Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1993, Page 29
28 LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993 • LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1993 37 Iinda Magnúsdóttir lenti í alvarlegu mótorhjólaslysi árið 1987: Fóturinn var græddur á hana - hann hékk á einni taug þegar hún kom á Borgarspítalann - nú gengur hún um óhölt, syndir og hjólar Rögnvaldur Þorleifsson bæklunarsérfræðingur: Agræðslur fóta sjaldgæfar - hefur framkvæmt ágræðslur í tólf ár með góðum árangri „Ætli hafi ekki verið framkvæmd- ar tvær tíi þrjár ágræðsluaðgerðir ár hvert síðan 1981 en þá var sú fyrsta framkvæmd sem heppnað- ist. Ég hef tvisvar sinnum grætt á fætur svo tekist hafi. Yfirleitt eru þetta fingraágræðslur," sagði Rögnvaldur Þorleifsson bæklun- arsérfræðingur í samtali við DV. Rögnvaldur segist hafa grætt fót á pilt árið 1985. Síðan árið 1987 gerði hann aðgerð á Lindu en þegar hún kom á spítalann var fótur hennar blóðrásarlaus og dauður, eins og Rögnvaidur nefnir það. - Hvað þarf til að hægt sé að græða fót á aftur eins og í þessu tilfelli? „Maður reynir síður að græða fót á en hendur eða fingur þar sem Rögnvaldur Þorleifsson læknir hefur hjálpað mörgum íslendingum að halda jafnt fingrum sinum, höndum og fótum. Fyrsta ágræðslan, sem Rögnvald- ur framkvæmdi og heppnaðist, var árið 1981 er hann græddi hönd á Ragnhildi Guðmundsdóttur frá Sandgerði. gervifætur duga tiltölulega vel en gervihendur ákaflega illa. Þegar um er aö ræða ungling eða ungt fólk þá freistast maður frekar til að græða á heldur en ef um eldra fólk er að ræða. Það getur verið betra t.d. fyrir erfiðisvinnumann að vera með gervifót heldur en meingallaðan fót þó hann sé lif- andi. Forsendan fyrir því að ráðlegt sé að reyna þetta er annars vegar tiltölulegur ungur aldur og einhver tilfinning. Þó man ég eftir dreng sem hafði enga tilfinningu en hann var að vísu ekki svona illa farinn heldur hafði stíflu í æð. Fóturinn dugði honum síðan vel þó ekki væri tilfinning þannig að varla er til ein regla,“ segir Rögnvaldur. „Fótur Lindu hékk á einni óskemmdri taug og líklega einum bandvef. Það má reyna ágræðslu í slíku tilfelh en þá tekur maður æðar og gerir framhjáhlaup. Það er ekki ósvipaö og gert er í krans- æðastíflu. Það er ekki víst að þetta gangi alltaf en það gerðist þó í þessu tilfelli eftir tvær tilraunir. Það sem mér þótti merkilegt var að hún fékk eðlilega hreyfingu í hnjáliðixm sem var alveg shtinn í sundur. Því reiknaði ég ekki meö. Batinn kemur hins vegar á fyrstu tveimur árunum eða hann kemur afis ekki.“ Rögnvaldur segir að vefirnir verði að lifa til að ágræðslan tak- ist, það er að segja fá næringu frá blóðrás. „Við sköddun herpast æöamar saman og þess vegna blæðir fóUti ekki endfiega út þó það slasist og í annan stað þá myndast storkutappar. Þetta eru vamaglar náttúrunnar," segir sérfræðingur- inn. Það em margir samverkandi þættir sem þarf aö meta þegar ákvörðun er tekin um að græða lim á fólk. Rögnvaldur viU meina að þegar komið er með líkamshluta í boxi sé um ótvíræða ágræðslu að ræða. Ef parturinn hangir á ein- hveiju Uðbandi þá heitir það að endurlífga þó það sé sama verkið. Hann segir að bati Iindu stafi ekki síst af því að hún hafði heUa taug og þar af leiðandi einhverja tilfinn- ingu. Það er forsenda þess að ágræðsla sem þessi geti tekist. „Ég hef náö mér vel andlega eftir slysið og Uturinn á fætinum er að verða eðtilegur. Þetta háir mér því ekki svo mikið lengur," segir Linda Magnúsdóttir, 22ja ára, sem lenti í hörmulegu mótorhjólaslysi í apríl 1987 með þeim afleiðingum að litlu munaði að hún missti annan fótinn. Hægri fóturinn klemmdis milU mót- orhjólsins og brúarhandriðs og hékk aðeins á einni taug þegar að var kom- iö. Það þykir kraftaverki næst að hægt hafi verið að bjarga fæti Lindu og má þakka Rögnvaldi Þorleifssyni, bæklunarsérfræðingi á Borgarspít- alanum, hversu vel tókst til. „Þetta gerðist á Seyðisfirði aðfara- nótt 19. aprU. Ég var að rúnta um bæinn á mótorhjóli og vinur minn, sem átti hjóUð, sat aftan á. Ég var fimmtán ára og hafði hvorki réttindi á hjóUð né var heldur í viðeigandi klæðnaði. Það bjargaði mér þó að ég var með hjálm á höfðinu," segir Linda er hún rifjar upp slysið. Linda er fædd og uppalin á Seyðis- firði. Hún fékk snemma mikla mót- orhjóladellu og hafði alltaf ætlað sér að eignast slíkt hjól. Þetta afdrifaríka kvöld fékk Linda að prófa hjólið. Hún hafði ekið um bæinn og var á leið að brúnni yfir Fjarðará er hún missti vald á hjóhnu með þessum hörmu- legu afleiðingum. Bæði ungmennin slösuðust iUa og voru flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Stöðvaði blóðrennslið Linda segist ekkert muna eftir þessu augnabliki. Hún missti meðvit- und en rankaði þó við sér öðru hverju því hún man eftir fólki í kringum sig. Að sögn móður hennar, Fjólu Aðalsteinsdóttur, kom ungur maður að og brást hárrétt við. „Hann greip um lærið á henni og gat stöðv- að blóðrennsUð. Ég er viss um að þessi piltur bjargaði lífi hennar en hann heitir Einar Harðarson." Félagi Lindu brotnaði iUa og var einnig mikið slasaður. Hann var sendur á Landspítalann en Linda á Borgarspítalann. Fjóla telur það hafa verið slæmt þar sem Linda hefði haft miklar áhyggjur af honum þegar hún vaknaði á gjörgæsludeUd eftir fyrstu aðgerðina. „Það hefði verið betra að þau væru á sama spítalan- um,“ segir hún. Linda var að ljúka tíunda bekk þegar slysið átti sér stað. Sumarfríið fór allt í aö ná bata en hún þurfti að flytjast til Reykjavíkur þar sem of dýrt var að ferðast alltaf á miUi Seyð- isfjarðar og Reykjavíkur. Þar sem Linda var réttindalaus fékk hún eng- ar bætur vegna slyssins. Móðir henn- ar þurfti að dvelja í Reykjavík í nokkra mánuði vegna dótturinnar og hafði slysið því mikU áhrif á fjár- hagsstöðu heimiUsins. „Við erum ekki búin að ná okkur út úr þeim erfiðleikum ennþá," segir Ejóla. „Og munum aldrei gera.“ Góðirvinir Linda segir að vinir hennar og kunningjar hafi sýnt einstakan góð- vUja meðan hún dvaldi á Borgar- spítalanum og mjög margir komu og ars er hún mjög dugleg að hjóla og synda og það veitir henni auðvitað mikla þjálfun," segir Fjóla og Linda bætir við að hún gangi einnig mjög mikið. Þaö vekur athygU að Linda gengur óhölt og ekki er hægt að merkja á henni hið alvarlega slys þegar hún er í síðbuxum. Vinnufélagar söfnuðu fé Þegar ljóst varð að Linda og móðir hennar urðu að dvelja um sumarið í Reykjavík eftir slysið var ekki um annað að ræða en fá leigöa íbúð. Faðir Lindu, Magnús Karlsson, var á sjónum en þijú systkini urðu eftir heima á Seyðisfirði. Systir Lindu, Margrét, sem er ári eldri, varð fyrir miklu áfaUi þar sem þær systur höfðu verið afar samrýmdar. „Það var verst að meðan ég var með Lindu urðu hin börnin útundan, þau vildu gleymast í öUu sjokkinu," segir Fjóla. „Maður má ekki gleyma hinum börnunum efeitt lendir í slysi,“ bæt- ir hún við. Fjóla varð að hætta í vinnunni á þessum tíma og flytja suður. Það kom fjölskyldunni til bjargar að vinnufé- lagar, vinir og kunningjar söfnuðu fé til hjálpar henni. Það varð til þess að Fjóla gat tekið íbúð á leigu. Auk þess gaf afi Lindu henni bíl svo að móðir hennar gæti ekið henni á miUi staða. Annars hefði leigubílakostn- aður orðið þeim ofviða. „Það var með óUkindum hvað aUir voru góðir við okkur. Fólkið á Seyðisfirði var með eindæmum hjálplegt," segir Fjóla. Þegar Linda hafði náð sér vel eftir slysið flutti hún síðan til Reykjavík- ur og hóf störf hjá Sól. „Mig langaði að breyta um umhverfi," segir hún. Síðar fluttu foreldrar hennar til Keflavíkur þar sem þau búa enn en Linda og systir hennar, Margrét, starfa báðar á Seyðisfirði um þessar mundir þannig að þær eru aftur komnar á gamlar slóðir. „Ég kann mjög vel við mig þó ég ætii mér ekki að setjast að þar,“ segir Linda. Hékk á fjallsbrún Mótorhjóladellan er enn fyrir hendi þrátt fyrir hið hörmulega slys. Linda hefur hug á að kaupa sér bif- hjól sem er öllu stærra og kraftmeira en mótorhjól. Hún segist ekki myndi banna unglingi að fara á mótorhjól svo framarlega sem hann væri í rétt- um búningi og hefði próf. „Slysin gera ekki boð á undan sér og það er fyrir öllu að vera ekki réttindalaus,“ segir Linda. Örlögin eru oft undarleg. Þannig varð Linda fyrir því stuttu eftir heim- komuna á Seyðisfjörð eftir slysið að lenda í útafakstri á bfi. „Systir henn- ar bauð henni í bUtúr, keyröi út af og þær systur héngu utan í fjallshlíð. Enginn skUdi hvernig stóð á því að bUlinn fór ekki niður því hann vó salt á brúninni," segir Fjóla. „Það var trUlusjómaður sem var úti á sjó sem sá bílinn á fjaUsbrúninni og lét vita. Ég trúði hvorki inínum eyrum né augum þegar mér var sagt frá þessu," segir hún ennfremur. Systir Lindu afrekaði að skríða út úr bUnum, komast upp á veg og láta vita. Henni var svo mikið um að vera með Lindu í bílnum að hún fékk fjörutíu stiga hita á eftir. „Mér brá rosalega við þetta," segir Linda. „Sérstaklega þeg- ar ég ætlaði að fara út úr búnum en þá byrjaði hann að hreyfast á bjarg- brúninni." Þar fór betur en á horfð- ist. Lítil tilfinning í fætinum í dag hefur Linda bUpróf og ekur sjálf þrátt fyrir að tilfinning sé ekki komin í fótinn að fuUu. „Fyrst fann ég ekki fyrir neinu en tilfinningin er alltaf að aukast í fætinum,“ segir hún. „Þó er tUfinningin svolitið skrít- in - ekki alveg eins og hún á að vera.“ Þegar DV hitti Lindu og móður hennar voru þær að sóla sig við bú- stað einn í Ölfusborgum. Þar voru þær í sumarfru í eina viku ásamt Magnúsi, foður Lindu, og tveimur htlum frændum hennar. „Við mæðg- umar erum mjög samrýmdar og megum varla nokkum tíma sjá hvor af annarri. Verst er að Margrét er ekki líka með okkur,“ segir Fjóla. Þær Linda og Fjóla minnast ársins 1987 með mikiUi skelfingu og segjast ekki vUja upplifa slíkt ár aftur. Fyrst eftir að Linda kom heim af sjúkra- húsinu var móðir hennar alltaf hrædd um að skurðurinn á fætinum myndi opnast og fóturinn færi í sundur aftur. „Maður var alltaf hálf- hræddur að löppin dytti hreinlega af en það var ástæðulaus ótti því sex naglar héldu henni saman." Linda var á Borgarsjúkrahúsinu frá því slysið átti sér stað og fram í byijun júní. Það var hins vegar ekki fyrr en í september sem þær mægður gátu haldið austur á Seyðisfjörð. „Linda er ofboðslega dugleg," segir Fjóla. „Það hefur hjálpað henni mest.“ Boðið í fegurðarsamkeppni Til gamans má geta þess að tvisvar sinnum hefur Lindu verið boðið að taka þátt í fegurðarsamkeppni. Þeir aðilar vissu ekki um slysið og hvern- ig líkami hennar er farinn eftir það. En sannarlega hefur Linda andht til að fara í fegurðarsamkeppni eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Heimabær Lindu, Seyðisfiörður, hefur alloft komist í fréttimar vegna alvarlegra slysa. í maí sl. var grædd- ur fingur á Sigríði Ólafsdóttur sem búsett er á Seyðisfirði. Önnur stúlka missti hönd eftir að hún fór í hakka- vél. „Það hefur geipilega margt leið- inlegt gerst í þessum fallega bæ,“ segir Fíóla. Linda stimdaði íþróttir nokkuð sem bam og unghngur. Aht slíkt lagði hún á hilluna eftir slysiö en hefur nú fuhan hug á að reyna fyrir sér í sportinu. „Ég hætti ekki fyrr en ég get farið að hlaupa," segir hún. „Reyndar hef ég aðeins hlaupið en ég hef ekki stigið á skíði frá því slys- ið varð og það ætla ég mér að gera í vetur," segir Linda Magnúsdóttir. -ELA „Eg er aðeins byrjuð að hlaupa... og ætla á skíði í vetur,“ segir Linda sem tvisvar sinnum hefur fengið boð um að taka þátt í fegurðarsamkeppni. DV-myndir Brynjar Gauti heimsóttu hana. „Þetta var góður tími að því leyti,“ segir hún. „Mér fannst alveg frábært hvað þau vom dugleg að koma suður og heimsækja hana,“ tekur Fjóla undir. Fjóla segir að það hafi verið fyrst og fremst dugnaði Lindu að þakka hversu fljót hún var að ná sér eftir slysið. „Hún var komin í síld í októb- er. Þá var sárið ennþá opið og hólkur hafður utan um það. Linda þurfti að hlaupa annað slagið upp á sjúkrahús til að láta skipta um umbúðir og mætti síðan aftur í frystihúsið," segir Fjóla. „Það þýðir ekkert að gefast upp,“ bætir Linda við „Rögnvaldur ætlaði ekki að trúa okkur þegar við sögðum frá því að hún væri byrjuð að vinna enda hafði hann sagt að hún færi aldrei í frystihús aftur," segir Fjóla. Fór niður í 36 kíló Þegar Linda lenti í slysinu var hún 55 kíló að þyngd. Þegar hún fékk að fara heim af sjúkrahúsinu var hún 36 kíló. Hjúkrunarfólkið hafði áhyggjur af hversu létt hún var orðin og sagði að betra væri fyrir hana að fara heim í mömmumatinn. „Hún átti að fara út í hjólastól en harðneit- aði því. Þá átti hún að fá hækjur en tók það ekki heldur í mál. Hún gat varla haldið sér uppi fyrir mátt- leysi,“ heldur Fjóla áfram og segir það kraftaverki líkast hversu vel gekk. Svæfð í 52 tíma Aðgerðimar, sem Linda gekk í gegnum, vom mjög stórar. Fyrsta aðgerðin tók 14 tíma og önnur 26 tíma. Þá þurfti að færa æðar úr vinstri fæti yfir í þann hægri. Auk þess þurfti að taka vöðva af öðram svæðum til að fylla upp í. Linda gekkst undir þrjár stórar aðgerðir og margar minni meðan hún var á Borgarspítalanum og telst til að lík- lega hafi hún verið 52 tíma í svæf- ingu. Rögnvaldur gaf þeim aldrei von í fyrstu að aðgerðin myndi heppnast. „Hins vegar sagði hjúkrunarkona okkur að ef Rögnvaldur hefði ekki tekið á móti henni þá hefði þessi ágræðsla aldrei verið reynd,“ segir Fjóla. „Læknamir á Seyðisfirði höfðu sagt að hún myndi missa fót- inn.“ Enn eru svæði þau, þar sem vöðvar og skinn var tekið, að jafna sig. Linda hefur stundað ljósaböð undanfarið og hefur það hjálpað til við að ná eðlilegum húðht. Annars hefur fót- urinn t.d. verið mjög blár. Fer ekki í kjól Linda segir að hún hafi ekki áttað sig á fyrst hversu alvarlegt slysið var. „Þegar ég vaknaöi af svæfingu var fóturinn á mér og ég fékk því ekki neitt sérstakt áfall vegna þess. Ég hugsaöi aldrei út í það að ég hefði getað misst hann,“ segir hún. Iinda segir að útlitslega hái fótur- inn henni. Hún segist t.d. aldrei fara í kjól. Fjóla segir að Linda hafi ekki farið í endurhæfingu eftir slysið og því hafi fóturinn verið farinn að stirðna. „Hún dreif sig í þjálfun fyrir stuttu og það gengur mjög vel. Ann- Linda Magnúsdóttir hefur náö sér ótrúlega vel eftir alvarlegt mótorhjólaslys sem hún lenti í árið 1987. Fótur hennar hékk á einni taug neðan við hné en Rögnvald- ur Þorleifsson læknir græddi hann á að nýju. _ Fjóla Aöalsteinsdóttir og Linda dóttir hennar í sólinni í Ölfusborgum í vikunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.