Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1993, Side 26
Amma og afi Bjarkar Guðmundsdóttur söngkonu:
Hún hefur allt-
af verið sérstök
Björk var aöeins ellefu ðra þegar fyrsta plata hennar kom út. Hér er hún á þeim aldri með frægum poppur-
um eins og Pálma Gunnarssyni og syni, Björgvini Gíslasyni og Siguröi Karlssyni.
LAUGARDAGUJ117. JÚLÍ 1993
- segja þau Hallfríður Guðmundsdóttir og Gunnar Guðmundsson sem eru afar stolt afvelgengni bamabamsins
„Björk er alltaf litla stelpan okkar.
Okkur finnst auövitaö frábært
hversu langt hún hefur náö og er-
um mjög stolt af henni. Björk hefur
alltaf verið sérstök og farið sínu
fram,“ segja Hallfríður Guðmunds-
dóttir og Gunnar Guðmundsson en
þau eru amma og afi Bjarkar Guð-
mundsdóttur söngkonu sem er að
slá í gegn með sólóplötu sinni, Deb-
ut.
„Músíkin kom fram í Björk þegar
hún var smábarn. Hún sat oft við
píanóið hjá okkur sem barn og spil-
aði og söng. Fyrir ofan píanóið var
Kjarvalsmálverk og hún samdi lag
um það sem var á plötunni sem hún
gaf út ellefu ára,“ segja þau.
Talsverð músík er í báðum ætt-
um Bjarkar. Amma hennar, Hall-
fríður, söng lengi með Þjóðleikhús-
kórnum og raulaði oft með Björk
þegar hún var barn. „Mér fannst
gaman að heyra þegar hún tók
undir því ég veitti því alltaf athygli
hversu hreinan tón hún hafði. Hún
hélt lagi einstaklega vel. Auk þess
var Björk mjög fljót að læra texta,
jafnvel þó þeir væru á ensku og
hún kynni ekki orð í henni þá. Lög
úr Sound of Music hljómuðu oft í
útvarpinu og Björk kunni öll lögin
úr þeirri kvikmynd og söng þau
oft,“ segir Hallfríður.
Gaman að
skrýtnum fötum
„Björk hefur alltaf haft gaman
af að vera öðruvísi en aðrir og byrj-
aði snemma að klæðast skrítnum
fótum. Allt frá því hún var smá-
barn hefur hún verið sérstök og
mjög sjálfstæð," segir Hallfríður.
„Þegar Björk var lítil þá bjárgaði
hún sér alltaf og ef hún gerði eitt-
hvað sem ekki mátti þá kom hún
til mín og sagði frá því. Hún fór
ekki í felur með neitt,“ segir hún
ennfremur.
Gunnar segir að það hafi aldrei
verið neitt vandamál þegar barna-
afmæli hafi veriö því þá tók Björk
stjórnina í sínar hendur. „Hún
fann slæður og föt sem amma
hennar átti og klæddi krakkana í
alls kyns munderingar," segir
hann. „Hún var alltaf sérlega hug-
myndaríkt barn.“
Upphafið að ferli Bjarkar segja
þau hafa verið skemmtun í Foss-
vogsskóla en þar söng Björk við
mjög góðar undirtektir. Stuttu síð-
ar kom hún fram í útvarpsþætti
ásamt stjúpfóður sínum, Sævari
Árnasyni, sem spilaði undir hjá
henni. „Hún söng lagið I Love To
Dance og það var mjög vel gert hjá
henni,“ segir Hallfríður. „Upp úr
því söng hún inn á hljómplötu."
Söngkona
á gúmmískóm
Björk var í tónmenntaskóla og
lærði fyrst á blokkflautu en síðan
þverflautu. Hljóðfæraleikurinn
varð þó að sitja á hakanum fyrir
söngnum.
Strax sem unglingur byrjaði hún
að syngja með hljómsveitum eins
og t.d. Kuklinu. „Það voru eitt sinn
frægir tónleikar á Melavelli þar
sem Björk kom fram á gúmmískóm
og vakti það mikla athygli. Sjón-
varpsfréttamenn sýndu þennan
frumlega klæðaburð söngkonunn-
ar og kunningjar mínir eru enn að
tala um stelpuna á gúmmískónum.
Einn spurði mig um daginn hvern-
ig í ósköpunum stæði á því að stelp-
an á gúmmískónum gæti náð svona
langt - hún sem kynni ekki einu
sinni að syngja," segir Gunnar.
Þegar Björk var fimmtán ára
málaði Hallfríður málverk af henni
sem nú hangir í stofu þeirra hjóna.
Þar er Björk í litríkum fötum sem
amman segist hafa búið til án fyrir-
myndar. „Hún hefur alltaf verið
hrifin af fallegum fötum og þess
vegna hafði ég hana svona,“ segir
hún.
Man alltaf eftir
ömmu og afa
„Björk man alltaf eftir okkur og
hringir í okkur ef annað hvort okk-
ar á afmæli hvar í heiminum sem
hún er stödd. Þegar hún kemur til
landsins heimsækir hún okkur
alltaf. Ég hef verið mikill jassá-
hugamaður og hún fylgist vel með
hvaða plötur ég kaupi,“ segir
Gunnar. „Ég var t.d. mjög ánægður
með plötuna sem hún geröi með
Guðmundi Ingólfssyni jassara."
- Hvað teljið þið að gerist hjá Björk
í framhaldi af þessari velgengni
nú?
„Maður getur ekki svarað slíkri
spurningu en ég vona að hún þurfi
ekki að nota sömu aðferðir og Ma-
donna til að verða heimsfræg. Ég
held að Björk verði alltaf hún sjálf,"
segir Gunnar. Hallfríður bætir við
að hún treysti því að Björk muni
ekki láta eyðileggja sig. „Það reynir
mikið á að vera í sviðsljósinu, hún
missir t.d. frelsi til að ganga óáreitt
um götur. Mér þykir það verst.“
Gunnar telur árangurinn vera
frábæran hjá henni. „Það hefur
enginn íslendingur komist jafn-
langt. Með fullri virðingu fyrir
Kristjáni Jóhannssyni, sem ég dái
mikið, þá nær Björk til talsvert
breiðari hóps. Ef Björk heldur sér
áfram fyrir ofan tíunda sætið þá
er það frábær árangur hjá henni.
Síðan á hún eftir að fara í tónleika-
ferð og ég veit að platan mun selj-
ast vel í Bandaríkjunum."
- En hafið þið hlustaö á plötuna
hennar?
„Já, hún sendi okkur prufuupp-
töku af lögunum á kassettu
snemma í vor. Það er samt meira
gaman að hlusta á plötuna sjálfa
núna. Við erum hrifin af þessari
tónlist hennar og finnst undirleik-
ur Indveijanna frábær. Þetta er
öðruvísi en það sem hún var að
gera með Sykurmolunum," segja
amma og afi sem eru afar stolt af
árangri elsta barnabamsins.
-ELA
Hallfriöur Guðmundsdóttir og Gunnar Guðmundsson eru afi og amma söngkonunnar Bjarkar Guðmundsdótt-
ur sem nú hefur slegið rækilega í gegn. Málverkið, sem hangir fyrir ofan þau hjónin, málaði Hallfriður af
Björk þegar hún var fimmtán ára. DV-mynd Brynjar Gauti