Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993 9 I>V Lögmaður LíkMstuvinnustofimnar í Kirkjugarðadeilunni: Fréttir Otrúleg vinnubrögð í naf ni heilagleikans - alrangt um samantekin ráð presta, segir Jón Dalbú Hróbjartsson „Þegar heilagleikinn er meö í spil- inu haida menn að þeim líöist allt. Við höfum nokkur dæmi um ótrúieg- ustu vinnubrögð í nafni heilagleik- ans og vitni að þeim. Þaö er ótrúlegt hvemig kirkjunnar menn hafa hegð- að sér í þessu máh. Við kreíjumst þéSs aö Samkeppnisstofnun grípi í taumana og kanni hvort prestar hafi bundist samtökum um að sniðganga Líkkistuvinnustofu Eyvindar Árna- sonar en ýmislegt bendir til að þar sé sitthvað óeðlilegt á ferðinni. Við höfum fjölmörg dæmi þess að prestar hafi beint syrgjendum frá Líkkistu- vinnustofunni til Kirkjugarðanna, jafnvel eftir að viðskipti hafa komist á,“ segir Hreinn Loftsson héraðs- dómslögmaður. Hreinn hefur sent Samkeppnis- stofnun bréf fyrir hönd umbjóöanda síns, Líkkistuvinnustofu Eyvindar Ámasonar, þar sem þess er krafist að stofnunin láti'fara fram athugun á starfsemi Kirkjugarðanna. í bréf- inu kemur fram að prestar hafi bundist samtökum um að beina við- skiptum frá Líkkistuvinnustofunni til Kirkjugarðanna og að prestar þiggi styrki frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæmis. „Forráðamenn Kirkjugarðanna hafa í engu sinnt aðfinnslum Versl- unarráðs og Verðlagsstofnunar. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hef- ur reynt að fá forráðamenn Kirkju- garðanna til aö fara að lögum og skilja starfsemi útfararþjónustunnar frá lögboðinni starfsemi Kirkjugaröa en það hafa þeir ekki gert þrátt fyrir ítrekuð tilmæli," segir Hreinn. „Það er alrangt að prestar hafi samantekin ráð um að beina við- skiptum frá Líkkistuvinnustofunni til Kirkjugarðanna. Prestar reyna að vera hlutlausir og segja aðstandend- um frá þeim aðilum sem sjá um þessa hluti. Hitt er uppspuni," segir séra Jón Dalbú Hróbjartsson, dómpró- fastur í Reykjavík. „Við verðum að skoða máhð og heyra sjónarmið beggja aðha. Lögin eru númer eitt í þessu og maður hlýt- ur að gera ráð fyrir að prestastéttin fari að lögum. Maður getur ekki ætl- að annað nema maður reyni annað. Ég get ekki sagt neitt annað að svo komnu máli,“ segir Georg Ólafsson, forstjóri Samkeppnisstofnunar. -GHS íslenski f áninn bara saumaður á Hofsósi Sigurjón H. Geirsson, Guðjón Jónsson og Heimir Hansson í loönubræösl- unni á Siglufirði. DV-mynd gk Starfsmenn 1 loðnubræðslunni á Siglufirði: Ágæt vinna en þó leiðinleg til lengdar Gylfi Kristjánsson, DV, Akueyri „Okkar vinna felst að vendegu leyti í mælaálestri og ef eitthvað bUar þarf að gera við það. Þetta er ágæt vinna en getur þó verið leiðinleg tU lengdar,“ sögðu þeir Sigurjón H. Geirsson, Guðjón Jónsson og Heimir Hansson í loðnubræðslunni á Siglu- firði en þeir titia sig „kyndara- taekna". í loðnubræðslunni á Siglufirði hef- ur verið nóg að gera undanfarið og þar ganga menn vaktir, vinna 8 tíma og eiga síðan frí aðra 8 tíma. Verk- smiðjan hefur verið keyrð á fuUum afköstum undanfarið og þar eru braedd 1000-1200 tonn á sólarhring. „Ég vildi nú frekar vera úti á sjó eins og ég hef verið síðan um ferm- ingu. Þetta eru fyrstu klukkutímarn- ir sem ég vinn í landi en maður er víst að verða gamah og fer því í land,“ sagði Guðjón og bætti við aö til að svala þránni eftir sjónum ætti hann trUluhom til að bjarga sér á. Þeir félagar sögðu óvíst með fram- hald vinnunnar í loðnubræðslunni, hún yrði meðan loðna veiddist og henni væri landað á Sigló en annars væri atvinnuöryggið ekki mikið. og rekur Pijónastofuna, Hofsósi, sem er eini staðurinn á landinu þar sem íslenski fáninn er saumaður. Þegar DV leit inn hjá SvanhUdi var hún að leggja lokahönd á frágang nokkurra fána, ganga frá endum og snyrta fánana áður en þeir færu í sölu. Handtökin vom greinUega þaulæfö enda era að verða þrjú ár síðan SvanhUdur tók við framleiðslu á íslenska fánanum. „Ég leigi saumastofuna af Kaupfé- lagi Skagfirðinga sem haföi rekið hana í 18 ár og ætlaði að loka henni. Ég sá þama tækifæri og greip það samstundis. Þetta er ekki stór „bis- ness“ en gengur þó ekki verr en ég reiknaði með fyrirfram." SvanhUdur segist sauma um 600 fána á ári og Uestir þeirra era ís- lenskir fánar. Þó er nokkuð um fyrir- tækjafána og einnig eitthvað um fána annarra þjóða. íslensku fánamir eru í 6 stærðum, allt frá 70x50 cm og upp í 3x2 metrar. „Ég sel talsvert af fánunum beint frá mér en einnig era þeir seldir í kaupfélögum víða um landið og á höfuðborgarsvæðinu, t.d. í Húsa- smiðjunni, BYKO og hjá Elhngsen. Reykvíkingar geta því auðveldlega náð sér í fána,“ segir SvanhUdur. Hún segir að efni í íslensku fánun- um sé að mestu leyti polyester, inn- Uutt frá Bretlandi. „Hér áður fyrr keypti ég efnið frá verksmiðjum SÍS á Ákureyri en svo fór Ula með þann rekstur eins og allir vita,“ sagði SvanhUdur. Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn: „Ég er ekkert lærð í þessu, æth það megi ekki bara segja að ég sé nátt- úrabarn þegar saumar era annars vegar og svo er maður auðvitað að bjarga sér með þessari vinnu,“ segir SvanhUdur Guðjónsdóttir, en hún á Svanhildur Guðjónsdóttir að leggja lokahönd á einn íslenskan fána áður en hann fer í sölu. DV-mynd gk Breytingar á gæslu að Litla-Hrauni: Sérstakur fangavörður sér um innra eftirlit - eftirlitsbúnaður sennilega settur upp „Nú mun sérstakur starfsmaður í fangelsinu hafa það hlutverk að sinna öryggismálum dags daglega," sagði Haraldur Johannessen fangels- ismálastjóri í samtali við DV en í gær sendi fangelsismálastofnun frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að fiindur hafi verið haldinn með yfir- mönnum fangelsisins að Litla- Hrauni. Farið var yfir aUa þætti stroks þriggja fanga frá fangelsinu þann 28. júh og verður dómsmálaráð- herra gerð nánari grein fyrir máhnu á næstu dögum. Haraldur segir að til þessa hafi enginn einn ákveðinn starfsmaður sinnt öryggismálum heldur þau ver- ið á hendi allra fangavarða en nú muni einn maður „sjá til þess að fangar séu þar sem þeir eigi að vera, að ekki sé í gangi tilraun til stroks, verkfæri séu á sínum stað og svo framvegis." Haraldur segir ennfremur að vænt- anlega verði eftirhtsbúnaði komið upp strax en þegar ný fangelsisbygg- ing hti dagsins ljós þá leysist ákveðin vandamál í sambandi við öryggis- mál. Það verður í fyrsta lagi í sept- ember sem ljóst verður hvort hún muni rísa eða viðbygging við gamla fangahúsið en ljóst er að hvor hug- myndin sem verður ofan á mun aUt eftirht verða auðveldara þar sem deUdaskiptjng mun verða tekin upp. Aðspurður sagði Haraldur að til- kynningarþátturinn heföi einnig verið ræddur á þessum fundi, það er aö nauðsynlegt væri að koma á ákveðnum reglum um hvemig bæri að tilkynna lögreglu um strok fanga en Magnús Einarsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn segir að tilkynning um flóttann hafi borist of seint. Nauð- synlegt heföi verið að fá vitneskju um flóttann fyrr svo hægt hefði verið að gera viðeigandi ráðstafanir strax. Þá var einnig rætt um það á fundin- um hvemig og hvort tilkynna bæri fómarlömbum fanga sem stijúka um flóttann. Engar fastmótaðar ákvarð- anir vora teknar í þeim efnum enda ekki í verkahring fangelsismála- stofnunar að fjaUa um það. Haraldur segir þó fuUa ástæðu að huga að þessu atriði samfara öðrum málum. -PP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.