Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1992, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1992, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1992. Orgeltónleikar í Lágafellskirkju miðvikudaginn 16. desember kl. 20.30 mun Martin Hunger Friðriksson, dómorganisti leika á hið nýja pípuorgel Lágafellskirkju. Á efnisskránni er jólatónlist. Aðgangur að sjálfsögðu ókeypis Sóknamefnd Lágafellskirkju Nýja orgelið vígt Hátíðarmessa 13. desember kl. 14.00 Séra Bragi Friðriksson prófastur prédikar • ■ Séra Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti séra Jóni Þorsteinssyni • Organisti kirkjunnar Guðmundur Ómar Óskarsson leikur á orgelið Kirkjukór Lágafellssóknar syngur Blásarar úr Skólahljómsveit Mosfellsbœjar leika við kirkjudyr fyrir athöfn • Kirkjukaffi í Safnaðarheimilinu við Þverholt að lokinni messu LÁGAFELLSKIRKJA Björgvin Tómasson orgelsmiður er einmitt að leggja siðustu hönd á orgelið núna - islenska völundarsmíð. Utlönd Þessi sveltandi kona i Baidoa bíður eftir því að bandarískar hersveitir tryggi matvælaflutninga til hungursvæðanna í Sómalíu. Simamynd Reuter Hjálparstarfsmenn gagnrýna Hollywood-sýningu í Mogadishu: Tilbúnir með vél- byssu á þakinu Starfsmenn hjálparstofnana víg- bjuggust í húsakynnum sínum í hungurbænum Baidoa þegar kvölda tók í gær af ótta viö aö byssumenn færu rænandi og ruplandi í síðasta sinn áður en hersveitir undir forustu Bandaríkjamanna koma til bæjarins. „Við erum með vélbyssuhreiður uppi á þaki, sandpokabyrgi við úti- dymar og fullt af bjór í ísskápnum,“ sagði Merv Zigenbine, starfsmaður alþjóðastofnunarinnar CARE. „Við erum tilbúnir." Fyrstu bandarísku hermennimir úr 35 þúsund manna hði komu til Sómahu á miðvikudag og náðu höf- uðborginni á sitt vald. En starfsmenn hjálparstofnananna gagnrýndu bandaríska herinn fyrir aö fara ekki nógu fljótt til bæja inni í landi þar sem öryggisleysið er mik- ið og vopnaöar sveitir unghnga fara um götumar. Hungursneyðin í land- inu er einnig verst á þessum stöðum. „Við erum á vígvellinum. Þær (bandarísku hersveitimar) hefðu átt að taka landiö í einu áhiaupi í stað þess að setja upp Hohywood-sýningu í Mogadishu og gefa vopnuðum sveit- um heimamanna færi á að fylkja hði á ný,“ sagði einn starfsmaðurinn í Baidoa í gær. Fyrstu fómarlömb aðgerða Banda- ríkjamanna og bandamanna þeirra féhu í gær þegar menn úr frönsku útlendingaherdeildinni skutu tvo Sómah til bana og særðu sex í höfuð- borginni Mogadishu. Að sögn yfirmanns frönsku sveit- anna var skotið á þær úr bíl hlöönum húsgögnum og svömðu þær í sömu mynt. Ekki er ljóst hvort vopn fund- ust í bílnum. Helstu stríðsherrar Sómalíu, Mo- hamed Farah Aideed og Ah Mahdi Mohamed, sem er sjálfskipaður for- seti Sómalíu, munu hittast í dag til að reyna að binda enda á flokka- drætti í Mogadishu sem hafa skipt borginni í tvennt, kostað 30 þúsund mannshf og eyðilagt efnahag lands- ins. Reuter Leiðtogafundur Evrópubandalagsins: Gjaldeyrisórói vekur ótta Óróinn á gjaldeyrismörkuðum Evrópu setti svip sinn á leiðtogafund Evrópubandalagsins sem hófst í Ed- inborg í morgun. Sá ótti er útbreidd- ur að danska krónan verði fyrir sama þrýstingi og fjöldi annarra evrópskra mynta að undanfómu. A sama tíma kynni þrýstingurinn á norsku krónuna þýða að Evrópu- bandalagslöndin tólf yrðu neydd th að finna hið fyrsta lausn á vanda Dana með Maastricht-samninginn sem þeir fehdu í þjóðaratkvæða- greiðslu í sumar. Hvorki Poul Schluter, forsætisráð- herra Danmerkur, né Uffe Ehe- mann-Jensen utanríkisráðherra vhdu við komuna th Edinborgar segja nokkuð um möguleikana á að gengið yrði að sérkröfum Dana. Heimhdarmenn segja að ef danski vandinn verði ekki leystur muni óró- inn á gjaldeyrismörkuðum EB verða ennmeirienthþessa. Ritzau Lloyd Bentsen flarmálaraöherra í stjóm Clintons: Nýtur virðingar á Wall Street Bhl Chnton, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur skipað í lykh- stöður efnahagsmála í væntanlegri ríkisstjóm sinni og hann mun skýra frá fleiri ráðherraefnum á frétta- mannafimdi síðar í dag. í þeim hópi verða fleiri konur og fuhtrúar minni- hlutahópa th aö endurspegla banda- rískt samfélag. Eins og búist var við skipaði Clin- ton Lloyd Bentsen, öldungadehdar- þingmann frá Texas, sem fjármála- ráðherra sinn og fjárlagastjóri verð- ur Leon Panetta, þingmaður frá Kah- fomíu. Clinton sagði að hann hefði lengi haft Bentsen í huga sem fjármálaráð- herra. Hann sagðist hafa vahð Bents- en af því að hann nyti í senn virðing- ar fjármálamanna á Wah Street og hefði skhning á kjörum hins al- menna launamanns. Bentsen er 71 árs formaður fjár- hagsnefndar öldungadehdarinnar. Reynsla hans í löggjafarsamkom- unni er talin skipta sköpum við að koma efnahagstillögum forsetans í gegnum þingið. Fjármálamenn á Wah Street lýstu yfir ánægju sinni með ráðherraefni Clintons og sögðu að þar væru á ferð- inni menn sem gætu gert það sem þeir ætluðu sér. Reuter Lloyd Bentsen, öldungadeildarþing- maður frá Texas, verður næsti fjár- málaráðherra Bandaríkjanna. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.