Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Page 16
16
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR1993
Skák
Skákþing Reykjavíkur:
Frækileg frammi-
staða Guðmundar
- en Dan Hansson er skákmeistari Reykjavíkur
Guðmundur St. Gíslason, 28 ára
nemi 1 Fiskvinnsluskólanum, gerði
sér lítiö fyrir og vann alla andstæð-
inga sína á skákþingi Reykjavíkur,
sem lauk á miðvikudag. Guðmundur
hlaut 11 vinninga af 11 mögulegum
og þó var ekki við neina aukvisa að
eiga. Meðal fómarlamba Guðmund-
ar voru alþjóðlegu meistaranir
Þröstur ÞórhaUsson og Sævar
Bjamason.
Árangur Guðmundar er stórglæsi-
legur en þó er ekki einsdæmi að sig-
ur vinnist á skákþingi Reykjavíkur
með „fullu húsi”. I úrslitakeppni um
titilinn 1960 vann Friörik Olafsson
allar 7 skákir sínar og 1964 fékk Björn
Þorsteinsson 9 v. af jafnmörgum
mögulegum.
Dan Hansson varð einn í 2. sæti
með 9,5 v., sem einnig er frábær ár-
angur og hefði að öðru jöfnu átt að
nægja til sigurs. Þriöja sæti deildu
Þröstur Þórhallsson, Þröstur Áma-
son, Snorri Karlsson, Áskell Öm
Kárason og Haukur Angantýsson,
aUir með 7,5 v. í 8.-16. sæti urðu Ólaf-
ur B. Þórsson, Sævar Bjarnason,
Amar E. Gunnarsson, Bragi Þor-
finnsson, Kristján Eðvarðsson,
Magnús Öm Úlafarsson, PáU Agnar
Þórarinsson, Heimir Ásgeirsson og
Eiríkur Bjömsson með 7 v. Keppend-
ur vom aUs 69 talsins og skákstjóri
var Ólafur Ásgrímsson.
Guðmundur á lögheimiU á ísafirði
og samkvæmt gömlum reglum getur
hann því ekki orðið skákmeistari
Reykjavíkur. Dan Hansson hreppir
því titiUnn. Dan er raunar sænskur
ríkisborgari og félagi í Taflfélagi
Kópavogs en hann býr svo vel að eiga
lögheimili í Reykjavík.
Hæfileikar Guðmundar á skák-
sviðinu leyndu sér ekki frá ungum
aldri. Ástundun hans hefur hins veg-
ar verið stopul og því hefur minna
orðið úr fræknum sigmm en efni
standa tU. Trúlega býr Guðmundur
nú að góðri reynslu sem hann fékk
á alþjóðamóti tímaritsins Skákar á
ísafirði í nóvember - minningarmóti
um Högna Torfason.
Guömundur hefur næmt auga fyrir
leikfléttum og hugsar sig sjaldnast
Guðmundur St. Gíslason.
um tvisvar ef hann eygir sóknar-
möguleika. Sigramir gegn Þresti og
Sævari í lokaumferöunum tveimur
sýna aö frammistaða hans á mótinu
er engin tilviljun. Skákin við Sævar
er sérlega skemmtUega tefld á báða
bóga.
Hvítt: Sævar Bjarnason
Svart: Guðmundur Gíslason
SUcileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 Dc7 8.
Bxf6 gxf6 9. Df3 Rc6 10. 0-0-0 Bd7 11.
g3 O-ð-O 12. Kbl?!
Einn ónákvæmur leikur og Guð-
mundur er ekki seinn á sér að snúa
vöm í sókn. Á hinn bóginn hefði 12.
Dh5! gefið hvítum betra tafl.
12. - f5! 13. Rb3
Ef 13. exf5 Rxd4 14. Hxd4 Bc6 15.
Re4 Bg7 og svartur hefur góð færi.
T.d. 16. Hd3 Da5! 17. Bh3 Db4 og vinn-
ur.
13. - fxe4 14. Rxe4 Kb8 15. Rg5 Bc8 16.
Dc3 Hg8 17. Rxh7!?
Glannalegt, því að sjá má fyrir aö
riddarinn gæti lent í lífsháska. En
hvítur á vart annars úrkosti en að
reyna að flækja stöðuna, því að
svartur ætti annars mjög gott tafl.
17. - Bg718. Dd2 f619. Bd3 Bh8 20. c3
TU að hindra - Rb4 og í vissum til-
vikum er Dc2 tU að valda riddarann
nayðsynlegt.
20. - Re7! 21. De2 e5! 22. Hdel Bg4! 23.
Df2 Rg6
Guðmundur tefhr þennan þátt
skákarinnar mjög skemmtílega. Nú
er ljóst að riddari hvíts á ekki aftur-
kvæmt en hann mun ekki faUa
óbættur.
24. f5?!
Guðmundur ætlaði aö svara 24. h3
Bc8 25. h4 með 25. - e4! 26. Bxe4 f5!
og vinnur þá Uð. Þetta var þó trúlega
besta tilraun hvíts, þó svo að eftir 27.
Bd5 Dxh7 28. Bxg8 Hxg8 29. Db6 Dc7!
séu færi svarts betri.
8
7
6
5
4
3
2
1
24. - e4!
Þennan möguleika varð Guðmund-
ur að sjá fyrir er hann lék sinn 22.
leik. Ekki gengur 24. - Re7 vegna 25.
h3 Bh5 26. g4 Be8 27. g5 og riddarinn
sleppur úr prísundinni.
25. Bxe4 Re5 26. h3 Bh5 27. g4 d5! 28.
Bc2 Be8 29. Rxf6
MiUUeikur svarts í 27. leik gerir
það að verkum að nú má svara 29.
Dh4 með 29. - Rf3. Riddarinn er nú
falUnn en hvítur á þijú peö í skiptum.
29. - Bxf6 30. Rd4 Bf7 31. Hhgl Rc4?!
Sóknin er jafnan efst í huga Guð-
mundar en nú gefur hann hvítu peð-
unum lausan tauminn. Það hefði
Sævar átt að færa sér í nyt með 32.
h4! - Betra er fyrst 31. - Hc8, eöa 31.
- Ka8.
32. Bb3?! Ka8 33. h4 Bxd4! 34. Dxd4?
Eftir þetta verður tafli hvíts ekki
ABCDEFGH
bjargað. Hann er enn á lífi eftir 34.
cxd4 en eins og Guðmundur sýndi
fram á eftir skákina er margt að var-
ast eftir svarleikinn 34. - Da5!
34. - Dh2! 35. Bxc4
Þvingað, vegna máthótunarinnar.
Umsjón
Jón L. Árnason
35. - dxc4 36. Db6 Hd6
Mögulegt var einnig 36. - Dxh4, t.d.
37. He7 Bd5 38. g5 Be4+ 39. Kal Dxg5!
o.s.frv.
37. Db4 Hgd8 38. a3 Ka7 39. Hhl Dd2
40. Hdl Dxdl+ 41. Hxdl Hxdl+ 42.
Ka2 Bd5 43. a4 Bc6!
Hvítur er í mátneti.
44. ffi Hfl 45. Dc5+ Ka8 46. g5 Hddl
47. DfB+ Ka7 48. Ka3 Hal+ 49. Kb4
Hxa4+ 50. Kc5 Hdl!
8
7
6
5
4
3
2
1
- Hvítur gafst upp. Ef 51. Df7 Ha5+
52. Kb4 Hb5+ 53. Kxc4 Bd5+ og tveir
hrókar ráða auðveldlega við hvítu
peðin.
Leiðrétting: Eins og glöggur lesandi
benti á var síðasti leikurinn í skák
Þrastar ÞórhaUssonar og Sævars í
síöasta helgarblaði rangur. Þröstur
lék ekki 21. Hel? sem svara má með
21. - Hc8 og drottningin er faUin,
heldur 21. He7! og þá gafst Sævar
upp. Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
-JLÁ
H
1
Á & t'
M &
I k ■ A
H I
ABCDEFGH
Bridge_______________________________________
Opið EM-tvímenningsmót:
Páll og Karl unnu
SíðastUðinn laugardag, 30. janúar, hélt
Bridgesamband íslands opið tvímenningsmót
þar sem verðlaunin voru ferðir á Evrópumótiö
í tvímenningi sem haldið verður í Bielefeld í
Þýskalandi 19.-21. mars. í fyrstu verðlaun voru
flugfar, hóteldvöl og keppnisgjald fyrir tvo og
önnur og þriðju verðlaun voru hóteldvöl og
keppnisgjald fyrir pörin.
AUs tóku 32 pör þátt í keppninni og var spUað-
ur barómeter, 2 spU mUU para. Lokaröðin varð
eftirfarandi en þess ber að geta að vegna kæru,
sem Uggur fyrir dómstóU BSÍ, gæti röðin í fyrsta
og öðru sætinu breyst:
1. PáU Valdimarsson-Karl Sigurhjartarson 164
2. Sverrir Ármannsson-Matthías Þorvaldsson 139
3. Þröstur Ingimarsson-Þórður Bjömsson 134
Evrópumótið í tvímenningi er opiö öUum sem
eru aðilar að bridgesamböndum Evrópu en
umsóknir verða aö fara í gegnum viðkomandi
bridgesambönd. Líklegt er að 7-8 íslensk pör
taki þátt í þessu móti en umsóknarfrestur er tU
15. febrúar næstkomandi.
Bridgefélag Vestur-Húnvetninga
Fyrsta keppni janúarmánaðar var tvímenning-
ur en síðan hófst aðalsveitakeppni félagsins.
Staðan í aðalsveitakeppninni er þannig eftir 3
umferöir:
1. Eggert Ó. Levý 71
2. Öm Guöjónsson 44
3. Konráö Einarsson 39
4. Þórður Jónsson 23
Vetrarmitchell BSÍ
SíðastUðinn föstudag var spUaður vetrarmitc-
heU í Sigtúni 9 að venju. AUs mættu 24 pör tíl
leiks og úrsht urðu eftirfarandi í NS:
1. Guöný Guöjónsdóttir-Amgunnur Jónsdóttir 323
2. Þóröur Bjömsson-Þröstm- Ingimarsson 319
3. Leifur Kristjánsson-Heimir Tryggvason 315
Hæsta skor í AV:
1. Jóhannes Ágústsson-Friörik Friöriksson 335
2. Elín Jónsdóttir-Lilja Guðnadóttir 300
3. Guölaugur Sveinsson-Erlendur Jónsson 289
VetrarmitcheU er alltaf spUaður á föstudags-
kvöldum í Sigtúni 9 og hefst stundvíslega klukk-
an 19. Næsta fóstudag, 5. febrúar, verður í vetr-
armitcheU keppt um sæti í tvímenningi bridge-
hátíðar sem verður 12.-15. febrúar næstkom-
andi. í tvímenningi bridgehátíðar taka þátt 48
pör en 44 hafa þegar verið valin og keppt er um
4 síðustu sætin. Skráning er á staðnum.
íslandsmót í parasveitakeppni
Fyrsta íslandsmót í parasveitakeppni verður
haldið í Sigtúni 9 um næstu helgi, 6.-7. febrúar.
Skráningu í mótið lýkur miðvikudaginn 3. febrú-
ar og nú þegar eru skráðar 18 sveitir sem er fram-
ar björtustu vonum. SpUaðar verða 7 umferðir
Monrad, 16 spiia leikir. Fjórar umferðir verða
spUaöar á laugardeginum og 3 á sunnudeginum
og hefst spUamennska báða dagana klukkan 10.
Keppnissýóri verður Kristján Hauksson og
keppnisgald krónur 10 þúsund á sveit. -ÍS
Bima
komin
Keppni í kvennaflokki á skák-
þingi Reykjavíkur fór fyrst fi-am
1975 en síöustu árin hafa konurn-
ar haft um annað að hugsa. Nú
eru þær loks mættar aftur tíl
leiks - átta konur tefia á skák-
þinginu sem hófst sl. þriðjudag.
Mesta athygli vekur þátttaka
Birnu Norðdahl sem er tvöfaldur
íslandsmeistari og varö Reykja-
vUcurmeistari 1976. Birna, sem er
fædd 1919, var helsti hvatamaöur
að því að Jslendingar sendu í
fyrsta skipti kvennasveit tU
keppni á ólympíumót - til Buenos
Aires 1978.
Auk Birnu tefla í mótinu Svava
Sigbertsdóttir, Anna B. Þor-
grímsdóttir, Helga Guðrún Ei-
riksdóttir, Áslaug Kristinsdóttir,
Berglind Aradóttir og Guðný
Hrund Karisdóttir. Eftir tvær
umferðir liafði Áslaug unniö báð-
ar skákir sínar, m.a. Birnu, en
tveimur skákum 1. umferðar var
frestað sökum ófærðar. Mótinu
lýkur nk. fimmtudag.
Amar
unglinga-
meistari
Arnar E. Gunnarsson hreppti
titílinn „unglingameistari
Reykjavíkur 1993“ er hann sigr-
aði í unglingaflokki á skákþingi
Reykjavíkur, sem er opinn skák-
mönnum 14 ára og yngri. Arnar
hlaut 6,5 v. af 7 mögulegum, geröi
aðeins jafhtefli við Davíð Ingi-
marsson, sem varð í 2. sæti með
5,5 v. Bræðurnir Bragi og Bjöm
Þorfinnssynir, Torfi Leósson, Jón
Viktor Gunnarsson og Einar
Hjalti Jensson fengu 5 v. og varð
Bragi í 3. sæti á stigum. Berg-
steinn Einarsson og Oddur Ingi-
marsson fengu 4,5 v. og 4 v. fengu
Anna Björg Þorgrímsdóttir, Jan-
us Ragnarsson, Þórhalldur Hall-
dórsson, Ólafur Helgi Þorkelsson,
Davíð Kjartansson; Kjartan Thor
Wikfeldt og Árni Arnason.
Keppendur í unglingaflokki
voru 36 og voru tefldar atskákir
- umhugsimartími 30 minútur á
keppanda.
Skákfélag Hafnaríjaröar, Tafl-
félagið HeUir og Taflfélag Kópa-
vogs halda atskákmót í Hafnar-
firði 12.-13. febrúar nk. Mótið
hefst kl. 20 á fóstudegi og verður
fram haldiö kL 13 á laugardegi.
Tefldar verða 7 umferðir eftir
Monrad-kerfi.
Verðlaun eru kr. 15.000, kr.
9.000 og kr. 6.000 og auk þess
verða veitt aukaverðlaun fyrir
bestan árangur skákmanna með
1700-2000 Elo-stig, skákmanna
með færri en 1700 stig og 15 ára
ogyngri.
Teflt er 1 Sjálfstæðishúsinu,
Strandgötu 29 í Hafharfirði, og er
öllum heimil þáttíaka.
Hrað-
1 f 1 / .
skakmot
Reykja-
víkur
Aö venju lýkur skákþingi
Reykjavíkur meö hraðskákmóti
Reykjavikur, sem haldið er á
morgun, sunnudag, og hefst kl.
14. Þar er oft heitt í kolunum,
enda aðeins 5 mínútur til þess að
hugsa sig um. ÖUum er heimil
þátttaka. -JLÁ