Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1993, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1993, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1993 3 Fréttir Ölíushreppur: Málaferli vegna landamerkja við sjö aðila - Bláfiallasvæðið það sem deilt er um Guðmundur Hermannsson, sveit- arstjóri Ölfushrepps, hefur fyrir hönd hreppsins höíðað mál fyrir hér- aðsdómi Suðurlands á hendur Reykjavíkurborg, Seltjarnarnes- kaupstað, Kópavogskaupstað, Garðabæ, Bessastaðahreppi, Hafnar- Ijarðarkaupstað og eiganda jarðar- innar Vatnsenda í Kópavogi tíl að fá staðfest landamerki hreppsins í Ár- nessýslu. Landamerki Ölfushrepps og sveit- arfélaganna á höfuðborgarsvæðinu liggja um Bláfjallasvæðið og vill sveitarstjóri Ölfushrepps fá staðfest að landamerkin liggi frá Litla-Kóngs- felli um Stóra-Kóngsfell og Rauðu- hnjúka í Vífilsfell en þar eru meðal annars afréttarlönd með beit fyrir búpening auk mikilla skíðasvæða í Bláljöllum. Sáttafundir hafa átt sér stað milli stefnanda og forráðamanna sveitar- félaganna á höfuðborgarsvæðinu undanfarin ár en án árangurs. Vorið 1992 var sent bréf tíl sveitarfélaganna þar sem sjónarmið Ölfusinga voru reifuð en aðeins Reykjavíkurborg mótmæltí þeim kröftuglega og hefur nú Ölfushreppur brugðið á það ráð að fá landamerkjadeiluna leysta fyrir dómstólum. -GHS Skattgreiðendur á Vesturlandi: Soffanías Cecils- son skattakóngur - SparisjóðurMýrasýsluhæstfyrirtækja Soffanías Cecilsson, útgerðar- maður í Grundarfirði, er skatta- kóngur Vesturlands samkvæmt álagningarskrá 1993. Soffanias greiðir rúmar fimm milljónir í op- inber gjöld en hins vegar er hann í 17. sætí yfir hæstu greiðendur tekjuskatts í umdæminu. Sæmund- ur Sigmundsson, sérleyfishafi í Borgarnesi, er næsthæstí greiðandi opinberra gjalda, meö rúmar fjórar milljónir, og á hæla honum kemur Jón Þór Hallsson, endurskoðandi á Akranesi, með örlítíð lægri upp- hæð. Sparisjóður Mýrasýslu er sá lög- aðili sem greiöir hæstu gjöldin, rúmar 30 milljónir króna. Næst kemur Hvalur hf. með tæpar 27 milljónir og í þriðja sæti er Olíu- stöðin í Hvalfirði með um tuttugu milljónir. -bm Álagning í Reykjanesumdæmi 1993: íslenskir aðalverktak- ar með 700 milljónir - Hilmar Sölvason skattakóngur einstaklinga Samkvæmt álagningarskrá skattstjórans í Reykjanesumdæmi greiða íslenskir aðalverktakar rúmar sjö hundruð milljónir í opin- ber gjöld þetta árið. Vamarliðið er í öðm sæti með rúmar 130 milljón- ir og í því þriðja er Sparisjóður Hafnarfjarðar með 65 milljónir. Gjaldahæsti einstaklingurinn í umdæminu er Hilmar Rafn Sölva- son, málarameistari í Keflavík, en honum er gert að greiða rúmar 18 milljónir í opinber gjöld. Jón Ás- björnsson, heildsali á Seltjarnar- nesi, fær reikning upp á tæpar 14 milljónir og í þriðja sætí er Sigur- jón S. Helgason, verktaki í Kefla- vík, sem greiðir tæpar þrettán milljónir til hins opinbera. -bm Álagning á Austurlandi: Skipstjóri skattakóngur - Síldarvinnslan hæst fyrirtækja Það er skipstjórinn Bjöm Lúðvík Jónsson á Hornafirði sem hlýtur titilinn skattakóngur Austfirðinga 1993 en honum er þetta árið gert að greiða tæpar 12 milljónir króna í opinber gjöld. Starfsfélagi Björns og nafni, Björn Eymundsson, greiðir rúmri milljón minna eða tæpar ellefu milljónir og fast á hæla honum kemur Vilhjálmur Antoníusson útgerðarmaður með rúmar tíu milljónir. Síldarvinnslan í Neskaupstað er hæstí greiðandi lögaðila, með tæp- ar 20 milljónir í opinber gjöld. Kaupfélag Austur-Skaftfellinga kemur næst með tæpar sextán milljónir og í þriðja sæti er Hrað- frystihús Fáskrúðsfjarðar með rétt rúmar 13 millj ónir. -bm Olvaður byssumaður á Reykjavíkurflugvelli Töluveröur viðbúnaður lögreglu var á Reykjavikurflugvelli þegar til- kynnt var um að maður gengi þar um sveiflandi byssu. Þegar lögreglan kom á staðinn reyndist byssumaðurinn vera ölvað- ur maður sem var að koma af þjóðhá- tíðinni í Vestmannaeyjum og hafði hann fest kaup á nokkuð raunveru- legriplastbyssu. -pp VERSLUNIN HVERFISCÖTU103 SÍMI62S999 ( 4X15 W) MEÐ 21% _ AFSLÆTTI: . 3t)««)8«r stgr OG GEISLADISKUR FYLGIR - ANNARS KR 50.500,- FORSaEDnHUNN AB HUÖMBÆJARHÁTIÐINNI AÐEINS ÞESSAVIKU FÆST ÞESSI flö PIONeŒR' ÚTVARPS- DEH,;o GEISLASPILARI, BRAVO PLUS MOTOROLA truustur U iiKÍIidnr kr.14,706, stgr. Stórir og skýrir stafir Hægt er að velja tónmerki eða titrara Rafhlaða endist í 2700 Klukka skráir hvenær klukkustundir skilaboð bárust 16 númera minni Klukka er á skjánum Minnið helst inni þó Hægt er að þurrka einstök slökkt sé á tækinu númer út úr minninu POSTUR OG SIMI Söludeildir I Ármúla 27, Kirkjustræti, Kringlunni og á póst og símstöðvum um land allt. líi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.