Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1993, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1993, Síða 10
Almenna auglýsingastofan ht. FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993 10 Ökumenn! Minnumst þess að aðstaða barna í umferðinni er allt önnur en fullorðinna! iJUMFERÐAR Heimsþekkt gæöa leikföng í garðinn, sumarhúsið og inná heimilið. Fjölbreytt úrval ávallt fyrirliggjandi. LITTLE TIKES -leikföng sem endast! Faest i naestu \eikfangaverslun_ I. GUÐMUNDSSOIM & Co. hf. UMBOÐS OG HEILOVERSLUN SlMI 91-24020 FAX 91-623145 Útlönd Bankastjórar við Færeyjabanka fara frá: Fjórir ákærðir fyrir fjársvik Tveir bankastjórar við Færeyja- banka sögðu af sér í gær vegna ákæru um að þeir hefðu, í félagi við tvo aðra bankastjóra, svikið fé úr færeyska landskassanum vegna togarasmíði. Ákæran er talin svo al- varleg fyrir álit bankans að þeir ákváðu að fara frá. Ákæra var lögð á hendur mönnun- um fjórum fyrir rúmum mánuði og segir þar að þeir hafi tilkynnt land- stjóminni um eigiö fé sem ekki var tiltækt í tengslum viö smíði tveggja togara. Yfirlýsing mannanna þýddi að skipasmíðarnar voru fjármagnaðar með aöstoö færeyska landskassans. Sú fjármögnun kostaði færeyska skattborgara svo rúma tvo milljarða íslenskra króna þegar upp var staðið. Bankastjóramir tveir, sem nú hafa sagt af sér, em ákærðir fyrir að segja ekki satt um eigið fé vegna byggingar togarans Skálafjalls. Þriöji maður- inn, sem er bankastjóri í Fossbank- anum, htlum færeyskum banka, er ákærður um svik í tengslum við smíði skipsins Heygadrangs, auk svikanna við smíði Skálafjalls. Fjórði maðurinn er fyrrverandi banka- stjóri. Fjórmenningarnir hafa allir lýst yfir sakleysi sínu en yfirheyrslur yfir þeim hefjast í byrjun næsta mánað- ar. Annar bankastjóranna, sem fóru frá í gær, hefur veriö æðsti yfirmað- irn Færeyjabanka frá því í byrjun síð- asta áratugar. Hann hefur tryggt sér starf í Den Danske Bank sem átti meirihluta hlutabréfa í Færeyja- banka þar til nýlega. Hinn banka- stjórinn tekur við starfi deildarstjóra hjá Færeyjabanka. Ritzau Tryggðu þer þennan yndislega félaga strax! Fra leikstjóra „Home Alone' TONELy Nu verður engin einmanna, því hún kemur á allar betri myndbandaleigur í dag, 19. ágúst. Maðurinn. Konan. Móðirín. i Fra leikstjora Jiome AJone Ly Ni SAM THE L0 ELy John Candy bregst aldrei! Maureen O'Hara sér vel uni sína. Það hefur farið fyrir brjóstið á mörgum Þjóðverjum að landi þeirra, fyrirsæt- an Claudia Schiffer, tók tilboði ítalska timaritsins NOI um að koma fram berbrjósta á forsiðu þess. Hún hefur ekki áður sést nakin. Símamynd Reuter RefsaSúdönum meðeinangrun Bandarísk yfirvöld hafa sett Súdan á svartan lista og vonast til að með því takist að einangra landið frá öll- um samskiptum á alþjóðlegum vett- vangi. Þetta er gert til að refsa stjóm Súd- ans fyrir að hafa lagt á ráðin um að sprengja höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York í loft upp í sum- ar ásamt höfuðstöðvum bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, og sam- göngumannvirkjum í New York. Bill Clinton forseti sagði í gær að sannanir gegn Súdönum væm næg- ar og því ekki um aðra kosti að velja en að refsa þeim. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.