Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1993, Side 5
LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1993
5
Fréttir
KQjómleikaveisla DV og Samvinnuferða-Landsýnar:
Tina Turner, Rod
Stewart og Prince
-130 manna ferð fyrir lesendur D V til Þýskalands í september
DV og Samvinnuferðir-Landsýn
bjóða 130 lesendum DV til mikillar
hljómleikaveislu í Liineburg í Þýska-
landi dagana 3. til 6. september. Með-
al tónlistarmanna á hátíðinni verða
Tina Timier, Rod Stewart, Prince,
Joe Cocker, Chris De Burgh og
hljómsveitin Foreigner.
Þann þriðja verður flogið til Ham-
borgar klukkan níu um morguninn
og lagt af stað til Keflavíkur klukkan
eitt þann sjötta. Gist verður á Treff-
hótelinu sem staðsett er rétt fyrir ut-
an Hamborg en þaðan er um einnar
klukkustundar akstur á hljómleika-
svæðið sem er við flugvöllinn í Lune-
burg. Hótehð er mjög gott, þar eru 204
herbergi með baði, minibar, síma og
sjónvarpi. Á hótelinu er veitingastað-
ur, pöbb, bar, sána og heilsurækt.
Strax fyrsta kvöldið er farið á tón-
leikana en þeir heíjast kl. 18 og
standa til 22.30.
Daginn eftir eru tónleikarnir frá
12 á hádegi til 11 um kvöldið og einn-
ig þann fimmta. Sjötta september
verður síðan flogið heim.
Ferðin kostar 39.600 á mann í tví-
býh. Innifahð í verðinu er flug, akst-
ur tíl og frá flugvehi og á tónleikana
alla dagana, gisting með hlaðborðs-
morgunverði, íslensk fararstjórn og
flugvallaskattur. Fararstjóri verður
Magnús Kjartarisson tónhstarmað-
ur. -Ari
7 dagar eftir
24. júlí
Skráning í síma 96-27213
milli kl. 20.00-22.00
19.-22. júlf
KRAFTMIKILL
MITSUBISHI
L 200
Öflug 2,5 lítra dieselvél
nú með forþjöppu sem
eykur enn á töfra þessa
glæsilega bíls.
MITSUBISHI L 200 er
vandaður fimm manna
fjölnota bíll fyrir alla
sem vilja ekki láta veð-
ur og ófærð hindra sig
í starfi eða leik.
MITSUBISHI L 200
er sannur þjarkur til
vinnu og fjallaferða.
Þér eru allir vegir færir
í MITSUBISHI L 200.
MITSUBISHI
Fremstur meðal jafningja
Fjallalamb á Kópaskeri:
Unnið úr 200lonnum í fyrra
Gylfi Kiistjánssan, DV, Akureyii:
„Starfsemi Fjahalambs hefur
gengið alveg ágætlega, við gerðum
upp með hagnaði á síðasta ári og
árið í ár htur alveg þokkalega út,“
segir Pétur Valtýsson, verkstjóri
hjá Fjahalambi hf. á Kópaskeri.
Fjallalamh hóf starfsemi með
fuhvinnslu kjötskrokka og þá var
aðahega verið að framleiða fyrir
mötuneyti og fyrirtæki. Nýjum að-
ferðum var beitt við framleiðsluna
og ýmsar nýjungar þróaðar. Pétur
segir að vegna þess hversu mikil
vinna var lögð í framleiðsluna hafi
kjötið þótt dýrt og í dag sé Fjalla-
lamb komið meira inn á hinn heíð-
bundna markað, s.s. að framleiða
fyrir verslanir en þó sé alltaf eitt-
hvað um aö mötuneyti og'stofnanir
kaupi af þeim kjöt.
„Hér vinna um 10 manns að stað-
aldri, fleiri á vissum árstímum og
svo margfaldast fjöldinn í sláturtíð-
inni. Við unnum úr 160-170 tonnum
á síðasta ári og þetta fyrirtæki er
mjög mikilvægt fyrir fólkið sem
hér býr,“ sagöi Pétur Valtýsson.
Tilboðsdagar
hefjast mánudaginn 19. júlí.
40-70% afsláttur
Póstsendum
barnafataverslun
Laugavegi 12
Sími 62 16 82