Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Side 20
20 LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993 Kvikmyndir Hér er Mitch að ræða við fulltrúa FBI. Fyrirtækið í lok júní var frumsýnd í Banda- ríkjunum myndin The Firm, sem gerð er eftir samnefndri metsölubók John Grisham’ Myndin hefur hlotið góða dóma, en fallið í skuggann fyrir stórmyndunum Jurassic Park, Cliff- hanger og Last Action Hero. Hins vegar er búist við að myndin verði sýnd nokkuð lengi þannig að þegar upp er staðið ætti The Firm að vera ein af vinsælustu myndunum í ár. Þetta er líka í góðu samræmi við hinn gífurlega mikla fjölda sem hefur lesiö áðurnefnda bók, sem var ein vinsæl- asta lesning milljóna manna um margra mánaða skeið eftir að hún kom út 1991. The Firm fylgir þó ekki alveg bók- inni. Til að gera handritið sem best úr garði voru tilkvaddir þrír góðir handritahöfundar, þeir David Rabe, Robert Towne og David Rayfiel. Þeir hafa kryddaö söguþráðinn með dálít- illi dramatík til að lífga upp á mynd- ina. Ungur og efnilegur The Firm fjallar um ungan eftir- sóttan lögfræðing að nafni Mitch McDeere, sem er nýútskrifaður frá Harvard háskólanum með toppein- kunnir. Honum berast mörg at- vinnutilboð frá virtum og þekktum fyrirtækjum en Mitch ákveöur í lok- in að taka tilboði frá lítilli og lítt þekktri lögmannsstofu í Memphis sem býður honum gull og græna skóga. Þótt eiginkona Mitch, sem er kennari að mennt, telji að eitthvað óhreint sé í pokahominu stenst Mitch ekki freistinguna þegar hann sér fram á að geta komið undir sig fótunum íjárhagslega á nokkrum árum. Lögfræðistofan gerir strangar kröfur til sinna manna, þeir verða að vera fiölskyldumenn, vel klæddir og vinna eins og skepnur. Eigendur stofunnar líta á fyrirtækið meira sem eina fiölskyldu þar sem allir takast sameiginlega á við vandamálin þegar þau koma upp og uppskera líka ár- angurinn sameiginlega þegar vel Umsjón Baldur Hjaltason gengur. Mitch aðlagast fljótlega þessu nýja vinnuumhverfi og hellir sér strax út í þrotlausa vinnu. Dularfull dauðsföll En þegar tveir af lögfræðingum fyrirtækisins láta lífið í Cayman Is- lands fer Mitch að gruna að ekki sé afit með felldu. Hann fer að kanna málið og kemst aö því að á undan- fómum ámm hafa 4 lögfræðingar stofunnar látist á bestá aldri. Þetta getur varla verið tilviljun og allt bendir því til þess að fyrirtækið teng- ist á einhvern máta þessum dauðs- fóllum. Lögfræðingarnir hafi að öll- um líkindum verið myrtir. Mitch fær gmn sinn staðfestan þegar dóms- málaráöuneyti Bandaríkjanna hefur samband við hann og biður um að- stoö við að rannsaka lögmannsstof- una, sem það gmnar að stundi um- fangsmikil skattsvik fyrir viðskipta- vini sína. En þetta er ekki auðveld ákvörðun því enginn hefur hætt hjá lögmannsstofunni í sögu hennar, þ.e. lifandi. Þegar það fer síðan að hitna í kolunum hjá Mitch eykst spennan og meginhluti myndarinnar fiallar um leik kattarins við músina þar sem auðvitað músin hefur betur í lokin. Góður leikstjóri Þaö er gamall og reyndur leikstjóri við sfiómvölinn í The Firm. Það er Sidney Pollack, sem hér fer á kost- um. Hann beitir jafnvel stundum stíl- brögðum Hitchcocks til að halda at- hygli áhorfenda vakandi þær rúm- lega tvær og hálfu klukkustund sem sýning myndarinnar tekur. Kunnug- ir hafa líkt The Firm við eina af eldri myndum Pollacks, sem var mjög vin- sæl á sínum tíma, eða Three Days of the Condor. Þegar litið er yfir eldri myndir Sidney Pollack má finna titla eins og They Shoot Horses Don’t They (1969), Jerimiah Johnson (1972), The Way We Were (1973) og Tootsie (1982). Það var samt sem áður mikil- vægt fyrir Pollack að The Firm skyldi heppnast vel vegna þess aö síðasta mynd hans, Havana, með Sean Connery í aðalhluverki, var ein sú versta sem hann hefur gert og vinsældir hennar eftir því. En með The Firm virðist Pollack vera kom- inn aftur á rétta sporið. Passar í hlutverkið Líklega eru flestir sem hafa lesið bókina sammála að varla hafi verið hægt að fá betri leikara í hlutverk Mitch en Tom Cruise, nema ef til vill Robert Redford fyrir 25 árum. Tom virkar sléttur og felldur eins og hinn framagjami ungi lögfræðingur á að líta út. Hann hefur líka þetta bamslega sakleysi yfir sér sem gerir myndina enn trúverðugri í byijun. Tom Cruise á því stóran þátt í því hve myndinni hefur verið vel tekið. Hann er heldur enginn nýgræðingur því þótt hann sé ungur að árum á hann að baki vel yfir tug mynda og þær ekki af verri endanum eins og Risky Business (1983), Top Gun (1986), The Color of Money (1986), Rain Man (1988) og Born on the Fo- urth of July (1989). En það em líka fleiri góðir leikarar sem koma fram í myndinni. Þar má nefna Jeanne Tripplehom í hlutverki eiginkonu Mitch og svo gömlu kempuna Gene Hackman sem fer með hlutverk eins lögfræðingsins. Ef að líkum lætur ætti The Firm að koma í íslensk kvik- myndahús síðar á árinu þegar sum- arsmellir árins fara eitthvað að dala. Á næstunni munu kvikmynda- húsagestir geta séö tvo gamla kunningja, með ný andlit, á hvíta fialdinu. Það em þeir James Bond og Inspector Clouseau eða réttara sagt sonur Clouseau. Eftir fiögurra ára hvíld er von á James Bond aft- ur á hvíta fialdiö. Svissneskt fyrir- tæki, sem keypti fyrirtæki Albert Broccoli, sem hefur haft einkarétt á framleiðslu James Bond mynd- anna, náði loksins samkomulagi viö MGM/UA k vikmyndaveriö eftir langvarandi deilur ura hvort kvik- myndaverið hafi selt sjónvarpsrétt- in að Bond myndunum of lágu verði. En nú er málið leyst og búið að ráða handritahöfunda til aö skrifa handrit að ekki bara 17. myndinni heldur einnig 18. og 19. James Bond myndinni. Sá sem byijaði er sjálfur Michael France, sem skrifaði handritið að Cliff- hanger, og byggir hann söguþráð- inn á sinni eigin hugmynd. Verður þetta fyrsta Bond myndin síðan Licence to Kill var frumsýnd 1989. Til að gera spennuna enn meiri er farið með efnisþráðinn eins og mannsmorð. Engiim fær aö vita neitt. Hver leikur Bond? Það er MGM kvikmyndaverið sem ætlar sér að útvega fiármagn- iö. Hins vegar er aðalvandamáliö hver mun leika James Bond. Tim- othy Dalton hefur leikið Bond í tveimur síöustu myndunum en hann hefur ekki enn gefið svar. Hann hefur aldrei náð til Banda- ríkjamanna með túlkun sinni á James Bond og því hafa tvær síðstu Bond myndimar gengið illa vest- anhafs miðaö við eldri Bond mynd- ir. Mel Gibson hefur einnig veriö oröaður við hlutverkið en ólíkiegt þykir að hann taki það að sér. Framleiðendur eru einnig að leita aö leiksfióra og er talið líklegt að hann verði breskur, jafnvel Micha- el Caton-Jones. Ætlunin er aö hefia tökur strax upp úr áramótum svo myndin ætti að geta orðið sumar- smellur næsta sumars. Bleiki pardusinn Leiksfiórinn Blake Edwards hef- ur ekki að gefist upp á bleika pard- usnum sínum. Síðan hann gerði sína frábæru gamanmynd The Pink Panther áriö 1963 með Peter Sellers í aðalhluverki, hefur hann staðið að baki gerð fiölda mynda um bleika pardusinn sinn eins og The Retum of the Pink Panther, The Pink Panther Strikes again og The Revenge of the Pink Panther svo nokkur dæmi séu tekin. En eft- ir að Peter Sellers dó hefur verið erfitt að finna einhvem til feta í fótspor hans og taka að sér hlut- verk hins óviðjafhanlega Inspector Clouseau. Nú hefur Blake hins veg- ar ákveðið að fara nýja leið og síðar 1 þessum mánuði verður frumsýnd myndin Son of the Pink Panther. Þar er í aðalhluverki gamanleikar- inn Roberto Benigni, sem er einn vinsælasti gamanleikarí ítala ásamt þvi að gera þaö gott á megin- landi Evrópu. Þar sem ekki er búiö að fmmsýna myndina er ekki vitaö um viðbrögð áhorfenda en vonandi tekst Blake Edwards að skemmta áhorfendura þótt þaö veröi aö við- urkennast að hann sé farinn að teygja lopann talsvert. Þaö er Roberto Benigni sem »er með hlutverk sonar Inspector Clouseau.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.