 en þeir létust
allir á fyrsta sólarhringnum.
Foreldrar Þrastar eru Guðbjartur
Þórir Oddsson, f. 20.3.1925, húsa-
málari, og Kristín Ólafsdóttir, f.
17.10.1920, húsmóðir. Þau eru skilin
og er Guðbjartyur nú búsettur í
Húnavatnssýslu en Kristín í
Reykjavík.
Foreldrar Guðbjarts vom Oddur
Valgeir Gísli Guðmundsson og Vil-
helmína Jónsdóttir sem nú eru bæði
látin. Foreldrar Kristínar vom Hálf-
dán Ólafur Hálfdánarson og María
Rögnvaldsdóttir sem einnig eru lát-
in.
Andlát DV
Haukur Morthens
Haukur Morthens söngvari, Garð-
húsum 51, Reykjavík, lést 13.10. sl.
Hann verður jarðsunginn frá Bú-
staðakirkju í dag, íöstudaginn 23.10.
kl. 15.
Starfsferill
Haukur fæddist í Reykjavík 17.5.
1924. Hann hóf prentnám í Alþýðu-
prentsmiðjunni 1943, lauk sveins-
prófi 1948 og starfaði um skeið í ísa-
foldarprentsmiðju.
Haukur var án efa einhver vinsæl-
asti dægurlagasöngvari sem um get-
ur hér á landi. Hann hélt vinsældum
sínum sem dægurlagasöngvari til
hinstu stundar eða lengur en nokk-
ur annar, söng fleiri lög inn á hljóm-
plötur en nokkur annar íslending-
ur, söng með miklum fjölda ólíkra
hljómsveita og var aUan sinn tón-
listarferil óvenju víðfömll.
Haukur hóf söngferil sinn á stúku-
skemmtunum í Góðtemlparahúsinu
1944, söng síðan með Alfreð Clausen
um skeið; Crasy Rhythim-kvartett;
Hljómsveit Bjama Böðvarssonar
(og fór með henni um landið 1946);
KK-sextett; G.O.-kvintettinum; Ori-
on-kvintettinum; Hljómsveit Gunn-
ars Sveinssonar; Tríói Eyþórs Þor-
lákssonar; Hljómsveit Jöm Grau-
engárd og fjölda annarra.
Haukur stofnaði eigin hljómsveit
1958 og söng síðan lengst af með
henni. Hann fór í söngferðir til m.a.
Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar,
Finnlands, Englands, Sovétríkj-
anna, Kanada, Bandaríkjanna og
Austurríkis og hlaut verðlaun og
viðurkenningar í dægurlagakeppn-
umerlendis.
Fyrsta tveggja laga plata Hauks
kom út 1954 en það ár komu út níu
tveggja laga plötur með honum þar
sem m.a. er að finna lögin Ó borg
mín borg, Bjössi kvennagull og Eg
er kominn heim. Fyrsta breiðskífa
Hauks kom hins vegar út hjá Fálk-
anum 1962 en alls mun hann hafa
sungið um þrjú hundmð lög inn á
hljómplötur.
Haukur hóf störf sem stefnuvottur
um 1963 og dró þá nokkuð úr söngn-
um en starfrækti þó eigin hljóm-
sveit fram á miðjan áttunda áratug-
inn. Hann hóf síðan að syngja aftur
af fullum krafti um 1980 en síðast
kom hann fram opinberlega sl. ný-
ársdag.
Haukur þáði viðurkenningu DB
fyrir störf að dægurlagatónlist 1979,
var heiðursborgari Winnipegborgar
1982, var heiöraður af STEF fyrir
útbreiðslu íslenskrar tónhstar 1992
og var sæmdur fálkaorðunni 1992.
Fjölskylda
Haúkur kvæntist 24.12.1952 eftir-
lifandi eiginkonu sinni, Ragnheiði
Magnúsdóttur, f. 1.9.1932, sjúkra-
liða. Hún er dóttir Magnúsar Þor-
varðarsonar sjómanns, og Jóhönnu
Vilmundardóttur húsmóður.
Synir Hauks og Ragnheiðar eru
Ómar Morthens, f. 4.12.1953, fram-
reiðslumaður í Reykjavík, í sambúð
með Kolbrúnu Björnsdóttur, starfs-
manni við Leikfélag Reykjavíkur og
á hann þijár dætur; Heimir, f. 23.3.
1956, pípulagningarmeistari í
Reykjavík, kvæntur Þóm Kristínu
Sigursveinsdóttur skrifstofumanni
og eiga þau þrjá syni; Haukur, f.
23.7.1962, nemi í byggingarlist í Sví-
þjóð, í sambýh með Sigríöi Garðars-
dóttur garðyrkjufræðingi.
Systkini Hauks urðu átta talsins
en tvær systur hans dóu í bemsku.
Systkini hans sem upp komust:
Haukur Morthens.
Karla Cohing, verslunarmaður í
Noregi, nú látin; Rut Mason, hús-
móðir í Englandi, lést sl. sumar;
Ester Eliott, húsmóðir í Oxford í
Englandi; Kristinn Morthens, list-
málari í Reykjavík (faðir Tolla hst-
málara og Bubba söngvara); Emm-
anúel Morthens, forstjóri í Reykja-
vík; Hubert Morthens, vélstjóri í
Reykjavík.
Foreldrar Hauks voru Edvard
Morthens, f. í Nærö í Noregi 15.5.
1882, d. 12.5.1963, og Rósa Guö-
brandsdóttir, f. 28.10.1892, látin,
húsmóðir.
Til hamingju með
afmælið 23. október
95 ára
Stefanía Einarsdóttir,
Barmahlíö 19, Reykjavík.
Jón Sigvaldi Steinsson,
Hólavegi 8, Sauðárkróki.
Valný Bárðardóttir,
Miklubraut 60, Reykjavík.
Valný verður 75 ára á morgun,
iaugardag. Eiginmaðm- hennar er
Helgi Sæmundsson ritstjóri. Hún
tekur á móti gestum í Saínaðar-
heimili Fella- og Hólasóknar á milli
kl. 15 og 18 á afmælisdaginn.
70 ára
Jafet Vigfússon,
Skálmarbæ, Skaftárhreppi.
Fjóla Unnur Halldórsdóttir,
Bergþórugötu51, Reykjavík.
sjötugámorg- un, laugardag. Húntekurá vH
mótigestumí
Átthagasal Hót- ei Söguámihi
kl. 16ogl9á afmælisdaginn.
60 ára
Guðrún Ingólfsdóttir,
Hásteinsvegi 56, Vestmannaeyjum.
Björgvin Jakobsson,
Hátúni 4, Reykjavík.
Páll Finnbogi Jónsson,
Reykjabraut 11, Reykhólahreppi.
Bryndís Jónsdóttir,
Mýrarhoiti 1, Ólafsvik.
llildur R. Guðmundsdóttir,
Heiðarbrún 19, Hverageröi.
BjörnBjörnsson,
Kolbeisgötu 16 B, Vopnaflrði.
Haukur Georgsson,
Sunnuhlíð, Vopnafirði.
Þorvaldur Sigurbjörnsson,
Víöihhð 38, Reykjavík.
Sœvar Reynisson,
Heiðarbóli 55, Keflavík.
Axel Erlendur Sigurðsson,
Nýjabæjarhrauni 3, Vestmanna-
eyjum.
Júlíanna HelgaFriðjónsdóttir,
Breiövangi 2, Hafnarfirði,
Hjörtur Þór Guðbj artsson,
Bogabraut 11, Skagaströnd.
Guðríður Ósk Axelsdóttir,
Hringbraut 13, Hafnarfirði.
Oddgeir B. Guðfinnsson,
Suöurhólum 30, Reykjavík.