Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993 23 Kristín List Malmberg, Álfholti 2c í Hafnarfirði, tók þessa skemmtilegu mynd af dóttur sinni, Elísabetu, þegar þær mæðgur voru á ferðalagi í Finn- landi. „Viljið þið vera memm,“ sagði Elisabet litla við endurnar. Skemmtilegasta sumarmyndin: Hugmynda- flugið látíð ráða - og útkoman verður bráðskemmtileg Sumarmyndakeppni DV og Kodak hefur aldeÚis tekið við sér því tugir mynda berast í keppnina á hverjum degi. Margir eru búnir að vera í sum- arfríi og hafa fengið skemmtilegar myndir úr framköllun sem sjá má af þeim myndum sem okkur berast. Enn er tími fyrir þá sem eiga eftir að fara í frí eða þá sem eiga eftir að koma filmunni í framköllun því skilafrestur er til 15. september. Skemmtilegasta sumarmyndin getur verið hvernig sem helst og hug- myndaflugið á endilega að ráða ferð- inni. Það eina sem þarf síðan að gera er að senda myndina í keppnina. Athuga verður að merkja hana vel með nafni, heimilisfangi og síma- númeri. Oft getur verið skemmtilegt að gefa myndinni heiti og einnig að gefa upp nöfn á þeim aðilum sem skreyta myndina. Það er til mikils að vinna í sumar- myndakeppninni. Keppt er um glæsileg verðlaun í fjórum flokkum. Fyrstu verðlaun, fullkomin ljós- myndavél af gerðinni Canon EOSIOO að verðmæti kr. 69.900, verða veitt fyrir eina staka mynd, fyrir þrjár bestu myndirnar úr sumarleyfi inn- anlands og þrjár bestu úr ferðalögum utanlands verða veitt ferðaverðlaun. Þá eru sérstök unglingaverðlaun í boði fyrir fjórar myndir en þau eru Prima 5 ljósmyndavélar. Dómnefnd keppninnar er skipuð Gunnari V. Andréssyni og Brynjari Gauta Sveinssyni, ljósmyndurum DV, og Gunnari Finnbjörnssyni frá Kodak. Myndirnar, sem hér birtast, eru aðeins brot af þeim fjölmörgu sem borist hafa í keppnina. Lesendur ættu að sjá að hver og einn getur tekið skemmtilega sumarmynd, það þarf ekki atvinnumenn til þess. Utanáskriftin er: Skemmtilegasta sumarmyndin DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Hér er Thelma Dögg í blómahafi en það var Guðbjörg Sigurðardóttir, Hraunbæ 172, Reykjavík, sem tók myndina. „Myndin sem ég sendi er af kærustunni minni, Guðrúnu Gísladóttur. Mynd- in var tekin í yndislegu veðri á Rauðasandi," skrifar Ágúst H. Guðmunds- son, Heiðarlundi 6d á Akureyri, sem tók þessa sérstöku mynd. Ásta Steingerður Einarsdóttir, Smáragrund i Borgarfirði, tók þessa mynd af ungum sveini sem heitir Elvar Freyr og verður fimm ára þann 15. ágúst nk. „Að drullumalla er með því skemmtilegasta sem hann gerir og er þá ekki verið með neitt hálf- kák, eins og myndin sýnir. Móðir hans gat ekki stillt sig um að festa á filmu þessa fögru sjón,“ var skýr- ingin með myndinni sem er óneitan- lega skemmtileg. „Vinir í Eyjum“ heitir þessi fallega mynd af Elisu og Gugga, sem er heimalningur. Það var Guðmunda Bjarnadóttir, Strembugötu 8 í Vest- mannaeyjum, sem sendi myndina. imiMll §Jg/agss R ALLYKROSSKEPPNI verður haldin á brautinni við Krýsuvíkurveg SUNNUDAGINN 8. ÁGÚST KL. 14.00. Tekst Guðbergi að stökkva yfir 5 bíla? Þeir voru 4 síðast! Frítt fyrir 12 ára og yngri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.