Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Síða 8
8 LAUGARDAGUK 6. FEBRÚAR1993 Svipmyndin Af hverri er syipmyndin? Það er ekki auðvelt að vera rík og flnna rétta mannsefnið. Jafnvel ekki þótt stúlkan hafi útlitið með sér og sé mjög rík. Hann var kaflaður Jack. En það var þó ekki nafn hans. Vinum hans fannst kominn tími til að hann festi ráð sitt. Hann var orðinn þrjátíu og fimm ára. Þeir geröu sitt besta til að kynna hann fyrir réttri stúlku. Loks hitti hann þá sem hann haíði hug á að kvænast. Þau kynnt- ust í kvöldverðarboði. Þar voru aöeins átta manns. Sú sem hér er lýst var að sjálfsögðu einn gest- anna. Hún var mjög lagleg og að- eins tuttugu og tveggja ára. Jack gleymdi næstum að borða. Hann hafði séð hana áður en aldrei talað við hana. Nú fékk hann gott tækifæri til þess. Gestgjafamir og hinir gestimir geröu líka sitt til að þau fengju næði til að ræða sam- an. Er leið á kvöldið lagði hann til að þau færa úr boðinu og á ein- hvem skemmtistað. Sú sem hér er lýst féllst á það. Gestgjafamir nera saman höndunum. Ef til vill yrði þeim að ósk sinni. Þau ætiuðu að fara í bílnum hennar. En skyndilega fór varð- hundur gestgjafanna að gelta. Það sat einhver í bílnum. í ljós kom að það var afbrýðisam- ur vinur þeirrar sem svipmyndin er af. Hann hafði sest inn í bílinn án leyfis. Framferöi hans olli að sjálfsögðu nokkrum erfiðleikum. Hið rómantíska andrúmsloft hvarf. Og Jack fór þegjandi sína leið. Símskeyti En hann gat ekki gleymt stúik- unni í kvöldverðarboðinu. Hálfu ári síðar hittust þau aftur. Og nú fengu þau að vera í friði. Jack var ákveðinn. Hann var ást- fanginn. En hann var orðinn því vanur að vera ókvæntur. Slikir menn eiga oft erfitt með að biðja sér konu. Honum var því ljóst að eitthvað yrði að gerast. En áður en af því yrði fór hún til Englands tii aö skrifa fyrir blaðið sem hún skrif- aöi í. Þar sat hún góðar veislur. Hún skemmti sér konunglega. En heima í Bandaríkjunum gekk Jack títt um gólf og leið illa. Loks sendi hann henni símskeyti: Góðar greinar. Ég sakna þín. Þetta var ekki bara ástarjátning. Slík yfirlýsing af hálfu Jacks jafn- gilti bónorði. Sú sem svipmyndin er af varð glöð. Þegar hún kom heim beið Jack á flugvellinum. Þar bað hann hennar. Trúlofunin þótti stórfrétt. Ættingjar þeirra fóra að undirbúa brúðkaupið. Sú sem svipmyndin er af átti fóð- ur sem henni þótti mjög vænt um. Hann hét Jack. En þar eð hann var dökkur á brún og brá var hann kallaður Black Jack. Þegar brúðkaupsdagimnn rann upp vora taugar Jacks þandar til hins ýtrasta. Auðvitað átti hann að leiða dóttur sína að altarinu. En fyrst varð hann að róa taugamar með þvi að fá sér í glas. Óvæntur dauðdagi Erkibiskup hafði verið fenginn til að gefa þau saman. Gestimir, um 1.200, fóra að streyma aö. Black Jack fékk sér enn einn drykk. Efitir tvo tíma var ljóst aö mn hneyksli var að ræða. Black Jack var orðinn of drukkinn til að geta gert það sem til var ætlast af hon- um. Þaö kom í hlut stjúpfóður þeirrar sem svipmyndin er af að ganga með henni inn kirkjugólfíð. Hjónabandið varð ekki neinn dans á rósum. Jack varð mjög veik- ur. Hann var fluttur á sjúkrahús og skorinn upp. Og heilsu hans hrakaði svo mikiö aö kallaður var til prestur til að veita honum síð- asta sakramentið. En hann komst yfir veikindin. Þeirri sem hér er lýst fannst að hann ætti að nota endurhæfingar- tímann til einhvers nytsamlegs. Hún fékk hann til að skrifa bók. Þar eð hún var blaðakona gat hún aðstoðað hann við ritstörfin. Hún hjálpaði til við að afia gagna og skrifaði stóran hluta bókarinnar. Hún hlaut afar góðar viötökur og fékk Puhtzer-verðlaunin frægu. Þau hjón eignuðust tvö böm. Hjónaband þeirra stóð í tíu ár. Þá var endi á það bundinn á sorglegan hátt. Blöðin fjölluðu mikiö imi ekkjuna laglegu. Og er frá leið sögðu þau frá kynnum hennar við aðra menn. Það var fullorðinn kaupsýslu- maður sem vann ástir hennar. Hann var mjög ríkur. En það fór ekki sem best orð af honum. Þess vegna hafði hann oft orðið umfjöll- unarefni sorpblaöa. Nú fékk hann áhyggjur. Honum fannst ekki blöðin hafa gefið rétta mynd af sér. Þess vegna réð hann rithöfund í þjónustu sína og fékk sá það verkefni að skrifa um hann bók sem lýsti honum á jákvæðan hátt. Þegar bókin var fullgerð lét hann færa hana þeirri sem svipmyndin er af. Og honum tókst það,sem hann hafði stefnt að. En þegar hún tók bónorði hans vakti það nei- kvæð ummæli hjá ýmsum. Kaupsýslumaðurinn ríki lést 15. mars 1975. Sú sem svipmyndin er af er enn á lífi og oft er um hana fjallað í heimsblöðunum. Hver er hún? Svar á bls. 56 Matgæðingiir vikurmar Luxus fiskréttur - frá eyju miðnætursólarinnar „Ég ætla að gefa lesendum DV uppskrift að fiskrétti sem er mikið notaður hér, t.d. alltaf á sjávarrét- takvöldi sem við höldum hér í eyj- unni,“ segir Sigrún Þorláksdóttir sem er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. Sigrún lætur einnig fljóta með melónuforrétt þar sem sjávarafurðir koma reyndar einnig við sögu. Lúxus fiskréttur 800 g ýsuflök (roðflett og skorin í bita) 300 g rækjur 200 g ferskir sveppir (sneiddir) 1 laukur (saxaður) 'A blaðlaukur (sneiddur) smjör til steikingar 1 græn paprika (söxuð) 1 rauð paprika (söxuð) 2 gulrætur (skomar í sneiðar) 1/2 dós ananaskurl og safi 150 g hreinn ijómaostur 1-Zi dl. ijómi Vi-l tsk. salt 'A tsk. pipar eða sítrónupipar 'A tsk. paprikuduft 1 tsk. karrí 1 'A tsk. súpukraftur Laukurinn og blaðlaukurinn era steiktir í smjörinu. Paprikunum, gulrótunum og sveppunum bætt út í ásamt ananaskurlinu og anan- assafanum og þetta látið krauma smástund. Rjómanum og ijómaost- inum bætt út í og látið jafnast. Þá er fiskurinn settur út í og látið krauma í 8-10 mín. Síðast era rækj- urnar og soðið sett út í og látið krauma í 1-2 mín. Þetta er borið Sigrún Þorláksdóttir. fram með soðnum hrísgrjónum, hrásalati og snittubrauði. Melónuforréttur 1 melóna rækjur krækhngur 200 g sýrður ijómi 2 msk. majónes 100 g rifinn gráðostur kavíar paprikuduft. Melónan er skorin þversum í 5-6 sneiðar, kjaminn hreinsaður úr og þetta látið á diska. Rækjumar og kræklingurinn látin á miðjuna og blöndu af majónes og sýrðum ijóma hellt yfir. Gráðostinum stráð yfir og skreytt með kavíamum og paprikuduftinu. Sigrún skorar á Maríu Ósk Stein- þórsdóttur, skólastjóra í Grímsey, að gefa uppskrift í næstu viku, og segir Sigrún að María ósk sé mjög siyöll í eldhúsinu, eins og reyndar í öllu sem hún taki sér fyrir hend- ur. Hinhliðin Ætla með fjöl- skyldima í sólina - segir ívar Ásgrímsson, þjálfari og leikmaður Snæfells „Við ökum vonandi með bikarinn til Stykkishólms í kvöld,“ sagði ívar Ásgrímsson, þjálfari og leik- maður hjá Snæfelh. Liðið hefur verið mjög í sviðsljósinu að und- anfómu vegna góðs gengis í körfu- boltanum. „Þegar leiktímabilinu er lokið flyt ég aftur til Hafnarfjaröar og tek til við lærdóminn á nýja leik. Það leggst bara vel í mig.“ Fullt nafn: ívar Ásgrímsson. Fæðingardagur og ár: 11.4.1965. Maki: Björk Siguijónsdóttir. Börn Alex Óh Ivarsson. Bifreið: Toyota Coroha ’88. Starf: Háskólanemi. Laun: Meðallaun. Áhugamál: íþróttir, lestur og tölv- ur. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur í lottóinu? Þijár. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Lesa góða bók. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Hafa ekkert að gera. Uppáhaldsmatur: Nautasteik. Uppáhaldsdrykkur: Kók. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Michael ívar Ásgrímsson. Jordan. Uppáhaldstimarit: Mannlíf. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð? Linda Pétursdóttir. Ertu hlynntur eða andvígur ríkis- stjórninni? Andvígur. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Michael Jordan og Kenny Dalghsh. Uppáhaldsleikari: Jack Nicholson. Uppáhaldsleikkona: Jody Foster. Uppáhaldssöngvari: Prince. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ólaf- ur Ragnar Grímsson. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Farside. Uppáhaldssjónvarpsefni: Góðar bíómyndir. Ertu hlynntur eða andvigur veru varnarhðsins hér á landi? Hlynnt- ur, ef það borgar fyrir hana. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Sólin. Uppáhaldsútvarpsmaður: Hah- grímur Thorsteinsson. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Sjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Heimir Karlsson. Uppáhaldsskemmtistaður: Glaumbar. Uppáhaldsfélag í iþróttum: Snæfeh og Haukar. Stefnir þú að einhveiju sérstöku í framtíðinni? Klára námið. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Fara með fjölskylduna í sólina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.