Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1993, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1993, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993 Iþróttir Púttmót íKefíavík Á laugardaginn fer fram hið árlega púttmót umboðsskrifstofu Helga Hólm á púttvellinum við Mánaflöt. Mótið hefst klukkan 10 og því lýkur klukkan 19.30. Leiknar verða 36 holur og keppt S eftirfarandi aldursflokkum: 11 ára og yngri, 12-15 ára, 16-35 ára, 36-50 ára, 51-60 ára, 61-70 ára 71-80 ára og 80 ára og eldri. Þátt- tökugjald: 15 ára og yngri krónur 200.16 ára og eldri krónur 400. -GH ífrjálsum Opiö öldungamót í fijálsum íþróttum verður haldið á iþrótta- vellinum í Keflavík á morgun og hefst mótið klukkan 18. Þátttöku- rétt hafa karlar 35 ára og eldri og konur 30 ára og eldri. Keppt verður í langstökki og þrístökki meöatrennu, kúluvarpi, kringlu- kasti, spjótkasti og sleggjukasti. Þátttökugjald er krónur 400 fyrir hvetja grein. -GH Hátíðhjá öldrudum Fimleikasamband íslands stendur fyrir stórri hátíð dagana 19. til 23. ágúst. Þessi hátíð, á ári aldraðra í Evrópu, er mót fyrir 60 ára og eldri og er þetta í annað sinn sem slíkt mót er haldiö hér á landí. Þetta er samnorrænt mót þar sem áhersla er lögð á sam- einginlega menningu norrænna þjóða. Dagskrá verður fjölbreytt mótsdagana, meðal annars leik- fimi og vatnaleikfimi, ratleikir, stöðvaþjálfun og skipulagðar gönguferðir. Göngugarpurinn Stefán Jasonarson endar göngu sína umhverfis landið á morgun og verður tekið á móti honum i Ártúnsbrekku og honum fylgt inn í Laugardalshöll þar sem há- tíðin verður sett klukkan 21. Þar mun Borgarstjórinn í Reykjavík, Markús Örn Antonsson, flytja ávarp og sýndir verða þjóðdansar og fimleikar auk fleiri skemmti- atriða. -GH VÍS-mótið í handknattleik Fyrsta handknattleiksmót keppnistímabilsins, VÍS-mótið, fer fram dagana 20.-22. ágúst í mótinu taka þátt þau fjögur liö sem irnnu sér rétt til þátttöku í Evrópukeppni félagsliöa. Til- gangur mótsins er að gefa liöun- um tækifæri til leikþjálfunar áð- ur en alvaran hefst en 1. umferð Evrópukeppnina fer fram 26. september og 3. október. Sam- hliöa mótinu fer fram haustfund- ur dómara þar sem meðal annars verða kynntar alþjóölegar breyt- ingar á leikreglum. Þjálfurum 1. deildar félaga karla og kvenna er boðin þátttaka í fundinum. VÍS- mótiö fer fram í íþróttahúsínu við Austurbeig og er aðgangur ókeypis. A föstudag klukkan 19 leika Valur-Selfoss og strax á eft- ir FH-ÍR. Á laugardag klúkkan 14 leika Selfoss-ÍR og strax á eftir FH-Valur og á sunnudag klukkan 14 leika klukkan 14 ÍR-Valur og klukkan 15.15 FH-Selfoss. KR-ingarmeð körfuboltaskóla KR-ingar gangast fyrir körfu- boltaskóla dagana 23.-31. ágúst nk. í íþróttahúsi sínu. Skólinn er jafnt ætlaöur drengjum og stúlk- um og áhugasamir byrjendur eru sérstaklega hvattir til aö mæta. Umsjón með skólanum hafa Dr. Laszlo Nemcth og Stefán Amar- son. Upplýsingar veita Óskar í s. 620145 og Benedikt í s. 28628. -GH Enska knattspyman 1 gærkvöldi: Meistararnir á f leygiferð - Man. Utd vann 3-0 sigur gegn Sheff. Utd Nýi leikmaðurinn í hði ensku meistaranna, Manchester United, Ron Keane, var heldur betur í sviðs- ljósinu í gærkvöldi þegar hann og félagar hans í United léku fyrsta hei- maleik sinn á sparktíðinni í ensku knattspyrnunni. Keane skoraði tví- vegis í ömggum sigri meistaranna á Sheffield United, liði sem Man. Utd hefur átt í erfiðleikum með ein- hverra hluta vegna. Og Man. Utd er á sama stað á stigatöflunni og í lok tímabilsins í fyrra, á toppnum með 6 stig og betra markahlutfall en Li- verpool, Coventry, Everton og Ipswich. Keane var keyptur í sumar frá Nottingham Forest fyrir 3,75 milljón- ir punda og þessi efnilegi miðjumað- ur, af mörgum tahnn sá efnilegasti í ensku knattspymunni í dag, sýndi það í gærkvöldi að hann verður Un- ited mikils virði í komandi titilvörn. Keane skoraði bæði mörk sín í fyrri hálfleik en Mark Hughes skoraði þriðja markið á 85. mínútu. Áhorf- endur vom tæplega 42 þúsund á Old Trafford í gærkvöldi og þeim fækkar örugglega ekki á næstu heimaleikj- um hðsins eftir frammistöðuna í gærkvöldi. Liverpool vann öruggan útisigur gegn QPR á Loftus Road, 1-3. Ian Rush skoraði fyrsta markið fyrir Li- verpool á 18. mínútu en gamla brýn- ið Ray Wilkins jafnaði metin sex mínútum síðar. Leikmenn Liverpool efldust við mótlætið og skoruðu tví- vegis á þremur mínútum. Fyrst Steve Nicol á 38. mínútu og síðan Nigel Clough á 41. mínútu. Áhorfendur 19.635. Norwich vann frekar óvæntan úti- sigur gegn Blackbum Rovers, 2-3. Vamarmaðurinn Mark Atkins náði forystunni fyrir Blackbum á 7. mín- útu en Chris Sutton jafnaði metin á síðustu mínútu fyrri hálfleiks. Wilcox náði forystunni aftur fyrir Blackburn á 54. mínútu en Rob New- man jafnaði aftur metin á 63. mínútu fyrir Norwich og þaö var svo Chris Sutton sem skoraði sigurmarkið tveimur mínútum síðar. Áhorfendur 14.236. Coventry sigraði Newcastle á heimavehi, 2-1, og ekkert gengur hjá Kevin Keegan og lærisveinum hans. Leikmenn Coventry skomðu öh mörk leiksins, Peter Atherton sjálfs- mark á 22. mínútu, Peter Ndlovu á 58. mínútu og Mick Harford á 85. minútu. Áhorfendur 15.760. Mark- vörður Newcastle, Pavel Smicek, var rekinn út af fyrir gróft brot en Mick Quinn, sem skoraði þrennu fyrir Coventry í fyrstu umferðinni, mis- notaði vítaspyrnuna gegn sínum gömlu félögum. Stórleikur var á dagskránni í gær- kvöldi að margra mati er Sheffield Wednesday og Aston Viha gerðu jafntefli án marka að viðstöddum 28.450 áhorfendum. Loks vann Oldham útisigur gegn Swindon. Paul Bernard skoraði eina mark leiksins á 89.-mínútu. í 1. deild gerðu Nottingham Forest og Derby County 1-1 j afntefh og eftir- taldir leikir fóru fram í fyrstu umferð enska dehdabikarsins í gærkvöldi: Bristol Rovers - WBA.........1-4 Reading - Northampton........3-0 Southend - Bamet.............0-2 Stoke - Mansfield............2-2 Þetta voru fyrri leikimir og West Bromwich Albion, Reading og Bar- net virðast hafa tryggt sig langleiðina í 2. umferð. Andy Hunt skoraði þrjú afmörkumWBAíBristol. -SK sagði Kristmn Bjömsson, þjálfari Vals „Eg er miög sáttur við þessi úr- slit og heföi raunar verið ánægður fyrirfram með eins marks sigur. Viö vorum heppnir fyrir framan markið og út á þaö gengur þetta. Þeir komu mér að vissu leyti á óvart með góöum leik í fyrri hálf- leik. Við erum þó engan veginn öruggir áfram én munum gera okk- ar besta í seinni leiknum, Við mun- um leika af varfærni úti en samt ekki of aftarlega en við fáum Sævar aftur inn og það ætti að styrkja lið- ið,“ sagði Kristinn Bjömsson, þjálf- ari Valsmanna, eflir leikinn í gær- kvöldi. -RR Borgarstjórinn i Reykjavík, Markús Örn Antonsson, tekur hér á móti fyrsta maraþonbolnum í tilefni þess að Reykjavíkur-Maraþon fer fram i tíunda skipti nk. sunnudag. Með honum á myndinni eru örn Eiðsson, lengst til vintri, en hann var formaður Frjálsíþróttasambands íslands áriö 1983 þeg- ar ákvörðun var tekin um að halda alþjóðlegt maraþonhlaup á íslandi í fyrsta skipti. Þriðji maðurinn á myndinni er Knutur Óskarsson, fyrir miðju, en hann hefur verið formaður Reykjavíkur-Maraþons frá upphafi. DV-mynd Ragnar Valur með < Valsmenn eru komnir með annan fótinn í 1. umferð Evrópukeppni bikar- hafa eftir 3-1 sigur á finnska hðinu Mypa 47 í Laugardalnum í gærkvöldi. Leikurinn var hður í forkeppni Evrópu- bikarkeppninnar og ef Valsmenn verða ekki fyrir stórslysi í Finnlandi eftir tvær vikur ætti leiðin að vera nokkuð greið í 1. umferð þar sem mótherjarnir verða Aberdeen. Það er þó kannski snemmt að vera með mikla bjartsýni og fyrri hálfleikur- inn í leik hðanna gaf heldur ekki tilefni tíl þess. Valsmenn voru hreinlega á hælunum og finnska hðið var mun - eför 3-1 sigur á fin sterkara. Finnarnir náðu forystunni sanngjamt á 34. mínútu þegar vörn Valsmanna var illa á verði og Marko Rajamaki skoraði auðveldlega af stuttu færi. Aht annaö var að sjá th Valsmanna í seinni hálfleik og það var nánast eins og nýtt hð kæmi þá inn á. Valsmenn náðu að jafna á 53. mínútu og á Ant- hony ahan heiðurinn af markinu. Hann fékk boltann í vonlítilli stöðu, einn gegn þremur vamarmönnum Finna, en náði af harðfylgi th boltans og skoraði glæsi- lega. Anthony var aftur á ferðinni 5 mínútum síðar þegar hann fylgdi vel Áhuginn eykst jafntogþétt - aðeins jgórir dagar í Reykjavikur-Maraþon Nú em ekki nema fjórir dagar þar th Reykjavíkur-Maraþoniö verður haldið á götum höfuðborgarinnar og er það í 10. sinn sem það fer fram. Áhugi á hlaupinu hefur vaxið jafnt og þétt með hveiju árinu og í ár er búist við metþátttöku. Nokkrar breytingar verða nú á Reykjavíkur- Maraþoninu. í stað 7 km skemmti- skokks verður boðið upp á 3 km skemmtiskokk og þá verður bætt við keppni í 10 km hlaupi. Þá hefst hlaup- ið fyrr en áður. Keppni í maraþoni, hálfmaraþoni og 10 km hefst í Lækj- argötu klukkan 11 og fimm mínútum síðar verða keppendur í skemmti- skokkinu ræstir. Skráningu lýkur í dag Skráningu í Reykjavíkur-Maraþoniö lýkur í dag. Hægt er að skrá sig í anddyri íþróttamiðstöðvar ÍSÍ í Laugardal th klukkan 17 og til klukk- an 19 í Frísporti, Laugavegi 6, Kringlusporti í Borgarkringlunni, Hótel Eddu á Akureyri, Nesjaskóla við Höfn, Vesturferðum á ísafirði og hjá umboðsskrifstofu Helga Hólm í Keflavík. Sigurvegarinn í maraþonhlaupinu í fyrra varð Iewon Elhs frá Wales og hann verður einnig á meðal kepp- enda á sunnudag. Búist er við því að hann fái harða keppni frá Hollend- ignum Aart Stigter og Litháanum Ceslovas Kundrotas. Þá verður eflaust hörð keppni í maraþonhlaupi kvenna en þar mæta fjórar þekktar hlaupakonur th leiks. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.