Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993
Dagur í lífl Jörundar Guðmundssonar tívólístjóra:
Akureyri
„Við hjónin vöknuðum um áttaleytiö á
þriðjudagsmorgun og byrjuðum daginn
eins og vanalega á því að skella okkur í
bað. Síðan fór ég inn á tívólísvæðið okkar
hér á Akureyri. Ásamt öðrum tívólíeig-
andanum tókum við saman afrakstur
helgarinnar og fórum síöan saman á
sýslumannsskrifstofuna á Akureyri og
greiddum þar skatta og gjöld. Við vorum
ánægðir með aðsóknina um verslunar-
mannahelgina. Við framlengdum síðan
dvöl okkar í samvinnu við bæjarstjóra og
sýslumann til næsta sunnudags.
Þar sem veðrið er svo gott sem raun ber
vitni á Akureyri ákváðum við að vera
áfram frekar en að hanga og bíða niðri
við Sundahöfn í Reykjavík eftir skipinu.
Þegar það var búið þurfti ég að fara að
leita að legu í hjól á einum vagna okkar
vegna þess að hjólaiega brotnaði undan
honum á leiðinni norður.“
Matur í mannskapinn
„Svo þurfti ég aö fara að útrétta fyrir
mannskapinn, kaupa það sem hann þurfti
til viðurværis eins og ailir þurfa náttúr-
lega. Ég þurfti einnig að sinna ýmsu öðru
smálegu. Ég þurfti meðal annars að setja
inn auglýsingu fyrir tívólíið á Bylgjuna
og fara til Rafveitu Akureyrar og borga
þar rafmagnsreikning.
Síðan þurfti annar eigandi tívólísins að
fara ásamt fjölskyldu sinni úr landi og ég
varð að koma þeim út á flugvöll og sjá til
þess að þau kæmust héðan með flugvél
Flugfélags Norðurlands til Keflavíkur-
flugvallar. Þaðan fóru þau út.
Svo þurfti ég sjálfur að fara með bflinn
minn á verkstæði, það var eitthvað að
pústkerfmu sem ég var ekki hress með.
Það reyndist samt sem áður vera bara
smámál sem tók engan tíma að gera við.
Fyrri hluti dagsins fer að jafnaði í svona
smásnatt sem tekur töluverðan tíma. Svo
opnuðum við-tívólíið klukkan 16 í gær og
við vorum að til klukkan 23 en þá var
þetta húllumhæ nú búið.“
Frábærmatur
„Við fórum að lokinni vinnu á veitinga-
staðinn Greifann sem er mikill ágætis-
staður. Þar borðuðum við sérstaklega góð-
an mat. Ég fékk mér grillaða lúðu sem er
það besta sem ég hef nokkurn tímann
smakkað af fersklúðu. Konan fékk sér
lambalundir og hún var jafnánægð með
sinn mat. Þetta var gríðarlega vel útlátið,
góður matur og umhverfi og innréttingar
allar á staðnum eru með þeim huggulegri
sem maður sér.
Við lukum síðan deginum á kránni „Við
Pollinri'. Hún er í gamalli vélsmiðju sem
ég man vel eftir með öðru úthti þegar ég
dvaldi hér sem strákur á Akureyri. Ég
hafði mjög gaman af því að sjá þær breyt-
ingar sem orðið höíöu á staðnum. Þar
vorum við rúman hálftíma áður en farið
var heim og gengið til náða. Það má segja
að þetta hafi verið dæmigerður dagur fyr-
ir tívólíeiganda."
Jörundur Guðmundsson hefur nóg að gera þessa dagana við tívólírekstur á Akureyri.
Framlengdi
dvölina á
Finniir þú fimm breytingai? 217
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun: Aiwa vasadiskó
að verðmæti 4.480 krónur frá
Radíóbæ, Ármúla 38.
2. verðlaun: Fimm úr-
valsbækur að verðmæti kr.
3.950. Bækumar, sem eru í verð-
laun, heita: 58 mínútur, Sonur Ott-
ós, Kolstakkur, Leikmaðurinn og
Víghöfði. Bækumar em gefnar út
af Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 217
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uðustu og fimmtándu getraun
reyndust vera:
1. Ástmar Karl Steinarsson,
Reykjavíkurvegi 68,222 Hafn-
arfjörður.
2. Svandís Bára Steingrímsd.,
Kveldúlfsgötu 25, 310 Borgar-
nes.
„Get ég þá núna fengið bréfin til baka?l“
Nafn:
Heimilisfang:
Vinningarnir verða sendir
heim.