Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Síða 14
14
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR1993
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÚNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð I lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Kerfið skiptir um föt
Þegar olíuverð lækkar erlendis, segja forráðamenn
íslenzku olíufélaganna, að ekki sé hægt að lækka olíu-
verð á íslandi, af því að skip með olíu á nýja verðinu
komi ekki til landsins fyrr en eftir tvo eða þrjá mán-
uði. Nokkur bið hljóti að vera eftir verðbreytingum.
Þegar þessi biðtími er liðinn, telja forráðamenn ís-
lenzku obufélaganna, að ekki sé hægt að lækka olíuverð
á íslandi, af því að erlendis sjáist merki um, að olíuverð
sé að fara að hækka á nýjan leik. Þessar horfur hafa
án biðar og umsvifalaust áhrif á verðlag olíufélaganna.
Olíufélögin geta leyft sér þverstæður í röksemda-
færslu, af því að þau eru ekki í samkeppni, heldur stunda
þau fáokun. Þau þurfa ekki að láta neytendur njóta
verðlækkana, af þvi að þeir geta ekki snúið sér annað
en til hins þríhöfða þurs olíuverzlunar á íslandi.
Þessi fáokun er í svo traustum sessi, að forráðamenn
olíufélaganna nenna ekki að framleiða snyrtileg rök
fyrir meðferðinni á neytendum. Þeir fullyrða bara á
afar veikum forsendum, að dollarinn sé að hækka í
verði og að olían sé að hækka í verði erlendis.
Ýmsir fleiri þursar á íslandi hafa nokkra hausa eins
og olíufélögin. Onnur helztu vígi fáokunar á íslandi eru
bankamir og tryggingafélögin. Bankamir komast upp
með að halda uppi vöxtum til að afla fiár til óskynsam-
legra og ósiðlegra lána, sem ekki em endurgreidd.
íslenzku tryggingafélögin hafa með sér fáokunar-
samráð um að taka að sér lagavald í slysabótum og láta
dómsmálaráðuneyti og ríkisstjórn þjónusta sig með
lagafrumvörpum til staðfestingar á, að þeim beri ekki
að greiða tjón, sem almenningur verður fyrir.
Aðrir þursar hafa bara einn haus. Ein verst þokkaða
einokunarstofnun landsins er Bifreiðaskoðun íslands,
sem hefur sankað að sér eignum og peningum með
miklum hraða í skjóli ríkisins. Hún var stofnuð undir
yfirskini einkavæðingar, en er merkisberi einokunar.
Eftir mikla baráttu er nú verið að setja reglur um
afnám einokunar á bifreiðaskoðun. Bílgreinasambandið
telur, að þessar reglur séu strangari en evrópskar regl-
ur til að draga úr líkum á, að nýir aðilar hafi bolmagn
til að taka upp samkeppni við Bifreiðaskoðun íslands.
Eitt þekktasta dæmið um einokun er í fluginu. Ríkið
úthlutar einkaleyfum til áætlunarflugs með farþega í
innanlandsflugi og til útlanda. Þar á ofan hefur til
skamms tíma verið í gildi samningur um einkarétt ein-
okunarfélagsins á afgreiðslu flugvéla á Keflavíkurvelli.
Einokun og fáokun eru ekki á undanhaldi, þótt stund-
um sé talað fallega um nauðsyn á markaðsbúskap og
fijálsri samkeppni. Stefna einkavæðingar hefur ekki
miðað að aukinni samkeppni, heldur að breytingu nokk-
urra þátta ríkiseinokunar yfir í einkaeinokun.
Að svo miklu leyti sem ríkisvaldið rekur ekki einka-
væðinguna með hangandi hendi, miðar sú stefna í raun
að því að búa til matarholur fyrir gæðinga og gæludýr
í einkageiranum, en ekki að því að draga úr kostnaði
þeirra, sem þjónustuna eða vöruna þurfa að nota.
Lögmál markaðsbúskapar og fijálsrar samkeppni eru
höfð að yfirvarpi í tilraunum ríkisvaldsins til að breyta
um rekstrarform á einokun og fáokun. í reynd eru hand-
hafar hins pólitíska valds fyrst og fremst að færa til
sérhagsmuni og gæta þeirra gegn almannahagsmunum.
Þetta kerfi er svo traust, að ríkið getur gefið eftir ein-
okun olíuinnflutnings, án þess að olíufélögin láti af sam-
starfi sínu um varðstöðu gegn almannahagsmunum.
Jónas Kristjánsson
Viðskiptastríð
allra gegn öllum
færist nær
Þaö bar upp á sama daginn í síð-
ustu viku að Arthur Dunkel, fram-
kvæmdastjóri Almenna samkomu-
lagsins um tolla og viðskipti
(GATT), kunngerði að hann væri
orðinn úrkula vonar um að sam-
komuiag næðist á tilsettum tíma
um fjölþætt afnám viðskiptahamla
á heimsmarkaði og ný stjóm Bills
Clinton í Bandaríkjunum ákvað að
gefa merki um að hún skirrðist
ekki viö aö efna til viðskiptastríðs
viö Evrópubandalagið.
Uruguay-lotan í samningaumleit-
unum 108 ríkja á vegum GATT um
alþjóðareglur um stóraukið fijáls-
ræði í viðskiptum með búvörur,
vefnaðarvöru og hvers konar þjón-
ustu ásamt alþjóðlegri vemd fyrir
höfundarrétt og einkaleyfi hefur
staöið í hálfan áratug. Hver tíma-
mörkin af öðrum hafa liðið án nið-
urstöðu og nú var að því stefnt að
ljúka starfinu fyrir 2. mars þegar
út rennur heimild Bandaríkjafor-
seta til að leggja niðurstöðuna fyrir
þingið til skjótrar meöferðar, til
samþykkis eöa synjunar án nokk-
urra breytinga. Úr því svona fór
verður frekari töf margir mánuðir
ef ekki misseri því nýir menn Chnt-
ons þurfa tíma til að kynna sér
margbrotin mál og flókna samn-
ingsstöðu fyrir úrslitalotu.
Fréttamenn í Washington segja
merki gefið af ráðnum hug um
harða afstöðu sfjórnar Clintons í
viðskiptamálum þegar hún boðaði
refsiaðgerðir í viðskiptum gagn-
vart EB gangi í gildi regla sem
framkvæmdastjórn bandalagsins
hefur sett um forgang fyrirtækja í
bandalagslöndum við útboð fram-
kvæmda við fjarskipti og orku-
mannvirki. Má taka tilboðum EB-
fyrirtækja þótt þau séu allt að 3%
yfir tilboðum frá löndum utan EB.
Ákvöröun Bandaríkjastjómar
vakti furðu í Brussel. í fyrsta lagi
er dregið verulega úr núgildandi
forgangi heimafyrirtækja í útboð-
um sem er mismunandi eftir lönd-
um en er með nýju reglunum færð-
ur í sama horf um EB allt og hafð-
ur mun lægri en gildir í Bandaríkj-
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
unum sjálfum þar sem vemd
heimafyrirtækja við útboð í opin-
berar framkvæmdir getur verið frá
9% til 50%. í öðm lagi er yfirlýstur
tilgangur með 3% reglu EB að hafa
eitthvað í höndunum í samningum
við Bandaríkin um jöfnun aðstöðu
á útboðsmarkaði, meðal annars
gagnvart bandarískum fjarskipta-
fyrirtækjum sem em í einkaeign.
Hótunin frá Washington um
refsiaðgerðir gagnvart EB kom í
sömu viku og kunngerður var þar
refsitohur allt að 109% á stáhnn-
flutning frá 19 löndum, þar af em
sjö í EB. Um er að ræða viðskipti
sem numiö hafa tveim miUjörðum
doUara á ári. Álögumar koma þeg-
ar stálmarkaöur er í lægð og stál-
framleiðendur um víða veröld fást
við gífurlegan rekstrarhaUa.
Refsitollurinn á stál er lagður á
að kröfu bandarískra stálframleið-
enda. Þar er þó um smámuni að
ræða hjá því sem gerist ef banda-
rísku bUasmiðjunum Chrysler,
Ford og General Motors verður að
ósk sinni um refsitoll á mestaUan
bílainnflutning en hann nam 45
miUjörðum dollara á síðasta ári.
RefsitoUurinn á stál var ákveðinn
af embættismönnum stjórnar Ge-
orge Bush, þótt hann væri ekki
kunngerður fyrr en Clinton tók við
forsetaembætti. Hótunin um refsi-
aðgerðir gegn verktakareglu EB er
hins vegar alfarið verk manna
Clintons, þeirra Ronalds Brown
viöskiptaráðherra og Mickeys
Kantor viðskiptasamningafuUtrúa.
Síðustu forsetar repúbUkana í
Bandaríkjunum hafa verið hlynnt-
ir fríverslun. Demókratar hafa aft-
ur á móti frá fyrri tíð orð á sér fyr-
ir að haUast að vemdarstefnu í
miUiríkjaviðskiptum. Það sem nú
hefur gerst bendir til að svo sé enn.
Og vemdarstefnan stingur sér
niður víðar en í Washington. í síð-
ustu viku lagði Japansstjórn refsi-
toU á innflutning á manganjárn-
blendi frá 100 kínverskum fyrir-
tækjum sem hún sakar um undir-
boð. Kanadastjóm fór eins aö gagn-
vart innflutningi á heitvölsuðum
stálplötum frá sex löndum.
GATT hefur nú takmarkað vald
tU að fylgja eftir settum samkeppn-
isreglum en það er eitt af því sem
leitast átti viö að ráöa bót á í Ur-
uguay-lotunni. Meðan hún tefst
sækir bersýnUega í sama horf á
ríkjandi samdráttarskeiði hjá
helstu viðskiptaþjóðum og gerðist
í heimskreppunni miklu, við-
skiptastríð allra gegn öUum. Niöur-
staðan yrði nú eins og þá aUra tap
og ófyrirsjáanlegar póUtískar af-
leiðingar.
Magnús Torfi Ólafsson
Bill Clinton ávarpar velslu fyIkisstjóra úr flokki demókrata, sem komu til fundar við forsetann í Washington.
Simamynd Reuter
Skoðanir aimarra
Algjörir apar í apasmygli
„Samkvæmt skýrslum lögreglunnar vom fimm
mexíkóskir dýrahaldarar nýbúnir að koma búri með
stolinni górillu um borð í flutningaflugvél á Opa-
Locka flugvellinum í Miami. GóriUunni átti síðan
að smygla tíl dýragarðs í MexUcó. GóriUan gaf frá
sér hljóð. Einn smyglaranna fór þá að búrinu og
hvíslaði: „Heyrðu, stóri minn.“ Þá svaraði góriUan:
„Þið emð teknir fastir.“ Sem þeir vom því í góriUu-
búningnum var útsendari stjómvalda. Sagt er að
apaþjófurinn hafi rekið upp öskur."
Úr forystugrein Washington Post 2. febrúar.
Stuðningur sjálfsagður
„Það á að vera sjálfsagður hlutur að Danmörk
veiti fjárhagsaöstoð vegna þeirra kerfisbreytinga
sem Færeyingum em svo nauðsynlegar. Vandinn
er bara sá að Danmörk á sjálf í svo miklum erfiðleik-
um með að framkvæma eigin kerfisbreytingar. Viö
sem erum í suðlæga hluta rUdsins höfum ekkert tU
að stæra okkur af. Við stóðum líka allt of lengi í
þeirri trú að aUt væri í himnalagi. Nú er komið að
Færeyingum að bæta ráð sitt.“
Úr forystugrein Politiken 2. febrúar.
Þrjóska Jonasar Savimbi
„Ástæðan fyrir því að Angóla er á ný sokkin í
borgarastyrjöld er þrjóska Jonasar Savimbi, leiðtoga
uppreisnarhreyfingarinnar UNITA, að vilja ekki við-
urkenna ósigur sinn í kosningunum í september.
Hann segir að brögö hafi verið í tafli. Utanaðkom-
andi aðUar em homun ósammála. EftirUtsmenn SÞ
sögðu þær ekki gaUalausar en að mestu frjálsar."
Úr forystugrein Economist 30. janúar.