Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Qupperneq 20
Robert Downey jr. hefur fengið mjög
lofsamlega dóma fyrir túlkun sína á
Charlie Chaplin.
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
stofnuðu þeir United Artist saman.
Moira Kelly leikur tvö hlutverk í
myndinni, æskuást Chaplins, Hettu
Kelly og síðustu eiginkonu hans,
Oona O’NeilI.
Diane Lane leikur Paulette Godd-
ard, leikkonuna frægu sem var þriðja
eiginkona Chaplins.
Penelope Ann Miller leikur Ednu
Purviance sem lék aðalkvenhlut-
verkið í mörgum kvikmyndum
Chaplins.
John Thaw (Inspector Morse) leik-
ur Fred Kamo sem var þekktur
skemmtikraftur og kom Chaplin
fyrst á framfæri í tónlistarhöllum.
Nancy Travis leikur Joan Barry,
smástimi sem nærri verður til þess
að útiloka Chaplin úr kvikmynda-
heiminum er hún lögsækir hann.
James Woods leikur ákærandann
Joseph Scott í máli Joan Barry gegn
Chaplin.
Á nærri sextíu ára ferli lék Charlie
Chaplin umrenninginn í 75 kvik-
myndum, oftast án þess að segja orð
og enn í dag er þessi litli umrenning-
ur þekktasta persóna sem sköpuö
hefur veriö á hvíta tjaldinu. En
Chaplin var ekki aðeins leikari, hann
var gott tónskáld sem samdi tónlist
við allar kvikmyndir sínar eftir að
hljóðsetning kom til sögunnar og
skrifaði öll handrit að myndum sín-
mn. Charlie Chaplin kom fyrst fram
fyrir kvikmyndavél 1914 og í síöasta
sinn 1967 í hlutverki þjóns í síðustu
kvikmynd sinni, A Countess from
Hong Kong.
-HK
Charlie Chaplin (Robert Downey jr.) er hér að vinna að sköpun umrenningsins.
Chaplin, hafi tekist sérlega vel að
skila mjög erfiðu hlutverki og það
sé alls ekki hans sök að ekki hafi
tekist að skapa snilldarverk eins og
margir höfðu vonast eftir, því að lík-
lega er Chaplin sú kvikmynd sem
allir vildu að yrði góð. Þrátt fyrir
ýmsa annmarka hefur Chaplin samt
töluvert skemmtigildi, sérstaklega
fyrir þá sem þekkja sögu Chaplins
og hafa kynnt sér kvikmyndaiönað-
inn á þeim tíma sem myndin gerist.
Bjó sigvel
undirhlutverkið
Robert Downey jr. á aö baki leik í
tuttugu kvikmyndum en Chaplin er
tvímælalaust mest krefjandi hlut-
verkiö. Attenborough var búinn að
leita lengi þegar hann datt niður á
Robert Downey. „Það geta allir
sæmilegir leikarar stælt umrenning-
inn, gert sig útskeifan og leikið sér
með hatt og staf, en það var eitthvað
í framkomu Downeys jr. sem minnti
á Chaplin og það réð úrslitum," segir
Richard Attenborough um val sitt á
honum.
Downey jr. er sonur kvikmynda-
leiksfiórans og rithöfundarins Ro-
berts Downey og kom hann fyrst
fram í kvikmyndum hjá föður sínum.
Fyrsta aðalhlutverkið lék hann í The
Pick-up Artist á móti Molly Ring-
wald. Af öðrum myndum, sem hann
hefur leikið stór hlutverk í, má nefna
Less than Zero, Air America, Chanc-
es Are, Soapdish og Weird Science.
Robert Downey jr. fékk ár til að búa
sig undir hlutverkið. Aðalþjálfari
hans var látbragðsleikarinn Dan
Kamin sem nánast breytti Downey
jr. í umrenninginn litla. Downey jr.
las allar bækur sem skrifaðar hafa
verið um Chaplin og horfði síðan
stanslaust á kvikmyndir hans og
heimildamyndir. Auk þess gerði
hann sér far um að arka um götur 1
London og kanna alla staöi sem eitt-
hvað eru tengdir Chaplin.
Robert Downey hefur viðurkennt
að það hafi verið mikil áskorun að
leika Chaplin, en segir að þegar kafað
sé ofan í eina persónu í þetta langan
tíma verði hún ósjálfrátt hluti af
manni.
Margarfrægar
persónur
í Chaplin er mikill fjöldi þekktra
leikara og margir þeirra leika þekkt-
ar persónur sem voru uppi á sama
tíma og Chaplin:
Dan Aykroyd leikur Mack Sennett,
kvikmyndaframleiðandann sem
skapaði hina frægu Keystone Cops
og manninn sem fékk Chaplin til
Hollywood.
Geraldine Chaplin leikur ömmu
sína, Hönnu Chaplin, sem ól upp syni
sína tvo í mikilli fátækt og endaði á
geðsjúkrahúsi.
Anthony Hopkins leikur tilbúinn
sögumann, George Hayden, sem er
að skrifa ævisögu Chaplins. Það er í
gegnum hann sem atburðarásinni er
lýst.
Kevin Kline leikur Hollywood-
stjömxma Douglas Fairbanks, en
hann var nánasti vinur Chaplins og
Kvikmyndir
Chaplin
Ný kvikmynd Richards Atten
borough vekur blendnar
tilfinningar
Mesti gamanleikari allra tíma,
Charhe Chaphn, lifði fjölbreyttu og
dramatísku lífi sem er tilvalið efni
til að kvikmynda. Samt er það svo
að fáir hafa haft á því mikla trú aö
hægt sé að gera vel heppnaða kvik-
mynd um Chaplin enda persónan svo
lifandi í hugum allra sem einhvem
tíma hafa séð hann að ekki er hægt
að ætlast til að leikari, hversu góður
sem hann er, geti túlkað þessa marg-
brotnu persónu svo vel fari.
Hinn þekkti kvikmyndagerðar-
maður Richard Attenborough var á
annarri skoðun og þegar viðmð var
við hann hugmynd 1988 um að gera
kvikmynd um ævi snilhngsins fékk
hann strax áhuga á verkefninu og
varði miklum tíma í að leita að rétta
leikaranum, kannski of miklum því
að viðtökur við myndinni hafa verið
blendnar og ekki allir á eitt sáttir um
gæði hennar. En alhr em sammála
um að Robert Downey jr., sem leikur
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR1993
Stallone í
dýrustu myndinni
Sú kvikmynd, sem að öllum lík-
indum verður þess vafasama
heiðurs aðnjótandi að vera dýr-
asta kvikmynd ársins 1993, er
nýjasta kvikmynd Sylvesters
Stallone. Clifihanger, sem leik-
stýrt er af Finnanum Renny Harl-
in. Talið er að þegar vmnslu lýk-
ur verði kostnaðurinn kominn í
80 milljónir dollara sem er hátt í
30 milljónum meira en í upphafi
var gert ráð fyrir.
Spieiberg
aöeins ódýrari
Nýjasta kvikmynd Steven Spi-
elberg Jurassic Park sem er í
lokafrágangi verðui* litlu ódýrari
en Cliflhanger, en áætlaður
kostnaður við hana er 70 milljón-
ir dohara. í mynd þessari, sem
gerð er eftir skáldsögu Michael
Chricton, leika aðalhlutverkin
Sam Neih, Laura Dern, Jefi'
Goldblum og Richai'd Attenboro
ugh. Frumsýning er áætluð í
sumar.
Flóttamaðurinn
birtist aftur
Eins og mörgum er kunnugt tók
Harrison Ford að sér hlutverk
Jack Ryan í Patriot Games eftir
að Alec Baldwin hafði veriö hafn-
aö vegna launakrafna. Nú er ver-
ið að hefla gerð kvikmyndarinnar
The Fugitive sem gerð er efdr
vinsælli sjónvarpsseríu sem
margir kannast við ffá árdögum
Sjónvarpsins og mun Harrison
Ford leika Kimble sem ahtaf var
á flótta. Og það er af Alec Bald-
win að frétta að hann átti að leika
Kimble en lenti eitthvaö upp á
kant við framleiðendur og má
segja að Harrison Ford feti enn
einu sinni í spor Alec Baldwin.
Stone og
Carpenter
Sagt er að Sharon Stone sé svo
eftirsótt i Hohywood þessa dag-
ana að henni séu boðin öh al-
mennileg kvenhlutvork. Það er
að frétta af gyðjunni að hún hefur
nýlokið við að leika í þrhlemum
Silver ásamt William Baldwin og
Tom Berenger og er þessa dagana
að undirbúa sig fyrir aðalhlut-
verkið í framtíðarþrillernum Pin
Cusion sem hryllingsmeistarinn
John Carpenter leikstýrir. Þess
má geta að Carpenter áætlar á
þessu ári að leikstýra endurgerð
B-myndar frá 1954, The Creature
From the Black Lagoon.
Cronenberg og
M. Butteiily
Annar meistari liryllings-
mynda, David Cronenberg, er
jjessa daga að hefja gerð kvik-
myndarinnar M. Butterfly sem
gerð er eftír víðfrægu leikriti um
fránskan diplomat i Kína sem
fellur fyrir innlendii snót sem
reynist síðan vera karlmaður.
Það er Jeremy Irons sem leikur
diplomatinn. Þess má geta að
léikrit þetta var sýnt í Þjóðleik
húsinu í fyrra.
Lítið farið
fyrirFelixnum
Mjög lítið hefur verið sagt frá
Felix verðlaununum evrópsku
sem veitt vöru i deséraber síðást-
liðnum. Sjálfsagt er ein ástæðan
að engin íslensk kvikmynd var
með í tilnefningum þetta árið. En
tilað svala forvítni kvikmyndaá-
hugamanna má geta þess að it-
alska kvikmyndin n ladro di
bambiúi, sem leikstýrt er af
Gianni Amelio, var kosin besta
kvikmjmd ársins, franska leik-
konan Juliette Binoche, besta
leikkonan fyrir leik sinn í Les
Amants du Pont-Neuf og besti
leikari var valinn Matti Pell-
onpáá fyrir lehc sinn i La vie de
Bohéme sem leikstýrt er af Aki
Kaurismáki.