Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993
Fréttir
Eldsvoðinn að Nautabúi í Vatnsdal í desember síðastliðnum
Bóndinn hlaut 8 mánaða
fangelsi fyrir íkveikju
- var einn á bænum og eldur talinn hafa komið upp á tveimur stöðum
Ábúandinn að Nautabúi í Vatnsdal
í A-Húnavatnssýslu hefur verið
dæmdur til 8 mánaða fangelsisvistar,
þar af 5 mánuði skilorðsbundið, fyrir
brennu eða stórfelld eignaspjöll, með
því að hafa lagt eld að tveimur stöð-
um á jarðhæð íbúðarhússins á jörð-
inni þann 15. desember síöastliðinn.
Dómurinn var byggður á því að
rannsóknaraðilar töldu ljóst að elds-
upptök hefðu orðið á tveimur stöð-
um, enginn annar verið til staðar en
ábúandinn og að ekki væri talið
koma til greina að kviknað hefði í
út frá rafmagni. Hjörtur 0. Aðal-
steinsson, settur héraðsdómari, kvað
upp dóminn í vikunni. Dómnum hef-
ur verið áfrýjað til Hæstaréttar.
Slökkviliðið á Blönduósi var um
þrjár klukkustundir að bijótast að
bænum sökum ófærðar og veðurs
þegar ljóst varð að kviknað hafði í
bænum að kvöldi 15. desember. Eftir
að slökkviliðsmenn komu á staöinn
tókst þeim, þrátt fyrir afleitar að-
stæður, að ráða niðurlögum eldsins
áöur en hann braust upp úr þaki
hússins. Tjónið var engu að síður
metið á 3,6 milljónir króna.
Bóndinn skýrði svo frá fyrir dómi
að hann hefði verið að koma inn í
bæinn frá hesthúsum um kvöldmat-
arleytið þegar hann fann mikið reyk-
jarkóf koma á móti sér. Hann kvaðst
þá hafa farið inn, gripið sjónvarps-
tæki, farið með það út í bifreið sína
og bakkað henni frá. Bóndinn sagðist
síðan hafa farið aftur að húsinu og
opnað en þá hefði eldur komið á
móti sér, hann lokað aftur, reynt aft-
ur að komast inn en það ekki tekist
fyrr en eftir nokkra stund er hann
kastaði snjó inn í hohð. Þá hefði hann
farið upp á loft en engan eld séð þar
en mikinn reyk.
Maðurinn kvaðst síðan hafa farið
út og talið eldinn slokknaðan. Eftir
það fór hann að nærliggjandi bæ þar
sem hann greindi bónda frá því að
kviknað hefði í og hann talið sig hafa
slökkt aUan eld. Hann hefði síðan
þegið matarbita enhaldið síðan aftur
með nágranna sínum að bænum en
þá hefði eldur verið kominn upp aft-
ur. Hefði þá verið hringt á slökkviiið-
ið á Blönduósi.
Ábúandinn að Nautabúi neitaði
ávaRt sakargiftum um að hafa sjálfur
lagt eld að bænum og kvaðst telja að
kviknaö hefði í út frá rafmagni. Þeg-
ar eldsvoöinn átti sér stað var fast-
eignin vátryggð en innbúið, sem var
í eigu ábúandans, var ekki vátryggt.
Hagnaður meðalheimilis ef Rátið
værí af stuðningi við landbúnað
— Lækkun heildarútgjalda heimila
.1
10% 25% 50% 75% 100%
Stöplaritið sýnir hlutfallslegan hagnað meðalheimilis et stuðningur við land-
búnað yrði minnkaður um 10% til 100%. Stuðningurinn er reiknaður með
því að leggja saman framreiknaða rikisstyrki ársins 1988 og kostnað neýt-
enda við innflutningshöft. í tölunum er gert ráð fyrir aö skattar lækki sem
svarar lækkuðum ríkisstyrkjum.
Uppstokkun í landbúnaðarkerfinu:
Aðilar vinnumark-
aðarins áhuga-
lausar risaeðlur
- segirGuðmundurÓlafssonhagfræðingur
„Þaö er með óUkindum að risaeðl-
umar tvær, Alþýðusambandið og
Vinnuveitendasambandið, skuUekki
hafa áhuga á mikUvægustu hags-
munum umbjóðenda sinna - land-
búnaðarmálunum,“ segir Guðmund-
ur Ólafsson hagfræðingur. Hann seg-
ir að menn gætu sparað sér 18 til 20
iniUjarða í landbúnaðarkerfinu og
um minna muni á erfiðum tímum.
í nýútkominni landbúnaöar-
skýrslu Hagfræðistofnunar Háskól-
ans, sem sagt hefur verið frá á síðum
DV, segir að stuðningur íslenskra
neytenda við landbúnaðinn jafngildi
um 255 þúsund kr. á hveija fjögurra
manna fjölskyldu. Ef spara mætti
þessa upphæð samsvarar það lækk-
un á matarreikningum heimilanna
um rúm 40%.
Alþýðusamband íslands mælir aUs
ekki með óheftum innUutningi land-
búnaðarvara nú. Þetta kom fram hjá
Guðmundi Gylfa Guömundssyni,
hagfræðingi ASÍ, í samtali viö DV.
Sagði hann jafnframt aðspurður að
ASÍ myndi skoða niðurskurð í land-
búnaðarkeríínu í ljósi atvinnu-
ástandsins, jafnvel þótt í ljós kæmi
að landbúnaður hér nyti meiri
styrkja en í öðrum löndum. „Tals-
verð hagræðing er framundan í ís-
lenskum landbúnaði og verðlækkan-
ir hafa orðið í Uestum greinum. Sú
þróun er að okkar mati í nokkuð
góðum farvegi.“ Guðmundur GylU
sagði þó Alþýðusambandið leggja
áherslu á að hagræðingu í landbún-
aði yrði hraðað.
„Landbúnaðurinn þarf að lækka
framleiðslukostnaðinn tíl að mæta
þeirri samkeppni sem fyrirsjáanleg
er. Mjólkuriðnaðurinn mun tÚ dæm-
is standast illa samkeppni ef menn
taka sér ekki tak,“ sagði Guðmundur
Gylfi.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segir UUa
hagræðingu hafa átt sér stað í land-
búnaði; aðeins tekjulækkun hjá
bændum. „Það þarf algera uppstokk-
un,“ segir Jóhannes í Ijósi skýrslu
Hagfræðistofnunar. -DBE
Lést í vinnuslysi
37 ára karlmaður lést í vinnuslysi skip og var maðurinn látinn er að
í Grundarfirði um klukkan fimm í var komið.
gær. Slysið vildi til með þeim hætti Maðurinn var íjölskyldumaður.
að lyftari, sem hann ók, féll niður í -pp
Þorsteinn Ingólfsson ráðuneytisstjórí:
Bandaríkjamenn lögðu
fram aðlögunartillögur
- íslenskum aðalverktökum boðið að yfirtaka viðhaldsreksturinn
„Á þessum fundi komu fram tillög-
ur um aðlögun á starfsemi Varnar-
hðsins af hálfu Bandaríkjastjórnar
sem verða skoðaðar hér og síðan
fjallað sameiginlega um á næstu vik-
um. Ég get því miður ekki sagt um
hvað þessar tillögur fiaUa þar sem
samþykkt var að gefa ekki neinar
upplýsingar um þær meðan ekki
hefði verið fiallað um þær í ríkis-
stjóm," segir Þorsteinn Ingólfsson,
ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu-
neytinu.
Samkvæmt heimildum DV hafa
Bandaríkjamenn boðið íslenskum
aðalverktökum aö taka yfir daglegan
viðhaldsrekstur á Vellinum en 100
hermenn hafa sinnt honum fram að
þessu, auk þess sem 20 hermenn hafa
sinnt viðhaldi á næturvakt. Sam-
kvæmt sömu heimildum er búist við
að samningur íslenskra aðalverk-
taka verði framlengdur en hann
rennur út 4. maí 1995 og að þvottahús
hermanna verði lagt niður. Ef af
verður má búast viö að nokkrar ís-
lenskar konur missi starfið. -
Þorsteinn Ingólfsson ráðuneytis-
stjóri segist ekki geta staðfest að ís-
lenskum aðalverktökum hafi verið
boöið að yfirtaka viðhaldsreksturinn
og Róbert Trausti Ámason sendi-
herra segir að hugmyndin eigi ekki
rætur að rekja til íslensku eða banda-
rísku samráðsnefndanna en hugsan-
legt sé að hún eigi upptök í íslensku
viðskiptalífi. Samkvæmt heimildum
blaðsins voru Arnór Siguijónsson og
fleiri íslendingar á fundi á Keflavík-
urflugvelh í gær en ekki er vitað
hvort þetta bar á góma þar.
Þorsteinn hefur forystu fyrir ís-
lenska samráðshópnum sem ræddi
við Bandaríkjamenn um starfsemi
herstöðvarinnar í Keflavík í gær.
Hópur Bandaríkjamanna frá stefnu-
mótunar- og áætlanadeild yfirflota-
stjórnar Atlantshafsbandalagsins í
Virginíu kom th landsins nýlega til
viðræðna við íslensk stjómvöld.
„Þessar tihögur em lagðar fram
sem umræðugmndvöllur og þær
verða kynntar fyrir ráðherrum á
næstunni og tekin afstaða til þeirra
áður en samráðinu við Bandaríkja-
menn verður haldið áfrarn," segir
hann.
-GHS
am
Sundkappinn frá Akranesi, Krisfinn Einarsson, þreytir Helgusund i dag.
Kristinn Einarsson syndir Helgusund:
Óskaveðrið er meðvindur
„Ég legg af stað úr Geirshólma í
átt að Hvalstöðinni kl. 15 í dag og
reyni að synda í Helguvík. Þetta eru
1,6 kílómetrar. Við vorum fiórir
skráðir til að byija með en núna er
ég einn eftir,“ segir Kristinn Einars-
son, sundmaöur frá Akranesi, sem
hefur áður synt frá Gmndartanga
inn í Hvalfiörð og frá Viðey til
Reykjavíkur.
„Ég er alls ekki í neinni æfingu og
er að auki 15 kílóum léttari en þegar
ég æfði sundið á fuhu og er því illa
einangraður. Ég ætla samt að prófa
þetta því Helga var ekki í neinni
æfingu heldur þegar hún synti með
bamið á bakinu.“
Kristinn hefur lagt í ýmsar þol-
raunir í sjósundi, meðal annars reynt
Drangeyjarsund.
Geirshólmi er hár klettahólmi í
innanvérðum Hvalfirði og er kunnur
úr Haröar sögu og Hólmverja og
Sturlungasögu. Þaðan synti Helga
jarlsdóttir, kona Harðar Grímkels-
sonar með tvo syni þeirra, annan á
bakinu og hinn við hlið sér, á land
og nefnist þar síðan Helguvík.
„Óskaveðrið er hvass vindur í bak-
ið,“segirKristinn. -em
Stuttar fréttir
Sódóma i Montreal
Kvikmyndin Sódóma Reykja-
vík tekur þátt í kvikmyndahátíð
i Montreal í Kanada um næstu
mánaðamót.
Bæjarráð Egilsstaða hefur sent
Ðavið Oddssyni bréf
hann er hvattur til aö
RARIK
staða.
verði
þar setn
stíga þau
skref sem þarf til að höfuðstöðvar
fluttar til
Feröa-
Ferðamálaráðstefha
málaráðs verður haldin
vatnssveit 16. og 17. september
nk. og áhersla iögð á gæðamál.
í Mý-
Vigdís í Belgiu
Vigdís Finnbogadóttir verður
viðstödd útfór Baldvins Belgtu-
konungs sem fram
í
fer
í Brussel
íslenskir fiárhundar og gold
en retriever
fara með
munu
hundahlutverkin í kvikmyndinni
um Emil og Skunda samkv. Voff!,
fréttablaði um hunda.