Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Page 10
Við Kevin erum mjög líkir íslenski listinn: Mörg himdruð manns velja vin- saelustu lögin Mörg hundruð manns taka þátt í að velja íslenska listann sem birt- ist í tónlistarblaði DV á hverjum fimmtudegi. Hann hefur að geyma 40 vinsælustu lögin á íslandi hverju sinni. Það eru DV, Bylgjan og Coca Cola sem standa að gerð hstans en DV og Bylgjan sjá um vinnslu hans. Ágúst Héðinsson, dagskrárgerðar- maður á Bylgjunni, hefur yfirum- sjón með því verki. íslenski listinn er valinn vikulega og fer gerð hans þannig fram að 10 manna vaskur hópur á DV hringir í um 800 manns sem valdir eru samkvæmt tilviljanaúrtaki úr þjóðskrá. Hver einstakur úr þess- um hópi er beðinn um að nefna þijú uppáhaldslög sín þessa stund- ina. Síðan eru leiknir bútar úr til- teknum íjölda laga í símann og fólkið í úrtakinu beðið að gefa þeim atkvæði. Ekki er það alltaf sama fólkið sem verður fyrir svörum heldur er skipt um. Með þessu mikla umfangi könnunarinnar er vonast til þess að íslenski listinn gefi glögga mynd af því hvaða lög eru vinsælust á íslandi. Það má segja með sanni að það sé íslenska þjóðin sem velji þennan hsta. Úti- lokað er að hægt sé að hafa áhrif á val og gengi laganna með skipu- lögðum hringingum því hringt er í fólkið en ekki öfugt. íslenski hstinn er birtur á hveij- um fimmtudegi í tónhstarblaði DV. Þá verður hann leikinn á Bylgjunni að kvöldi hins sama dags í þriggja tíma þætti sem Jón Axel Ólafsson hefur umsjón með. Hefst þátturinn klukkan 20.00. Tíu manna hópur manna af DV hringir þjóðskrá. 800 manna tilvíljanaúrtak úr - segir bamastjaman Macaulay Culkin sem segist vera ósköp venjulegur strakur Hann heitir Macaulay (Mac) Culkin 12 ára og er stærsta bamastjama Bandaríkjanna síðan Shirley Temple var upp á sitt besta. Það em hlutverk Kevins í kvikmyndunum Aleinn heima sem hafa gert stráksa að margmilljónara. „Ég er samt bara ég sjálfur," segir þessi unga stjama sem hefur þegar keypt sér eitt stykki Porsche. Nafii: Macaulay (Mac) Culkin. Best þekktur um ahan heim sem Kevin í Aleinn heima. Aldur: 12 ár. Starf: Nemandi, leikari og marg- milljónarl Uppáhaldsfag: fþróttir og eðhs- fiæði. - Heimili: Manhattan, New York. Fjölskylda: Mamma og pabbi og sex systkini. Áhugamál: Nintendo tölvuleikir, og aðrír tölvuleikir, hjólabretti og að horfa á sjónvarp. Fraœtíðarplön: Verða leikari, leikstjóri eða læknir, bakari eða lögfræðingur. „Kevin og ég emm svolítið líkir. Báðir em fyrir spennu og að fást við ævintýralega hluti. Ég býst við að ég myndi ráðast að þjófunum nákvæm- lega eins og Kevin gerir það,“ segir Mac. Kvikmyndafélagið Twenty Cen- tury Fox þurfti að greiða Mac 340 mihjónir króna fyrir leik sinn í Home Alone 2. Sú upphæð er talsverð hærri en margar fullorðnar stjömur fá fyr- ir leik sinn. - Hvernig er að vera milh? „Ég veit það eiginlega ekki,“ svarar stráksi. „Það eina sem ég hef gert er að skrifa á einhverja pappíra og skjöl. Pabbi minn sér um aht hitt. Það á að geyma peningana þar til ég verð eldri. Ég fékk þó að kaupa mér einn æðislegan hlut - rauðan Porsche. Hann bíður þangað til ég verð sextán ára.“ Mac hefur leikið í kvikmyndum frá fjögurra ára aldri. Ljóshærði strák- urinn með bláu augun þykir vera með mjög líflegt andht og hann hefur mikla hæfileika sem leikari. Það var þó ekki fyrr en í fyrri myndinni, Al- einn heima, sem hann komst í stjömuklassann. Kvikmyndin um htla strákinn, sem gleymist heima þegar fjölskyldan fer í jólaferðalag til Parísar og lendir síðan í slagsmál- um með innbrotsþjófum, er ein sú vinsælasta sem gerö hefur verið. Hún þykir vera fuh af spennandi at- riðum og skemmtilegheitum. í seinni myndinni, Aleinn heima 2, gerast í raun sömu hlutir. Fjölskyldan er á leið th Flórída í frí og ætlar að passa að Kevin hth verði ekki skihnn aftur eftir heima. Það er hins vegar á flug- vellinum sem stressið verður svo mikið að sá stutti raglast á flugvélum og fer th New York þegar aðrir fjöl- skyldumeðlimir fara th Flórída. í miðri stórborginni mætir hann síðan kunnuglegum andhtum, sömu inn- brotsþjófunum sem höfðu strokið úr fangelsinu. í þetta skiptið fá inn- brotsþjófamir rækhega á baukinn. „Það var mjög skemmtilegt þegar var verið að taka upp myndina. Ég mátti þó ekki vera með í hættuleg- ustu atriðunum," segir Mac. „Þá var notaður áhættuleikari - eða réttara sagt áhættudvergur," segir hann og hlær. Mac er nú á fuhu við að leika í nýrri kvikmynd, Good Son, en ekki era fyrirhugaðar upptökur á þriðju myndinni af Aleinn heima, að minnsta kosti ekki enn sem komið er. Mac finnst mjög gaman að leika en þaö getur vitaskuld oröið svolítið erfitt að vera heimsfrægur. Fólk gengur að honum og segir; „Oh, þú ert svo sætur." „Stundum langar mig th að gretta mig og blóta þessu fólki en ég verð víst alltaf að vera góður, sthltur, sýna kurteisi og segja: þakka þér fyrir. Stundum hef ég prófað að setja á mig hatt og sólgleraugu th að þekkjast ekki en það tekst aldrei. Ahtaf skulu einhveijir vera að hvísl- ast á í kringum mig,“ segir hann. Mac býr með foreldrum sínum í New York. Hann er þriðji í röðinni í systkinahópnum en þau era sjö, fimm strákar og tvær stelpur. „Ég verð oft að læsa mig inni í her- berginu mínu th að fá frið því það er svo mikill hamagangur á heimil- inu. - En hvað langar þig að fá í afmæl- isgjöf? „Gulan „cocker", spænskan hvolp. Hann mun þá bætast í hóp þeirra gæludýra sem ég hef átt en þau era öh dauð. Systkini mín höfðu lofað að passa þau meðan ég var að vinna við kvikmyndimar en hvað gerðist? Hamsturinn mínir stakk af og þau gleymdu að gefa gullfiskunum. Þau era gjörsamlega vonlaust,“ segir Mac. Honum finnst meira varið í vin sinn, Michael Jackson. En poppgoöið hefur náð góðu sambandi við barna- stjörnuna. „Síðasta sumar heimsótti ég hann í þetta fræga hús þar sem hann býr. Það var margt skemmti- legt að gera þar,“ segir Mac. „Micha- el á margar verslanir meö alls kyns Með bófunum í New York þar sem Alone Home 2 gerist. varningi og dóti. Hann á líka górhlu og sitt eigið kvikmyndahús. Michael hefur einnig boðið mér í ferðalag th Bahamaeyja. Við getum rætt um alla skapaða hluti saman en við ræðum aldrei um kvikmyndir eða popptón- hst. Þú veist að maður ræðir ekki vinnunna og áhyggjurnar þegar maður er í góðum félagsskap." Þangað til núna hefur Mac gengið í kaþólskan skóla („ég er ekkert sér- staklega hrifin af nunnum'j en for- eldrar hans hafa nýlega flutt hann í einkaskóla þar sem hann hefur meiri möguleika á að fá lengri frí th að vinna við upptökur. Chris Columbus, sá er leikstýrði kvikmyndunum Aleinn heima, segist vera mjög hrifinn af Mac litla. „Hann lærir handrit á ótrúlega skömmum tíma. Hann hefur sérstaka hæfileika og það kom berlega í Ijós þegar við prófuðum þrjú hundruð stráka fyrir hlutverkið í Aleinn heima. Hann sló í gegn. - En hvað gerist í framtíðinni þegar Mac verður orðinn of stór til að leika barn? „Ég hugsa ekkert um það,“ svarar stráksi. „Það veröur ekki fyrr en eft- ir svo rosalega mörg ár.“ -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.